Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 22
KROSSGATA Nr. 590 BRIDGE Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á gða öfugt. 1 7 22SZS 2 2L i(* 2 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgátanr. 590“. Skilafresturerþrjárvikur. Verðlaunin verða send tii vinningshafa. Vegna eindreginna óska fjölmargra krossgátuunnenda hefur verið ákveðið að framlengja skilafrestinn í þrjár vikur eins og var forðum. Því verður ekki tilkynnt um verðlaun fyrir krossgátu nr. 588 fyrr en um næstu helgi. Verðlaunin fyrir þessa krossgátu er bókin „Konur fyrir rétti” eftir Jón Óskar. Þar segir höfundur frá átta dómsmálum á nítjándu öld og lætur sér einkum annt um þær konur sem ákærðar voru fyrir að hafa borið út börn sín. Út- gefandi er Almenna bókafé- lagið. Málefnin gikta Landsbikarkeppnin, sömu spil um land allt, var spiluð í þessari viku víða um landið. Misfjöl- mennt var í þessari keppni, eins og gengur. Slakasta þátttakan var nokkuð örugglega í Reykjavík, og þá sérstaklega í Sigtúni (í Breiðholti mættu 24 pör til leiks, sem sennilega er ein mesta þátt- takan á landinu) en þar mættu aðeins 10 pör til leiks. Skýringin á lélegri aðsókn „betri“ paranna í Reykjavík er trúlega sú að þeir telja sig eiga iitla sem enga mögu- leika á sigri með því fyrirkomu- lagi sem stuðst er við. Og hafa nokkuð til síns máls. Eða hvort er betra að spila í Reykjavík fyrir þokkalega góða spilara eða í Súð- vík? Undirritaður veldi síðari kostinn, ef um það væri að velja. En málið er ekki svo einfalt. Landsbikarkeppnin er fyrst og fremst hugsuð sem stuðningur við húsakaupasjóð BSÍ sem hefur ekki staðið burðuglega að undan- förnu. Sem slíkri var henni hleypt af stokkunum á síðasta ári og þá voru undirtektir með miklum ágætum. Hátt í 300 pör kepptu þá í nær öllum félögum innan BSÍ og sjóðurinn dafnaði vel. Með þessu hugarfari og almennum stuðningi áhugafólks um framgang bridge í landinu á þessi keppni rétt á sér. Þó ætti eitthvað að breyta fyrir- komulaginu og sú hugmynd sem skotið hefur upp kollinum, að þessi keppni verði eins konar úr- tökumót fyrir sjálf úrslitin (t.d. 16 efstu pörin kepptu til úrslita á einum stað) er ekki sú versta. Opna stórmótinu sem Bridgefé- lagið Muninn í Sandgerði gengst fyrir laugardaginn 14. nóvember nk. Skráð er hjá BSÍ. Bridgefélag V-Húnvetninga á Hvammstanga stendur fyrir 32 para Guðmundarmóti laugardag- inn 7. nóvember. Þann dag lýkur einnig Austurlandsmótinu í tví- menning, sem spilað verður á Eg- ilsstöðum. 36 pör keppa þar en nv. meistarar á því svæðinu eru þeir Kristján Kristjánsson og Jó- hann Þorsteinsson frá BRE. ÓLAFUR LÁRUSSON Skráning í Reykjavíkurbikar- keppnina í sveitakeppni rennur út um mánaðamótin. Keppnis- gjald er aðeins kr. 2.000 pr. sveit. Skráð er hjá BSÍ og Kristjáni Blöndal á kvöldin. Opna minningarmótið um Ein- ar Þorfinnsson er spilað á Selfossi í dag. 36 pör taka þátt í mótinu sem er barometer með 3 spilum milli para, alls 70 spil. Þau félög sem hug hafa á að verða sér úti um nýju skortöfl- una, sem stungið er í hvert sagna- box, eru beðin um að hafa sam- band við skrifstofu BSÍ. Stykkið er selt á 25 kr. Sent í póstkröfu. Og af heimsmeistaramótinu bárust þær fregnir í vikunni að Bandaríkjamenn og Bretar spil- uðu til úrslita. Þeir síðarnefndu lögðu Evrópumeistara Svía nokkuð örugglega að velli og Bandaríkjamenn „gengu” yfir Formósubúa. Umsjónarmaður spáir því að hákarlarnir frá USA gleypi hornsílin frá ríki Elísabet- ar og Margrétar og í framhaldi af þeim sigri, að þeir sjái sér fært að sækja okkur heim á næstu Bridgehátíð, sem verður spiluð um aðra helgi í febrúar ’88. Af öðrum hugsanlegum gest- um á hátíðina hafa verið nefndir Svíar (nv. Evrópumeistarar) og að sjálfsögðu íslandsvinurinn Zia Mahmood. Nokkur sæti eru enn laus í Ársþing BSÍ verður haldið í Sigtúni 9, næsta Iaugardag og hefst kl. 10 árdegis. Félögin eru minnt á að greiða árgjöld fyrir þann tíma. AMNESTYVIKA 1987 SUÐUR-KOREA Shoh Sung og Soh Joon-Shik Soh Sung og Soh Joon-Shik eru bræður. ÞeirbjugguáðuríJapan en voru við nám við Seoul há- skóla í Kóreu, þegar þeir voru handteknir og dæmdir fyrir njósn- ir fyrir Norður-Kóreu og fyrir að hafa hvatt til mótmælaaðgerða gegn stjórnvöldum að undirlagi Norður Kóreustjórnar. Amnesty International telur að þeir hafi verið handteknirfyrirþátttöku í friðsamlegum stúdentamót- mælaaðgerðum sem beindust gegn framkvæmd forsetakosn- inganna 1971 og eins vegna áhuga þeirra á málefnum Norður-Kóreu. Þeirviðurkenndu að hafa ferðast til Norður-Kóreu og gerðu þá grein fyrir erindi sínu að þeir væru af annarri kynslóð Kóreumanna í Japan, sem vildu gera sér grein fyrir þjóðerni sínu og hefðu af þeim ástæðum bæði áhuga á málefnum Norður- og Suður-Kóreu. Að dómi Amnesty , International eru þær upplýsing- ar sem fram komu í málinu ekki nægartilsakfellingar fyrir njósnir. Soh Sung er 42 ára gamall nemi til meistaragráðu í félags- fræðum. Hann var upphaflega dæmdur til dauða, en dómurinn var mildaður í lífstíðarrefsivist með áfrýjun. Soh Joon-Shik er 39 ára gamall laganemi. Hann fékk 7 ára dóm. Hann hafði afplánað dóminn 1978 en hefur setið áfram í haldi samkvæmt heimild í neyðarlögum, þar sem hann neitaði að skrifa undir yfirlýsingu um að hann hefði snúist til „and- kommúnisma". Við réttarhöldin sagði Soh Sung að hann hefði sætt pynting- um í yfirheyrslum og að alvarleg brunasár, sem hann bar á andliti og höndum, væru afleiðing sjálfs- morðstilraunar, sem hann hefði gert til að forða sér frá frekari misþyrmingum. Sagt er að hann hafði skrifað undir játningu með- an hann var að ná sér á spítala eftir sjálfsmorðstilraunina og gert það með „táfari“ stórutáar. I nóvember 1972 staðfesti Soh Sung við sendimann Amnesty International, sem var viðstadd- ur réttarhöldin, að hann hefði verið pyntaður. Dómstólarnír tóku játningu Soh Sung sem gild aðalsönnunargögn gegn honum, enda þótt ekkert benti til þess að dómsrannsókn hefði beinst að því að ganga úr skugga um rétt- mæti hennar. Soh Joon-Shik hefur margoft kært yfir því að hann er þannig stöðugt hafður í haldi án þess að hafa verið borinn sökum eða leiddur fyrir dóm. Dómsmála- ráðuneytið réttlætir haldið á þeim forsendum, að ef hann verði látinn laus, sé líklegt að hann brjóti af sér líkt og fyrr. Soh Joon-Shik hóf hungurverkfall 3. mars 1987 til að mótmæla varð- haldinu en rauf það 22. apríl sl. Soh Sung er haldið í Taejon fangelsinu; Soh Joon-Shik er haldið í Chongju varðhaldsfang- elsinu. Amnesty International hefur tekið upp mál þeirra sem samviskufanga. Vinsamlegast sendið kurteis- legt bréf og biðjið um að Soh Sung og Soh Joon-Shik verði skil- yrðislaust látnir lausir og án tafar. Iláttvirlur dómsmálaráöhcrra, Ðræöurnir SOII SUNG og SOII JOON-SIIIK, háskólancmar i rclagsssfræöum og lógum viö Kikisháskólann i Scúl. voru handlcknir áriö 1971 cftir aö þcir lióföu tckiö þátt i friösam- Icgri mólmælagöngu. Þcir voru ákærðir fyrir njósnir I þágu Noröur-Kórcu. Soh Sung var i fyrstu dæmdur til dauöa cn þcim dómi siðar brcytt i lifstiöarfangclsi. Taliö cr aö hann hafi vcriö pyntaöur viö yfirhcyrslur. Soh Joon-Shik var dæmdur til 7 ára fangclsisvistar cn hcíur ckki vcriö látinn laus cnn. Aö áliti Amncsly Intcrnational var aldrci sannaö fyrir rótli aö mcintar njósnir bræðranna ættu viö rðk aö slyðjast Fangclsun þcirra brýlur i bága viö alþjóölcga mannrcttinda- sálmála. scm tryggja ciga tjáningarfrclsi. I-g fcr cindrcgiö írara a aö brzöurnir vcröi nú þcgar lálnir lausir og án allra skilyröa. VIRD1NGARF7LLST. YOUR EXCOLLENCY. SIIOII SUNG and SOH JOON-SIIIK. two brothcrs. studcnts of sociology and law at thc Scoul National Univcrsily wcrc arrcstcd in 1971 aftcr participaling in a pcaccful studcnt- dcmonstration and convictcd oí spying for North-Korca. Soh Sung was initially scnlcnccd lo dcalh but commutcd to lifc imprisonracnl Soh Joon-Shik was givcn scvcn ycars scntcncc but is still in custody. Soh Sung is bclicvcd lo havc bccn lorturcd during inlcrrogalion. In Amncsty Inlcrnalionars vicw. the chargcs of cspionagc wcrc not subslantiatcd in court. Thcir imprisonmcnt is a violalion of human rights agrccmcnls which cnsurc Ihc right oí írccdom of cxprcssion. Rcspcctfully Yours, Sendið bréfið til; His Excellency Chung Hae-chang Ministry of Justice 1 Chungang-dong Kwachon-myon Shihung-gun Kyonggi Province Republic of Korea 22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.