Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 21
• « o . «■« • ® a » £ • ■* § ° «» 1/iÍIuaaua. Verðgildi í peningum Tökum dæmi um þessa taxta: Rithöfundur ver einu ári til að semja útvarpsleikrit. Þetta er af- kastamikill maður og hann semur þrjú klukkutíma löng leikrit. Tvö þeirra eru keypt til flutnings en hinu þriðja er hafnað af því að það þykir ekki nógu gott, svo að höfundur fær að sjálfsögðu ekki greitt fyrir það. Fyrir hvort þeirra leikrita sem flutt eru fær hann 84.926 krónur og 85 aura. Fyrir eins árs vinnu fær hann því samtals 169.853.70 eða 14.154.50 á mánuði. Þetta er hið peningalega verð- gildi bókmenntanna í Ríkisút- varpinu. Rithöfundur semur skáldsögu til flutnings í útvarpi. Hún er álíka löng og Bör Börsson, eða 19 lestrar samtals og um 20 mínútur hver lestur. Nú er höfundurinn bæði óðamála og skrækróma, svo að ekki er talið heppilegt að hann flytji verkið sjálfur, þannig að hann fær ekki greitt fyrir flutning- inn. Laun fyrir þá eins árs vinnu sem hann hefur lagt í skáldsög- una yrðu því 173.508 krónur eða 14.459 krónur á mánuði. Nú skulum við segja að þessi rithöfundur sé svo heppinn að vera kvæntur raddfagurri leik- konu, sem tekur að sér að lesa söguna: Fyrir upplesturinn fær hún 40.869 krónur og 57 aura. Þetta eru launakjör rithöfunda í útvarpi. Tæpar fimmtán þúsund krónur á mánuði fyrir að skrifa bækur og leikrit. Lætur nokkur önnur stétt á landinu bjóða sér viðlíka launakjör? En svo að allrar sanngirni sé gætt þá má geta þess að með miklum afköstum geta rithöfund- ar náð hærri mánaðarlaunum við útvarpið - í skorpum. Tökum sjálfan migsem dæmi. Um þessar mundir flyt ég 20 mínútur af frumsömdu efni í útvarpið á viku. Fyrir að semja þetta fæ ég greitt eftir á um hver mánaðamót, 9132 krónur fyrir hvern þátt og 2351 krónu og 3 aura fyrir að flytja hann. Þessum þáttum get ég haldið úti í þrjá til fjóra mánuði á ári, því að ég fæ einfaldlega ekki nógu mikið af góðum hugmynd- um til að geta haldið lengur áfram. Ef ég held út í þrj á mánuði þá fæ ég samtals fyrir að flytja þættina 148.131 krónu og 8 aura. Á ársgrundvelli eru það 12.344 krónur og 25 aurar fyrir að frum- semja efni handa útvarpinu sem mundi nægja í snotra bók. Gengishœkkun Það er náttúrlega ekkert vit í þessu. En þetta er sjálfsagt ekki Ríkisútvarpinu að kenna. Ef rit- höfundar eru svo miklir blómálf- ar í peningamálum að þeir séu reiðubúnir að semja um það við Ríkisútvarpið að fá innan við 15.000 krónur á mánuði í laun fyrir að semja handa því bók- menntir, þá er náttúrlega freistingin mikil fyrir samninga- menn Ríkisútvarpsins að ganga að slíkum vildarkjörum, því að auðvitað er Ríkisútvarpið ekki of vel haldið fjárhagslega. Og úr því að rithöfundar sjálfir eru reiðubúnir að meta sjálfa sig og framleiðslu sína svona ódýrt, þá er sennilega ekki heldur hægt að ætlast til þess að útarpsstöðv- arnar beri mikla virðingu fyrir rit- höfundum og bókmenntum. Er ekki korninn tími til að lag- færa þetta? Þarf ekki að fara að hækka gengið á bókmenntunum? Að lokum þetta: í upphafi máls míns rifjaði ég upp frægar útvarpsdagskrár um Bör Börsson og Innrásina frá Mars til að rök- styðja þá skoðun mfna að ekkert útvarpsefni taki bókmenntum fram. Þess vegna þarf útvarp sem vill flytja góða dagskrá á bók- menntum að halda. Útvarpið er fyrst og fremst miðill mannsraddarinnar og eini fjölmiðillinn sem gæddur er þeirri guðdómlegu náttúru að geta verið alls staðar nálægur. Á þeim töfrum þurfa bók- menntirnar að halda. Rithöfundar og útvarpsfólk eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta og ættu því að stefna sam- eiginlega að því að hefja bók- menntir í útvarpi til vegs og virð- ingar. Skuggalegri hagsmunafélög en það hafa verið stofnuð í þessu landi. LÖGREGLUSTJÓRINN í REYKJAVÍK Hverflsgötu 115 - Sími 10200 Auglýsing um skoðun ökutækja í Reykjavík Talsvert hefur borið á því að kaupendur vélknú- inna ökutækja hafi vanrækt að tilkynna eigenda- skipti og að láta umskrá ökutækin. Lögreglustjór- inn í Reykjavík hefur því ákveðið, með tilvísun til ákvæða laga nr. 40/68,14. og 19. gr., að eftirtalin ökutæki, sem vanrækt hefur verið að tilkynna eigandaskipti og umskráningu á, skuli færð til skoðunar í Bifreiðaeftirlit ríkisins dagana 26. til 30. okt. n.k. Núverandi eigendur þessara ökutækja geta sparað sér óþægindi með því að færa þau til skoðunar á þessum tíma, því ella verða skráning- arnúmerin tekin af ökutækjunum hvar sem til þeirra næst. Við skoðunina þarf að ganga frá málum varðandi umskráningu og tilkynningu á eigandaskiptum samkv. fyrrgreindum ákvæðum. ökutæki, sem þegar hafa verið skoðuð fyrir árið 1987, en eru á meðfylgjandi iista, þurfa að færast til skoðunar af sömu ástæðu. Skoðun fer fram virka daga aðra en laugar- daga frá kl. 08.00 til 15.00 hjá Bifreiðaeftirliti ríkis- ins, Bíldshöfða 8, Reykjavík. Við skoðunina skulu ökumenn leggja fram gild ökuskírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og vpttorð um að vá- trygging ökutækisins sé í gildi. ( skráningarskír- teini skal vera áritun um að aðalljós bifreiða hafi verið stillt eftir 31. júlí 1987. A-02287 M-00788 R-23372 R-48546 X-01566 A-03885 M-02593 R-24175 R-49483 X-01615 A-04131 M-03146 R-24592 R-49662 X-02438 A-04346 Ö-01439 R-24706 R-49772 X-02803 A-06618 Ö-01483 R-25387 R-50047 X-02991 A-07808 Ö-01866 R-25511 R-50271 X-03116 A-09953 Ö-02276 R-25659 R-50360 X-03224 B-00801 Ö-04387 R-26456 R-50464 X-04359 D-00154 Ö-04422 R-26768 R-50592 X-04857 D-00868 Ö-05269 R-26782 R-51130 X-05730 E-00741 Ö-05376 R-28132 R-52089 X-05832 E-01185 Ö-05781 R-29126 R-52382 Y-00412 E-02820 Ö-05962 R-29372 R-54035 Y-02051 E-02873 Ö-06097 R-29607 R-54230 Y-02561 E-03330 Ö-07652 R-29617 R-54925 Y-02667 G-01173 Ö-08339 R-30164 R-56012 Y-03288 G-01644 Ö-10106 R-31351 R-57252 Y-04193 G-05731 Ö-4928 R-31770 R-57605 Y-04430 G-06085 P-00628 R-34167 R-58013 Y-04473 G-06886 R-01838 R-34516 R-59018 Y-04929 G-08362 R-03367 R-34862 R-59070 Y-05030 G-09455 R-05044 R-35726 R-60513 Y-05280 G-12236 R-06272 R-35826 R-61063 Y-05297 G-12362 R-09485 R-36158 R-62331 Y-05708 G-12409 R-12078 R-36634 R-63187 Y-09160 G-13633 R-12241 R-36756 R-63970 Y-13537 G-15770 R-13095 R-36929 R-65405 Y-14254 G-16921 R-13219 R-37354 R-65569 Y-14355 G-17543 R-13546 R-37563 R-66215 Y-14773 G-18441 R-14236 R-37780 R-66346 Y-14778 G-21636 R-14330 R-38238 R-66513 Y-15668 G-22761 R-14833 R-39828 R-67061 Y-15847 G-23912 R-15212 R-38598 R-67314 Y-16195 H-00419 R-16143 R-38651 R-67870 Z-02119 H-01189 R-16334 R-39164 R-68734 Z-02239 H-02162 R-17122 R-39215 R-68917 Þ-02342 H-02396 R-17804 R-40216 R-69157 Þ-03374 H-03599 R-18187 R-40641 R-69497 Þ-04393 1-01438 R-18441 R-40647 R-70107 Þ-0847 1-01882 R-18655 R-41315 R-70188 I-02440 R-18754 R-41805 R-70251 1-02613 R-18766 R-42513 R-71692 I-02730 R-18822 R-42522 S-00259 1-04188 R-18920 R-43490 S-01816 K-01951 R-19224 R-43571 U-01710 L-00474 R-19670 R-44657 V-00127 L-00753 R-20323 R-45557 V-01657 L-02244 R-22237 R-45562 X-00350 L-02410 R-22491 R-46023 X-01162 L-02500 R-23058 R-46326 X-01435 Lögreglustjórinn í Reykjavík 21. október 1987 Böðvar Bragason Afleysingastarf Á dagheimilið Efrihlíð við Stigahlíð vantar starfs- mann í afleysingar. Upplýsingar gefur forstöðu- maður heimilisins og umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. Sunnudagur 25. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.