Þjóðviljinn - 25.10.1987, Síða 9

Þjóðviljinn - 25.10.1987, Síða 9
3 ** 'aaimsh cJagerA * \ ^ULaÁi ^"•‘^Nori,lrlílnd Hrafnkell A. Jónsson: A mér þann draum að sjá sem flesta launþega í einum og sömu heildarsamtökum í______ fcynm meöa að bjc aukSI sem rá 'vort . v' ■ aö unnú ínkcll s 6g að gi á Ver» >ðnuðu jai. Wr um árið, 1 þessar umræðin Póra Hjaltadóttir, fórmaðurAlþyðusaml Breytingar á skipulagi verkalyðshreyfin kvœmilegar ÁSÍ verði byggt upp a starj erkalýtJshreyflngln er komin 1 lyktaC um ddpulagsmil verka- M *>"• .11® .n ba„ds Norðurlands legðt ein- dregið tU að breytingar & slapu- lari Alþýðusambands Islands nSlu fram að ganga á næsta þingi ASÍ, sem haldið verður að án. -- Það bendrr flest-til þess að hliðstæðar breytingar nái fram að eanga ínnan Verkamannasam- bandsins á þingi þess um næstr mánaðamót og það er vel. En vi< teljum að þær breytingar erna sír dugj skammt ef sktpulagi AS verður ekki einnig breytt, sagc skipulag ASÍ verðl teki® iil Eagngerrar endurskoðunar og byggt upp me» starfsgreinasmn- böndum, sem aftur verðl grund- vöiiuð ’á ítarfsgreinafélögum eöa deildarsklptum -verkalýCsft- lögum þar sem vi® á, * . mimdstö«um,sagSiÞöraHjalta- dóttir, formaCur’ Alþýðtaam- bands NorCurtands, en á þingí sombandsins um helgina var á- tki' og ; ddtna l stæð- * tr Þarf ýj'u. gai Hr f*öa- ÞorirDamelsson: Skipulagsbreytingar Verkamannasam- bandsins skref iátt- inaaðallsherjar skipulagsbreytingu launþegahreyfingar- “ verkali lna akveð angreind ^arinnar. bí ad gan; ln,ngarstr . hreyfíng tði' að najj taW ákv; e*' -JUl t < f,ingt'B *■ ðefði H la ad be«„ «« Ottóavín.l 'sféSé i ein ■ - Helgi Guðmundsson: Alþýðusambandið þarf að breyta si nu skipulagi fyrst áður en samruni ASÍ og BSRB verður raunhæfur möguleiki \ X-'Vj/ aldrei verið stigið til fulls, sagði Helgi. Kostirnir fleiri en gallarnir - Það er engin spurning um það í mínum huga að kostirnir við atvinnugreinaskipulagið eru miklu fleiri heldur en ókostirnir. Ég er sannfærður um að hreyfing- in yrði mikið sterkari og félögin gætu sinnt sínum félagsmönnum miklu betur en þau gera í dag, sagði Helgi Guðmundsson. - í rauninni er það tóm vitleysa að menn sem vinna á sama vinnu- stað og í sömu atvinnugrein skuli vera í mörgum stéttarfélögum. Svo við tökum byggingarmenn sem dæmi, þá er aldeilis augljóst að ófaglærðir í greininni eiga miklu meiri samleið með fag- lærðum byggingarmönnum en óf- aglærðu verkafólki í alls óskyldri atvinnugrein, sagði Þórir Daní- elsson. Helgi og Þórir bentu á samn- inga starfsmanna í ríkisverk- smiðjunum og hjá Álfélaginu, sem dæmi um velhepnað sam- starf ólíkra starfshópa innan sömu atvinnugreinar. Undanfar- in ár hafa þessir hópar gert samn- inga fyrir alla starfsmenn, óháð því hvaða faglega menntun þeir hafa og í hvaða stéttarfélagi þeir eru. VMSÍ ríður ó vaðið Þing Verkamannasambands- ins, sem haldið verður á Akureyri um næstu helgi, mun að verulegu leyti snúast um skipulagsmálin. Víst er að á þinginu á Akureyri verður sjálfsskoðun höfð í háveg- um, en fyrir þinginu liggja til- lögur að deildarskiptingu sam- bandsins eftir starfsgreinum. Tillögurnar gera ráð fyrir að sambandinu verði skipt upp í þrjár deildir, deild fiskverka- fólks, starfsfólks í bygginga- og mnannvirkjagerð og verka- manna í þjónustu hins opinbera. Að sögn Þóris Daníelssonar, eru tillögur um skipulagsbreyt- ingarnar ekki síst tilkomnar vegna þeirrar óánægju sem að undanförnu hefur gert vart við sig á meðal fiskverkafólks um að það hafi borið skarðan hlut frá borði í kjarasamningum. - Ég á ekki von á öðru en að þessar tillögur nái fram að ganga. Þær hafa verið kynntar félags- mönnum um allt land. í raun og veru stóðu menn frammi fyrir tveimur valkostum. Annars veg- ar því að fiskverkafólk stofnaði sérstakt samband og hins vegar að deildarskipta Verkamanna- sambandinu eftir atvinnugrein- um. Það var einróma niðurstaða á þessum fundum að hyggilegra væri að velja síðari kostinn, sagði Þórir. í skipulagstillögunum er gert ráð fyrir að hver deild annist samninga og samningagerð innan sinnar atvinnugreinar og fari einnig með fræðslumál og fylgist með aðbúnaði á vinnustöðum. - Verði tillögurnar samþykkt- ar er um grundvallarbreytingar að ræða á uppbyggingu Verka- mannasambandsins. Til að gefa mönnum ákveðinn aðlögunar- tíma og ráð gefist í góðu tómi til að útfæra tillögurnar í smáat- riðum, er lagt til að VMSÍ haldi aukaþing á næsta ári um skipu- lagsmálin, en ákvörðun þingsins sem haldið verður um næstu helgi, verði aðeins stefnumark- andi, sagði Þórir. Skrefið stigið til hólfs En þótt menn greini tæpast á innan Verkamannasambandsins um nauðsyn breyttra skipulags- hátta, hafa ýmsir haft orð á því að undanförnu, að stíga þurfi skref- ið til fulls og hrinda í framkvæmd samþykktum um atvinnu- greinaskipt Alþýðusamband. Einn þeirra sem er þessarar skoðunar er Hrafnkell Á. Jóns- son, formaður verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði, en hann hefur lagt fram tillögu fyrir þing VMSÍ, þar sem lagt er til að þing sambandsins skori á miðstjórn ASÍ, að mótaðar verði tillögur að nýju skipulagi í anda fyrri sam- þykkta ÁSÍ-þinga. - Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að skipulag Alþýðu- sambandsins sé komið í eindaga. Þótt við gerum ákveðnar breytingar á skipulagi VMSÍ, leysir það aðeins sérvandamál innan Verkamannasambandsins. Breytingarnar þurfa að ganga mikið lengra, sagði Hrafnkell. Þórir Daníelsson sagði að menn gerðu sér grein fyrir því að með breyttu skipulagi Verka- mannasambandsins væri skrefið ekki stigið nema til hálfs. Breytingarnar þyrftu að ganga yfir verkalýðshreyfinguna í heild. - Það má hugsa sér að þær breytingar sem við erum að tala um innan VMSÍ, séu aðeins eitt lítið skref í áttina að atvinnu- greinaskipulaginu og þær verða vonandi til þess að ýta við Alþýð- usambandinu, sagði Þórir. ASÍ og BSRB í eitt? En hversu langt vilja menn ganga í skipulagsbreytingunum? Telja menn nóg að breyta skipu- lagi Alþýðusambandsins, eða þurfa breytingarnar að ná til ann- arra heildarsamtaka launafólks? f greinargerð með fyrrnefndri tillögu Hrafnkells A. Jónssonar, er vikið að því að æskilegast væri að náið samstarf kæmist á milli ASÍ og BSRB og annarra heildarsamtaka launafólks. - Nauðsynlegt er að byggja upp sem stærstar einingar, þannig að heildarsamtök launafólks geti mótað samræmda launastefnu og að komið verði í veg fyrir þann skæruhernað sem samtök launa- manna liggja í hvert gegn öðru. Hér á ég við samstarf eða sam- runa heildarsamtaka launafólks eins og ASÍ, BSRB, samtök kennara, samtök bankamanna svo einhver þeirra séu nefnd. í fámennum byggðarlögum sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þar starfi allir launþegar í sama stétt- arfélaginu, það yrði fyrst og fremst styrkur fyrir félagana og skapaði þeim sterkari samkennd, segir í greinargerð Hrafnkells A. Jónssonar. - Ég á mér þann draum að sjá sem flesta launþega í einum og sömu heildarsamtökum launa- fólks, í stað þess að þeir skiptist upp á milli ótölulegs fjölda fé- laga. Helsti leikur atvinnurek- enda er að etja þessum hópum saman. í stað samvinnu af heilum hug milli ASÍ og BSRB sitjum við frammi fyrir því ástandi í samn- ingamálum að BSRB er búið að hnýta sig aftan í viðmiðun við ASÍ, sem þýðir það aftur á móti að ýmsir innan ASÍ nota BSRB sem höfuð óvin í kjaramálum, eins og gleggst kom fram eftir síð- ustu samninga. - Mér finnst ástæða til ef menn eru að ræða skipulagsmál á annað borð, að þá reyni þeir að gera sér grein fyrir á hvern hátt þeir vilji skipuleggja verkalýðshreyfing- una þegar litið er lengra en til dagsins í dag, sagði Hrafnkell. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, sagði að það hefði ekki staðið á BSRB að taka upp nán- ara samstarf við ASÍ. - Eg hygg að mjög mikil þörf sé á auknu samstarfi milli þessara samtaka. Ef möguleikar opnuðust fyrir slíku, þá væri mér það mikið fagnaðarefni. Það hefur verið alltof mikið um það að hver hóp- ur hafi barist fyrir sig. Það er löngu kominn tími til að menn taki höndum saman og það væri ekki síður fagnaðarefni ef sam- eining launafólks í ein heildar- samtök yrði niðurstaðan af því samstarfi, sagði Kristján. - Meðan Alþýðusambandsfé- lögin hafa ekki leyst sinn skipul- agsvanda, þá tel ég samruna ASÍ og BSRB ekki raunhæfan mögu- leika. En þar fyrir utan álít ég að launafólk í einkageiranum og hjá því opinbera eigi það mikið sam- eiginlegt, að það ætti að hafa ein- hvern formlegan samstarfsvett- vang sín á milli, sagði Helgi Guð- mundsson. -rk iYFINGIN VERKALÝÐSHREYFINGIN VERKAÝÐSHREYFINGIN VERKALÝÐSHREYFINGIN VERKALÝÐSHREYFINGIN Sunnudagur 25. október 1987 þjóÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.