Þjóðviljinn - 25.10.1987, Page 12
Hve óhamingju-
samar eni
konumar?
Jafnréttisbyltingin sem brást- Þeir vilja öllu ráða og tala
niður til okkar - Er það körlum að kenna? - Deilt um
rannsóknaraðferðir
Bandaríski rithöfundurinn
Share Hite, sem hefur gefið út
frægarskýrslurum kyniíf
karla og kvenna í sínu landi,
hefur sent frá sér skýrslu í
bókarformi sem miklaathygli
og deilur hefur upp vakið-þar
eru bandarískar konur mjög á
einu máli um ófullnægju sína í
ástum og hjúskap og kenna
körlum um alfarið.
Bókin heitir „Konur og ást -
menningarbylting í fram-
kvæmd“. Hún er byggð á svörum
frá um það bil 4500 bandarískum
konum.
Flest fór
á annan veg
Við upphaf jafnréttisbaráttu
og kynlífsbyltingar voru margir
bjartsýnir í meira lagi: bjuggust
kannski við því að innan tíðar
mundu karlar leyfa sér að gráta
og konur standa í harðri sam-
keppni á vinnumarkaði, að kynin
mundu fljótlega koma sér niður á
að skipta jafnt með sér húsverk-
um og fullnægjusprengingum í
rúmi, sverðin yrðu slíðruð í lang-
vinnu stríði kynjanna og við tæki
vinsamleg samvinna um alhliða
þroska hvers og eins
Þessi óskmynd er mjög fjarlæg
veruleikanum, eins og búast
mátti við. Ekki svo að skilja:
sitthvað hefur breyst. Karlar
koma nokkuð meira við sögu á
heimili, konur hafa sótt út á
vinnumarkað, eitthvað vita kynin
hvort um sig betur en áður um
vandkvæði hins og hlutverk.
Tilfinningalegur
yfirgangur
En fáir munu hafa búist við
niðurstöðum á borð við þær sem
Share Hite birtir í nýrri bók sinni.
En þar eru konur sem spurning-
arskrám hennar svara svotil sam-
mála um að þær hafi orðið fyrir
miklum vonbrigðum með þá
karla sem þær best þekkja, enda
kunni þeir ekki að láta í ljós til-
finningar sínar, nenni ekki að tala
við konur sem jafningja, vilji
jafnan hafa síðasta orðið og séu
slæmir með að beita konur ýmis-
konar „tilfinningalegum yfir-
gangi“ í einkalífi.
Til dæmis segja 95% þeirra
kvenna sem svara að þær hafi
orðið fyrir „tilfinningalegri og
sálrænni áreitni“ af hálfu þeirra
manna sem þær elska og 98%
vilja „grundvallarbreytingar“ á
sínum ástamálum.
79% efast um að þær eigi að
leggja svo mikla orku í ástarsam-
bönd sín að þau gangi á undan
öðru. Aðeins 19% sögðu að ást-
arsamband hefði þennan forgang
í lífi þeirra.
98% óskuðu eftir líflegra tal-
sambandi við menn sína og al-
gengasta orsökin fyrir gremju
kvenna (77%) er sú að „hann
hlustar ekki“.
91% giftra kvenna segja að þær
hafi sjálfar átt frumkvæðið að
skilnaðinum.
70% kvenna sem hafa verið
giftar í fimm ár eða meir segjast
halda framhj á - og þá frekar til að
komast í náið tilfinningasamband
en vegna kynlífsáhuga.
87% giftra kvenna segir að
þeirra dýpsta tilfinningasamband
sé við vinkonu.
Er hœgt að
mœla ástina?
Sem fyrr segir er allhart deilt í
Bandaríkjunum um það, hve ná-
lægt - eða fjarri - sannleikanum
Share Hite fer. Það heyrast líka
raddir í þá veru að hún sé að
spyrja um það sem ekki verður
mælt (það er hægt að telja full-
nægingar, segir hún reyndar sjálf,
en það er ekki hægt að mæla
ástina).
t*að má vel benda á að aðrar
spurningaskrár benda til þess að
bandarískar konur séu óánægðar
með sitt hlutskipti, eða að
minnsta kosti reiðbúnari en áður
til þess að láta óánægju sína í ljós.
60 þúsund konur, lesendur
kvennablaðs eins, voru spurðar
að því hvort þær mundu velja sér
sama mann og þær eiga nú ef þær
mættu byrja upp á nýtt og um
40% sögðu nei. Efasemdir um
hjónabandið eru miklu sterkari
en áður og hagtölur vita, að þeim
konum á aldrinum 25 til 34 ára
sem ekki giftast hefur fjölgað um
helming á nokkrum árum - ekki
vegna þess að konur séu í vaxandi
mæli farnar að fresta hjónaband-
inu heldur blátt áfram vegna þess
að æ fleiri forðast það. Það koma
út bækur í löngum bunum um það
sem Hite-skýrslan nýja segir
helsta höfuðverk kvenna: um
ótta karla við að gefa af sér, um
samskiptakulda af þeirra hálfu og
valdstreitu í einkalífi.
Alltof fá svör
Hinsvegar finnst mörgum sú
mynd sem fæst í skýrslu hennar
undarlega einhliða, rétt eins og
svotil allar konur hefðu orðið
fyrir sömu reynslu. Og þá er
mikið spurt um aðferð hennar.
Share Hite sendi frá sér hundrað
þúsund spurningalista með 127
spurningum um allt mögulegt -
frá tómstundagamni til fyrstu
kossa og viðbragða foreldra við
þeim. Þessa lista sendi hún ein-
ungis til kvenna sem skipulagðar
voru í einhverjum kvennasam-
tökum. Og hún fékk ekki nema
4500 svör. Og margir félagsfræð-
ingar segja að 4,5% svörun sé
langt frá því að gefa raunsæja
mynd af því sem kannað er. Það
séu vel menntaðar og mjög óá-
nægðar konur sem líklegastar séu
til að svara, og því færra viti menn
um hinar. Einnig hafi verið mjög
mikið af óljósum spurningum á
skránni eða þá leiðandi spurning-
um sem stefndu allar að því að
sanna þá meginkenningu Share
Hite að „allt er þetta karlepen-
ingnum að kenna“. Eða eins og
þekkt blaðakona, Ellen Good-
man, segir um bók Share Tate:
„Hún gengur inn með fordóm og
kemur út með tölur“ (sem sam-
svara fordómum). Þeir sem
gagnrýna Share Hite benda líka á
það, að hún fái út þrisvar sinnum
meiri tíðni framhjáhalda giftra
kvenna en aðrar kannanir og að
enginn annar komist t.d. nálægt
því að fá það út að konur eigi
frumkvæðið að níu hjónaskilnuð-
um af tíu.
Hvað skiptir
mestu?
Það er svo mjög algengt að
menn skrifi sig út frá þessum
deiluefnum öllum inn í almennar
vangaveltur um að sambúð kynj-
anna sé á breytingaskeiði, gamlar
reglur séu niður brotnar og hver
og einn hafi orðið að smíða sér
nýjar í staðinn - hafi það reyndt
örðugt bæði körlum og konum.
Og síðan er enn og aftur spurt um
það, hvað það er sem fólk í raun-
inni vill helst - með því fororði að
menn geta ekki fengið allt sem
hugurinn girnist. Hvað sem líður
yfirlýstum áhuga bandarískra
kvenna á góðu og ljúfu og nánu
tilfinningasam-bandi, þá taka
flestar þeirra góðan efnahag fram
yfir þau hnoss þegar þær leita sér
að maka eða félaga. Og þá kemur
á daginn að þau einkenni sem
tryggja karlmanni velgengni í
starfi - harka, agi, einbeiting,
gera hann og harðan í hom að
taka fyrir konur. Og hinir „nýju
menn“, þeir góðu og blíðu, þeir
eru svosem til - en konur hafa
enn mikla hneigð til að hafna
þeim, á þeirri gömlu forsendu að
þeir séu ekki nógu góðir skaffar-
ar, þeim vegni ekki nógu vel í
kapphlaupinu
áb byggði á Spiegel og Time
/
/
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. október 1987