Þjóðviljinn - 25.10.1987, Qupperneq 16
„Eg lek Manhattan"
1 __.. .. *_A __ /”l r\ I I O **n I O Ai l **í' X li i T ■ r**lr vi •* ii X Tn Ai ■ *■ ■- * i ■ «■ •• #»*♦ ■ * »* ■*■ * l' ■'t *» n *"• •*■ r\ n *" nQ t "1 t \ P T* 1/ICC 1* IY\ O A O P Ý o f O 1 '1 A ollo V* nTn nnf n A « — * .
„Likeabladeofgrassinthe ~ "dollara leðursólum. f myrkrinu
sand by death’s ocean standa þó kljúfarnir áfram og eru
grow the roots ofhim
who does not move“
Jón úr Vör
... Og Sturlumálið deyr hægt út í
aðfallinu undir faldi Frelsisstytt-
unnar, nú rúmu ári eftir að það
rann um kalda kerfisósa Norð-
austurlandskjördæmis.
Þetta þykja þó ekki fréttnæm
tíðindi í þularstofum eyjunnar
miklu sem við blasir út um höfuð
styttunnar og heitir Manhattan.
Á henni standa allir fremstu
skýjakljúfar heimsins, hver með
sinn karakter, eins og ólíkir gestir
í líkri kokteilveislu, og það
skvaldrar á milli þeirra. Nóttin
fellur einnig á milli þeirra uns hún
snertir veðraða vanga vosbúðarf-
ólksins sem leggst til svefns á
gangstéttum sem ilma af 1000
misupplýstir af skemmtiþáttum
og skúringafólki. Inn á milli
þeirra sveimar hin tæknibúna
þyrla kynlífslögreglunnar og rýn-
ir með sjónauka sínum á milli
gluggatjalda svefnherbergjanna.
Samkvæmt nýlegum hæstaréttar-
úrskurði eru allar aðrar stellingar
en sú sem kennd er við trúboðana
bannaðar með lögum, innan
veggja einkalífs sem utan. Sam-
bandsfólk kippir sér þó ekki upp
við ónæðið en heldur áfram að
þróa sjónvarpsstellinguna, sem
er sérstakt New York-afbrigði,
og enablerar mönnum að missa
ekki af miðnæturdagskránni.
Á einni af hinum mörgu fertug-
ustuogfimmtuhæðum eyjunnar
situr maður hinsvegar í mjúkum
stól með glas í hendi og lætur sig
hringsóla fyrir handafli 30 kór-
eanskra skiptinema í eina snún-
ingsrestauranti borgarinnar.
Maður nýtur næturútsýnarinnar
með hverjum sopanum og lætur
sig í huganum hverfa út í svalan
hafsynninginn. Og líkt og fyrr-
nefnd þyrla hjálpartækjabankans
guðar maður á glugga að íslensk-
um sið. Fyrstur er heimsóttur í
kvöld hinn einarði forseti Mið-
Ameríkuríkisins Nikaragúa,
Daníel Ortega, þar sem hann sit-
ur við skriftir á herbergi númer
50043 á Helmsley-hótelinu.
Hann er að leggja síðustu hönd á
ræðu sína sem hann flytur daginn
eftir í hátíðarsal Sameinuðu
þjóðanna og leiðréttir hana og
lagar eftir annari ræðu sem hann
hefur til hliðsjónar. Ræðu and-
vinar síns Ronalds Reagans sem
sá fyrr um daginn hélt yfir
ársfagnaði ökukennarasambands
Virginíufylkis. Og hann breytir
og bætir, með fimmhundruðdoll-
aragleraugunum sínum sem hann
keypti hér í New York í síðustu
ferð sinni, alveg þangað til að
SKJOTT SKIFAST
VEÐUR í LOFTI
nú er vetur genginn í garð og viljum
við beina því til viðskiptavina okkar, að
ganga vel frá vörum sínum til flutnings
til að fyrirbyggja skemmdir.
Þótt hitastig í vörugeymslum okkar
fari ekki niður fyrir frostmarK eru oft
vörusendingar sem ekki þola mikla hita-
breytingu. Þess vegna er nauðsynlegt að
nálgast þær sem fyrst eftir komu skips,
því sumár vörur eru geymdar úti og/eða
í gámum.
rrostlög skyldi að sjálfsögðu setja í
kælivatn véla og tækja sem geymd eru
SK/PADE/LD
SAMBANDS/NS
UNDARGÖTU 9A -SlMI 698100/28200
hann er viss um að geta talað alla
sendinefnd Bandaríkjanna út úr
salnum með formælingarsvip og
hurðarskellum. Og rétt fyrir
klukkan tvö tekst honum það og
hann leggst sæll til svefns í hið
mjúka rúm kapítalismans þar
sem fyrir sefur fögur kona hans
og allir Iitlu strákarnir þeirra tólf,
væntanleg herdeild í Sandinista-
her. Á gólfinu liggja nýju húfurn-
ar litlu sem þeir fengu gefins fyrr
um daginn á blaðamannafundin-
um með pabba og merktar eru
uppáhalds beisbolliðinu hans:
New York Mets, auk einnar
stærri sem Daníel sjálfur notar
alltaf í viðtölum við vestræna fjöl-
miðla af snilldarlega húmorísku
áróðurs-innsæi.
En þegar allir fremstu jafningj-
ar „Nicaranna“ eru sofnaðir
hverfum við af rúðunni og flögr-
um á vit annara upplýstra her-
bergja. í svipaðri hæð sunnar í
borginni eru þeir enn að vinna að
gerð fræðslumyndar um AIDS-
varginn og varúðarmeðul gegn
honum. Það er hið auglýsinga-
lausa „Ríkissjónvarp“ sem að
henni stendur og senn er komið
að einu umdeildasta atriði þáttar-
ins þar sem notkun smokka er
kennd með umdeildu hjálpar-
tæki. Það er enginn annar en Ron
Reagan yngri, hinn kvart-
skagfirski sonur forsetahjónanna
sem þar heldur á gulum banana
og rúllar um hann verjunni,
nokkuð sem seinna á eftir að
valda uppnámi á helstu valda-
stöðum bananaiðnaðarins ofar á
Manhattan-eyju. í fréttatilkynn-
ingu mótmælir alþjóðlega ban-
anasambandið harðlega misnotk-
un þessa vinsælasta ávaxtar
heimsins. Þeirrar vöru sem kem-
ur næst mjólk á vinsældalista
neytenda. „Afurðin setur ofan
við slíkan dónaskap og sem síðan
á eftir að valda óafvitandi hugar-
farsbreytingu hjá neytandanum
og þar með koma fram stig-
minnkandi sölu“. Af skagfirskri
orðkerskni svarar Ronní síðar
fyrir sig og segist því miður ekki
hafa getað notað hið eiginlega
„áhald“.
Að lokum skulum við svo líta
við hjá öðrum kunnum leikara
sem nú liggur sem lamaður fyrir í
svefnrúmi sínu og starir í loftið og
tekur því ekki eftir klesstu nefi
okkar á skotheldu glerinu. Það er
ekki minna en sjálfur Robert
De niro sem þar liggur í öllu sínu
heimsfræga veldi, „mesti leikari
okkar tíma“. En öðru vísi var
honum áður á brá og bregður
okkur nokkuð við þann tómlætis-
svip sem hann hefur í kvöld valið
sínu tjáningarríka andliti. En í
gegnum þessa þykku rúðu
heyrum við óm af skýringunni,
Whitney Huston, sá módelgranni
blökkubjútísvanni þenur þar sín
raddbönd á hæsta voljúmi lag
eftir lag, plötu eftir plötu, kvöld
eftir kvöld. Robert kann orðið
allt hennar reppertúar utanbókar
eins og öll sín eigin hlutverk. En
samt heldur hann áfram að nudda
hinum társöltu tónum í innri sár
sín. Hann er kvalinn af ást.
Lífsreyndur götusjóarinn er yfir-
bugaður af næfurþunnu meyjar-
hafti. Símsvari Whitneyjar er
þegar full-upptekinn af nokkrum
fegurstu ástarjátningum aldar-
innar, einkum hvað framsögn
varðar, en allt kemur fyrir ekki, í
móðurhúsum mey vill vera og sit-
ur þar við. Ósofandi kveðjum við
því meistarann og getum ekki
annað en samkvalist honum um
leið og við flögrum heim á leið.
Úti fyrir, á flóanum, stendur
önnur gyðja og meiri um sig
miðja. Frelsisstyttan sem fyrr, og
hún hróflar aðeins við sér, í fyrsta
sinn á hundrað árum. Hana klæj-
ar eitthvað í tærnar og líklega er
það Sturlumálið. Það er komin
einhver hreyfing á Sturlumálið,
einhver lokahreyfing, það er nú
loksins leyst. En það var nú svo-
sem aldrei neitt neitt og eftir
stendur styttan óhögguð sem
fyrr, stendur þetta af sér eins og
annað, óspjölluð og frjáls.
New York City 14. okt. 87
Hallgrímur Helgason