Þjóðviljinn - 11.12.1987, Page 3
Hann var málarinn sem tók
ímynd hins sanna fram yfir
ímynd hins fagra í list sinni.
Hann var ofstopafullur snill-
ingur sem hneykslaði kirkju-
aðal og góðborgara með líf-
erni sínu og list en markaði
um leið þáttaskil í evrópskri
myndlist með óvæginni um-
fjöllun um brennandi tilvistar-
vandamál lífs og dauða.
Hann var fæddur í Mílano árið
1571 af foreldrum úr millistétt.
Hann var skírður Michelangelo
Merisi en kenndur við ættaróðul
sín í Caravaggio. Hann missti
föður sinn 6 ára og hóf mynd-
listarnám í Milano 13 ára. Hann
sýndi snemma erfiða skapgerð og
ofstopafulla, og þegar hann flutt-
ist til Rómar 21 árs gamall hafði
hann þegar setið ár í fangelsi
ákærður fyrir morð.
Ofstopafenginn
snillingur
Honum var þannig lýst af
samtímamönnum að hann væri
dökkur yfirlitum, lágvaxinn,
frekar ófríður með svört tindr-
andi augu og tjásulegt skegg.
Hann gekk gjarnan í dýrum föt-
um en var hirðulaus í umgengni.
Hann gekk gjarnan vopnaður
rýtingi og sverði og á erfiðustu
árum ævi sinnar svaf hann jafnan
alklæddur með vopn sér við hlið.
Hann bjó alla tíð einn, var ásak-
Medusa. Frá
Uffizi-safninu
í Flórens.
- um draum
ogveru-
leika and-
spœnis
dauðanum
ílisfMichel-
angelo
Merísi da
Cara-
vaggio
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3