Þjóðviljinn - 11.12.1987, Page 4

Þjóðviljinn - 11.12.1987, Page 4
JÓLABLAÐ .............................................■ • ■ Heilög María treður á snáknum með aðstoð Jesúbarnsins. Heilög Anna til hægri. Myndin er nú varðveitt í Borghesesafninu í Róm. Imyndinni af Davíð með höfuð Golíats er síðasta sjálfsmynd Caravaggios fólgin í andliti Golíats. Myndin er jafnframt talin vera síðasta verk Caravaggios, máluð þegar hann var áflótta undan réttvísinni í Napoli árið 1610. Á myndinni sést áverki á enni Golíats, en Caravaggio slasaðist illa í átökum við óþekktan óvin á þessum tíma. Myndin er varðveitt í Borghese-safninu í Róm. Myndin af hinum sjúka Bakkusi, hér fyrir neðan, erfyrsta sjálfsmyndin sem vitað er að Caravaggio gerði. Hún er gerð upp úr 1593, þegar Caravaggio var nýkominn til Rómar. Mynd- in er talin gerð þegar málarinn átti í veikindum, en Bakkus ber hér bergfléttukrans, sem er tákn eilífrar æsku. Hvítu vínberin eru trúlega tákn fyrir lífið, en þau svörtu fyrir dauðann. aður um kynvillu en átti sér líka ástkonur. Hann átti í útistöðum við fjölskyldu sína, afneitaði prestlærðum bróður sínum eftir að hann kom til Rómar, en hafði félagsskap af svörtum hundi sem fylgdi honum stöðugt. Hann var hamhleypa til vinnu, en stundaði knattleiki og kráarlíf af mikilli ákefð á milli vinnulota. Hann þótti hafa grófan húmor og orð- bragð, og reiddist auðveldlega af minnsta tilefni. Hann átti í stöð- ugum útistöðum við lögregluyfir- völd, var tíður gestur í fangels- um, þótti laushentur og gjarn á að bregða fyrir sig vopnum, varð manni að bana í áflogum þegar hann var 35 ára og flúði þá frá Róm og lifði eftir það á stöðugum flótta undan réttvísinni þar sem leið hans lá til Napoli, til Valetta á Möltu þar sem hann öðlaðist riddaratign, um Sikiley, til Nap- oli aftur og þaðan upp á Maremma-ströndina norðvestur af Róm. þar sem hann lést úr mal- aríu í Herkúlesarhöfn árið 1610, þá 39 ára gamall og niðurbrotinn af örvæntingu eftir stormasamt og rótlaust líf. Táknrœnt raunsœi Engu að síður skildi hann eftir sig myndlistararf sem markar tímamót í evrópskri listasögu fyrir miskunnarlaust raunsæi, þar sem dauðaangistin og hið rót- lausa líf listamannsins endur- speglast í trúarlegum verkum hans um píslarvætti helgra manna, þar sem dauðinn er alltaf nálægur og spurningin um eilífa frelsun fyrir náð Krists. Myndir hans þóttu byltingarkenndar þar sem hann sýndi helga menn og konur í líki slitinna og skítugra erfiðismanna og kvenna, þar sem ekkert var gert til þess að fegra viðfangsefnið en Ijós og skuggi notuð til þess að magna upp and- rúmsloft vonar og ótta, þar sem einsemd mannsins og örvænting er sýnd í því myrkri sem ljós náð- arinnar eitt fær létt af syndugum manni. Prátt fyrir deilurnar sem spunnust um verk hans varð hann eftirsóttasti og best launaði mál- arinn í Róm á sínum tíma. Gagnsókn páfans gegn Lúther Caravaggio lifði þann tíma í Róm þegar páfastóll og kaþólska kirkjan hóf gagnsókn sína gegn siðaskiptunum í norðanverðri álfunni, sem ógnuðu einingu kirkjunnar og grófu undan valdi páfanna. Á meðan mótmælendur í Þýskalandi og Sviss stóðu að því að bera myndlistina út úr kirkj- unum og úthýsa öllu því sem tru- flað gæti milliliðalaust samband trúandi manna við lifandi Guð, þá hóf páfinn í Róm gagnsókn með því að taka listina í þjónustu kirkjunnar í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr: Listinni var nú ætlað að koma kennisetningu ka- þólskrar trúar á framfæri við hinn breiða fjölda með stóraukinni áherslu á alla ytri umgerð trúar og kirkju. Það voru listamenn af skóla mannerismans og þó fyrst og fremst barokklistarinnar, sem fengu þetta veglega hlutverk, og í lok 16. aldar og út alla þá 17. fór í hönd slíkt blómaskeið myndlistar og byggingarlistar í Róm, að borgin varð ótvíræð miðstöð myndlistar í álfunni á þessum 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN tíma auk þess sem útlit borgar- innar tók stakkaskiptum með miklum byggingarframkvæmd- um að frumkvæði páfanna, þar sem hinar sveiflukenndu línur barokklistarinnar urðu ríkjandi og barokkkirkjurnar spruttu upp í hundraða tali hlaðnar skrauti og íburði auk þess sem gömlum kirkjum frá fornum tíma var um- svifalaust breytt yfir í barokkstíl án þess að minnsta tillit væri tekið til fornra menningarverðmæta. Kaþólskt barokk Það var kirkjuþingið í Trento (1545-64) sem mótaði hina nýju stefnu kirkjunnar í málefnum listarinnar, þar sem listinni skyldi fyrst og fremst ætlað það hlutverk að verða áróðurstæki fyrir hina kaþólsku kennisetningu. Listin átti því ekki að þjóna hinum út- valda og menntaða aðli eins og hún hafði gert á endurreisnartím- anum, heldur átti hún að verða alþýðleg og auðtekin, eins og reyndin varð um barokklistina. Jafnframt varð nú sú breyting á hinni fagurfræðilegu kennisetn- ingu, að sú eftirlíking náttúrunn- ar, sem boðuð var á endur- reisnartímanum, var ekki lengur grundvöllur listsköpunar, heldur skyldi listin spretta úr huga lista- mannsins, og samkvæmt hinni kaþólsku fagurfræði áttu hin réttu form hlutanna að vera ávöxtur hins huglæga samfélags listamannsins við guðdómlegan veruleika. Hughyggja barokk- listarinnar Hin kaþólska kennisetning um fagurfræðina tók hins vegar ekki

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.