Þjóðviljinn - 11.12.1987, Qupperneq 10
JÓLABLAÐ
Frisch á íslensku
Max
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Erni og Örlygi íslensk þýðing á
skáldsögunni Homo faber eftir
Max Frisch.
Max Frisch er fremsti rithöf-
undur Svisslendinga á þessari öld
og meðal þekktustu skálda sem
skrifa á þýska tungu.
íslendingar hafa til þessa eink-
um þekkt Frisch sem leikrita-
skáld og þá sérstaklega verkin
Andorra og Biedermann og
brennuvargarnir. Skáldsögur
Max Frisch eru þó líklega enn
veigameiri þáttur í höfundarverki
hans og löngu tímabært að kynna
þær íslenskum lesendum. Homo
faber er sú skáldsagna Frisch sem
hefur orðið mestrar athygli og
vinsælda aðnjótandi.
Homo faber er nafngift sem
vísar annars vegar til aðalpersónu
og sögumanns bókarinnar, Walt-
ers Faber, en hins vegar til ákveð-
innar persónugerðar, „tækni-
mannsins“ í nútímasamfélagi,
þeirrar manngerðar sem telur sig
vera æðsta stig „homo sapiens“.
Walter Faber álítur sig vera slíka
tækniveru með fullt vald yfir um-
hverfi sínu, en margháttuð og
óvenjuleg reynsla, sem hann
verður fyrir á linnulausum ferða-
lögum sínum í sögunni, knýr
hann til að endurskoða lífsvið-
horf sín.
Skáldsöguna þýddu Ástráður
Eysteinsson og Eysteinn Þor-
valdsson. Þeir hafa jafnframt rit-
að ítarlegan eftirmála með verk-
inu þar sem lýst er höfundarferli
Frisch og fjallað um ýms skáld-
verk hjans.
(F réttatilkynning)
Gódar bækur fyrir
GÓÐAR STUN
íslenskt þjóðlíf í þúsund ár eftir Daniel
Bruun er ómetanleg heimild um gamalgróið
þjóðlífog menningararf
lífshcetti sem löngu eru horfnir.
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum þýddi og Þór Magnússon
þjóðminjavörður ritar formála og
fræðilegar skýringar. Ásgeir S.
Björnsson samdi myndatexta.
Daniel Bruun var mikilvirkur
brautryðjandi í rannsóknum á
menningarminjum og lifnaðarhátt-
um hér á landi. Þegar hillti undir
byltingu í íslensku þjóðlífi bjargaði
hann frá glötun ómetanlegum
heimildum um gamalgróið þjóðlíf
og menningararf á hverfanda hveli.
í þessu verki endurspeglast lífshætt-
ir fslendinga á liðnum öldum í
hundruðum teikninga, uppdrátta,
Ijósmynda og vatnslitamynda,
einstökum í íslenskri menningar-
sögu.
Thingvellir er ensk útgáfa
hinnar vinsælu Þingvallabókar
Björns Þorsteinssonar sem kom út á
síðasta ári. Bókin hefur að geyma
sagnfræði, náttúrufræði, staðfræði
og sögur. Ennfremur fjölda yfirlits-
korta, teikninga og mynda, flest í
litum. Margar þeirra eru frá fyrri
öldum og því hinar sögulegustu.
Ásgeir S. Björnsson ritstýrði verk-
inu en myndir í það valdi Örlygur
Hálfdanarson.
BJöm Þorsteinsson
liiMvJ
T T
rv%
/
£L
Icsland's National Shrine
_AvÖofs Cc«njMmk»_
IfrC'C’ \
Homo Faber er skáldsaga sem beinir
spjótum sínum að blindri tceknihyggju
aðalpersónan Faber, eins og svo
margir í hinum vestrœna heimi,
þjáist af
Á ritunartíma verksins á sér
stað vaxandi umræða um hættuna
sem stafar af algerum klofningi
milli raunvísinda og hinna svoköll-
uðu „húmanísku hugðarefna“.
Max Frisch er meðal þekktustu
skálda sem skrifa á þýska tungu.
Hann var einn þeirra höfunda sem
voru tilnefndir til bókmenntaverð-
launa Nóbels 1987.
sem
*)MO
FABER
ESKAtOSAGA
MAX FRISCH
*•...
Mishtt mannlíf er skáldsaga
eftir Guðmund L. Friðfinnsson.
Sagan er öðru fremur krufning á
sálarlífi drengs sem lifir í áttlausri
tilveru. Foreldrar hans skilja og
drengurinn fyllist öryggisleysi og
vanlíðan og leiðist út í slæman
félagsskap. Sagan er áleitin, rík af
mannlegum tilfinningum, full
glettni og hlýju en þó með trega-
blöndnum undirtón. þf
GUOMUNDUR L. FRIÐRNNSSON
jýEnsk-íslenska skólaorðabókin er
: : samin sérstaklega með skólafólk í
ji ihuga og þannig tímamótaverk.
íNútímabók þar sem lögð er áhersla
•:j:á orðaforða í tækni og vísindum.
’XHandhægt og þægilegt hjálpartæki
jijibæði nemendum og öðrum. Vegna
jjjjhinna mjög svo vönduðu íslensku
'ijlorðskýringa nýtist hún líka vel til
jjjeflingar íslenskrar tungu. Kærkom-
jjj-in gjöf inn á hvert heimili. A,
UNQLINGA-
FJOLSKYLDUSAGA
JÓLABLAÐ
blökkukonu
„Ég veit af hverju fuglinn í búrinu syngur",
heitir bók sem Skjaldborg gefur út.
í þessu fyrsta bindi sjálfsævisögu sinnar
dregur bandaríska blökkukonan Maya
Angelou upp sannferðuga og sterka mynd
af uppvaxtarárum sínum í Suðurríkjum
Bandaríkjanna á fjórða áratugnum. Hún
og bróðir hennar búa hjá ömmu sinni í smá-
bænum Stamps í Arkansas þar sem Maya
kynnist valdi „hvíta fólksins" í hinum hluta
bæjarins.
Maya Angelou fæddist árið 1928 í St.
Louis í Missouri. Þegar foreldrar hennar
skildu flutti hún ásamt Bailey bróður sínum
til ömmu sinnar.
Maya dýrkar móður sína en eitt sinn þeg-
ar móðirin kemur í heimsókn er ástmaður
hennar með henni. Hann nauðgar Mayu en
þá er hún aðeins átta ára gömul. Næstu
fimm árin er hún mállaus.
Maya er ekki aðeins þekkt sem rithöf-
undur, hún lék í framhaldsmyndaflokknum
Rœtur er sýndur var hér í sjónvarpi. Þá
hefur hún ferðast um heiminn með söng- og
dansflokkum og leikið og dansað. Ævi
hennar hefur ekki verið dans á rósum og
sjálfsævisaga hennar hefur gert hana að
mikilsvirtum höfundi víðar en í Bandaríkj-
unum.
Grasalœkningar og
dulrœn reynsla
„Ásta grasalæknir" heitir bók sem komin er út hjá Erni og Örlygi. Atli Magnús-
son blaðamaður skráði.
Ásta Erlingsdóttir hefur frá unga aldri iðkað hin gömlu fræði íslenskra
grasalækna sem geymst hafa með ætt hennar í margar aldir, segir í kynningu á
nýrri bók frá Erni og Örlygi. Þar segir ennfremur:
Þótt nafn Ástu heyrist eða sjáist sjaldan eða aldrei í fjölmiðlum samtímans þá
mun samt leitun á fólki sem ekki hefur heyrt getið um Ástu grasalækni, eins og
hún er nefnd manna á meðal. Hina „þöglu" frægð þessarar ljúfu og lítillátu
konu má rekja til heilladrjúgra lækningastarfa í þágu fjöldans. í bókinni gefur
Ásta ráðleggingar og uppskriftir. En hví fær þessi lækningakunnátta lifað svo
góðu lífi, nú á dögum hátækni og vísindahyggju? Því svara þrettán einstaklingar
hér í bókinni. Með hjálp Ástu grasalæknis hafa sumir þeirra öðlast nýja lífstrú.
Dulargáfur hafa löngum fylgt hennar fólki og hún rekur hér ýmsar frásagnir
því til staðfestingar og ræðir um eigin andlega reynslu.
Litríkt fólk er framhald
ceviminninga Emils sem komu
út í fyrra og nefndust Á misjöfnu
þrífast bömin best, en hún hlaut
einróma lof gagnrýnenda og
einstakar viðtökur almennings.
Lesendur Litríks fólks verða
margs vísari um aldarfar og eigið líf
höfundar á fjórða og flmmta ára-
tugnum. Stíll og frásagnarlist hans
gerir bókina að kjörgrip allra bóka-
unnenda.ijjjf)
Gullna flugan eftir Þorleif Fríðríksson
sagnfrceðing er saga átaka í Alþýðuflokkn-
um og erlendrar íhlutunar um íslensk
stjómmál í krafti fjármagns. Hver voru
erlend ítök og áhrífþeirra á aðgerðir flokks-
forystunnar langt fram yfir miðja 20. öldina?
Bókin byggir á óvéfengjanlegum gögnum og
segir sannleikann skýrt og skorínort. Þessa
bók má enginn Alþýðuflokksmaður láta
framhjá sér fara,-hvað þá andstceðingamir.
Húsfreyja í Húnaþingi er þríðja
bindi ceviminninga
Huldu Á. Stefánsdóttur.
í þessu bindi segir frá búskapar-
árum hennar á Þingeyrum í Húna-
vatnssýslu. Inn í þá frásögn fléttar
hún nákvæmar en hrífandi lýsingar
á sögu og umhverfi.
Þetta gerir ævisögu Huldu
Stefánsdóttur að bókmenntum í
fremstu röð, bókmenntum sem fólk
á öllum aldri les sér til óblandinnar
ánægju og fróðleiks.Jj^)
Muflft loftinn
ðyrafwknfr
UÍAPAlANDyv
Systkinaröðin mótar manninn er
eftir sálfræðinginn dr. Kevin
Leman. Er það tilfellið að frum-
burðir séu frekjur, miðbörn þrætu-
gjarnir leiðindapúkar og yngstu
börn ábyrgðarlausir ærslabelgir?
Systkinaröðin er brunnur upp-
lýsinga sem geta hjálpað þér að bæta
samskipti þín við aðra. Fyrir utan
að geyma uppeldislegar ráðleggingar
sem eru öllum foreldrum hollar og
gagnlegar er bókin bæði hlýleg,
fyndin og vel skrifuð.
huohiorino
Paddington bangsi birtist lesendum sínum á
ný í tveimur nýjum bókum. í annarri hjálpar
Paddington smáfólki að þekkja á klukkuna en í
hinni er hann á leið í sumarleyfi til Frakklands.
Þegar sú bók er oprmð kemur svolítið óvænt í Ijós
sem gerir hana ennþá meira spennandi. Um
Dagfínn dýralækni eru líka komnar tvær nýjar
bækur. Dagfínnur dýralæknir og sjóræningjarnir
er sérstaklega ætluð byrjendum í lestri en Dag-
finnur dýralæknir í Apalandi þeim sem lengra
eru komnir. Þetta eru bækur sem halda börnun-
um við efnið. ^
ORN OG ÖRLYGUR
SÍÐUMÚLA 11.108 REYKJAVÍK.
SÍMI91-84866
SVONA GERUU VIÐ