Þjóðviljinn - 18.12.1987, Blaðsíða 3
1 JÓLABLAÐ •
JÓNAS Árnason og Sloppy Joe á Keflavíkurflugvelli 1947 - samsett mynd.
SLOPFY JOE
Hundurinn sem hljóp í forsvarsmenn
Keflavíkursamningsinsveturinn 1947
SLOPPY Joe var af hreinræktuðu íslensku kyni en...
Á Keflavíkurflugvelli
Útvarpsþáttur Jónasar Árnasonar fluttur 5. okt. 1947, en þátturinn varð tilefni þess að
útvarpsráð bannaði höfundi aðgang að hljóðnemanum um alllangt skeið
Þann 5. nóvember 1947, á
ársafmæli Keflavíkursamn-
ingsins sem heimilaði banda-
ríska hemum afnot af Kefla-
víkurflugvelli, flutti Jónas
Ámason erindi í Ríkisútvarpið
í (Dætti, sem bar heitið „Heyrt
og séð“. Hafði Jónas áður
flutt slíka þætti, og vorn þeir
með vinsælasta útvarpsefni.
En umrætt kvöld flutti Jónas
eftirfarandi frásögn af heim-
sókn sinni á Keflavíkurflu-
gvöll, sem fór svo fyrir brjóstið
á útvarpsráði og forsvars-
mönnum Kefiavíkursamning-
sins, að Jónasi var meinað
að flytja fleiri erindi í umrædd-
um þætti Ríkisútvarpsins. Allt
var mál þetta hið undarleg-
asta í augum nútímalesenda,
og erfitt að finna eitthvað sakn-
æmt í umræddri frásögn. En
málið allt og viðbrögðin við
því eru vel til þess fallin að
bregða Ijósi á tíðarandann á
íslandi á árinu 1947, ári fyrir
útkomu Atómstöðvarinnar.
Málið kann einnig að skýra
að nokkru þau snörpu við-
brögð sem urðu hér á landi
nýverið þegar norskur sagn-
fræðingur hélt því fram að
Stefán Jóhann Stefánsson
þáverandi forsætisráðherra
hefði haft náið samstarf við
bandarísku leyniþjónustuna.
Af þessu tilefni birtir Þjóð-
viljinn nú frásögn Jónasarog
nokkur viðbrögð við henni á
öðrumvettvangi:
Það er bjart veður þegar við
ökum inn á Keflavíkurflugvöll
dag nokkurn í vikunni sem leið.
Hjá hliðinu stendur lítill, snot-
ur kofi með stórum gluggum.
Hann er 4-5 metrar á hverja hlið.
Þetta er varðskýli. Við stöðvum
bifreiðina, íslenzkur lögreglu-
þjónn kastar tölu á okkur og
sicrifar niður nafn bflstjórans.
Þegar við lítum snöggvast inn í
skýlið sjáum við að út um einn
hinna stóru glugga horfir banda-
rískur maður með kaskeiti á
höfði, í blárri skyrtu og í barmin-
um stórt merki úr stáli; buxurnar
eru dökkbláar, svört reiðstígvél.
Á götum bandarískra borga getur
að líta menn í mjög svipuðum fö-
tum. Þeir eru lögregluþjónar.
Bandaríski maðurinn er með
penna - eins og íslenzki lögreglu-
þjónninn - sömuleiðis bók til að
skrifa í. Svo höldum við áfram
inn á Keflavíkurflugvöll.
Það eru öðru hverju skilti við
veginn sem við ökum eftir, og af
þeim sjáum við að vegurinn hefur
hlotið nafn. Hann heitir Broad-
way, sama nafni og sú gata í New
York sem flestir frægustu
skemmtistaðir Bandaríkjanna
eru við.
Það liggja þvergötur að Broad-
way Keflavíkurflugvallar. Ein
þeirra heitir 5th Avenue, en sú er
einmitt gatan þar sem mest er far-
ið í búðir í New York. Þarna er
Iíka 52nd Street. Við 52nd Street
í New York er hægt að hlusta á
heimsins bezta jazz.
Fleiri þekktar New York-götur
Þjóðviljinn rifjar upp
sérstæða uppákomu
í íslensku þjóðlífi vet-
urinn1947, semátti
upptök sín í f rásögn
Jónasar Árnasonar
af heimsókn á Kefla-
víkurflugvöll og
kynnum hansaf
hundinum Sloppy
Joe
liggja að Broadway Keflavíkur-
flugvallar. Og við ökum áfram. Á
báðar hendur eru braggar. Þetta
eru ljótir braggar eins og allir
braggar, og þarf ekki að lýsa
þeim fyrir lslendingum.
Á einum stað er braggi með
lágan tum framan á sér. Þetta er
kirkja. Það stendur á kirkjunni á
ensku hvaða númer maður á að
hringja upp, ef kviknar í. Maður
á að hringja upp númer 113 á
ensku, ef kviknar í.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3