Þjóðviljinn - 22.12.1987, Blaðsíða 1
Handbolti
Sigur í
maikaleik
Þriðjudagur 22. desember 1987 287. tölublað 52. árgangur
VMSI/VSI
Hart mæti höröu
Framkvœmdastjórnafundur VMSÍ telur óformlegar viðrœður við VSÍ ekki grundvöllfyrir
formlegum viðrœðum. FulltrúarVMSÍáfund ríkisstjórnarinnar. Ágreiningur um
ákvörðunina. Halldór Björnsson: Verkalýðshreyfinginþarf andlitslyftingu
ísland sigraði Suður-Kóreu í
landsleik þjóðanna í gær, 36-31.
Eins og sjá má af Iokatölunum var
leikurinn hraður og skemmti-
legur, en aldrei hafa verið skoruð
jafn mörg mörk í landsleik hjá
Islendingum.
Þjóðirnar mætast aftur í
kvöld kl. 20.30, en sérstök at-
hygli er vakin á því að miðasalan
opnar ekki fyrr en kl. 19.30.
Hópur launafólks stóð fyrir úti-
fundi á Lækjartorgi í gær þar
sem fyrirhuguðum matarskatti
var kröftuglega mótmælt.
Ólafur Ragnar Grímsson var
meðal þeirra sem ávörpuðu fund-
að mikilvægt að nú verði hart
látið mæta hörðu í kjarabar-
áttunni. Verkalýðshreyfingin
þarf andlitslyftingu. Þessi sáttar-
tónn sem einkennt hefur baráttu
okkar síðustu ár gerir það að
inn. í máli hans kom fram að á
sunnudag hefði ríkisstjórnin enn
á ný sýnt óskammfeilni sína í garð
launafólks þegar hún í tvígang
ætlaði á sama degi að versla með
söluskatt á fiski.
„Fyrst var stjórnarandstöð-
verkum að við erum að koðna
niður í baráttunni. Það er kom-
inn tími til að skýra línurnar á
milli stríðandi aðila. Menn láti
ekki bjóða sér hvað sem er á þjóð-
arsáttargrundvelli“, sagði Hall-
unni boðið að hætt yrði við að
leggja söluskatt á fisk ef öll frum-
vörp ríkisstjórnarinnar færu í
gegnum Alþingi fyrir jól, síðan
var Verkamannasambandinu
boðið það sama ef hætt yrði við
kröfur um leiðréttingu á launum
dór Björnsson varaformaður
Dagsbrúnar í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Halldór sagði að á fram-
kvæmdastjórnarfundi VMSÍ um
helgina hafi fulltrúarnir komist
fiskverkafólks. Þessum ófyrir-
leitnu verslunartilboðum ríkis-
stjórnarinnar var að sjálfsögðu
hafnað og þess krafist að hætt
yrði við matarskattinn í heild
sinni.“
Þá áréttaði Ólafur Ragnar
nauðsyn þess að launamenn um
allt land búi sig undir baráttu
gegn stjórnarstefnunni og sagði
að Alþýðubandalagið muni ekki
liggja á liði sínu íþeirri baráttu og
hvetur til þess að hafnar verði
viðræður um nauðsyn aðgerða á
vinnustöðum, í samtökum launa-
fólks og allsstaðar þar sem færi
gefst.
Að loknum útifundinum var
ríkisstjórninni afhent ályktun
fundarins. í ályktun frá Sókn
kom m.a. fram að félagsmenn
með 29-36 þúsund króna mánað-
arlaun geti engan veginn mætt
þeim auknu álögum sem í bígerð
eru.
-Sáf
að þeirri niðurstöðu að það sem
Vinnuveitendasambandið hafi
haft til málanna að leggja í ó-
formlegum viðræðum sé fráleitt á
þeim nótum sem hægt sé að
byggja formlegar viðræður á.
Framkvæmdarstjórnin ítreki því
fyrri samþykkt sína um að félögin
haldi áfram að reyna fyrir sér á
sínum vígstöðvum.
Halldór vildi ekkert gefa upp
um í hvaða dúr nótur VSÍ hafa
verið, en staðfesti aðspurður að
atvinnurekendur hefðu óform-
lega verið að ræða hugmyndir um
gerð fastlaunasamninga sem
grundvöll að heildarkjarasamn-
ingum og 4-5%
grunnkaupshækkun. Það væri
hins vegar ekki til í dæminu að
VMSÍ tæki undir slíkar hug-
myndir.
Á fundi framkvæmdastjórnar-
innar kom beiðni frá þremur ráð-
herrum ríkisstjórnarinnar um að
fulltrúar VMSÍ kæmu á fund
þeirra með það fyrir augum að
ræða möguleikann á niðurfell-
ingu söluskatts á neyslufiski. Á-
greiningur varð um það hvort rétt
væri að verða við þessari beiðni
en meirihlutinn taldi það rétt og
fór Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður VMSÍ ásamt þrem-
ur öðrum fulltrúum á fund ríkis-
stjórnarinnar. Karvel Pálmason
varaformaður VMSÍ og Halldór
Björnsson varaformaður Dags-
brúnar voru meðal þeirra sem
voru andvígir viðræðufundinum.
„Við fögnum því auðvitað ef
ríkisstjórnin ætlar að fella niður
söluskatt á neyslufiski, en við
töldum neikvætt fyrir sambandið
að ræða við þessa menn um hugs-
anlega niðurfellingu. Hvað vilja
þeir í staðinn? Að við verðum
þægileg í komandi kjarasamning-
um?“ sagði Halldór. -K.Ól.
Vetrarsólstöður
I dag eru vetrarsólstöður og stysti
dagur ársins, - á morgun byrjar sól
að snúa heim úr suðri. Kári Erlings-
son, 5 ára Akureyringur, teiknaði
þennan ágæta jólasvein, sem heim-
sótti okkur líka á laugardaginn, en
vildi þá ekki segja hver hefði búið sig
til.
2
dagar til jóla
Snjóleysi
30% á nagladekkjum
Talsvert borið á sliti á götum. Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri:
Eingöngu nagladekkjum um að kenna
Þrátt fyrir siyóleysið í vetur
_ hafa þó nokkuð margir sett
nagladekk undir bQana sína, eða
30% miðað við 60% í fyrra. Að
sögn Inga Ú. Magnússonar gatn-
amálastjóra, er farið að bera tals-
vert á sliti á götum í borginni, og
er það eingöngu nagladekkjunum
að kenna, því ekkert hefur verið
saltað í vetur.
. Nagladekkin spæna upp mal-
bikið og skilja eftir tjöru á götun-
um, þannig að dekk eru útötuð í
tjöru. Starfsmenn gatnamála-
stjóra hafa þá gripið til þess ráðs
að spúla göturnar. Einnig sagði
Ingi Ú. að ef blíðviðrið héldist
færu sennilega ekki fleiri á nagla-
dekk, og það væru margir sem
væru að bíða eftir verðlækkun á
dekkjum um áramótin. _ns-
Sjá nánar bls 9
Launafólk mótmælti áformum ríkisstjórnarinnar um matarskatt, á lækjartorgi í gær. Mynd Sig.
Samtök launafólks
Burt með matarskattinn
Launafólk mótmælti matarskattinum á Lœkjartorgi ígær. Ólafur
Ragnar Grímsson: Ríkisstjórnin œtlaði í tvígang á sunnudag að versla
með söluskatt á fiski