Þjóðviljinn - 22.12.1987, Qupperneq 8
Akraneskaupstaður, tæknideild
Auglýsing um deiliskipulag
á Akranesi
Svæði milli Dalbrautar og
Þjóðbrautar
Skv. ákvörðun skipulagsstjórnar með vísan til 17.
og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi
svæðis milli Dalbrautar og Þjóðbrautar, Akra-
nesi. Svæðið afmarkast af Dalbraut að norðan-
verðu, Esjubraut að austanverðu, Þjóðbraut að
sunnanverðu og Stillholti að vestanverðu.
Svæðið er ætlað undir iðnað, verslun og skrifstof-
ur, og opinbera þjónustu.
Teikningar, ásamt greinargerð og skilmálum
liggja frammi á Tæknideild Akranesskaupstaðar,
Kirkjubraut 28,2. hæð, frá og með mánudegin-
um 28. desember, 1987 til föstudagsins 19.
febrúar, 1988.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skrif-
legar og berast bæjartæknifræðingi Akraness-
kaupstaðar fyrir 26. febrúar, 1988.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan tiltekins frests teljast samþykkja hana.
Bæjartæknifræðingur
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hafn-
arstjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í eftir-
talin verk:
1. Kleppsbakki - lenging.
Gerð hafnarbakka.
Verkið er fólgið í rekstri á stálþili í 141 m langan
bakka og 23 m langan gafl, bindingu og stögum
þils og fyllingu bak við þil.
Helstu magntölur:
1. Rekstur stálþils alls 165 m.
2. Uppsetning stagbita.
3. Uppsetning akkerisstaga og akkerisplatna, 86
stk.
4. Fylling: 24.000 m3.
2. Kleppsbakki lenging.
Kantbiti og kranabraut.
Verkið erfólgið í rekstri á steyptum staurum undir
kranabraut, byggingu kranabrautar og kants á
hafnarbakka, uppsetningu kranaspora, lagningu
vatns- og frárennslislagna, svo og lagningu
ídráttarröra fyrir raflagnir.
Helstu magntölur:
1. Rekstur á steyptum staurum, lengd 12-17 m,
alls 123 stk.
2. Mótafletir 2200 m2.
3. Steypumagn 800 m3.
4. Járnamagn 80 tonn.
5. Regnvatnslögn 500 m.
6. Vatnslagnir 150 m.
7. ídráttarrör 1000 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, þriðjudaginn 22.
desember, gegn kr. 15.000.- skilatryggingu fyrir
hvort verk um sig.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
26. janúar 1988, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKÚRBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 2580Ó
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir nóvembermánuð
1987 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi
28. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. janúar.
Fjármálaráðuneytið,
18. desember 1987
BÆKUR
Þú ert
einhver
annar
Max Frisch.
Max Frisch
Homo faber
Ástráöur Eysteinsson og Eysteinn
Þorvaldsson þýddu.
örn og Örlygur 1987
Svisslendingurinn Max Frisch
er íslendingum fyrst og fremst
kunnur sem leikritaskáld. Hin
skarpskyggnu krufningarverk
hans Andorra og Biederman og
brennuvargarnir hafa verið sýnd
hér - það síðarnefnda kom
reyndar til okkar í sjónvarpi ekki
alls fyrir löngu og fékk þá ein-
kunn í DV, að það væri eitt af
þessum fúlu sænsku vandamála-
leikritum.
En Max Frisch er um leið
merkur höfundur skáldsagna og
nú er ráðist í að gefa út Homo
Faber, sem út kom fyrst árið 1957
og hefur unnið sér sess meðal
verka sem í senn eru kenndar við
klassík og samtímann. Sagan hef-
ur hvergi ryðfallið á þrjátfu árum.
Reyndar er hún gott dæmi um
það, hvílík loftvog góður rithöf-
undur getur verið - ýmislegt í
þessari bók er eins og forboði
þess sem síðar kom - endurskoð-
unar á og uppgjörs við kaldrana-
lega framfaratrú sem spyr um
staðreyndir, nytsemi og afköst,
við ófrelsi karla og kvenna í sín-
um hefðbundnu hlutverkum - og
það er einnig haft vökult auga
með náttúrunni sem nútíma-
manninum er háskalegt að segja
skilið við.
Walter Faber heitir sögumað-
ur, Svisslendingur um fimmtugt,
tæknigarpur starfandi við alþjóð-
lega þróunaraðstoð. Maður sem
hefur eins og skorið utan af sér
vissa parta - ansar ekki listrænu
þrugli, leiðist náttúran, er óhæfur
til að elska - að því er virðist. Svo
hittir hann af tilviljun bróður
gamals vinar síns og skólabróður
frá námsárum fyrir stríð. Fyrir til-
viljun verður flugvél þeirra að
nauðlenda í Mexíkó og Walter
Faber ákveður skyndilega að
slást í för með nýjum kunningja
og heimsækja vininn Jóakim,
sem rekur tóbaksekru í Gvate-
mala. Jóakim er dauður þegar á
vettvang er komið - en í leiðinni
fáum við að vita að hann hafði
gifst æskuást Fabers, gyðinga-
konunni Hönnu. Walter Faber
snýr til bækistöðvar sinnar í New
York og ákveður skyndilega að
sigla til Evrópu (en fljúga ekki
eins og venjulega) og þá getur
hann - enn af tilviljun - hitt
stúlku unga á skipinu og orðið
ástfanginn af henni og lagst í
flakk með henni um Evrópu.
Áður en hann kemst að því að
stúlkan sem hann kallar Sabeth
er dóttir Hönnu. Og það er ekki
fyrr en þau eru bæði komin til
Grikklands þar sem Hanna vinn-
ur og Sabeth verður fyrir slysi, að
Walter Faber gerir sér grein fýrir
því að hann hefur vaðið í blindu
eins og hver annar Ödipus og
ástkonan hans unga er í rauninni
dóttir hans...
Synd væri að endursegja hér
fleira. Hitt er víst að saga þessi er
afar haglega spunnin - það þarf
til dæmis ekki litla útsjónarsemi
til þess að láta tilviljanirnar og
skyndiákvarðanirnar nauðga les-
andanum eins og hér er gert - og
samt unir hann prýðilega sínum
hag. Enda er Max Frisch afar gáf-
aður höfundur. Einn af þessum
greindu höfundum sem manni
finnst stundum að hefðu gott af
því að fá í sig meira af blóðheitu
rugli. Eins og reyndar söguper-
sónan sjálf - Walter Faber.
Þeir Ástráður Eysteinsson og
Eysteinn Þorvaldsson hafa þýtt
þetta verk með ágætum og þeir
skrifa einnig ítarlegan eftirmála
með þarflegum upplýsingum um
feril Max Frisch og úttekt á sög-
unni. í úttekt þeirri er margt vel
athugað og allt miklu ítarlegar en
dagblaðsumsögn býður upp á -
kannski er leiðsögnin stundum
svo áleitin („ að lokum skal þó
vara við því að líta á afstöðu
Hönnu sem einhverskonar
„syndaaflausn“ fyrir Faber“) að
líklega er best að lesa þessa
greinargerð einmitt eins og hún
stendur - sem eftirmála. Og þá er
líka gott að geta borið hana sam-
an við eigin fyrstu upplifun.
Homo Faber er um samtíma-
mann í kreppu, um nauðsyn þess
að endurskoða þau gildi sem
ráðið hafa ferðinni undanfarna
áratugi, um firringuna frægu.
Hún segir frá því að maðurinn er
víðfeðmari en hann vill halda, að
vélmennið getur elskað, sé hon-
um hrint úr hans röksækna far-
vegi. Hún kemur inn á þá spurn-
ingu sem homo faber, maður
starfans, verksins, fær ekki
undan sloppið, hvernig getur
hann orðið heill maður, orðið
homo ludens, manneskjan í leik,
sá sem nýtur lífsins? Margur hef-
ur skrifað um minna efni og með
miklu lakari árangri en Max
Frisch gerir í þessari merku
skáldsögu.
IURIIARA , ,
g/artland
Ástog hamingja
Cartland og
Theresa Charles
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafn-
arfirði, hefur gefið út bókina
Ást og hamingja eftir Barböru
Cartland. í kynningu segir:
Aðeins tvær persónur bjargast
í land, þegar skipið brotnar á
klettunum, ævintýramaðurinn
Sir Harvey Drake og hin fagra
Paolina Mansfield. Sir Harvey
Drake stingur upp á því við hana,
að hún ferðist með honum sem
systir hans áfram til Feneyja. Þar
segist hann auðveldlega munu
geta fundið ríkan eiginmann
handa henni.
Einnig hefur bókaútgáfan
Skuggsjá gefið út nýja skáldsögu
eftir Theresu Charles, sem nefn-
ist Angela. Eftir Theresu hafa
áður komið út margar bækur,
sem enn eru flestar fáanlegar.
Angela Smith kemur til bæjar-
ins Wheystone frá London og
ætlar hún að sækja um læknisstarf
og reyna að jafna sig í kyrrlátu
umhverfi eftir slys sem hún hafði
lent í. Henni er í fyrstu vantreyst
sem kvenlækni og litin hornauga
sem persóna en smátt og smátt
vinnur hún álit og traust fólks.
Andrés Kristjánsson þýddi bók-
ina.
Hafnarfjörður
í byrjun aldar
Bókaútgáfan Skuggsjá,
Hafnarfirði, hefur gefið út bók-
ina Bær íbyrjun aldar - Hafn-
arfjörður, sem Magnús Jóns-
son minjavörður í Byggðas-
afni Hafnarfjarðar tók saman.
Pessi bók var fyrst gefin út 1967
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. desember 1987
í litlu upplagj og seldist strax upp.
Hér kemuifbókin út í þriðja sinn,
og nú fylgir henni nafnaskrá yfir
þá sem í bókinni eru nefndir.
Bœr í byrjun aldar fjallar eins
og nafnið gefur til kynna um
Hafnarfjörð í byrjun aldarinnar,
eða árið 1902, getið er íbúa
bæjarins þetta ár og húsa og bæja
í Hafnarfirði á þessum tíma, og
þarna er mikill fróðleikur sam-
ankominn. Fjölmargar manna-
myndir eru í bókinni og einnig
myndir af ýmsum húsum í bæn-
um. Allur aðaltexti bókarinnar er
handskrifaður af höfundinum,
Magnúsi Jónssyni.