Þjóðviljinn - 22.12.1987, Síða 18

Þjóðviljinn - 22.12.1987, Síða 18
||| Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í þenslustykki. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 27. janúar 1988 kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Styrkir til háskólanáms í Danmörku dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa ísiendingum til há- skólanáms í Danmörku námsárið 1988-89. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef þurfa þykir. Styrkfjárhæðin er áætluð um 3.720 d.kr. á mánuði. Umsóknum skal komiðtil menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavlk fyrir 25. janúar n.k., á sórstökum eyðublöðum, sem þar fást. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt með- mælum. Menntamálaráðuneytlð 18. desember 1987. Auglýsið í Þjóðviljanum Umboðsmenn happdrættis Þjóðviljans Reykjavík: Afgreiðsla Þjóðviljans Síðumúla 6. Opið 9-17 virka daga. Opið 9-12 laugar- daga. Skrifstofa Alþýðubandalagsins, Hverfisgöfu 105, 4. hæð. Opið 9-5 virka daga. Suðurland: Vestmannaeyjar: Jóhanna Njálsdóttir, Hásteinsvegi 28, sími 98-1177. Hveragerði: Ingibjörg Sigmundsdóttir, Heiðmörk 31, sími 99-4259. Selfoss: Sigurður R. Sigurðsson, Lambhaga 19, sími 99-1714. Þorlákshöfn: Elln Björg Jónsdóttir, Haukabergi 6, slmi 99-3770. Eyrarbakki: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, slmi 99-3229. Stokkseyri: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, sími 99-3229. Laugarvatn: Torfi Rúnar Kristjánsson, sími 99-6153. Hella: Guðrún Haraldsdóttir, Þrúðvangi 9, sfmi 99-5821. Vfk ( Mýrdal: Magnús Þórðarson, Austurvegi 23, sími 99-7129. Norðurland eystra: Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, Vesturgötu 3, sími 96-62267. Dalvfk: Þóra Rósa Geirsdóttir, Hólavegi 3, simi 96-61411. Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36, sími 96-24079. Húsavfk: Aðalstelnn Baldursson, Baughóli 31 b, sími 96-41937. Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Aðalbraut 33, sími 96-51125. Þórshöfn: Dagný Marinósdóttir, Sauðanesi, sími 96-81166. Austurland: Vopnafjörður: Gunnar Sigmarsson, Miðbraut 19, sími 97-31126. Egilsstaðir: Guðlaug Ólafsdóttir, Sólvöllum 10, sími 97-11286. Seyðisfjörður: Óttarr Magni Jóhannsson, Langatanga 3, sími 97-21525. Neskaupstaður: Kristinn Tvarsson, Blómsturvöllum 47, sími 97-71468. Eskifjörður: Hjalti Sigurðsson, Svínaskálahlíð 19, slmi 97-61367. Reyðarfjörður: Þorvaldur Jónsson, Hæðargarði 18, sfmi 97-41159. Fáskrúðsfjörður: Anna Þóra Pótursdóttir, Hlíðargötu 37, sími 97-51283. Stöðvarfjörður: Ingimar Jónsson, Túngötu 3, sími 97-58894. Breiðdalsvík: Guðrún Þorleifsdóttir, Felli, sími 97-56679. Hornafjörður: Benedikt Þorsteinsson, Ránarslóð 6, sími 97-81243. Norðurland vestra: Hvammstangi: Flemming Jessen, Kirkjuvegi 8, slmi 95-1368. Blönduós: Guðmundur Kr. Theódórsson, Húnabraut 9, sími 95-4196. Skagaströnd: Edvald Hallgrímsson, Hólabraut 28, sími 95-4685. Sauðárkrókur: Sigurður Karl Bjarnason, Víðigrund 4, sími 95-5989. Slglufjörður: Hafþór Rósmundsson, Hliðarvegi 23, simi 96-71624. Vesturland: Akranes: Jóna K. Ólafsdóttir, Jörundarholti 170, sími 93-11894. Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson, Borgarbraut 43, sími 93-71122. Stykkishólmur: Kristín Benedíktsdóttir, Ásaklifi 10, sími 93-81327. Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsdóttir, Fagurhólstúni 10, sími 93-86715. Ólafsvfk: Margrét Jónasdóttir, Túnbrekku 13, sími 93-61197. Hellissandur og Rlf: Arnheiður Matthíasdóttir, Bárðarási 6, simi 93-66697. Búðardalur: Gísli Gunnlaugsson, Gunnarsbraut 7, simi 93-41142. Vestfirðir: Patreksfjörður: Einar Pálsson, Laugarholti, sími 94-2027. Bfldudalur: Halldór Jónsson, Lönguhlíð 22, simi 94-2212. Þingeyri: Davið Kristjánsson, Aðalstræti 39, sími 94-8117. Flateyrl: Hafdís Sigurðardóttir, Þórustöðum, simi 94-7658. Suðureyrl: Þóra Þórðardóttir, Aðalgötu 51, sími 94-6167. (safjörður: Bryndís Friðgeirsdóttir, Aðalstræti 22a, sími 94-4186. Bolungarvfk: Kristinn Gunnarsson, Hjallastræti 24, sími 94-7437. Hólmavfk: Jón Ólafsson, Brunnagötu 7, sími 95-3173. Reykjanes: Garður: Kristjón Guðmannsson, Melbraut 12, sími 92-27008. Keflavík: Jóhann Björnsson, Hringbraut 75, sími 92-12275. Njarðvfk: Jóhann Björnsson, Hringbraut 75, sími 92-12275. Grindavfk: Steinþór Þorvaldsson, Staðarvör 2, sími 92-68354. Hafnarfjörður: Hafsteinn Eggertsson, Norðurvangi 10, sími 651304. Garðabær: Þórir Steingrímsson, Markarflöt 8, sími 44425. Álftanes: Kári Kristjánsson, Túngötu 27, simi 54140. Kópavogur: Sigurður Flosason, Kársnesbraut 54, sími 40163. Seltjarnarnes: Sæunn Eirfksdóttir, Hofgörðum 7, sími 621859. Mosfellsbær: Kristbjöm Árnason, Borgartanga 2, sími 666698. SKÁK „Ég tefldi á hálfum dampi“ sagði GarríKasparov sem varði heimsmeistaratitilinn með sigri á elleftu stundu Þrátt fyrir allt þá virðist skák- gyðjan Caissa hafa litið mildilega á ýmsar yfirsjónir meistara síns. Garrí Kasparov vann 24. skákina í einvíginu um heimsmeistaratiti- linn í 64 leikjum - einn leikur fyrir hvern reit á taflborðinu - og varði þar með titil sinn. Niður- staðan varð jafntefli 12:12 en ein- vígið hafði staðið frá 12. október sl. og hélt skákáhugamönnum um allan heim í logandi spennu síð- ustu dagana sem voru hinir dramatískustu. 24. skákin batt einnig endi á sérkennilega baráttu þeirra Kasparovs, 24 ára undrabarns frá Baku, og Anatoly Karpovs heimsmeistara 1975-’85. Þeir settust að tafli 2. september 1984 og er þeir risu úr sætum við Lope De Vega leikhúsinu í Sevilla, þar sem upplausnarástand var ríkj- andi, höfðu þeir teflt 120 skákir í fjórum heimsmeistaraeinvígjum sem hver með sínum hætti geta talist sérstæð. Fyrsta einvígið komst í heimsfréttirnar er Cam- pomanes ákvaðað slíta því er staðan var 5:3, Karpov í vil, en þá hafði keppnin staðið í meira en fimm mánuði, annað einvígið var æsispennandi og úrslit fengust ekki fyrr en í síðustu skákinni er Kasparov vann og steig trylltan dans á sviðinu, yngstut heims- meistara frá upphafi, þriðja ein- vígisins verður sennilega minnst fyrir ævintýralega endurkomu Karpovs úr vonlausri aðstöðu og sfðan úrslitasigurs Kasparovs í 22. skákinni. í Sevilla var Anatoly Karpov heimsmeistari í tvo daga. Fáir trúðu því að Kasparov næði sér á strik eftir sigur Karpovs í 23. skákinni, en reyndin varð önnur. Nú var að duga eða drepast. 24. skákin fór í bið á föstudagskvöld- ið en vopnaviðskiptin undir lokin þetta kvöld gleymast seint né heldur geðshræringar viðstaddra. Skákin var svo til lykta leidd á laugardaginn og rúmlega hálfsjö að íslenskum tíma lagði Karpov niður vopnin. Hann var peði undir í biðstöðunni sem varð ekki bjargað. Athygli vakti prúð- mannleg framkoma hans eftir skákina og við lokaathöfnina. „Garrí, Garrí“ Þegar Karpov dró niður flaggið trylltust áhorfendur og hrópuðu „Garrí, Garrí“ í 20 mínútur. Camopmanes mun hafa gert tvær tilraunir til þess að stíga í salinn en var flæmdur á braut af spænsk- um áhorfendum sem bauluðu á hann eins og lélegan nautabana. „Framtíð FIDE kristallast í and- íiti þessa manns,“ sagði glottara- legur heimsmeistari eftir einvíg- ið. Enginn veit hvað Kasparov hefði mátt reyna hefði einvígið ekki fengið jafn farsælan endi, en staðreyndin er sú að á meðan á því stóð varð hann að þola sífelld- ar ögranir frá alþjóðlega skák- sambandinu og forseta þess og einnig því sovéska. Um þátt Karpovs í þeim málum er ekki gott að segja en hann hefur þar enn, hvað sem síðar verður, geysisterka stöðu. Erfitt einvígi Kasparov kvaðst ekki hafa náð sér á strik. „Ég tefldi á hálfum dampi,“ sagði hann við blaða- menn. Hann sagði að innblástur hefði þrotið eftir því sem skákum þeirra Karpovs fjölgaði. „Skák- listin vék fyrir hversdagslegu puði,“ sagði hann. „Ég var líkam- lega vel undir einvígið búinn, en sálfræðilega illa. Oftsinnis skorti mig hreinlega orku. Það var ekki fyrr en í síðustu skákinni að ég fann mig. Núna vil ég helst gleyma þessu öllu saman.“ Kasparov virtist vel á sig kom- Garrf Kasparov. Heimsmeistari 1987 inn líkamlega eftir einvígið nema hvað gráu hárunum virðist hafa fjölgað, Karpov tapaði tæpum fjórum kílóum sem er heldur minna en veturinn 1985 þegar 10 kíló gufuðu enda hengu fötin utan á hans granna líkama undir það síðasta. Auðvitað hefði það verið ósanngjarnt ef Kasparov hefði tapað titlinum eftir tvo ein- vígissigra, en engu að síður fær Karpov prik hjá mönnum fyrir feikna baráttuvilja og staðfestu. Samantekið hafa þeir teflt 124 skákir (4 jafntefli á skákmótum) og staðan er 62V2:61l/2, Kasparov í vil. Því er almennt spáð að heimsmeistarinn gefi nú meiri gaum skákborði lífsins og njóti ávaxta erfiðis undanfarinna ára. Fyrir forvitni um „einkamál“ meistarans skal bent á bókina „Barn breytingana" en þar ræðir hann tæpitungulaust um sín hjartans mál. Verðlaunum var skipt jafnt eftir því næst verður og fá þeir hvor í sinn hlut um 1.3 milj. bandaríkjadala en stór partur þess fjár mun þó renna beint í hina sovésku samneyslu. 24. einvígisskák * ■ 'éiá * lÉf m a fg MAM 9i 11 gft íft JLiH Wé. IS LS 9 Ö £ MW fÉÉ M & Kasparov - Karpov Skákin fór f bið á föstudags- kvöldið og var útlitið ekki glæsi- legt hjá Karpov, sennilega var staða hans töpuð. Hann stóð frammi fyrir þeirri spurningu hvernig peðastöðuni yrði best háttað. Þegar á hólminn kom valdi hann þeim stað á áhrifa- svæði biskupsins. Þetta var e.t.v. misráðið en ég þykist vita að leiðir til glötunar fyrirfyndust einnig við óbreytta skipan mála. 42. Kg2-g6 43. Da5-Dg7 44. Dc5-Df7 45. h4-h5 46. Dc6-De7 47. Bd3-Df7 48. Dd6-Kg7 49. e4-Kg8 50. Bc4-Kg7 (Karpov hafði leikið hratt það sem af var og átti nægan tíma aflögu jafnvel þó svo bifreið hans og raunar Kasparovs líka hefði lent í traffík á leið á mótsstað). 51. De5-Kg8 52. Dd6-Kg7 53. Bb5-Kg8 54. Bc6 (Hér þóttust menn í Sevilla sjá fram á vinninga Kasparovs: peð til e5, - Db7, svartur þolir ekki uppskipti og lendir í leikþröng.). 54. .. Da7 55. Db4-Dc7 56. Db7-Dd8 (Það er auðvelt að sannfæra sig um að endataflið eftir 56... dxb7 57. Bxb7 er tapað. Svartur er peði og hefur í stóra veikleika að horfa. Eftir að hvíti kóngurinn hefur svo skorist í leikinn hrynur svarta staðan.) 57. e5 (Eftir 10 mínútna umhugsun lék Kasparov loks og horfði áhyggjufullur út í sal, „vegna þess að hann vissi að nú var sigurinn í höfn,“ sagði einhver spekingur- inn í blaðamannaherberginu.) 57. .. Da5 58. Be8! (Drottningin ryðst inn.) 58. .. Dc5 59. DF7+-Kh8 60. Ba4-Dd5+ 61. Kh2-Dc5 62. Bb3-Dc8 63. Bdl-Dc5 64. Kg2 - og Karpov gafst upp. Áætlun hvíts er 65. Bf3 og 66. Be4. Þá falla peðin á kóngsvæng eitt af öðru. Lokastaðan: Garrí Kasparov 12 Anatoly Karpov 12. Með grein minni um lokaskák Kasparovs í Þjv. sl. laugardag birtist af einhverjum ástæðum mynd og myndatexti mér óvið- komandi. Ég vísa frá mér allri ábyrgð á þessari fáránlegu mynd- birtingu og texta þar undir. Helgi Ólafsson 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.