Þjóðviljinn - 07.01.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 7. janúar 1988 3. tölublað 53. árgangur
Kvótinn
5 gildis-
t'mar
Kvennaathvarfið
130 leituðu hælis
Til marks um hversu skoðanir
manna á nýrri fiskveiðilöggjöf
eru skiptar má geta þess að fyrir
Alþingi liggja fimm tillögur um
gildistíma laganna.
Borgaraflokkurinn vill að lögin
gildi í eitt ár. Matthías Bjarnason
hefur flutt tillögu um að gildis-
tíminn verði tvö ár. Meiri hluti
sjávarútvegsnefndar aðhyllist
þrjú ár en sjávarútvegsráðherra 4
ár. Alþýðubandalagið hefur svo
flutt tilllögu um að gildistími iag-
anna sé ótakmarkaður einsog
annarra laga, en þó með því skil-
yrði að aðrar breytingartillögur
flokksins nái fram að ganga. Lög-
unum er svo hægt að breyta hve-
nær sem er ef þingmeirihluti er
fyrir því.
- Sáf
Sjá bls. 3
Loðna
Veiði
hafin
á ný
Matarskatturinn
Margrét Pála Ólafsdóttir: Ekki rós í hnappagat
íslenskra karlmanna
hnappagat íslenskra karlmanna,“
sagði Margrét Pála.
Kvennaathvarfið er rekið með
styrk frá ríki og einstaka
sveitarfélögum, en á fjárlögum
fyrir næsta ár er gert ráð fyrir 4.5
miljónum til rekstursins. Að sögn
Margrétar Pálu var fjárbeiðni
samtakanna 5.5 miljónir fyrir
árið 1988. „Við höfum alltaf ver-
ið viðbúnar niðurskurði á fjár-
beiðni okkar þó hún fari aldrei
fram yfir nauðsynlegan rekstrar-
kostnað. Athvarfið er jafnframt
rekið með styrk frá sveitarfé-
lögum, en á síðasta ári fengum
við góða svörun þaðan. Með
hjálp sveitarfélaga, félagasam-
taka, einstaklinga og fyrirtækja
vonumst við til þess að geta
stoppað uppí gatið sem ríkið
skilur eftir,“ sagði Margrét Pála.
- K.Ól.
1 Qfl konur °8 svipaður fjöldi
I OU barna dvöldu á Kvenna-
athvarfinu í lengri eða skemmri
tíma á árinu 1987. Frá því að at-
hvarfið var sett á fót árið 1983
hafa hátt í þúsund konur leitað til
athvarfsins, en fjöldi þeirra hefur
aldrei verið meiri en árið 1984, en
þá voru þær 178. Frá þeim tíma
hefur þeim fækkað örlítið á ári
hverju.
Margrét Pála Ólafsdóttir ein af
forsvarskonum athvarfsins segir
skýringuna m.a. vera þá að á
fyrstu starfsárum athvarfsins hafi
komið í ljós uppsafnaður vandi
og því hafi aðsóknin í athvarfið
verið svo mikil sem raun ber
vitni. „Sá fjöldi sem leitaði í at-
hvarfið á síðasta ári er ekki rós í
Loðnunefnd: Rúm-
lega311 þúsund lestir
komnar á land
Loðnuflotinn er nú lagður af
stað á nýjan leik, eftir að hafa
verið í höfn yfir jólin og áramótin.
í gær voru 25-30 skip lögð af stað
á miðin og sumhver komin.
Að sögn Astráðs Ingvarssonar
hjá Loðnunefnd, tilkynntu þrjú
skip um afla í gærmorgun rúm-
Iega tvö þúsund lestir. Skipin
fengu loðnu allt vestan við Kol-
beinsey, út af Sléttu og einnig út
af Langanesi.
Frá því byrjað var að veiða
loðnu í haust hafa borist á land
rúmlega 311 þúsund lestir. grh
Amór Guðjohnsen var kjörinn íþróttamaður ársins 1987 í hófi að Hótel Loftleiðum í gærkvöldi. Arnór
kom til landsins með mjög skömmum fyrirvara og varð síðan að fara strax aftur að afloknu kjörinu. Á
myndinni sést hvar Arnór stígur upp í vélina sem flutti hann og Ólöfu konu hans til Belgíu. Mynd E.ÓI.
Sjá bls. 15
Neskaupstaður
Háir vextir hamla nýsköpun
Síldarvinnslan hlf: Hættu við 150 tonna laxeldisstöð. Ástæðan háir vextirogmikil
áhœtta. Afkoma fiskvinnslunnar slæm í ársbyrjun
Við létum framkvæma hag-
kvæmnisathugun á 150 tonna
laxeldisstöð í sjókvíum sem við
höfðum hug á að reisa, enda eru
hér prýðilegar aðstæður frá nátt-
úrunnar hendi. Hitastigið er ekki
vandamál og ennfremur höfum
við nóg af fiskúrgangi til fóðurs.
En þar sem vextir eru svo háir,
samfara mikilli áhættu við þenn-
an atvinnurekstur, sáum við okk-
ur tilneydda til að hætta við allt
saman, í bili að minnsta kosti,
segir Finnbogi Jónsson fram-
kvæmdastjóri Sfldarvinnslunnar
á Neskaupstað í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Það er ekki einungis að háir
vextir komi í veg fyrir nýsköpun
atvinnutækifæra hjá Síldarvinnsl-
unni h/f á Neskaupstað og fleiri
fyrirtækjum hér á landi um þessar
mundir. Heldur íþyngir vaxta-
stefna stjórnvalda verulega þeim
atvinnurekstri sem fyrir er í
landinu sem á annað borð hefur
ráðist í einhverjar fjárfestingar.
Að sögn Finnboga er ekki fyrir
að fara mikilli bjartsýni í upphafi
ársins hjá þeim sem halda um
stjórnvölinn hjá fiskvinnslunni. í
fyrsta lagi hefur fall dollarans að
undanförnu komið afar illa við
frystinguna og tekjur hennar
lækkað. í öðru lagi hafa vextir,
raunvextir tvöfaldast á liðnum
misserum. Þegar saman fara 25%
verðbólga og 9% raunvextir,
samfara tekjutapi er róðurinn
afar þungur. í þriðja lagi hafa svo
stjórnvöld aukið skattheimtuna á
fiskvinnsluna. Endurgreiðsla á
söluskatti hefur verið dregin til
baka að verulegu leyti og rennur
hann svo til allur í Verðjöfnunar-
sjóð sjávarútvegsins og til að kór-
óna allt saman er nýbúið að
leggja launaskatt á vinnsluna.
Sfldarvinnslan h/f fagnaði 30
ára afmæli í fyrra og þá varð velta
fyrirtækisins í fyrsta sinn tæpur
einn milljarður kró^ia.grh
ídag
Um leið og jólahátíðinni iauk á
miðnætti sl. tóku gildi nýsam-
þykkt lög rflrisstjórnarinar um
álagningu söluskatts á matvæli og
jafnframt tollalækkanir á ýmsum
öðrum ,,nauðsynjavörum“.
Matarskatturinn leggst á allar
matvörur, einnig nýmjólk og
mjólkurafurðir, en útsöluverð á
nýmjólk, skyri, smjöri og dilk-
akjöti breytist ekki að sinni vegna
aukinna niðurgreiðslna. Þær nið-
urgreiðslur er hins vegar bundnar
sem föst krónutala og því munu
frekari hækkanir á þessum vörum
koma að fullu fram í útsöluverði.
Sem dæmi um hækkanir á mat-
vörum í verslunum í dag má
nefna að nýir ávextir hækka um
15%, ostar um 10-15%, fiskur
um 10%, innflutt grænmeti um
7%, alifugla- og svínakjöt um 5-
10%, nautakjöt um 10%, brauð
um 13% og egg um 5-10%. Einn-
ig hækkar sykur, kaffi og fleiri
almennar neysluvörur.
Þær vörur sem lækka í verði
vegna tollabreytinga eru ma.
niðursoðið grænmeti um 15%,
niðursoðnir og þurrkaðir ávextir
um 35% og mjölvara um 9%. Þá
lækka ýmsar aðrar vörur einnig í
verði eins og sjampó og tann-
krem um 25%, tannburstar um
45%, varalitur um 47%, hnífapör
og borðbúnaður um 40-50%,
íþróttavörur um 10-20%, hjól-
barðar um 20%, hreinlætistæki
um 45%, bamavagnar um 42%,
pelar um 45%, snuð um 40% og
bamabflstólar um 16%. _ lg.
Dýrara
ímatinn