Þjóðviljinn - 07.01.1988, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN
Vill einhver
barngóður
passa 7 mán. strák
á meðan mamma kennir 3 morgna í
viku frá jan.-maí. Sími 14148.
Óskum eftir
þvottavél, þurrkara og barnakerru.
S. 16404.
Vinnustofa
Myndlistarmann bráðvantar vinn-
ustofuhúsnæði. Allt kemur til greina
t.d. háaloft eða kjallari. Uppl.s.
681333 og 687122. Filip.
Þýskur námsmaður (24)
óskar eftir herbergi
í húsnæði með öðrum náms-
mönnum frá lokum jan. a.m.k. til
loka júlí. Helst í nágrenni há-
skólans. Svör sendist Þjóðviljanum
merkt Michael Schulte.
Bíll til sötu
Ford Fiesta 1984 til sölu. Uppl.s.
34989 eftir kl. 4.
Barnarúm, tvíburakerra
Óska eftir barnarúmi með upp-
hækkanlegum botni. Til sölu á
sama stað tvíburavagn og kerra í
mjög góðu ásigkomulagi. Uppl.s.
53972.
Halló-halló
Ragnar fjögra ára vantar skemmti-
lega og góða barnfóstru fyrir há-
degi. Uppl. í s. 39616 eftir kl. 18.
Falleg kolsvört
og þrifin 3ja mán. gömul læða óskar
eftir góðu heimili. Uppl. s. 28186.
Til sölu
tvær loðskinnshúfur, mæðraplattar
frá 1970-1980, þurrskreytingar og
ýmislegt gamalt smádót. Sími
27214.
ísskápur
Atlas, hæð 118 cm, breidd 55 cm er
til sölu. Sími 75913.
Gefins
fsskápur fæst gefins. Sími 84563
e. kl. 18.
Mótatimbur óskast keypt
1x6 og 2x4. Upplýsingar í síma
12014.
Má kosta 100 þúsund
Óska eftir góðum og sparneytnum
bíl gegn staðgreiðslu kr. 100 þús.
Allar tegundir, stærðir og árgerðir
koma til greina. Uppl.s. 18054 á
kvöldin og í síma 681310 milli kl. 9
og 17.
Corona ferða-
tölva til sölu
Corona PC ferðatölva til sölu.
Sanngjarnt verð. Upplýsingar í
síma 12014.
íbúð óskast til leigu
Óskum eftir að taka íbúð á leigu
sem fyrst. Við erum barnlaust par á
þrítugsaldri. íbúðareigendur vin-
samlegast hringið í síma 72863
e.kl. 6 á kvöldin.
Svalavagn óskast
Óska eftir ódýrum svalavagni sem
fyrst. Upplýsingar í síma 15482.
Til sölu
Trabant 84, skoðaður 87. Ekinn
tæplega 30 þús. km. Uppl. í síma
15280 og v.s. 84566. Kristín U.
Vél í Rover 3500
Mig vantar vél í Rover 3500 árg. 78
eða Range Rover árg. 78. Uppl. í
síma 37685 á kvöldin.
Til sölu
Margskonar húsgögn, amerískur
ísskápur o.fl. Smókingföt, sem ný, á
meðalmann. Fæst allt fyrir litið.
Upplýsingar í síma 51638.
Ritvél til sölu
Lítil rafmagnsritvél með tösku og
leiðréttingaborða. Nýyfirfarin og
lítið notuð. Tilvalin fyrir mennta-
skólanema. Sími 78512.
Til sölu
Konica myndavél með aukalinsum.
Amerískt litasjónvarpstæki með At-
ari tölvuspili og Sinclair tölvu. Dyn-
aco hljómflutningstæki og Olympia
rafmagnsritvél. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 39236.
Lítil íbúð óskast
Rólegur, tvítugur matreiðslunemi
óskar eftir að leigja einstaklings-
íbúð í gamla bænum eða Hlíðunum.
Skilvísum greiðslum heitið. Sími
14462 frá kl. 15-19 á föstudag.
Gunnar.
Til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart, upphitaö. Upplýs-
ingar í síma 681455.
Til sölu
Commodore 128 K með diskettu-
drifi, diskettuboxi, 75 diskettum,
150 leikjum og stýripinna. Upplýs-
ingar í síma 74035. Egill Darri.
Skákþing
Reykjavíkur 1988
hefst að Grensásvegi 46 sunnudag 10. janúar kl.
14. Keppendur tefla í einum flokki, ellefu eftir
Monradkerfi.
Öllum er heimil þátttaka.
Umferðir verða að jafnaði þrisvar í viku, á sunnu-
dögum kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum
kl. 19.30. Fyrstu vikuna verða þó tefldar fjórar
umferðir og verður önnur umferð mánudaginn
11. janúar kl. 19.30. Biðskákadagar ákveðnir síð-
ar.
Skráning á mótið fer fram í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning í aðalkeppnina
verður laugardaginn 9. janúar kl. 14-18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugardaginn
16. janúar kl. 14. Tefldar verða 9 umferðar eftir
Monrad-kerfi og tekursú keppni þrjá laugardaga,
þrjár umferðir í senn.
Taflfélag Reykjavíkur
Grensásvegi 44-46
Samar: 83540 og 681690
Leiklistarnámskeið
Námskeið í leikrænni tjáningu og spuna
Byrjendur 7-10 ára 9. janúar.
Byrjendur 10-13 ára 10. janúar.
Námskeið fyrir fullorðna í leikbókmenntum og
sviðsframkomu hefst sunnudaginn 17. janúar.
Innritun og upplýsingar í síma 28737.
Leikhúsið okkar -
Elísabet Brekkan
Hvers konar fugl er það sem verpir slíku eggi? Hann er náttúrlega ekki til, enda er þetta gabbrósteinn á hlaðinu hjá
honum Sigurði á Kviskerjum.
Skaftfellingar
Samhjálpin var þeirra
almannatrygging
Fimmti árgangur kominn út
Á undanförnum árum hafa
komið út nokkur tímarit, sem
tengd eru ákveðnum héruðum á
landinu. Sum koma út árlega,
önnur sjaldnar. Öll eiga rit þessi
það sameiginlegt að megin efni
þeirra er margháttaður fróð-
Íeikur, sem betur er geymdur en
gleymdur. Hið síðara myndi þó
verða hlutskipti hans væri honum
ekki haldið til haga á þessum vett-
vangi. f því liggur megin þýðing
þessara rita og er ekki til að gera
litið úr.
Eitt þessara rita er Skaftfell-
ingur. Utgefandi hans er Austur-
Skaftafellssýsla en ritstjóri og
ábyrgðarmaður Friðjón Guðröð-
arson sýslumaður. Fimmti ár-
gangur Skaftfellings er nú ný-
kominn út. Er það margt forvitni-
legt að finna, sem ætíð áður.
Drýgstur í aðdráttum er þar Sig-
urður Björnsson á Kvískerjum,
sem á þarna fjóra þætti. Segir þar
fyrst frá Jóni Árnasyni síðast á
Hnappavöllum. Var saga hans
stráð ýmsum raunum og erfið-
leikum, eins og títt var um efna-
lítið fólk á þeim árum, en þó sá til
sólar á milli. Er að svarf um mat-
björg og aðrar nauðsynjar á
heimili Jóns, sem annarsstaðar
hefði leitt til upplausnar heimilis-
ins, kváðu hreppsnefndarmenn í
Öræfum upp úr með það, að
sveitarstjórnir þar hefðu aldrei,
„sundrað fjölskyldu, svo langt
aftur sem sagnir næðu, heldur
hefði alltaf verið reynt að hjálpa
þeim, sem hjálpar þyrftu til að
halda saman sínum heimilum og
þá hefð vildu þeir ekki brjóta.“
Svo var heldur ekki gert í þetta
sinn. Er þetta góður vitnisburður
um félagsþroska og drenglund
þeirra Öræfinga. Samhjálpin var
þeirra almannatrygging.
Helgi Arason á Fagurhólsmýri
var einn af brautryðjendum raf-
væðingar íslenskra sveita. í grein-
um þeirra Sigurðar á Kvískerjum
og Páls Þorsteinssonar fyrrum al-
þingismanns á Hnappavöllum,
fáum við að kynnast lífi og starfi
þessa sjálfmenntaða snillings.
Sigurður segir einnig frá sýslu-
fundi A-Skaftfellinga 1964 og
klakamælingum á Mýrum 1967-
85.
Austur-Skaftafellssýsla er um
margt ólík öðrum héruðum
landsins. Að baki gnæfa himinhá-
ir jöklar, sem víða teygja anga
sína ofaní byggðina, framundan
svarrar brimið við hafnlausa
ströndina, torfær og stundum
ófær jökulfljót rista byggðina
sundur um þvert. Umhverfið er
allt í senn: tignarlegt, fagurt og
ógnþrungið. Við þessar aðstæður
ólust Skaftfellingar upp og
bjuggu við kynslóð fram af kyn-
slóð. Glíman við þá erfiðleika,
sem þessar aðstæður sköpuðu,
var hluti af þeirra daglega lífi.
Þeir lögðu til atlögu við þá, fyrir
aðra jafnt sem sjálfa sig, hvenær
sem þess þurfti og báru oftast
sigur af hólmi, enda þótt öðrum
hefði stundum sýnst, að gengið
væri beint í opinn dauðann. Að
þessari torsóttu og oft lífshættu-
legu viðureign við stórfljót, jökla
og brimskafla lúta sumar frásagn-
ir í Skaftafellingi. Má þar nefna
grein Ragnars Stefánssonar í
Skaftafelli um slysið á Vatnajökli
1953, en þá fórust tveir breskir
námsmenn, sem voru þar við
rannsóknir. Einnig svaðilför
Hannesar á Núpstað og Öræfinga
yfir skaftfellsku vötnin 1939, (ein
af mörgum) og Á strandfjöru,
eftir Friðjón Guðröðarson sýslu-
mann, þar sem hann segir frá
strandi færeysks kútters á Rauða-
bergsfjöru í maí 1984 og björgun-
arstörfum í sambandi við það.
Birt er ávarp, sem Páll Þor-
steinsson fyrrverandi aiþingis-
maður flutti er minnisvarði um
Úlfljót, fyrsta lögsögumann ís-
lendinga var afhjúpaður austur í
Lóni 15. júní 1985 og einnig
kvæði, sem Þorsteinn Jóhanns-
son á Svínafelli orti um Úlfljót
við sama tækifæri. Hugnæm er
frásögn Ragnheiðar Viggósdótt-
ur um listakonuna skammlífu,
Kristínu Stefánsdóttur frá Hlíð í
Lóni.
„Helgi í Bæ“ hefur verið eftir-
minnilegur maður. Ungur að
aldri fatlaðist hann svo af völdum
lömunarveiki að fæturnir voru
honum ónýtir upp frá því. En
Helgi lét fötlunina ekki hefta sig
umfram það, sem óhjákvæmilegt
var. Hann var ákaflega hagur í
höndum, jafnt á tré sem járn og
listfengur bókbindari. Frá þess-
um sérstæða manni segja þær Að-
alheiður Geirsdóttir og
Sveinbjörg Eiríksdóttir.
í ágústmánuði 1937 sótti Þor-
bergur Þorleifsson, alþingismað-
ur í Hólum, enska land- og jarð-
fræðinema inn að Snæfelli.
Haukur Þorleifsson, bróðir Þor-
bergs, hefur tekið saman dagbók-
arblöð hans frá þessari ferð og
segir jafnframt nokkuð frá
bróður sínum umfram það, sem
ferðasagan greinir okkur frá.
Birtur er síðari hluti frásagnar
E.T. Hollands af íslandsferð
hans 1861, en fyrri hlutinn hafði
áður verið birtur. „Um bryggj-
una, Braggann, leiklistina og
sjálfan mig“ nefnist grein eftir Pál
Imsland, sem hann samdi fyrir
nokkrum árum „að beiðni fyrsta
mjólkurbússtjórans á Höfn,
fyrsta bygðasafnsvarðarins,
fyrsta heilbrigðisfulltrúans
o.s.frv.“ - og er ekki að furða
þótt eitthvað yrði undan að láta.
Steinþór Þórðarson á Hala var
Iandsfrægur frásagnamaður svo
sem samtalsbók hans og Stefáns
Jónssonar, fyrrverandi frétta- og
alþingismanns bar ljósastan vott-
inn um. Hallfreður Örn Eiríks-
son hefur tínt saman sitthvað úr
sagnasjóði Steinþórs og birtir í
Skaftfellingi.
Árið 1864 var verslun hafin í
Papós eystra en lauk þar 1897 og
fluttist þá til Hafnar í Hornafirði.
Þegar 100 ár voru liðin frá upp-
hafi Papósverslunar og þar með
verslunar í sýslunni, var þess
minnst austur á Papósi. Þar flutti
Stefán Jónsson í Hlíð erindi um
Papósverslun og kemur það nú
hér fyrir almenningssjónir. Enn
má svo nefna grein Bjarna Sig-
urðssonar í Hofsnesi: „Árið 1912
var örlagaríkt í Öræfum." Er það
einskonar annáll um ýmsa at-
burði, sem þá gerðust þar í sveit,
m.a. nokkuð sérkennilegar
prestskosningar. Tvö ljóð eru í
ritinu. Er annars þeirra áður get-
ið en hitt er um sýslunefnd þeirra
Skaftfellinga, eftir Aðalheiði
Geirsdóttur, Höfn. Loks eru
annálar frá sveitarfélögum sýsl-
unnar og getið látinna héraðs-
búa.
Friðjón Guðröðarson sýslu-
maður er nú horfinn úr héraði og
fluttur að Hvolsvelli, þar sem
hann hefur tekið við sýslu-
mannsembætti. Hann hefur verið
ritstjóri Skaftfellings og átt
ómældan þátt í útgáfu hans. En
þó að Friðrjóns sýslumanns njóti
nú ekki lengur við er þess að
vænta, að Skaftfellingur láti ekki
merkið niður falla, því langt mun
þess að bíða að fræðabrunnar
þeirra verði þurrausnir, auk þess
sem hver nýr dagur er orðinn að
sögu að kvöldi.
-mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. janúar 1988