Þjóðviljinn - 21.01.1988, Page 1
Fimmtudagur 21. janúar 1988 15. tölublað 53. árgangur
Hvalveiðiráðstefnan
að verður ekki staðfest fyrr en
á milii klukkan átta og níu í
fyrramálið hvar ráðstefnan verð-
ur haldin, sagði Haukur Ólafs-
son, deildarstjóri i utanríkisráð-
uneytinu, í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær um ráðstefnu hvalveiði-
þjóða sem sett verður í Reykjavík
í dag.
Halldór Asgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, mun setja ráð-
stefnuna klukkan níu árdegis í
dag og fá blaðamenn að hlusta á
setningarávarpið, sem verður á
ensku. Eftir það er ráðstefnan
lokuð fjölmiðlum, sem og öðr-
um.
Haukur sagði að búið væri að
ákveða ráðstefnustaðinn en ekki
mætti gefa neinar upplýsingar um
hvar hann væri. Hann sagði að
lögreglan myndi hafa einhvern
viðbúnað í kringum ráðstefnuna
auk þess sem gæsla hefur verið
efld við hvalbátana.
íslenska sendinefndin er að
sögn Hauks mjög stór og er Krist-
ján Loftsson í nefndinni, auk
Halldórs Ásgrímssonar, sem er
formaður íslensku sendinefndar-
innar, og Steingríms Hermanns-
sonar. Haukur vildi ekki gefa
nánari upplýsingar um hvernig
sendinefndin er samsett, en sagði
að blaðamenn fengju lista yfir
hana.
Hinar þátttökuþjóðirnar senda
misstórar sendinefndir. Græn-
lendingar senda tvo áheyrnarfull-
trúa, Rússar, Færeyingar og Kan-
adamenn senda þrjá fulltrúa hver
þjóð. Japanir senda 7 fulltrúa og
Norðmenn 12.
Atli Dam er eini erlendi
ráðherrann sem sækir ráðstefn-
una. Hinar þjóðirnar senda emb-
ættismenn og vísindamenn utan
Japanir en formaður sendinefnd-
ar þeirra er þingmaður.
-Sáf
Löggæsla hefur verið efld mjög við hvalbátana vegna ráðstefnu hvalveiðiþjóða
í Reykjavík í dag og á morgun. Mynd - E.ÓI.
Útvarp
Borgara-
flokkurinn
íRót
Borgaraflokkurinn
verður meðfasta
þœtti í Útvarpi Rót.
Hulda Jensdóttir Ijós-
móðir líka
Borgaraflokkurínn hefur feng-
ið fasta þætti þjá útvarpsstöðinni
Rót og verður þeim útvarpað
aðra hverja viku á miðvikudags-
kvöldum. Þá hefur Hulda Jens-
dóttir ijósmóðir fengið fastan
tíma í útvarpinu á sunnudags-
kvöldum og heitir þátturinn Líf-
vernd. Útvarpið hefur útsending-
ar nk. sunnudag.
„Við erum bara ánægð með
þetta,“ sagði Þóroddur Bjama-
son framkvæmdarstjóri Rótar í
samtali við Þjóðviljann. Þórodd-
ur sagði að þessir aðilar hefðu
sótt um að hafa þátt eins og aðrír
sem eru með dagskrárgerð í út-
varpinu en útvarpið sé öllum
opið. „Útvarp Rót hefur enga á-
kveðna pólitíska stefnu. Pólitísk
stefna þess er summa þeirra hópa
sem þar verða með þætti,“ sagði
Þóroddur. -K.Ól.
Kjarasamningar
Ný þjóöarsátt á döfinni
Útspil krata: Ný þjóðarsátt á teikniborðinu á Vestfjörðum og Suðurnesjum. Skattaívilnanir ístað
taxtahœkkana. Karvel Pálmason: Skammtímasamningar komatilgreina. Björn Grétar Sveinsson:
Skattaívilnanir engin lausn
Sjá bls. 3 “Sáf/rk
Mý þjóðarsátt virðist vera að
fæðast að undirlagi krata í
verkalýðshreyfíngunni, en Jón
Baldvin Hannibalsson mun eiga
stóran þátt í því að þjóðarsátt er
nú á teikniborðinu á Vestfjörðum
og Suðurnesjum. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans hefur fjár-
málaráðherrann tekið vel í þá
hugmynd að veita fískverkafólki
skattívilnanir á borð við þær sem
sjómenn njóta, gegn „hóflegum
kaupkröfum“.
Pétur Sigurðsson, formaður
Alþýðusambands Vestfjarða
neitaði þessu þegar Þjóðviljinn
spurði hann tíðinda af fundi hans
og fjármálaráðherra fyrr í vik-
unni.
í höfuðvígjum krata í verka-
lýðshreyfingunni, - Vestfjörðum
og Suðurnesjum, er nú allt kapp
lagt á að samningar til skamms
tíma takist hið fyrsta á fyrrnefnd-
um nótum, sem geti lagt línurnar
fyrir aðra.
Formaður og varaformaður
Verkamannasambandsins hafa
lýst yfir þeirri skoðun sinni að
þess beri að freista að ná
skammtímasamningum, þar sem
allt kapp yrði Iagt á að rétta kjör
þeirra lægstlaunuðu, meðan tím-
inn yrði undirbúinn fyrir samn-
inga til lengri tíma.
I viðtali við Þjóðviljann sagði
Karvel Pálmason að æskilegt væri
að ríkisvaldið hefði hönd í bagga
með gerð kjarasamninga, t.d.
með því að hækka skattleysis-
mörk hjá fiskvinnslufólki.
- Skattaívilnanir eru engin
allsherjar lausn. Skattaafsláttur
réttir ekki hlut þeirra sem hafa
laun undir skattleysismörkum,
sagði Björn Grétar Sveinsson,
formaður verkalýðsfélagsins
Jökuls á Höfn í Hornafirði.
Bifreiðagjöld
Ósvífinn snjósleðareikningur
Stefán Rögnvaldsson: 11 þúsund króna gjald fyrir gamlan snjósleða
Bændur í Öxnafirði í N-
Þingeyjarsýslu hafa fengið
reikning fyrir bifreiðagjöld af
snjósleðum og ber þeim að gi^iða
rúmar ellefu þúsund krónur af
sleðunum í ár.
Að sögn Stefáns Rögnvalds-
sonar, bónda að Leifsstöðum í
Öxnafirði, fékk hann reikning
fyrir bifreiðagjöld fyrir hálft árið
nýlega og ber honum að greiða
5.145 krónur fyrir jeppa sem
hann á, 3.815 krónur fyrir fólks-
bíl og 5.675 krónur fyrir gamlan
snjósleða frá 1977.
Hann sagðist hafa haldið að
hér væri um misskilning að ræða
en komist að því að fleiri bændur
á næstu bæjum hefðu fengið svip-
aða reikninga.
„Það er ekki einsog við notum
þessa snjósleða til að leika okkur,
heldur eru þeir m.a. notaðir í eft-
irleitir á heiðunum. Þetta er því
einhver ósvífnasti reikningur sem
ég hef fengið fram til þessa.“
Stefán sagðist aka snjósleðan-
um um 5-600 kílómetra á ári og
aðallega væri það utan vega.
-Sáf
Alþýðublaðið
Gaspur út í loftið
„Þetta er gaspur út í loftið, tal-
að af manni sem ekkert þekkir til
verkalýðsbaráttu né þeirra kjara
sem verkafólk verður að lifa við,“
sagði Karvel Pálmason um
leiðara Alþýðublaðsins í gær.
í leiðaranum er ferð þeirra
Karvels og Guðmundar J. Guð-
mundssonar um landið til að
kanna hug félagsmanna í Verka-
mannasambandinu, kölluð ferð
án fyrirheits sem sé meira í þágu
verkalýðsforystunnar en verka-
lýðsins sjálfs.
Karvel sagði að ferð þessi hefði
verið samþykkt einróma á fram-
kvæmdastjórnarfundi VMSÍ og
meðal þeirra sem lögðu þetta til
voru góðir og gegnir kratar á
borð við Guðríði Elíasdóttur og
Rögnu Bergmann.
„Sá sem skrifaði þetta ætti að
reyna að lifa af þeim launum sem
greidd eru í frystihúsi.“ -Sáf
Leynd og pukur
Ekki uppgefið fyrren ídaghvar ráðstefnan verður haldin. Sendinefnd
íslands mjögstór. Kristján Loftsson einn afíslenskufulltrúunum á
ráðstefnunni