Þjóðviljinn - 21.01.1988, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
SÍM
Aðför að
myndlistar-
Listskreytingasjóður
ríkisins óstarfhæfur
vegna stórlega skertr-
ar veitingar áfjár-
lögum
Stjórn sambands íslenskra
myndllstarmanna lýsir furðu
sinni á meðferð ijárveitingar-
nefndar og Alþingis á lögum um
Listskreytingasjóð ríkisins nr. 34/
1982, og mótmælir harðlega stór-
felldum niðurskurði á fjárfram-
lagi til sjóðsins. Niðurskurðurinn
nemur 3/4 hlutum af lögmætu
framlagi.
í lögum Listskreytingasjóös er
kveðið á um stofnun sjóðs, er hafi
það markmið að fegra opinberar
byggingar með listaverkum.
Ennfremur segir þar: „Tekjur
sjóðsins eru: Árlegt framlag
ríkisins. Framlagið nemur 1%
álagi á samanlagðar fjárveitingar
rfkissjóðs í A-hluta fjárlaga til
þeirra bygginga sem ríkissjóður
stendur að einn eða með öðrum.
Af fylgiskjölum fjárlaga má ráða
að fjárveitingar til opinberra
bygginga á árinu 1988 eru áætlað-
ar 1.890 millj. kr. Samkvæmt of-
angreindu skal fjárveiting til
sjóðsins lögum samkvæmt vera
18.9 millj kr. Sjóðurinn fær hins
vegar úthlutað á fjárlögum 5
millj. kr. og nemur skerðing
fjárframlags nálægt 3/4 hlutum.
Stjórn sambands íslenskra
myndlistarmanna telur þennan
stórfellda niðurskurð aðför að
hagsmunum myndlistarmanna og
ekki síður aðför að því menning-
arframtaki sem lög um List-
skreytingasjóð ríkisins eru.
Sjóðnum er með slíku smánarf-
ramlagi gert ókleift að sinna því
hlutverki sem honum er ætlað.
LG
Hafrannsókn
Loðnuleiðangur
Ókynþroska loðna
könnuð
Öðru hvoru mcgin við næstu
helgi fer rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson í rannsóknaferð til
að mæla stofninn af ókynþroska
loðnu, sem verður væntanlega
uppistaðan í loðnuveiðunum á
næstu vertíð,
Að sögn Jakobs Jakobssonar,
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar átti Bjarni Sæmundsson að
leggja af stað í gær samkvæmt
áætlun, en þar sem skipið hefur
verið í slipp að undanförnu
seinkaði ferðinni um nokkra
daga. Stofnstærð ókynþroska
loðnu verður könnuð allt frá
norðanverðum Austfjörðum og
vestur með Norðurlandi og djúpt
út af Vestfjörðum. Leiðangurs-
stjóri í þessari ferð verður Hjálm-
ar Vilhjálmsson, fiskifræðingur.
-grh
blÓÐVILIIN
Fimmtudagur 21. janúar 1988 15. tölublað 53. órgangur
Yflrdráttur
á téKKareiKninea
launafólKs
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
HÆKKUN
IÐGIAIDA Tll IÍFEYRISSJÓÐA
Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til
lífeyrissjóða í áföngum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af öllum
launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur
gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á
mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal
ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem
svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma-
kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við-
bættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að
viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
1987
1988
1989
Hluti
starfsmanna:
1,0%
2,0%
3,0%
Hluti
atvinnurekenda:
1,5%
3,0%
4,5%
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur
með sama hætti 6%.
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
byggingamanna
Dagsbrúnar og Framsóknar
Félags garöyrkjumanna
framreiðslumanna
málm- og skipasmiða
matreiðslumanna
rafiðnaðarmanna
Sóknar
Lsj. verksmiðjufólks
Lsj. Vesturlands
Lsj. Bolungarvíkur
Lsj. Vestfirðinga
Lsj. verkamanna, Hvammstanga
Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði
Lsj. Iðju á Akureyri
Lsj. Sameining, Akureyri
Lsj. trésmiða á Akureyri
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks í Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar