Þjóðviljinn - 23.01.1988, Qupperneq 2
r"SPURNINGIN""1
Hvað finnst þér um þær
móttökur sem Paul Wat-
son fékk við komuna til
landsins?
Kjartan Kjartansson
prentari:
Helst hefði nú átt að stinga hon-
um inn í 2 til 3 ár. í mínum augum
er hann hryðjuverkamaður, og
þeir sem fylgja honum að málum
hér á landi eru samsekir.
Guðrún Hreinsdóttir
húsmóðir:
Mér finnst ekkert að þeim. Hann
átti þetta skilið.
Stefán Steinar Smárason
nemi:
Allt gott um þær að segja, en það
hefði mátt taka harðar á honum.
Watson er skemmdarverkamað-
ur, og sorglegt að til skuli vera
fólk á íslandi sem styður hann.
Ásta Malmquist
laganemi:
Það var sjálfsagt af lögreglunni
að tala við hann, enda ber hann
ábyrgð á skemmdarverkum hér á
landi.
Guðrún Loftsdóttir
afgreiðslukona:
Mér fannst alveg rétt að stinga
honum inn. Ég er ekkert hrædd
um að hann verði einhver píslar-
vottur hjá sínu fólki út á þetta.
__________________FRÉTTIR________________
Verslunarmenn
VMSÍ hafi forystu
Björn Þórhallsson: Eðlilegtað VMSÍ ríði á vaðið. Fleiri lágt
launaðir en fiskverkunarfólk
Við hjá Landssambandi versl-
unarmanna erum vel meðvit-
uð um það að verslunarfólk er
ekki í þeirri stöðu að það geti
riðið á vaðið um gerð kjarasamn-
inga. Það er hyggilegast að
Verkamannasambandið sem er
fjölmennast landssambandanna
innan ASÍ hafi forystu um gerð
kjarasamninga í þetta sinnið,
enda virðast kjaramál fiskverk-
unarfólks brenna þyngst á
mönnum eins og stendur, sagði
Björn Þórhallsson, formaður
Landssambands verslunarmanna
og varaforseti Alþýðusambands-
ins.
Aðspurður sagðist Björn telja
skammtímasamninga vel koma
til greina, í það minnsta meðan
alls óvíst væri til hvaða aðgerða
ríkisvaldið gripi í efnahagsmál-
um.
- Skattaívilnanir eins og lækk-
un skattleysismarka kemur einn-
ig til greina og þá fleirum til
handa en fiskverkunarfólki einu.
Björn sagði að verslunarfólki
svíði sárt þegar ætíð væri rætt á
þeim nótum að fiskverkunarfólk
væri lægst launað allra. - Fisk-
verkunarfólk er alltaf sagt með
um 30 þús. kr. í mánaðarlaun og
öðrum kaupgreiðslum eins og
bónusnum hreinlega sleppt út úr
myndinni. Ég hef vanist því að
telja allar greiðslur sem menn fá
fyrir unnin störf til launa, hvaða
nafni sem þær annars nefnast.
- Með þessu er ég ekki að
segja að fiskverkunarfólk sé of
sælt af sínum launum og margt af
því er aðeins á strípuðum
kauptöxtunum. En það er einnig
svipað ástatt með fjölda fólks í
öðrum starfsstéttum. Ekki hefur
afgreiðslufólk í verslunum úr
öðru að spila en töxtunum og
sama er að segja um stóra hópa
iðnverkafólks, sagði Björn.
- rk.
Alþýðubankinn
Bjöm
banka-
stjóri
Aðstoðarráðherrann
farinn frá Jóni
Bankaráð Alþýðubankans á-
kvað í gær að ráða Björn Björns-
son bankastjóra frá 1. mars.
Björn tekur við starfi Stefáns
Gunnarssonar sem hætti störfum
síðasta sumar. Björn er tæplega
fertugur viðskiptafræðingur,
vann hjá Kjararannsóknarnefnd,
og sem hagfræðingur ASÍ þartil
hann varð aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra nú í september.
Aðstoðarbankastjórar í bank-
anum eru þeir Guðmundur Ág-
ústsson og Ólafur Ottósson.
Ráðstefna
Samstarf heil-
brigðisstétta
Samtök heilbrigðisstétta halda
ráðstefnu í dag, laugardaginn 23.
janúar, um „samstarf heilbrigðis-
stétta“, og hefst hún klukkan 10
árdegis og lýkur klukkan 17.
Ráðstefnan er haldin að Borgart-
úni 6, 4. hæð.
Jón Bjarni Þorsteinsson, for-
maður samtakanna, mun setja
ráðstefnuna en því næst ávarpar
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, ráðstefnugesti.
14 fulltrúar innan Samtaka
heilbrigðisstétta munu halda 10
mínútna erindi hver og að þeim
loknum verða opnar umræður.
Ráðstefnustjórar eru Arinbjörn
Kolbeinsson, Guðjón Magnús-
son, Þuríður Ingimundardóttir
og Hulda Ólafsdóttir. Ráðstefn-
an er öllum opin, en skráning fer
fram í Borgartúni 6. -Sáf
Lög eftir þessa laga- og textasmiði munu keppa f Sjónvarpinu í mars n.k. um þann heiður að verða fulltrúi íslands í Dublin
á Irlandi 30. apríl nk. Þegar sjálf lokakeppnin fer þarfram í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1988. Mynd: Sig.
Ráðstefna hvalveiðiríkja
Stefnt að úrsögn úr ráðinu
Guðrún Helgadóttir: Einkumfjallað um stofnun staðbundinna sam-
taka hvalveiðiríkja
að er Ijóst til hvers þessi ráð-
stefna er haldin. Þessar þjóðir
eru að hugsa um að losa sig úr
Alþjóðahvalveiðiráðinu og stofna
önnur samtök hvalveiðiþjóða,
sagði Guðrún Helgadóttir þing-
maður, en hún hiýddi á fram-
söguerindin sem flutt voru í fyrra-
dag á hvaJveiðiráðstefnunni.
Guðrún sagði að í þeim erind-
um hefði ekkert komið fram sem
ekki var þegar vitað og sagðist
hún því ekki skilja laumuspilið í
kringum þetta, en blaðamönnum
var meinað að hlýða á önnur er-
indi en setningarávarp sjávarút-
vegsráðherra.
Að sögn Guðrúnar einkennd-
ust erindin af því að menn virtust
almennt mjög neikvæðir í garð
Alþjóðahvalveiðiráðsins. „Það
má vel vera að eitthvað sé að
starfsemi ráðsins en þarna var
ekkert talað um að bæta starf-
semi þess.“
Guðrún sagði ljóst að á ráð-
stefnunni hefði einkum verið
fjallað um hugmynd um að stofna
staðbundin samtök hvalveiði-
ríkja og augljóst væri að fulltrúar
Japan tækju undir þá hugmynd
og hefði það komið fram í erindi
japanska fulltrúans.
„Ríkisstjórnin getur hinsvegar
ekki sagt Islendinga úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu. Slíkt er mál Al-
þingis. Þessi fundur er því með
ólíkindum. Þarna er annarsvegar
verið að ræða viðkvæmt um-
hverfisverndarmál, sem menn
um allan heim hafa áhuga á, og
hinsvegar jafn viðkvæmt mál sem
varðar alþjóðleg samskipti. Hafi
íslensk stjórnvöld hug á að segja
okkur úr Alþjóðahvalveiði-
ráðinu hefði sú umræða vitanlega
átt að fara fram á Alþingi því hér
er um pólitískt mál að ræða, mál
sem er bæði ógnun við samstarf
Norðurlandaþjóða og við ýmsar
þær þjóðir sem íslendingar eiga
mikilvæg viðskipti við.“
-Sáf
Söngvakeppnin
Tíu bestu
lögin
1 gser var tilkynnt hvaða tíu lög
keppa til úrslita um sæti íslands í
söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva, sem verður haldin í Dublin á
írlandi 30. apríl nk. en alls bárust
dómnefndinni 117 lög og hafa þau
aldrei verið fleiri.
Eftirtalin lög munu keppa til úrs-
lita: Eitt vor eftir Kristin Svavarsson
og Halldór Gunnarsson, / fyrrasumar
eftir Grétar Örvarsson og Ingólf
Steinsson, Ástarœvintýr eftir þá
Eyjólf Kristjánsson, Inga Gunnar Jó-
hannesson og Aðalstein Ásberg Sig-
urðsson, Sólarsamba eftir Magnús
Kjartansson og Halldór Gunnarsson,
Aftur og aftur eftir Jakob Frímann
Magnússon, Mánaskin eftir Guð-
mund Árnason og Aðalstein Ásberg
Sigurðsson, Látum sönginn hljóma
eftir þá Geirmund Valtýsson og
Hjálmar Jónsson, Ég og þeir eftir
Sverri Stormsker, / tangó eftir Gunn-
ar Þórðarson og Þorstein Eggertsson
og Dag eftir dag sem Valgeir Skag-
fjörð er höfundur að.
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. janúar 1987