Þjóðviljinn - 29.01.1988, Side 2

Þjóðviljinn - 29.01.1988, Side 2
___________________SKAK___________________ Fjórða einvígisskák Jóhanns og Kortchnois Jafntefli nægir Jóhanni! Eftirsigur ífjórðu skákinniþarf Jóhann aðeins hálfan vinning úr tveim síðustu skákunum ™SPURNINGII>^ Hverju spáir þú um úrslit í áskorendaeinvíginu milli Jóhanns og Korts- nojs í St.John í Kanada? Edda Filippusdóttir ræstitæknir: Ég held að Jóhann vinni. Hann er rólegri og yfirvegaðri. Gunnar Jónsson brunavörður: Ég vona að Jóhann Hjartarson vinni, hann er alltaf að verða betri og betri. Kanski er Kortsnoj að slappast. Jóhanna Magnúsdóttir fóstra: Ég segi að Jóhann vinni. nemi: Jóhann vinnursíðustu þrjárskák- irnar. Hann er miklu betri. Rósa Sveinsdóttir starfar á sólbaðsstofu: Ég held að Jóhann muni ekki tapa neinni skák. Jóhann Hjartarson stendur nú með pálmann í höndunum í ein- vígi sínu við Viktor Kortchnoi eftir sigurinn í fjórðu skákinni í gærkveldi. Æsispennandi skák tók óvænta stefnu. Jóhann jafn- aði taflið eftir fremur óvenjulega byrjunartaflmennsku Kortchnois en hann gáði ekki að sér, lék óná- kvæmt og eftir rúma tuttugu leiki var staða hans orðin afar erfið. En feiknarlegt tímahrak Kortch- nois skipti sköpum, hann fann ekki bestu leiðina í afar vænlegri stöðu og féll á tíma eftir að hafa leikið sínum 35. leik, þá með gjörtapað tafl. Skák Jóhanns og Kortchnois vakti feiknalega athygli í skák- höllinni í St.John. Kortchnoi var greinilega staðráðinn í að jafna metin en hann eyddi of miklum tíma í fyrri hluta viðureignarinn- ar og hafði alltof fáar mínútur aflögu til að glíma við hin erfiðu vandamál er upp komu er á leið skákina. Jóhann þarf nú aðeins hálfan vinning úr tveim síðustu skákun- um til að tryggja sér sigur í einvíg- inu. Hvítt: Viktor Kortchnoi Svart: Jóhann Hjartarson Enskur leikur 1.RÍ3 (Kortchnoi hefur ekki í hyggju að kynna sér undirbúningsvinnu Jóhanns í Nimzoindverskri vörn, l.Rf3 hefur þó tæpast komið Jó- hanni á óvart enda einn algeng- asti upphafsleikur Kortchnois hin síðari ár.) 1. ...Rfó 2. c4 bó 3. g3 c5 4. Bg2 Bb7 5.0-0 eó 6. Rc3 Be7 7. d4 cxd 8. Dxd4 (Þá er komið upp hið svo- nefnda „broddgaltarafbrigði." Svartur stillir peðum sínum upp á þriðju reitaröðinni og bíður átekta. Atlögur hvíts að stöðu hans enda gjarna með skelfingu því „broddarnir'* stinga oft sár- lega.) 8. ...d6 9. Be3 (Sjaldséður leikur og líkasttil nýr af nálinni, Kortchnoi vill greinilega ekki feta alfaraslóð.) 9. ...0-0 lO.Hadl Rbd7 (Ef til vill tekur Jóhann áhættu með þessum leik því hann býður heim 1 l.Rb5. Svartur vill vita- skuld leika a7-a6 og væri þá hin „sanna“ broddgaltarstaða komin upp á borðinu.) 1 l.Rb5 (Kortchnoi lék þessum leik samstundis á fremur ruddalegan hátt, greinilega staðráðinn í að slá Jóhann út af laginu. Það duld- ist engum að þessi leikur hafði komið upp á vinnuborði Kortch- nois í eldhúskróknum heima.) HELGI ÓLAFSSON SKRIFAR FRÁ ST. JOHN 11. ...d5 12. Bf4 Bc5 13. Dd3 dxc 14. Dxc a6 15. Rc3 b5 16. Dd3 Db6 17. Rg5 (Það vakti athygli hve mikinn tíma Kortchnoi hafði notað á upphafsleikina. Hann hefur ekk- ert borið úr býtum eftir byrjun- ina, Jóhann hefur jafnað taflið fullkomlega.) 17. ...Bxg2 (Kortchnoi var eitthvað að ves- enast með kaffibrúsann sinn og það liðu tvær mínútur áður en hann svaraði.) 18. Kxg2 Had8?! (Sennilega ónákvæmur leikur. Hér kom sterklega til greina að leika 18....h6 með hugmyndinni 19. Rge4 b4! og nú strandar 20. Ra4 á Dc6 og svo framvegis.) 19.Rge4 (Meira en tuttugu mínútur fóru í þennan leik og nú átti Kortchnoi aðeins sautján mínútur eftir á klukkunni.) 19. ...Be7 20. D13 (tími:l,44) Da5 (1,21) 21. Rd6 Db4 22. Hd2 (Staða Jóhanns er nú afar erfið en tímaskorturinn verður Kortc- hnoi að falli. Hann átti aðeins níu mínútur eftir til að ljúka 18 leikjum.) 22. ...e5 23. a3 Db3 24. Bg5 Bxd6 25. Hxd6 Dxb2 (Langbesti möguleikinn í þess- ari stöðu. Nú er líklega best að leika 26.Hxa6 en Kortchnoi ieggur útí vafasama skiptamuns- fórn.) 26. Bxf6 Rxf6 27. Hxf6 8 §f I * #» 7 Stl W:- iiii 6 JlW 2 5 111 1 4 'h j /Mk 3 A th m ás i É 1111 a b c d e f g h 27. ...e4!! (Sennilega hefur Kortchnoi ekki séð þennan öfluga leik fyrir. Nú kemst drottningin í spilið eftir löngu skálínunni.) 28. Rxe4 gxf6 29. Rxf6+ Kg7! (Ekki 29....Kh8 30.DÍ5 og vinnur.) 30. Rd7 He8 31. Hdl Kh8 (Jóhann teflir vörnina af stakri snilld. Nú strandar 32.Dxf7 á 32....Dg7 og svo framvegis.) 32. DÍ4 Hxe2 33. Hd4 f5 (Furðuleg staða, hvítur getur sig hvergi hrært.) 34. Kh3 He7! (Riddarinn er í vanda staddur og hvar er sóknin? Jóhann var nánast jafn tímanaumur og Kortchnoi en hefur engu að síður ratað á réttu leikina og stendur nú til vinnings. í fátinu greip Kortchnoi drottninguna...) 35. Dd6... og féll á tíma um leið. abcdefgh Svartur getur drepið riddarann því hugmynd Kortchnois, 35...Hdxd7 36.DÍ6+ Kg8 37.Hg4+ strandar á 37...fxg4+! Staðan í einvíginu: Jóhann Hjartarson 3 Viktor Kortchnoi 1 Þau úrslit önnur er lágu fyrir er blaðið fór í prentun í nótt voru þessi: Vaganjan-Portisch jafnt. Sax-Short jafnt. Sokolov- Spraggett jafnt. Útlit var fyrir ' jafntefli í skákum Salovs og Tim- mans, Speelmans og Seirawans og Ehlvests og Jusupovs. 2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 29. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.