Þjóðviljinn - 05.02.1988, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.02.1988, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBANDALAGK) Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráð Fundur í bæjarmálaráöi, laugardaginn 6. febrúar kl, 10-12 í Skálanum, Strandgötu 41. 1) Umræða um stöðu bæjarmála og helstu verkefni framundan. 2) Undirbúningur fyrir afmælishátíð, blaðaútgáfa og fleira. Félagar eru hvattir til að mæta stundvíslega. Formaður Alþýðubandalagið Byggðamenn Alþýðubandalagsins Boðað er til þings sveitarstjórnarmanna í Þinghóli í Kópavogi 6. og 7. febrúar nk. Fundurinn hefst kl. 13.00 þann 6. febrúar og er takmarkið að honum Ijúki síðdegis á sunnudeginum. Eftirtaldir málaflokkar verða teknir til umræðu: 1) Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. 2) Hugmyndir Alþýðubandalagsins um breytingar í stjórnkerfinu. 3) Starf Byggðamanna næstu misseri. Sveitarstjórnarmenn og aðrir áhugamenn innan Alþýðubandalagsins um sveitarstjórnarmál eru beðnir að láta vita sem fyrst um þátttöku á skrifstofu AB, Hverfisgötu 105. Stjórnln Alþýðubandalagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi og Unnur Björnsdóttir fulltrúi í Tóm- stundaráði verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, laugar- daginn 6.I febrúar frá kl. 10-12. Allir velkomnir. Stjórnln Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld næstkomandi þriðjudagskvöld 9. febrúar kl. 20.00 að Hverfisgötu 105. Gestur kvöldsins: Kristín Á. Ólafsdóttir segir frá fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. ABR Alþýðubandalagið Kópavogi Spilakvöld í Kópavogi Efnt verður til þriggja kvölda spilakeppni í Þinghóli, Hamraborg 11. Spilað verður annan hvern mánudag, 8. og 22. febrúar og 7. mars. Byrjað verður að spila öll kvöldin kl. 20.30. Góð kvöld- og heildarverðlaun í boði. Mætið tímanlega. Allir velkomnir. Stjórn ABK Sumarnámskeið íuppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda við félags- vísindadeild Háskóla ís- lands Auk reglulegs vetrarnáms er unnt að stunda nám í uppeldis- og kennslufræðum að hluta að sumar- lagi. Sumarið 1988 verða eftirtalin námskeið kennd: Hagnýt kennslufræði (5 ein.) 30. maí til 15. júní. Próf 23. júní. Mat og skólastarf (3 ein.) 29. júní til 12. júlí. Próf 20. júlí. Hluti námskeiðsins Kennsla, þ.e. námskeið í nýsitækni 24., 27. og 28. júní; dæmikennsla sem er 16 stunda námskeið; tvær vettvangsferðir; undirbúningur og skipulag æfingakennslu. Nám þetta er ætlað þeim sem þegar hafa lokið háskólaprófi eða eru í háskólanámi. Nám- skeiðaskráning fer fram í nemendaskrá há- skólans 11. til 15. apríl kl. 10-12 og 13-15. Skrá- setning í háskólann fyrir þá sem ekki eru þegar skráðir fer fram sömu daga í aðalskrifstofu há- skólans og þar fást umsóknareyðublöð (skrán- ingargjald fyrir þá er kl. 1.900.-). Þeim sem þegar hafa lokið hluta af náminu í uppeldis- og kennslufræðum, en eiga ofannefnd námskeið eftir, skal bent á að næsta haust verður náminu breytt talsvert og því hentugra fyrir þá aðila að Ijúka náminu áður en þær breytingar ganga í garð. Umsókn um vist á stúdentagarði þarf að berast Félagsstofnun stúdenta fyrir 10. maí. Nánari upplýsingar veitir Gerður G. Óskarsdóttir kennslustjóri, viðtalstími fimmtudaga kl. 16 til 17 í síma 694541, skilaboð tekin í síma 694502. Háskóli íslands Félagsvísindadeild ________________________þjóðmál______________________________ Barnalög Deilt um sameiginlega fbrsjá Frumvarp um sameiginlegaforsjáfráskilinnaforeldra yfir barni. Kvennalistinn telurfrumvarpið varhugavert. Guðrún Helgadóttir: Stórt skref í átt til jafnréttis Kvennalistinn telur varhuga- vert að sameiginleg forsjá fráskil- inna foreldra yfir barni verði lög- fest. Þetta kom fram i máli Kri- stínar Einarsdóttur í umræðu um stjórnarfrumvarp um ný barna- lög, en meginbreytingin sem lagt er til að gerð verði á barnalögun- um er sú að foreldrar geti samið um sameiginlega forsjá yfir barni eftir skilnað. Það var Jón Sigurðsson, dómsmálaráðherra, sem mælti fyrir lögunum. Sagði hann að með lögunum væri verið að lög- festa gildandi fyrirkomuiag, en nokkuð er um að foreldrar hafi komist að samkomulagi um að hafa sameiginlega forsjá með barni eftir skilnað. Hinsvegar heimilar frumvarpið ekki að dómstólar úrskurði sameiginlega forsjá yfir barni, þannig að fullt samkomulag þarf að vera um þetta til að slíkt samkomulag geti náðst. Sagði Jón að samkvæmt núverandi lögum skorti á réttar- öryggi fyrir barnið ef eitthvað færi úrskeiðis hjá foreldrum sem hafa ákveðið að hafa sameigin- lega forsjá yfir barninu. Kristín Einarsdóttir sagðist ekki sjá neitt í núgildandi lögum sem banni sameiginlega forsjá barns og taldi varhugavert ef það ætti að skipta forsjá þannig að barnið væri þrjá mánuði í einu MINNING Halldór Kr. Kristjánsson Fœddur26.2.1915-Dáinn 25.1.1988 færi bað hann mig að hirða nokkra kassa hjá sér, var þar saman komið íslenskt fornbréfa- safn. Þegar ég í þakkarskyni færði honum rímur af Ólöfu ríku upp úr frægum skriftamálum Fornbréfasafnsins setti hann mig fyrir framan gripi sína og bað mig velja. Ættfræði átti löngum hug hans og á liðnu ári lagði hann síðustu hönd á mikið ritverk, Ormsætt, sem nú bíður útgáfu. Á bak við það liggja áratuga rannsóknir og ferðalög. Hvort sem hann smíð- aði í tré eða silfur, gerði við vélar, skrifaði ættfræði eða ræktaði kartöflur, þá var allt hans verk markað fágætri vandvirkni og alúð. Fyrir einu og hálfu ári dvaldi hann með okkur feðgum vestur í Hvammssveit nokkra daga í byrj- un júlí. Á milli þess sem við vitj- uðum um silunganet var spjallað um Njálu og íslandsklukkuna og hjalað misvirðulega um kristin- dóm og kirkju en í því spursmáli tók frændi minn jafnan þór- bergska afstöðu þrátt fyrir kiljön- skuna. Einn morguninn fórum viö að vitja um á fimmta tímanum og vorum komnir heim undir sjö. Þá glampaði morgunsólin á Sæl- ingsdalinn, Laugafjall og Hóla og enginn kominn á fætur nema má- vurinn sem tekið hafði sér búsetu á hól handan Leysingjastaða- árinnar. Þegar gert hafði verið að aflanum dró frændi minn upp þrjú staup og koníakspeia. Faðir minn bað okkur að hafa sig afsak- aðan, en við stóðum eftir og skál- uðum fyrir Guðrúnu, Kjartani og Bolla eða kannski bara Hvamms- sveitinni að fornu og nýju. í birtu þessa morguns geymist mér minning hans. Tómas R. Einarsson 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. febrúar 1988 Ein fyrsta bernskuminning mín tengist föðurbróður mínum Hall- dóri Kr. Kristjánssyni, nú ný- gengnum. Hann stendur á bak við sýningarvél í kennslustofunni sem fyrrum var áföst hinni gömlu sundlaug Dalamanna á Laugum og er að sýna kvikmynd. Trúlega hefur hún verið tekin á suðlægari breiddargráðum því skyndilega var varpað á vegginn ávöxtum af öllum mögulegum gerðum, þar á meðal eplum og appelsínum sem þá tengdust meira jólahaldi en matseðli hins rúmhelga dags. Eins og á öllum kvikmyndasýn- ingum sátu börnin fremst og er ekki að orðlengja það að við vor- um amk. þrír sem stukkum á vegginn. Þetta var seint á sjötta áratugn- um og frændi minn var þá í ferð- um fyrir Vélasjóð, sýndi fræðslu- myndir um meðferð búvéla og leiðbeindi á því sviði. Stundum kom hann við á æskuslóðum sín- um í Hvammssveitinni. Úr þeim heimsóknum man ég fátt, en þeim mun lengur hefur lifað með mér sá sérstaki andblær sem þeim tengist og var meira í ætt við Söngva förumannsins en Óð ein- yrkjans. „Fram, öreigalýður, þú hefur engu að tapa, nema þeim hlekkj- um, sem þú berð. En þú hefur allan heiminn að vinna“. Þetta stendur skrifað nettri rithönd föðurbróður míns á gamla söng- bók sem Karlakór Verkamanna gaf út 1936. Þessi lokaorð Kommúnistaávarpsins kveiktu í ungu fólki á fjórða áratugnum og frændi minn var í þeim hópi eins og vænta mátti um greindan sveitapilt nýkominn á mölina. Sýslungar hans Steinn Steinarr og Jóhannes úr Kötlum voru báðir orðnir róttækir og bækur Hall- dórs Kiljans evangelíum þess tíma. Sannfæringin kostaði líka sitt. Þegar Halldór Kr. hafði ver- ið nokkra mánuði við nám í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni kvað skólastjóri hans upp þann dóm að kommúnistar ættu ekki heima í svona skóla. Að komast í héraðs- skóla var nokkuð góður happ- drættisvinningur á fjórða árat- ugnum, en menn áttu líka sitt stolt og lauk þar með skólagöngu frænda míns. Eftir að okkar kynni hófust síð- ar eyddi hann öllum tilraunum mínum til að fá að fræðast um þetta tímabil þegar fölskvalausar hugsjónir lágu enn á lausu - í hverju úngu íslensku brjósti ríkir yndislegur grunur þess að mikð sé í vændum (HKL). í staðinn bað hann mig að heimsækja sig á smíðaverkstæðið sitt í kjallaran- um og þýða fyrir sig ræður ít- alskra radíóamatöra sem hann hlustaði á meðan hann skar út aska, könnur, spóna og rúmfjal- ir. Og stakk að mér langspili fyrir þægilegheitin. Við annað tæki- hjá sínhvoru foreldri. Þá taldi hún frumvarpið vera misskilda jafnréttisbaráttu. Ábyrgð á barni væri ætíð hjá móður þess. Guðrún Helgadóttir mótmælti því að móðirin bæri höfuðábyrgð á barninu og sagði að hér á landi hefði tíðkast það siðleysi að móð- irin sæi um uppeldið en faðirin borgaði meðlagið og sá aðili sem liði helst fyrir það væri barnið. Sagði hún að þetta frumvarp væri eitt af fáum raunverulegum skrefum í jafnréttisátt á milli karla og kvenna. Hinsvegar sagði Guðrún að frumvarpið kallaði á aukna foreldraráðgjöf, auk þess sem mikilvægt væri að Alþingi samþykkti nú frumvarp hennar um umboðsmann barna. Einnig væri mikilvægt að efla barna- verndarnefndir og barnavern- darráð. Hún tók svo undir það sjónarmið Kristínar að best væri að barnið byggi á einum stað, enda sé ekki gert ráð fyrir öðru þó foreldrar hafi sameiginleg forráð með barninu. Ragnhildur Helgadóttir /ýsti yfir stuðningi við frumvarpið en taldi að skoða þyrfti ákveðin at- riði betur, einsog hvað gerist þeg- ar foreldrar fara í sambúð með þriðja aðila. Einsog aðrir sem tóku til máls taldi hún megin- atriði að auka öryggi barna. Friðjón Þórðarson sagði þetta gott mál en mó :tmælti ummælum Kristínar Einarsdóttur um að þjóðfélagið væri fjandsamlegt börnum. Kristín Halldórsdóttir vakti þá athygli á því að eingöngu konur hefðu tekið þátt í umræð- unni fyrir utan dómsmálaráð- herra og Friðjón, sem hefði hlaupið í vöm fyrir þjóðfélagið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.