Þjóðviljinn - 05.02.1988, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.02.1988, Blaðsíða 10
UM HELGINA Sovóskar skammdrægar eldflaugar af Scud-gerð. Framhald af bls. 9 þátt í umræðum í heilan dag átt- um við kvöldstund með æðstu hernaðarfulltrúunum við samn- ingaviðræðurnar. Ég lagði þá fram eftirfarandi spurningu: ef ykkur væri falið að móta sam- komulag út frá skilgreiningunni á sameiginlegu öryggi, gætuð þið þá gert slík samkomulagsdrög? Bandaríski, rússneski, austur- þýski og vesturþýski og hinir yfir- mennirnir hvísluðust fyrst á en sögðu svo: já, það getum við. Ég spurði þá áfram: hvað myndi það taka langan tíma? Þeir stungu aftur saman nefjum og sögðu síðan: sex eða átta vikur. f>á spurði ég: hvers vegna gerið þið ekki slíkt samningsuppkast? Og svarið var: enginn hefur falið okkur að gera það. Þetta sýnir okkur að herforingjarnir, sem ráða yfir vopnunum, vita oft bet- ur en sendifulltrúarnir hvað hægt er að gera með þau. Þeir þekkja líka eigin áhyggjur af mögulegri árásargetu andstæðingsins. Sp.:Þegarþéráttuð í viðrœðum við sovésk stjórnvöld á áttunda áratugnum um milliríkjamál bjuggust þér þá við að samið yrði við Moskvu um alþjóðlegt vopnaeftirlit, vopwkerfi og hernaðarstefnu á níunda ára- tugnum? Bahr: f hreinskilni sagt nei. Ég batt vonir mínar hins vegar við þróun í anda heilbrigðrar skyn- semi innan marka kerfisins. En það hugrekki og sú samkvæmni sem nýi maðurinn í forystu So- vétríkjanna hefur sýnt er ekki bara aðdáunarverð. Mér finnst hún stórbrotin. Sp.: Og hvernig lítur það út í augum bandamanna okkar? Pentagon hefur nýverið sent frá sér skýrslu, þar sem mikið er rœtt um hernaðarlega sókn- armöguleika ístríði, en lítið um afvopnun. Bahr: Þetta er pappírsgagn, en engin samþykkt stefnuyfirlýsing Bandaríkjanna, - og mun von- andi aldrei verða það. Ég verð að vekja athygli á einum hlut: Skýrsla þessi er hugsuð í sam- ræmi við hugsanagang 19. aldar- innar í einu og öllu, þar sem gengið er út frá hugtökunum vin- ur og óvinur og út frá þeim sjón- arhóli að hægt sé að hefja stríð og vinna það. Það er ekki í samræmi við það sem Reagan og Gorbat- sjov hafa unnið sín á milli. Hins vegar endurspeglar þetta hefð í hugsun, sem alltaf hefur verið til staðar í Bandaríkjunum. Banda- ríkjamenn þjást af þeirri martröð að land þeirra komst í fyrsta sinn í hættu eftir að Sovétríkin eignuð- ust langdræg kjarnorkuvopn. Sp.: En höfundar skýrslunnar eru engu að síður menn á borð við Fred Iklé, ritara varnar- málaráðuneytisins, Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra „Vígvægingaráform Pentagonskýrslunnar myndu þýöa upplausn NATO í núverandi mynd, því ekki er lengur neinn stuðningur fyrir slíkri stefnu í Evrópu.“ og Brzezinski, fyrrverandi ör- yggisráðgjafa. Bahr: Ef þetta yrði stefnan - sem ég vona að gerist ekki - þýddi það endalok þeirrar hernaðarstefnu sem kölluð hefur verið „flexible response" (breytileg viðbrögð). Það harma ég í sjálfu sér alls ekki. Við hófum jú umræðuna um hernaðarstefnuna. Hvers vegna ættu Bandaríkin ekki að taka þátt í henni út frá sínum hagsmunum eða sínum meintu hagsmunum? En ef þeim hugmyndum sem hér um ræðir yrði hleypt í fram- kvæmd, þá þýddi það einfaldlega endalok NATO í núverandi mynd. Sp.: Veldur það yður ekki ótta að Bandaríkjamenn skuli vilja snúa aftur til herskás hernað- arlegs hugsunarháttar, á með- an Sovétmenn einblína á það sem kalla mœtti varnarhugsun- arhátt? Bahr: Ég er ekki hræðslugjarn. Þessi bandaríski pappír er í mín- um augum einskis verður af tvennum ástæðum: í fyrsta lagi lýsir hann ekki raunveruleikan- um. Það er ekki lengur hægt að vinna stríð á tímum þar sem búið er að tryggja gagnkvæma tortím- ingu með kjarnorkuvopnum. í öðru lagi hef ég enga trú á að hægt verði að draga Evrópu inn í stefnumótun sem byggð yrði á þessum pappír. Bandaríkjamenn ættu sér enga bandamenn í Evrópu fyrir slíkri hemaðar- stefnu. Sp.: Herra Bahr, við þökkum yðurfyrir þetta samtal. -Lauslega þýtt af ólg. MYNDLISTIN Alþýðubankinn á Akureyri. Kynning á verkum Aðalsteins Svans Sigfússonar. Sýningin er í útibúi Alþýðubankans á Akureyri, Skipagötu 14, og á henni eru 6 verk unnin í olíu á striga. Henni Iýkur26. febrú- ar. Ásgrímssafn, Bergstaða- stræti 74, eropiðsunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga á milli kl. 13:30 og 16:00. Bókasafn Kópavogs. Mál- verkasýning Þórhalls Filipp- ussonar er opin frá kl. 9:00 til 21:00 virka daga, 11:00- 14:00 á laugardögum, og stendurtil 16.febrúar. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Harpa Björnsdóttir sýnir einþrykk og önnur verk, unnin meö blandaðri tækni á pappír. Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-18:00, um helgar kl. 14:00-18:00, ogstendurtil 16. febrúar. Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4 A. Gesturog Rúna hafa bæst í hópinn og eru í for- grunni samsýningarinnar sem er opin alla virka daga á milli kl.12:00 og 18:00 Gallerí Svartá hvítu, opnar 12. febrúar í nýjum húsakynn- um, Laufásvegi 17 (bakvið Listasafnið). Kjarvalsstaðir. Sýning sjálfsmynda eftir íslenska myndlistarmenn.Ásýning- unni er stiklað í gegnum Is- lenska myndlistarsögu frá 19. öld fram á okkar dag. Sýning- in er opin daglega á milli kl. 14:00 og 22:00 og stendur til 14. febrúar. Húsgögn og hönnun 1988, sýning félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda, stendurtil 14.febrúar. Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16. Vinna og mannlíf. Með sýningunni vill Listasafn ASÍ kynna nokkur af þeim verkum sem safnið hefureignast gegnumtíðina. Sýninginer opin daglega kl. 16:00-20:00 virka daga, og kl. 14:00- 20:00 um helgar. Aðgangur er ókeypis og heitt á könnunni. Sýningin stendurtil 28. febrú- ar. Listasaf n Einars Jóns- sonar, er opið laugardaga og sunnudagakl. 13:30-16:00. Höggmyndagarðurinn er op- innalladaga kl. 11:00-17:00. Listasafn íslands, Fríkirkju- vegi 7. Aldarspegill, sýning ís- lenskrar myndlistar í eigu safnsins. Listasafniðeropið alla daga nema mánudaga á milli kl. 11:30 og 16:30 og er kaffistofa hússins opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis. Mokka. James Francis Kwi- ecinski sýnir verk unnin í olíu, guass, vatnsliti og steinprent. Sýningin stendur í þrjár vikur. Norræna húsið. Kjallari: TumiMagnússon sýnirolíu- málverk. Sýningin er opin daglega kl.14:00-19:00 og stendurtil 14. febrúar. Anddyri: Sýning á grafíkverk- um Sænska listamannsins Lennart Iverus opnar á morg- un kl. 15:00. Lennart Iverus stundaði myndlistarnám við Konsthögskolan í Stokkhólmi 1957-62 og síðan í París og London. Hann hefurdvalið lengi á Ítalíu við myndlistar- störf og hefur sótt þangað hugmyndir að myndum sín- um. Sýningin verðuropin daglega fram til 28. febrúar. Nýlistasafnið vA/atnsstíg. Ingólfur Arnarsson sýnir lág- myndirog teikningar. Einnig er til sýnis bókin „tvær bækur“ sem gerð er í samvinnu við Eggert Pétursson og gefin er út af Hong Kong Press í Gautaborg. Sýningin eropin virkadagafrá kl. 16:00-20:00 og 14:00- 20:00 umhelgar. Henni lýkur 14. febrúar. Á efri hæð Nýlistasafnsins er sýning fjögurra erlendra lista- manna. Alan Johnston, Franz Graf, Jussi Kivi og Wolfgang Stengl sýna málverk, teikningarog rýmisverk. Sýn- ingineropin kl. 16:00-20:00 virkadaga, kl.14:00-20:00 um helgarog stendurtil 14.febrú- ar. Slúnkaríki, ísafirði. Birgir Andrésson heldursýningu á myndverkum sínum á. Sýn- ingin verður opin í mánuð, á auglýstumopnunartíma sýn- ingarsalsins. LEIKLISTIN Alþýðuleikhúsið. Eins konar Alaska og Kveðjuskál, í Hlað- varpanum í kvöld kl.20:30, sunnudag 7. og mánudag 8. febrúarkl. 20:30. Miðasala allan sólarhringinn í síma 15185. Ás-leikhúsið. Farðu ekki, á Galdraloftinu, 2. sýning laug- ardag 6. kl. 20:30,3. sýning sunnudag 7. febrúar kl. 16:00, 3. sýning mánudag 8. kl. 20:30. Miðapantanirísíma 24650 allan sólarhringinn. Egg-leikhúsið. Á sama stað, hádegisleikhús á veitinga- húsinu Mandaríninn við Tryggvagötu. Sýning laugar- dag 6. febrúar kl. 13:00. Mið- apantanir á Mandarínanum i síma 23950. íslenska óperan. Barna- söngleikurinn Búum til óperu / Litli sótarinn. Fyrstu sýningar í Reykjavík á morgun, laugar- dag kl. 14:00 og 17:00. Leikfélag Akureyrar. Næst síðasta sýningarhelgi Pilts og stúlku, söngleiks byggðum á skáldsögu Jóns Thoroddsen. í kvöld kl.20:30, laugardag 6. febrúar kl.20:30, og sunnu- dag 7. kl. 16:00. Leikfélag Reykjavíkur. Algjört rugl, í Iðnó, í kvöld kl.20:30. Dagurvonar, ílðnó, laugar- dagkl. 20:00. Djöflaeyjan, í skemmunni, í kvöld kl. kl. 20:00, sunnudag 7.febrúarkl.20:00. Hremming, ílðnó, sunnudag kl. 20:30. Síldin er komin, í skemmunni, í kvöld kl. 20:00. Sunnudag 7. febrúarkl. 20:00. Þjóðleikhúsið. Bílaverkstæði Badda, á morg- un kl. 16:00, sunnudag 7. kl.16.00. Vesalingarnir, íkvöld kl. 20:00, laugardag 6. og sunnudag 7.febrúar kl. 20.00. TÓNLIST Bústaðakirkja. Kammersveit Reykjavíkur heldur3. tónleika starfsársins 1987-1988, sunnudaginn 7. febrúarkl. 17:00. Á efnisskránni eru tvö tónverk eftir Max Bruch, tríó fyrir klarinett, lágfiðlu og píanó og Septett í Es-dúr fyrir klarin- ett, horn, fagott, tværfiðlur, sellóog kontrabassa. Einnig verðurfluttur Canticle II eftir Benjamin Britten, fyrirkontra- tenór, tenór og píanó. Flyt- jendureru Einar Jóhannes- son, Helga Þórarinsdóttir,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.