Þjóðviljinn - 14.02.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.02.1988, Blaðsíða 3
Islenski dansflokkurinn Egþekkiþig- þúekkimig Stœrsta verkefnið á leikárinu, fjórir ballettar eftir Hollendinginn John Wisman Stefnumót. Sigrún Guðmundsdóttir og Comé du Crocq. Mynd - Sig. Á sunnudagskvöldið frum- sýnir íslenski dansflokkurinn fjögur ballettverk undir sam- heitinu Ég þekki þig, þú ekki mig, og er það stærsta verk- efni íslenska dansflokksins á þessu leikári. Höfundurog stjórnandi dansanna er Hol- lendingurinn John Wisman en hann hefur unnið dansana í náinni samvinnu við hönnuð sýningarinnar, HenkSchut. John Wisman starfar sem dansari og dansahöfundur við Þjóðarballettinn í Hollandi, og Henk Schut, sem hefur hannað lýsingu, búninga og sviðsmynd sýningarinnar, starfar í London sem sjálf- stæður hönnuður við ýms leikhús. Samvinna þeirra Wis- mans og Schut er sérstök að því leyti að Wisman semur dansana við leikmynd Schuts. Fyrsta verk sýningarinnar heitir Númer 48 og er brot af heilskvöldssýningu saminni fyrir dansflokk Krisztina de Chatel. Annað verkiðertví- dans (pas de deux) og heitir Stefnumót. Það verk samdi Wisman að beiðni hollenska ríkissjónvarpsins fyrir keppni ungra eyrópskra dansara sumarið 1981, við tónlist eftir Louis Andriessen. Þriðja verkið, Segðu þetta aftur, hærra, samdi Wisman fyrir hollenska Þjóðarballettinn árið 1984, og þar er Berlín- armúrinn sú hugmynd sem upphaflega var gengið út frá. Það er verk fyrir fjóra kvend- ansara og fjóra karldansara og tónlistin er 4. kafli Sinfonia eftir Luciano Berio. Loka- verk sýningarinnar heitir Lokaskilaboð, og er sérstak- lega samið fyrir tíu kvendans- ara flokksins og karldansa- rana fjóra sem koma til liðs við þær í þessari sýningu. Tónlistin er úr þremur verk- um eftir Laurie Anderson. Dansarar íslenska dans- flokksins að þessu sinni eru Asta Henriksdóttir, Birgitte Heide, Guðmunda Jóhannes- dóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Helga Bernhard, Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir, Ólafía Bjarnleifsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Gestadans- arar sýningarinnar eru ís- lendingurinn Jóhannes Páls- son, Hollendingurinn Corné du Crocq, Austurríkismaður- inn Hany Hadaya og Banda- ríkjamaðurinn Paul Estabro- ok. LG Sjá bls. 4 Sunnudagur 14. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.