Þjóðviljinn - 21.02.1988, Page 5
SUNNUDAGSPISTILL
Um síöustu helgi bar það til tíð-
inda á Akureyri að sjö vaskir
piltar kepptu um titlinn Herra (s-
land. Sigurvegarinn lét þess
getið í blaði að hann hefði verið
gripinn mikilli geðshræringu
þegar hann heyrði hver úrslit
urðu. „Mig langaði mest til að
öskra," sagði hann. Enda hafði
keppnin ekki verið þrautalaus:
það var „alveg hrikalega erfitt
að koma fram á sundskýlunni
hér í kvöld," sagði hann enn-
fremur.
Enn lifirTarsan, hugsaði ég.
í gamla daga
Ég hefi verið eins og hvert annað
unglingsskjátukvikindi þegar byrj-
að var að halda fegurðarsam-
keppni hér á landi. Einhverra hluta
vegna fundust mér þær hallæris-
legar. Ekki vegna þess að stúlkurn-
ar, sem tóku þátt í þessum nýmæl-
um, væru sérlega halló og skjálf-
andi í nepjunni í Tívolí, eða hvar
þetta nú var. Nei. Öllu heldur
fannst mér slík keppni út í hött
vegna þess að stúlka væri í rauninni
ekki falleg nema maður væri
skotinn í henni. Þetta er víst róm-
antísk kenning, skáld eitt hefur
orðað hana á þann veg að fegurðin
sé í augum þess sem á hana horfir.
Allavega er þetta úrelt kenning í
nútímanum - að minnsta kosti „frá
sjónarmiði þarfa fyrir markaðs-
setningu hugmynda“. Það er mér
nú ljóst.
Niður og upp
Fegurðarsamkeppni mætti ekki
teljandi andstöðu í þá daga. Ein-
hverjir reyndu að hafa uppi háð og
spé um „gripasýningar" eða aðrar
meinlegar líkingar, en það var ekki
„Arnór (Herra Island 1988) fékk
í verðlaun hinn silfurslegna pípu-
hatt frá herradeild KEA. Þá fékk
hann 100 þúsund króna fataúttekt
hjá JMJ, utanlandsferð með Út-
sýn, Addidas og Rockford snyrti-
vörur og einnig árskort á veiting-
astaðina Zebra á Akureyri og Evr-
ópu í Reykjavík, svo og í ljósastof-
una Sólarmegin í Reykjavík. Allir
keppendur voru leystir út með
gjöfum, fengu snyrtivörur og ávís-
un á ljósatíma hjá Stjörnusól á Ak-
ureyri."
Getur nokkur stokkið upp á nef
sér yfir jafn elskulegum og í raun-
inni fyndnum texta? Pípuhatturinn
silfurslegni er einn og sér alveg
makalaust grín. Auk þess gerast
þau slóttugheit, að andúð meðvit-
aðra kvenna á fegurðarsamkeppni
eins og tærist upp þegar farið er að
raga karla með sama hætti - allt
rennur í ljúfa löð jafnréttisins: eitt
skal yfir alla ganga.
Siðferðilega rangt?
Þær raddir hafa reyndar stund-
um heyrst að það sé blátt áfram
siðferðilega rangt að efna til
keppni og verðlauna stórra sem
byggja á ranglæti náttúrunnar. Það
er engum að þakka að manneskja
sé falleg, engum að kenna ef hún er
ljót. Ég segi fyrir sjálfan mig: ég
hefi haft mikla tilhneigingu til að
taka undir þetta sjónarmið. En -
eins og skáldið segir:
Sá sem veit að rangt er rangt
og jafnan rétt hið rétta
hann á að vissu leyti langt
í land að skilja þetta.
Sem sagt: við getum hæglega
litið öðrum augum á smérið.
Til dæmis þessum hér:
Það er eitt einkenni okkar menn-
ingar og tíma, að hlutur náttúrunn-
ar í útliti (fegurð) manna er víkj-
andi. Hið tilbúna, áunna, sérhann-
aða ef svo mætti segja, er aftur á
móti að sækja á. Duttlungar nátt-
úrunnar mega sín æ minna fyrir
vaxandi möguleikum vöðvárækt-
unar, snyrtitækni, mataræðisgald-
urs, hárgreiðslutöfra, ilmlistar,
göngulagsþjálfunar, yndisþokka-
þjálfunar, talþjálfunar. Menn og
Og bráðum verð ég fallegur...
á þá hlustað, þetta voru bara fýlu-
pokar eða menningarvitar (sem er
enn verra). Svo eignuðumst við,
Ungfrú Alheim og allir voru sælir
og stoltir eins og við hefðum aftur
fengið Nóbelsverðlaun fyrir skáld-
skap. Andstaða gegn fegurðarsam-
keppni hékk á horriminni þangað
til rauðsokkur komu til skjalanna
og sögðu hátt og snjallt að hér gerði
karlremban sig breiða eina ferðina
enn og niðurlægði konur herfilega
með sinum dómnefndum og mæl-
ingum og lævíslegri úthlutun drott-
ningartitla, sem gerði ekki annað
en sundra konum og magna með
þeim öfund og fjandskap. Þetta var
öflugur áróður og oft hugvitssam-
lega út færður og fegurðarfor-
stjórar urðu að leggja á flótta. En
þeir komu aftur, eins og allir vita.
Og eitthvað það hafði gerst í sam-
félögunum sem gerði það að verk-
um að menn æmtu vart né skræm-
tu, meira að segja kenningasterkir
feministar báru harm sinn í hljóði.
Endurkoma fegurðarsamkeppni,
sögðu þeir fræðilega sinnuðu, er
angi af narcissisma nútímans, dýrk-
unar hins áferðarfagra, velgeng-
ninnar, þeirrar sjálfshygðar sem
segir: Aldrei skal ég láta mér líða
eins og ánamaðki á malbikuðum
vegi. Heldur skal ég ffla mig eins og
miljón dollarar (eða jen, það er víst
tryggara).
Silfursleginn
pípuhattur
Og viðbrögðin eru svosem eng-
in, sem er kannski ekki von.
Skoðum þessa klausu hér:
Lítil og hógvær hugleiðing umfegurðarsamkeppni og alltþað sem sýnist
konur eru ekki það sem þau eru,
heldur það sem þau sýnast vera.
Fegurðardrottning og fegurðar-
kóngur eru ekki mikið síður niður-
staða af samstillingu sérhæfðra
krafta og hjálpartækja en sterkasti
maður heims eða sá sem hoppar
hæst yfir prik. Og þar með er eins
og kippt fótum undan siðferði-
legum andmælum gegn fegurðar-
keppni. Hvers vegna mega allir að
vera að gera það gott nema ég?
Allsherjar
útlitshönnun
Þetta viðhorf hlýtur að verða
þeim mun sigursælla sem útlits-
hönnun sækir meir og með róttæk-
ari hætti fram á öllum sviðum. Ekki
síst hinu pólitíska, eins og sjón-
varpstíðindi af forsetaefnakeppn-
inni í Bandaríkjunum sýna okkur
vel og rækilega þessa dagana.
Menn eru stundum að hneyks-
last á því, hvers vegna bandarískir
fjölmiðlar spóla fjandann ráða-
lausan um kvennamál frambjóð-
enda, hikst þeirra og svipbrigði. En
sú hneyskslan er reyndar alveg á-
stæðulaus: ekki geta fjölmiðlar
skrifað um pólítískar skoðanir
þessara manna, eins og menn telja
stundum í barnaskap sínum að
eðlilegast væri. Því þær eru annað-
hvort alls ekki til, eða svo
loftkenndar og almennar að enginn
getur gómað þær. Forsetaefnin
halda ræður sem bornar eru uppi af
vel æfðum viljastyrk í svip og dram-
atískum þunga í röddinni - í bland
við fimmaurabrandara sem eiga að
sýna að „ég er einn af ykkur“. En
ræðan er svosem ekki um neitt ann-
að en að það verði að koma á
breytingu. Meika diffa eins og sagt
er á sjónvarpsíslensku. En hver sá
diffi er, það veit enginn og allir
hafa smám saman vanist af því að
spyrja, því engin svör eru fáanleg.
Það þarf að breyta þessu landi okk-
ur í hag, segja menn. Það þarf
eitthvað að gerast. Það þarf að taka
á. Bráðum gerist eitthvað ef þið
veljið rétt. Svona tala menn lengi
lengi og enginn veit sitt rjúkandi
ráð. Ronald Reagan varð ekki
forseti nema vegna þess að hann
getur leikið forseta betur en aðrir
menn. Með öðrum orðum: gengið
inn í ímynd forsetans, sýnt það
rétta útlit, þann rétta talanda.
Hann er einskonar fegurðarkóngur
forsetaefna. Felix Krull stjórnar
heiminum. Skálkurinn í sögu
Thomasar Mann, sem er ekkert af
sjálfum sér annað en sú snilligáfa
að geta sýnst vera hvað sem er.
Hvort sem væri sætasti strákur í
París eða göfugasti aðalsmaður
norðan Alpafjalla.
Efnilegur
hagvaxtargeiri
Forstjóri Herra fslandskeppn-
innar á Akureyri sagði að vel hefði
til tekist og hefði verið sannað að
„keppni sem þessi á fullkomlega
rétt á sér og verður framvegis árviss
atburður". Ekki er að efa það.
Meira en svo: það er engin ástæða
til að efast um að svið fegurðarsam-
keppni eigi eftir að stækka. Fegur-
sta eiginkona íslands fór til
skömmu til Ástralíu til að keppa
um titlinn fegursta frú heims. Það
er löngu mál til komið að hafa sam-
keppni um það, hver er fegursta
amma landsins og afarnir munu
trítla á eftir. Persónulega finnst
mér eðlilegt að sérhæfa slík mót í
ýmsar áttir. Til dæmis mætti vel
hugsa sér það að keppa um titilinn
„Fegursta skegg og skalli“, sem
mundi gera tvennt í senn: fjölga
atvinnutækifærum við skeggrækt
og skegghirðu og hressa upp á
sjálfstraust sköllóttra sem er einatt
mjög í molum, þótt skömm sé frá
að segja.
Allir eiga skilið að fá að vera
með í keppni um einbeitta og hug-
vitssamlega útlitshönnun. Og því
er alls ekki úr vegi að efna til sam-
keppni um Fegursta lík heimsins.
Líkfegrun er löngu gróinn iðnaður
í Bandaríkjunum og víðar, og eðli-
legt að hún breiðist út eins og ann-
að f sterkri menningu þess lands -
með æskilegum hagvexti bæði hjá
snyrtisérfræðingum og klæðsker-
um. Það væri meira að segja
eitthvað móralskt við slíka fegurð-
arkeppni: Er það ekki keppikefli
okkar að viðurkenna ekki
dauðann? Því þá ekki að sigra hann
með fallegum og listrænum hætti?
Það er altént geðslegra en að reyna
að öðlast eilíft líf með því geyma
sjálfan sig eða hausinn af sér í frost-
legi f þeirri von að vísindamenn
geti einhverntímann fengið svo
forsjált fólk til að ganga aftur.
Sunnudagur 21. febrúar 1988 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5