Þjóðviljinn - 21.02.1988, Blaðsíða 19
Ný aðferð
við lœkningu
Parkinsonveiki
Mexíkanskir lœknar hafa flutt heilavef úr fóstri í
heila Parkinsonsjúklinga nneð árangri
Mexíkanskir læknar hafaflutt
heilavef úrfóstri íheilasjúkl-
inga með Parkinsonveiki á
háu stigi og náð umtalsverðri
lækningu.
Frá þessu er skýrt í janúarhefti
vísindaritsins New England Jour-
nal of Medicine, þar sem dr. Ign-
acio Madrazo og félagar hans
segja frá undraverðum bata sem
fimmtugur karlmaður og 35 ára
gömul kona hlutu eftir frumu-
flutninginn. Sjúklingarnir höfðu
báðir haft veiki þessa á háu stigi
um árabil og voru háðir daglegri
hjúkrun.
Parkinsonveiki orsakast af
skorti á efninu dopamin í heilan-
um. Efni þetta myndast í þeim
hluta heilans sém kallast Su-
bstantia nigra í miðheilanum (sjá
mynd) og gegnir mikilvægu hlut-
verki við miðlun taugaboða. Ef
framleiðsla efnisins er ekki nægi-
leg kemur það fram í vöðvatitr-
ingi, ósjálfráðum hreyfingum eða
stífum vöðvum og í alvarlegum
tilfellum geta sjúklingar orðið ó-
færir um að hreyfa sig.
Læknarnir notuðu 13 vikna ga-
malt fóstur, sem móðirin hafði
misst við fósturlát, til lækningar-
innar og tóku úr heila þess efni
það sem heitir substantia nigra
auk þess sem nýrnahetturnar
voru einnig teknar, en þær
mynda hormón sem örvar dop-
aminmyndun. Efnið substantia
nigra var sett í þann hluta heilans
sem stjórnar hreyfingum og kall-
aður er Nucleus caudatus og
nýrnahettur fóstursins voru sett-
ar á sama stað í heila konunnar.
Eftir aðgerðina hafa báðir
sjúklingarnir nú snúið heim til sín
og sjúkdómseinkenni Parkinson-
veikinnar hafa að sögn læknanna
stórlega minnkað. Stjórnlaus
vöðvatitringur er nær hættur,
báðir sjúklingarnir geta aftur
skrifað, klætt sig og hlaupið um.
Aðgerð þessi hefur vakið ýms-
ar siðferðilegar spurningar.
Læknavísindin hafa fyrir löngu
sýnt að auðveldara er að flytja
frumur úr fóstri en fullvaxinni
manneskju yfir í annan lfkama.
Fósturfrumur vaxa hraðar, vekja
síður höfnunareinkenni. Hins
vegar hefur verið bent á að lækni- .
ngar af þessu tagi geti orðið ti-
lefni verslunar með lifandi fóstur.
Læknarnir í Mexíkó svara þeirri
gagnrýni á þann hátt að þeir segj-
ast aðeins vilja nota látin fóstur til
lækninganna og eingöngu með
samþykki foreldra fóstursins.
Segja þeir að andlát fóstursins
hafi verið staðfest áður en þeir
tóku vefinn, og sömuleiðis hafi'
samþykki beggja foreldra þess
legið fyrir, enda þótt slíkt hefði
ekki verið nauðsynlegt sam-
kvæmt mexíkönskum lögum.
Læknarnir segjast reiðubúnir að
framkvæma fleiri aðgerðir af
þessu tagi en það sé undir ytri
aðstæðum komið hvenær það
verði hægt.
Læknar hafa einnig bent á aðra
hættu, sem fylgt geti frumuflutn-
ingum af þessu tagi. Oft stafa
fósturlát af því að fóstrið hefur
haft erfðagalla, og slíkur vefur
getur haft hættu í för með sér fyrir
frumuþegann. Læknarnir í Mex-
fkó gerðu sér einnig grein fyrir
þessari hættu og völdu því fóstur
úr konu sem hafði áður misst
fleiri fóstur vegna veiklunar í
legi. Líkur voru því miklar á að
fósturlátið hafi stafað af veikleika
móður en ekki fósturs.
Parkinsonsjúklingar hafa ekki stjórn
á hreyfingum sinum vegna þess að
skortur myndast á efninu dopamin í
heilanum. Dopamin erefni sem
greiðir fyrir taugaboðum og myndast f
"substantia nigra" í heilastúkunni
(thalamus). Mexíkönsku læknarnir
fluttu „substantia nigra" úr 13 vikna
fóstri í þann hluta heila sjúklinganna
sem kallast Nucleus caudatus á lat-
ínu. Frumuflutningurinn endurvakti
hreyfigetu sjúklingsins. Sömu
lækningaráhrif urðu af því að f lytja
nýrnahettur fóstursins í sömu heila-
stöðvar parkinsonsjúkrar konu.
Nýmahetturnar f ramleiða einnig hor-
món sem greiða fyrir taugaboðum.
Læknarnir hafa hins vegar gert
sér vonir um það að í framtíðinni
verði hægt að rækta umræddar
fósturfrumur og sækja þannig
efni til ígræðslu úr frumuræktun á
heilbrigðum vef. 0lg /Die Zeit
Risaeðlur í belgískri kolanámu
Forsögulegar dýraleifar í þús-
unda tali bíða þess að vera
grafnar úr jörðu í kolanámunni
Bernissar í Belgíu. Steingerv-
ingafræðingarfundu þegar
árið187829heilarogvel
varðveittar beinagrindur af
risaeðlunni Iguanodonen [
námunni auk leifa lítilla krókó-
díla, skjaldbaka og hluta af
beinagrind úr annarri tegund
risaeðlu. Uppgreftri ástaðn-
um var síðan hætt af lögf ræði-
legum og pólitískum ástæð-
um, en nú hyggjavísinda-
menn áfrekari uppgröft, þar
sem talið er að í námunni sé
aðfinnaþúsundirvelvarð-
veittra dýraleifa f rá forsögu-
legumtíma.
Leifarnar liggja í leirlagi á 322-
365 m dýpi undir yfirborði jarðar.
Risaeðlan Iguanodonen lifði
fyrir 69-135 miljón árum. Hún
var allt að 5 metra há og 9 metra
löng frá höfði til hala. Hún gekk á
afturfótunum, studdi sig við sver-
an halann og lifði á jurtum.
Miðað við það magn sem
fannst við uppgröftinn 1878 er
búist við að í námunni sé að finna
þúsundir forsögulegra dýraleifa
og steingervinga af forsögulegum
jurtum.
Steingerv-
ingafræð-
ingar
reikna
meðað
finnaþús-
undir
beina-
grindaaf
risaeðl-
unniog-
uanodon-
en sem hér
séstá
botni kola-
námunnar
í Bernissar
Vísindamennirnir leita nú fjár
til framkvæmdanna, en kostnað-
ur við uppgröftinn mun skipta
hundruðum miljóna króna.
ólg./Illustreret videnskab
Canon
LjóSritunarvélar
FC-3 kr. 36.900.- stgr.
FC-5 kr. 39.900.- stgr.
Skrifvélin sími 685277
Canon
Réttitíminntil
reiknivélakaupa.
Mikiðúrval.
Lækkað verð.
krifvélin hf
Suðurlandsbraut 12.
S: 685277 - 685275