Þjóðviljinn - 21.02.1988, Síða 19
Ný aðferð
við lœkningu
Parkinsonveiki
Mexíkanskir lceknar hafa fiutt heilavef úr fóstri í
heila Parkinsonsjúklinga með árangri
Mexíkanskir læknar hafa flutt
heilavef úr fóstri í heila sjúkl-
inga með Parkinsonveiki á
háu stigi og náð umtalsverðri
lækningu.
Frá þessu er skýrt í janúarhefti
vísindaritsins New England Jour-
nal of Medicine, þar sem dr. Ign-
acio Madrazo og félagar hans
segja frá undraverðum bata sem
fimmtugur karlmaður og 35 ára
gömul kona hlutu eftir frumu-
flutninginn. Sjúklingarnir höfðu
báðir haft veiki þessa á háu stigi
um árabil og voru háðir daglegri
hjúkrun.
Parkinsonveiki orsakast af
skorti á efninu dopamin í heilan-
um. Efni þetta myndast í þeim
hluta heilans sem kallast Su-
bstantia nigra í miðheilanum (sjá
mynd) og gegnir mikilvægu hlut-
verki við miðlun taugaboða. Ef
framleiðsla efnisins er ekki nægi-
leg kemur það fram í vöðvatitr-
ingi, ósjálfráðum hreyfingum eða
stífum vöðvum og í alvarlegum
tilfellum geta sjúklingar orðið ó-
færir um að hreyfa sig.
Læknarnir notuðu 13 vikna ga-
malt fóstur, sem móðirin hafði
misst við fósturlát, til lækningar-
innar og tóku úr heila þess efni
það sem heitir substantia nigra
auk þess sem nýrnahetturnar
voru einnig teknar, en þær
mynda hormón sem örvar dop-
aminmyndun. Efnið substantia
nigra var sett í þann hluta heilans
sem stjórnar hreyfingum og kall-
aður er Nucleus caudatus og
nýrnahettur fóstursins voru sett-
ar á sama stað í heila konunnar.
Eftir aðgerðina hafa báðir
sjúklingarnir nú snúið heim til sín
og sjúkdómseinkenni Parkinson-
veikinnar hafa að sögn læknanna
stórlega minnkað. Stjórnlaus
vöðvatitringur er nær hættur,
báðir sjúklingarnir geta aftur
skrifað, klætt sig og hlaupið um.
Aðgerð þessi hefur vakið ýms-
ar siðferðilegar spurningar.
Læknavísindin hafa fyrir löngu
sýnt að auðveldara er að flytja
frumur úr fóstri en fullvaxinni
manneskju yfir í annan líkama.
Fósturfrumur vaxa hraðar, vekja
síður höfnunareinkenni. Flins
vegar hefur verið bent á að lækni-
ngar af þessu tagi geti orðið ti-
lefni verslunar með lifandi fóstur.
Læknarnir í Mexíkó svara þeirri
gagnrýni á þann hátt að þeir segj-
ast aðeins vilja nota látin fóstur til
lækninganna og eingöngu með
samþykki foreldra fóstursins.
Segja þeir að andlát fóstursins
hafi verið staðfest áður en þeir
tóku vefinn, og sömuleiðis hafi
samþykki beggja foreldra þess
legið fyrir, enda þótt slíkt hefði
ekki verið nauðsynlegt sam-
kvæmt mexíkönskum lögum.
Læknarnir segjast reiðubúnir að
framkvæma fleiri aðgerðir af
þessu tagi en það sé undir ytri
aðstæðum komið hvenær það
verði hægt.
Læknar hafa einnig bent á aðra
hættu. sem fylgt geti frumuflutn-
ingum af þessu tagi. Oft stafa
fósturlát af því að fóstrið hefur
haft erfðagalla, og slíkur vefur
getur haft hættu í för með sér fyrir
frumuþegann. Læknarnir í Mex-
íkó gerðu sér einnig grein fyrir
Parkinsonsjúklingar hafa ekki stjórn
á hreyfingum sínum vegna þess að
skortur myndast á efninu dopamin í
heilanum. Dopamin er efni sem
greiðir fyrir taugaboðum og myndast í
“suPstantia nigra" í heilastúkunni
(thalamus). Mexíkönsku læknarnir
fluttu „substantia nigra'' úr 13 vikna
fóstri í þann hluta heila sjúklinganna
sem kallast Nucleus caudatus á lat-
ínu. Frumuflutningurinn endurvakti
hreyfigetu sjúklingsins. Sömu
lækningaráhrif urðu af því að flytja
nýrnahetturfóstursins í sömu heila-
stöðvar parkinsonsjúkrar konu.
Nýrnahetturnar framleiða einnig hor-
món sem greiða fyrir taugaboðum.
Læknarnir hafa hins vegar gert
úr konu sem hafði áður misst sér vonir um það að í framtíðinni
fleiri fóstur vegna veiklunar í verði hægt að rækta umræddar
legi. Líkur voru því miklar á að fósturfrumur og sækja þannig
fósturlátið hafi stafað af veikleika efni til ígræðslu úr frumuræktun á
móður en ekki fósturs. heilbrigðum vef. ólg /Die Zeit
þessari hættu og völdu því fóstur
Risaeðlur í belgískri kolanámu
Forsögulegar dýraleifar í þús-
unda tali bíða þess að vera
grafnar úr jörðu í kolanámunni
Bernissar í Belgíu. Steingerv-
ingafræðingarfundu þegar
árið 1878 29 heilar og vel
varðveittar beinagrindur af
risaeðlunni Iguanodonen í
námunni auk leifa lítilla krókó-
díla, skjaldbaka og hluta af
beinagrind úr annarri tegund
risaeðlu. Uppgreftri ástaðn-
um var síðan hætt af lögfræði-
legum og pólitískum ástæð-
um, en nú hyggjavísinda-
menn á frekari uppgröft, þar
sem talið er að í námunni sé
að finna þúsundir vel varð-
veittra dýraleifa f rá forsögu-
legum tíma. var allt að 5 metra há og 9 metra
Leifarnar liggja í leirlagi á 322- löng frá höfði til hala. Hún gekk á
365 m dýpi undir yfirborði jarðar. afturfótunum, studdi sig við sver-
Risaeðlan Iguanodonen lifði an halann og lifði á jurtum.
fyrir 69-135 miljón árum. Hún Miðað við það magn sem
Steingerv-
ingafræð-
ingar
reikna
með að
finnaþús-
undir
Peina-
grindaaf
risaeðl-
unni og-
uanodon-
ensem hér
sóstá
botni kola-
námunnar
í Bernissar
fannst við uppgröftinn 1878 er Vísindamennirnir leita nú fjár
búist við að í námunni sé að finna til framkvæmdanna, en kostnað-
þúsundir forsögulegra dýraleifa ur við uppgröftinn mun skipta
og steingervinga af forsögulegum hundruðum miljóna króna.
jurtum. ólg./IHustreret videnskab
Canon
Ljósritunarvélar
FC-3 kr. 36.900.- stgr.
FC-5 kr. 39.900.- stgr.
Skrifvélin simi 685277
Canon
Rétti tíminntil
reiknivélakaupa.
Mikið úrval.
Lækkað verð.
krifvélin hf
Suðurlandsbraut 12.
S:685277 - 685275