Þjóðviljinn - 21.02.1988, Page 18
Nr. 605
BRIDGE
KROSSGATA
7 2 3 t~ í>' (e> T T~ W~~ )0 )0 <? )/ V-
<7 )2 y 7 )3 T T T )¥ )5 v Ý U, )7 >8
1 /4 2o T 7 2J Jo T 22 8 23 )D V
T 2? / S ¥ w S >s W~ 2<f 8 d )7 íH V
V fí 2S / 5T 2! V 1 2/ 2(r w 2/ 23 S2. 2
/£ )*> U 2(? T 2 25' /9 23 É f 7 )3~ )¥■
2? s? 8 10 8 23 V 8 2 T 23 )i S
7 21 23 2$ T íj 12 sr JS' i3 i /3
)3 Z /r V 4 /sr 10 2 ZS isr 23 22 2*7
30 8 23 y / 22 20 2 2? 23 21 7 8 8
T 4 )2 8 y )0 )3 22 )S /9 )<r
1 sr ZL 2<i >sr V 1 3/ /s Z<7
% )3 * A % 2 2*7 8 22 W~ T 22 8 /e
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞ/EÖ
Setjið réttastafi í reitina hérfyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn. Sendið þetta
nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt:
„Krossgáta nr. 605". Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til
vinningshafa.
s 9 2(o )¥ 2/ 2 21 24 2/ 23
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorðið úr krossgátu 602 var
Hjörleifur. Dregið var úr réttum
lausnum og verðlaunin, „Söngur villi-
andarinnar og fleiri sögur" eftir Einar
Kárason komu í hlut Bjarna Halldórs-
sonar, Skúmsstöðum í V-Landeyjum.
Verðlaun fyrir þessa krossgátu eru
„Frá degi til dags“, Austrapistlar
Magnúsar Kjartanssonar frá ritstjóra-
tíð hans á Þjóðviljanum 1958-1971.
Mál og menning gaf út.
Að lokinni
Bridgehólíð...
Bridgehátíð 1988 lauk sl. mánu-
dag. Hátíðin var tvískipt., tví-
menningskeppni 48 para á föstu-
dag og laugardag og Flugleiða-
mótið í sveitakeppni með þátt-
töku 48 sveita (metþátttaka á ís-
landi) á sunnudag og mánudag.
Svíarnir P.O. Sundelin og
Tommy Gullberg sigruðu í tví-
menningskeppninni eftir mikla
keppni við þá Alan Sontag og
George Mittelmann frá USA/
Kanada. í þriðja sæti urðu svo
Hjalti Elíasson og Jón Ásbjörns-
son. Sveit Zia Mahmoud sigraði
svo á Flugleiðamótinu af miklu
öryggi, vann alla leiki sína og
hlaut 151 stig af 175 mögulegum.
Með Zia voru: Mark Molson
(Kanada), Billy Cohen og Ron
Smith frá USA. í öðru sæti (eftir
hreinan úrslitaleik við Zia) varð
svo sveit Pólaris og sveit Braga
Haukssonar lenti í þriðja sæti,
eftir sigur á sveit Alans Sontag
18-12 í síðustu umferð.
Bridgehátíðin fór nokkuð vel
fram, þrátt fyrir mikil þrengsli í
spilasal. Mikill fjöldi áhorfenda
sótti tvímenningskeppnina, en
færri Flugleiðamótið. Skýringin
er sennilega sú að þátttakendur í
síðara mótinu voru um og yfir 250
en aðeins 96 í tvímenningsmót-
inu.
Sökum þrengsla og styrk-
leikamismunar er það íhugunar-
efni fyrir stjórn Bridgesam-
bandsins hvort ekki sé tímabært
að huga að breytingum á fyrir-
komulagi á komandi Bridgehát-
íðum. 48 pör með þátttöku að-
eins 6 erlendra para virðist vera
of mikill fjöldi. I þeim þrengslum
sem Kristalsalurinn býður upp á
og fyrirkomulagið (sömu spil
spiluð í einu um allan sal) er ljóst
að Iítið má út af bregða. Og í
Flugleiðamótinu er það spurning
hvort ekki eigi að fækka spilum í
leik, í til dæmis 8-10 spil (viður-
kennt keppnisform) og fjölga
umferðum. Pað eykur mögu-
leikann á meiri sveiflu á mótinu.
Nánar síðar.
fslandsmót kvenna og yngri
flokks í sveitakeppni, undanrás-
ir, verða spilaðar um þessa helgi í
Sigtúni 9.12 sveitir eru skráðar til
leiks í hvorum flokki. Spiluð
verða 10 spil milli sveita og kom-
ast 4 efstu sveitir í úrslit, úr hvor-
um flokki. Úrslitin verða síðan
spiluð um næstu helgi í Sigtúni 9.
Spilamennska hefst kl. 13 í dag.
Agnar Jörgensson stjórnar
kvennaflokknum en Hermann
Lárusson yngri flokknum.
Enn eru nokkur sæti laus í
Opna tvímenningsmótinu á
Laugarvatni laugardaginn 5.
mars. Pegar hafa 26 pör skráð sig
til leiks, en lokað verður á 32 pör.
Aðeins er skráð á skrifstofu BSÍ,
sem jafnframt veitir allar nánari
upplýsingar.
Og skráning í Opna stórmótið
á Akureyri, barometer með 50
pörum, er hafin hjá stjórn B.A.
fyrir norðan og á skrifstofu BSÍ.
Spilað verður helgina 19.-20.
mars. Búast má við mikillli þátt-
töku. Afar vegleg verðlaun og
silfurstig eru í boði.,
ÓLAFUR
LÁRUSSON
íslandsmótið í sveitakeppni,
undanrásir, verður spilað í
Gerðubergi í Breiðholti helgina
10.-13. mars n.k. Greiðsla, kr.
12.000 pr. sveit ásamt lista yfir
þátttakendur verður að hafa bor-
ist skrifstofu BSÍ fyrir mánudag-
inn 22. febrúar, því þá verður
dregið í riðla, samkvæmt reglu-
gerð fyrir mótið. Forráðamenn
þeirra svæða sem vanrækja ofan-
greint eru ábyrgir fyrir þeim af-
leiðingum sem það getur leitt af
sér. _
Bridgefélag Húsavíkur mun
gangast fyrir Opnu stórmóti með
sveitakeppnissniði helgina 9.-10.
apríl. Stórglæsileg verðlaun
verða f boði.
Bridgefélag Kópavogs hyggst
gangast fyrir stórmóti í vor, hugs-
anlega með sveitakeppnissniði.
Og Hvammstangi á 50 ára afmæli
í ár og í tilefni af því eru þeir
bridgemenn á staðnum með hug-
myndir að mótahaldi. Rætt hefur
verið um byrjun sumars og þá tví-
menningskeppni með baromet-
er-sniði. Og Siglfirðingar eiga
einnig stórafmæli í haust, bæði
bærinn og bridgefélagið. Af því
tilefni verður stórmót nyrðra í
september. Tvímenningur.
FJOLMIÐLAPISTILL
Þjóðarhagur og vondar myndir
Ekki alls fyrir löngu áttu þeir
orðastað í dægurmálaútvarpi
Rásar2, Bragi Bergmann rit-
stjóri Dags á Akureyri og
Guðni Bragason sem ber það
gagnorða starfsheiti aðstoð-
arfréttastjóri erlendrafréttaá
sjónvarpi allra landsmanna.
Umræðuefniðvarfréttamenn
og hlutlægnin, einkum með
tilliti til hvalamálsins.
Pannig var að Bragi hafði skrif-
að leiðara í blað sitt og mótmælt
því hve mikla athygli íslenskir
fréttamenn hefðu sýnt Poul Wat-
son og uppátækjum hans hér á
landi. Það væri í þágu íslenskra
þjóðarhagsmuna að sem hljóðast
væri um þann arma ofbeldis-
mann.
Guðni mótmælti þessu og kall-
aði ritskoðunarstefnu. Sagði
hann að fréttamönnum, einkum
og sér í lagi þeim sem starfa hjá
ríkinu, bæri að vera gagnrýnir á
allt og alla og þá helst ef menn
sigldu í skjóli þjóðarhagsmuna.
Mikið er ég sammála Guðna.
Það er nefnilega svo margt gert í
nafni þjóðarhagsmuna að menn
gætu ímyndað sér hvers konar
fréttaflutningur það væri ef
blaðamenn settu ávallt upp silki-
hanska þegar stjórnmálamönn-
um dytti í hug að kenna málstað
sinn við sameiginlega hagsmuni
okkar allra sem á skerinu tórum.
Raunar þurfum við ekkert að
ímynda okkur í því efni, dagblöð-
in sjá okkur fyrir daglegum dæm-
um um það hvernig slíkur frétt-
aflutningur er.
En því er ég að nefna þessi
skoðanaskipti pólitíska ritstjór-
ans og fréttastjóra rfkisfj ölmiöils-
ins að ekki virðast allir frétta-
menn sjónvarpsins á sama máli
og Guðni. Á miðvikudagskvöld-
ið ræddi Ólafur Sigurðsson við
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra niðri í Alþingishús-
inu. Tilefnið var einhver at-
kvæðagreiðsla um „vísinda-
veiðar“ japanskra kollega Krist-
jáns Loftssonar en íslensk
stjórnvöld ákváðu að vera móðg-
uð út af einhverju og vera ekki
með.
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Satt að segja missti ég þráðinn í
þessu viðtali eftir eina spurningu
hins opinbera fréttamanns.
Ólafur var búinn að spyrja nóg
um atkvæðagreiðsluna og beindi
talinu að samskiptum íslenskra
og bandarískra stjórnvalda út af
hvölunum. Hann hóf talið á þess-
ari spumingu:
„Virðast þér Bandaríkjamenn
vera að ná sönsum í þessu máli?“ -
Þessi spurning var svo gersam-
lega laus við alla hlutlægni að
meira að segja Halldóri Ás-
grímssyni hálfbrá við að heyra
hana. - 0 -
Þegar ég tók að mér að skrifa
þessa pistla var um það rætt að ég
ætti ekki sfður að gagnrýna Þjóð-
viljann en aðra fjölmiðla. Og nú
er komið að því.
Það er einlæg von mín að
fréttadeildin hlífi okkur við því í
framtíðinni að horfa upp á vond-
ar samklipptar myndir á borð við
þá sem var á forsíðu blaðsins á
miðvikudaginn af þeim Þorsteini
Pálssyni og Steingrími Her-
mannssyni með Rauða torgið í
baksýn.
Svona klippimyndir geta vissu-
lega verið skemmtilegar og hafa
víða verið notaðar með góðum
árangri. En til þess að þær nái
tilgangi sínum þurfa þær að vera
vel hugsaðar, auk þess sem hrá-
efnið í þær - myndirnar - verður
að passa saman og segja þá sögu
sem meiningin er að segja. Yfir-
leitt þurfa þær góðan undirbún-
ing og talsverða yfirlegu.
Frágangur fréttasíðna er hins
vegar verk sem er unnið með
hraði og því verður seint breytt. í
því tilviki sem hér um ræðir hefur
hugmyndin eflaust fæðst seinni-
part dags. Einhver hefur farið í
myndasafnið og fundið mynd af
ráðherrunum saman. Ætlunin
var að sýna tvo menn sem komnir
væru í hár saman en á myndinni
voru þeir skælbrosandi og miklir
mátar. Og Rauða torgið fékk því
ekki breytt á nokkurn hátt.
Fyrir vikið varð forsíðan sorg-
legt dæmi um verstu hliðar Þjóð-
viljans þegar fátækt blaðsins
verður augljósust og hallæris-
gangurinn ræður ríkjum í pólit-
ískum fréttum. Þetta þarf að laga
ef blaðið vill eignast trúnað les-
enda sinna.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. febrúar 1988
V