Þjóðviljinn - 21.02.1988, Síða 20

Þjóðviljinn - 21.02.1988, Síða 20
þlÓÐVILIINN Norrœn leiklistarhótíð Dagur vonar og Bílaverkstœði Badda fara til Helsinki Stcersta leiklistarhátíð á Norðurlönáum til þessa verður haldin í Helsinki í maí Einstök leiklistarhátíð verð- ur haldin í Helsinki í Finnlandi í maí næstkomandi. Það er Norræna leiklistarsambandið sem skipuleggur hátíðina og verða fluttar tvær leiksýningar frá hverju Norðurlandanna, auk þess sem efnt verður til námskeiða, sýninga og funda meðal ólíkra hópa innan leikhússheimsins. Búistervið því að alls muni um 300 leikhúsmenn frá Norðurlönd- unum, auk 500 finnskra leikhúsmanna taka þátt í há- tíðinni, en árlegir leiklistar- dagar Finnska leiklistarsam- bandsins verða haldnirsam- tímis hátíðinni. Verðurþetta fjölsóttasta og viðamesta leiklistarhátíð sem haldin hef- ur verið á Norðurlöndunum til þessa. Þriggja manna nefnd hefur val- ið framlag fslands til hátíðarinn- ar, en það verða sýning Þjóðieik- hússins á leikritinu Bílaverkstæði Badda eftir Ólaf Hauk Símonar- son og sýning Leikfélags Reykja- víkur á Degi vonar eftir Birgi Sig- urðsson. Norræna leiklistarsambandið er sameiginlegur vettvangur alls leikhúsfólks á Norðurlöndum, og gengst sambandið fyrir leiklistar- þingi annað hvert ár á Norður- Iöndunum til skiptis. Þegar leiklistarþingið var haldið í Osló fyrir fjórum árum var jafnframt efnt til leikhúshátíðar þar sem augunum var einkum beint að ný- sköpun í norrænni leiklist. Var þá jafnframt látin í ljós sú von að hægt yrði að efna til norrænnar leiklistarhátíðar fjórða hvert ár í framtíðinni. Ekki hefur þó verið tekin nein bindandi ákvörðun um slíkt áframhald, en engu að síður verður nú haldin veglegri leiklist- arhátíð í Finnlandi en áður hefur verið haldin á Norðurlöndunum. Auk gestaleikjanna tveggja frá hverju Norðurlandanna er þess vænst að einnig komi gestaleikir frá Grænlendingum, Sömum og Færeyingum. Efniságrip hvers leikverks verður gefið út á ensku til þess að yfirstíga tungumálavandræði, en einnig verður á hátíðinni boðið upp á túlkun að einhverju marki. Þekktum erlendum gestum verð- ur einnig boðið til hátíðarinnar, og hafa ítalska leikstjóranum Ge- orgio Strehler og breska prófess- ornum Neil Postman meðal ann- ars verið boðið. Það er Norræna leiklistar- nefndin sem ber stærsta hluta kostnaðarins við ieiklistarhátíð- ina, en hún mun kosta átta gestal- eiksýningar hátíðarinnar. Skipu- lagning hátíðarinnar verður að mestu kostuð af Norræna menn- ingarsjóðnum og auk þess munu Listahátíð Helsingfors, finnsku leiklistarsamböndin og tvíhliða menningarsjóðir Norðurland- anna fimm taka þátt í kostnaðin- um. Hátíðin mun standa frá 20.- 29. maí næstkomandi. ólg Jóhann Sigurðarson [ hlutverki sínu í Bílaverkstæði Badda. Fiskikonungurinn Gylfi Ingason matreiðslumeistari sér um fiskinn í Kjötmiðstöðinni t -w* Garðabæ Alltaf það allra besta Opið kl. 08.00-19.00 daglega kl. 08.00-20.00 föstudaga kl. 08.00-18.00 laugardaga GARÐABÆ, SIMI 656400

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.