Þjóðviljinn - 24.02.1988, Qupperneq 2
— SPURNINGIN'
(Spurt á Hótet Loftleiðum)
Hver er sigurstrang-
legastur á þessu móti?
Eyjólfur Jónsson
lögregluþjónn:
Ég tel Mikhail Gúrevits vera ör-
uggan sigurvegara. Hann hefur
átt svo glæsilegan skákferil síö-
ustu 2 ár.
Ólafur S. Ásgrímsson
bankastarfsmaöur:
Við vonum að íslendingarnir
standi sig vel, en sovéski stór-
meistarinn Mikhail Gúrevits er
sigurstranglegur. Stigin segja sitt
þegar upp er staðið.
Ögmundur Kristinsson
prentari:
Þeir Pólúgajevski og Sævar
Bjarnason. Þeir eru báðir
reynslumiklir.
Hermann Friðriksson
kokkur:
Ég vonast til að einhver íslend-
ingur vinni og Helgi Ólafsson er
bestur af þeim.
Ingvar Ásmundsson
skólastjóri:
Það er Mikhail Gúrevits. Hann
er hæstur að stigum. íslending-
arnir munu örugglega standa sig
vel.
FRETTIR
Gurevich hefur flest Eló-stig þátttakenda á Reykjavíkurskákmótinu. Ljósm.: Sig. Mar.
Browne á „lakkinu“
Góðkunningi okkar íslend-
inga, Bandaríkjamaðurinn Walt-
er Brown, stal senunni i 1. umferð
Reykjavíkurskákmótsins sem
hófst í gær. Jóhannes Ágústsson
tefldi við Brown og átti í fullu tré
við hann allt þar til tímahrakið
byrjaði. Browne, sem átti mun
minni tíma, sýndi hinsvegar gam-
alkunna takta í „hrakinu“ og
tókst að lokum að máta okkar
mann.
Áhorfendur skemmtu sér konung-
lega við að horfa á tímahraksbarning-
inn og varð einum þeirra að orði að
Browne væri algerlega ómissandi
maður á svona mótum.
Óvæntustu úrslitin voru þau að 14
ára Frakki, Joel Lautier, náði jafn-
tefli með svörtu mönnunum gegn hin-
um firnasterka ungverska stór-
meistara Andreas Adorjan. Frakki
þessi á án efa eftir að koma meira á
óvart í mótinu.
Athygli vakti einnig að Margeir
Pétursson átti í vök að verjast gegn
Bolvíkingnum Guðmundi Gíslasyni.
Skák þeirra fór í bið.
Helgi Ólafsson sigraði Davíð Ól-
afsson og Jón L. Árnason vann Dan
Hanson eftir mikið tímahrak.
Sovétmennirnir Polugaévsky og
Dolmatov unnu örugga sigra en þriðji
sovétmaðurinn, Gurevich, sem er
stigahæsti skákmaður mótsins, átti í
19/(iii\88
REYKJAVÍKUR
SKÁKMÓTIÐX
erfiðleikum gegn Jóni G. Viðarssyni
og þegar skák þeirra fór í bið var stað-
an óljós.
Hvítt: Jóhannes Ágústsson (íslandi)
Svart: Walter Brown (Bandaríkjun-
um)
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
(Browne, sem er mikill sóknarskák-
maður, beitir iðulega Sikileyjarvörn
gegn Kóngspeðsbyrjun.)
6. Be3 e5
7. Rf3
(Algengt er einnig 7. Rb3.)
7. - Dc7
8. a4 Be7
9. a5 0-0
10. Be2 Rc6
11. Bb6 Dd7
12. Rd2
(Til að geta svarað 12. - Bd8 með 13.
Rc4. Leikurinn hefur hins vegar þann
annmarka að nú nær svartur að
sprengja upp á miðborðinu.)
12. - d5
13. 0-0 Rb4
14. exd5 Rfxd5
15. Rxd5 Rxd5
16. Rc4 De6
17. Hel e4!
(Nauðsynlegur leikur því hvítur hót-
aði 18. Bf3.)
18. Bd4 Hd8
19. Dd2! Df5
20. Re3 Rxe3
21. Dxe3 Bg5
22. Dc3 Dg6(?!)
(Browne var óánægður með þennan
leik því að hann gat leikið 22. - Be6
strax. Ef þá 23. Bxg7 þá 23. - Bd2!)
23. Hadl Be6
24. Dg3
(Hér var Browne kominn í mikið
tímahrak og iðaði nú allur í stólnum!)
24. - Hac8
25. Bc3 Dh6
26. Hxd8+ Hxd8
27. Dc7 Hc8
28. Dxb7
(Hvíta drottningin hefur nú hætt sér
úr vörninni og því lék Browne nú nær
samstundis með miklum skelli!)
28. - e3!
29. Bf3?
(Jóhannes var, þegar hér var komið
sögu, einnig kominn í mikið tímahrak
og leikur hér af sér. Best er 29. f3 Bf4
30. g3 Dg5 31. Khl Bc7 og staðan er
mjög óljós.)
29. - Bf4
30. fxe3
(Skárra var 30. h3 en eftir 30. - Dh4!
31. fxe3 Hxc3! erekki aðsjáað hvítur
lifi sóknina af. Næstu leikir voru
leiknir með eldingarhraða.)
30. - Dxh2+
31. Kfl Bg3!
32. Bd5 Hxc3!
33. Bxe6 Dhl+
34. Ke2 Dxel+
35. Kf3 Dxe3+
36. Kg4 Df4+
37. Kh3 Dh4+ mát!
Svo sannarlega skemmtileg tafl-
mennska hjá Browne í tímahrakinu.
Urslit
í gær:
Jón G. : Gurevich bið
Polugaevsky : Ásgeir Þ. 1-0
Þorsteinn Þ. : Christiansen bið
Dolmatov : Róbert Harðars. 1 -0
Guðmundur G : Margeir bið
Adorjan : Lautier 1/2-1/2
Jóhannes Ág. : Browne 0-1
Helgi Ól : Davíð Ól 1 -0
Dan Hanson : Jón L. 0-1
Dizdar : Tómas Björns. 1-0
Magnús Sól. : Zsuzsa Polgar bið
Kotronias : Bragi Halldórs. bið
Áskell Örn : Schoen 1 -0
Akeson : Þröstur Árnason bið
Stefán B. : Karl Þorsteins 0-1
Tisdall : Árni Á. Árnason 1 -0
Halldór G. : Þröstur Þórh. 0-1
Östenstad : Sigurður D. bið
Lárus Jóh. : C. Hoi 0-1
Hannes Hlífar : Bjarni Hj. 1-0
Snorri Bergs : Gausel 0-1
Sörensen : Ögmundur Kr. 1 -0
Arnar Þorst. : Benedikt J. 1-0
Sævar Bjarnason : Bogi Páls. 1/2-y2
Tómas Hermanns. : Judit Polgar 1-0
Zsofia Polgar : Luitjen 1-0
Þráinn Vigf. : Barle bið
Örugglega þær
ungversku
Önnur vinnur i
hin tapar
T
„ SkS,',
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. febrúar 1988