Þjóðviljinn - 02.03.1988, Blaðsíða 2
^SPURNINGIN-H
Mundir þú eftir beltinu
og Ijósunum í morgun?
Hjördís Haraldsdóttir
húsmóðir:
Já, ég mundi eftir því.
Sigurður Blöndal
leigubílstjóri:
Ég er nú ekki skyldugur til aðnota
belti en Ijósin nota ég alltaf. í dag
var ég þó á einkabíl og smellti því
á mig beltinu.
Einar Þór Arnason
bifvélavirki:
Já, já. Maður verður að sætta sig
við þetta.
Heimir Ólafsson
bóndi:
Já, það gerði ég. Mérfinnst mjög
eðlilegt að nota beltin, ef með því
er hægt að fækka slysunum.
Schumann Didriksen
skrifstofumaður:
Já, ég gerði alveg í því að muna
eftir þessu.
FRÉTTIR
Matvœli
Efnainnjhaldið rannsakað
Ólafur Reykdal: íslenskar nœringarefnatöflur tilbúnar ísumar.
Nauðsynlegur grunnur fyrir neyslukannanir
Pessa mánuðina er unnið að
rannsókn á efnainnihaldi ís-
lenskra matvæla. Aætlað er að
niðurstöðurnar liggi fyrir síðar á
árinu, og verða þær þá birtar á
formi næringarefnataflna.
- Upplýsingar um þessa hluti
hafa verið of dreifðar til að vera
aðgengilegar, segir Ólafur
Reykdal hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins; en um síðustu
áramót komst á samstarf þeirra
stofnana sem eiga gögn um efna-
innihald íslenskra matvæla. Þær
eru: Rannsóknastofnun landbún-
aðarins, Rannsóknastofnun fiski-
ðnaðarins, Háskólinn, Hollustu-
verndin, Manneldisráð og Skóla-
þróunardeild menntamálaráðu-
neytisins.
- Tilgangurinn er að safna
saman gögnum um efnainnihald
og skrá á tölvu, og gefa síðan út
næringarefnatöflur, sagði
Ólafur. Hann sagðist reikna með
að þessar töflur lægju fyrir þegar í
sumar.
- Það má segja að þetta sé fyrs-
ti áfangi á þeirri leið að gera rann-
sóknir á neyslu landsmanna.
Neyslukannanir, athugun á því
hvað fólk borðar og hvaða efni
það fær úr matnum, eru annað
svið, en við slíkar athuganir eru
næringarefnatöflurnar nauðsyn-
legur grunnur til að byggja á,
sagði Olafur.
Næringarefnatöflurnar munu
einnig taka til aukefna og aðskot-
aefna í matvælum, að sögn Ólafs.
HS
Epal
Sértiannaðir
sófar til
Danmerioir
Fyrirtækið Epal hf. er nú að
Ijúka smíði á sérhönnuðum sóf-
um fyrir hótelið Þrjá Fálka á
Friðriksbergi í Kaupmannahöfn.
Að sögn Eyjólfs Pálssonar hjá
Epal verða sófarnir sem eru stórir
bogasófar tólf og tuttugusæta,
settir í anddyri hótelsins á áber-
andi stað og hér sé því um mikla
auglýsingu fyrir fyrirtækið að
ræða.
Það voru dönsku hönnuðirnir
Ole Kortzau og Oleg Gormsen
sem fengu það verkefni að teikna
sófann og þeir óskuðu síðan eftir
því við Epal að fyrirtækið tæki að
sér smíðina. Grindurnar voru
smíðaðar á Vinnustofu ÓJ í Kóp-
avogi og bólstrun unnin hjá GA-
húsgögnum í Reykjavík.
-Ig-
Forráðamenn Epals og smiðir hjá Vinnustofu ÓJ í Kópavogi tylla sér í stóra sófann sem prýða mun anddyri hótelsins
Þriggja fálka á Friðriksbergi. Mynd-Sig.
Stóriðja
Söluskrifstofa fyrir rafmagn
Iðnaðarráðherra vill að Landsvirkjun opni sölu- ogmarkaðsskrif-
stofu. Sala á raforku til stóriðju eða útflutnings
Samkvæmt áliti nefndar sem
iðnaðarráðherra skipaði til
að athuga á hvern hátt iðnaðar-
ráðuneytið kunni best að stuðla
að samstarfi innlendra og er-
lendra fyrirtækja hér á landi og
eriendri fjárfestingu, hefur ráð-
herra komið þeirri ósk á framfæri ■
við stjórn Landsvirkjunar, að
sett verði á stofn sérstök sölu- og
markaðsskrifstofa fyrir rafork-
uframleiðslu, sem rekin verði í
samstarfi við ráðuneytið. Hug-
myndin með söluskrifstofunni er
að afla kaupenda fyrir raforku til
stóriðju eða útflutnings á ra-
forku.
í áliti nefndarinnar segir að
margt mæli með því að gert verði
átak til að leita eftir erlendri fjár-
festingu og samstarfi við erlend
fyrirtæki. „Með því mætti draga
úr erlendum lántökum enda gæti
erlent áhættufé komið í stað
lánsfjár“ og um leið væri unnt að
skjóta styTkari stoðum undir ís-
lenskt efnahagslíf og auka út-
flutningstekjur. „Þetta gildir
bæði fyrir orkufrekan iðnað og
almennan iðnað.“
Nefndin telur rétt að Lands-
virkjun, sem falið hefur verið að
sjá um megin orkuöflun lands-
manna, taki virkari þátt í mafk-
aðsöflun fyrir raforku en verið
hefur til þessa.
Jafnframt hefur iðnaðarráð-
herra komið þeirri ósk á framfæri
við Útflutningsráð að það annist
almennt kynningarstarf til að
vekja áhuga erlendra fyrirtækja á
samstarfi við innlenda aðila og á
fjárfestingarmöguleikum hér á
landi. -rk
Sjónarhóll kvenna
Tæknisamfélagiðárið 2010
Aföstudaginn verður haldin
ráðstefna í Norræna húsinu í
Reykjavík á vegum kvenna í verk-
og tæknifræðingastétt í tengslum
við Norrænt tækniár 1988. Ráð-
stefnan er liður í samnorrænu
verkefni, konur og tækni, eða
tæknisamfélagið árið 2010 séð frá
sjónarhóli kvenna, sem Norræna
ráðherranefndin styður.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
gefa konum í tæknistörfum kost á
að kynnast innbyrðis og kynna
störf sín út á við í tilefni tækniárs-
ins, en fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða konur, verk- og tæknifræð-
ingar, sem starfað hafa í atvinnu-
lífinu um árabil á sviði matvæla-
iðnaðar, orkumála og tölvu-
tækni. Gestafyrirlesari kemur frá
Danmörku, Sinja Sveinsdottir,
ritstjóri Ingenipren.
Fjallað verður um stöðu tækni-
menntaðra kvenna í atvinnulíf-
inu, kynntar niðurstöður skoðan-
akönnunar meðal kvenna í verk-
og tæknifræðingastétt sem gerð
var í tilefni ráðstefnunnar.
Á hinum Norðurlöndunum
hafa konur innan vélbanda félaga
verk- og tæknifræðinga undirbú-
ið ráðstefnur hver í sínu landi og
sameiginlega munu þær taka þátt
í kvennaráðstefnunni Nordisk
Forum í Ósló í sumar. Ráðstefn-
an í Norræna húsinu í Reykjavík
er sú fyrsta f röðinni.
Hvert er þitt álit á
samningunum,
ráðherra
að samið hafi verið af skynsemi
og festu við erfiðar aðstæður og með
heildarhagsmuni þjóðarbúsins fyrir
augum. Boginn er að vísu spenntur
til hins ítrasta en með gát má j
stýra milli boða. J
^AATRANSUTIOh
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. mars 1988