Þjóðviljinn - 02.03.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 02.03.1988, Blaðsíða 13
KALLI OG KOBBI Símon og Orthulf. Gítar og Á 6. Háskólatónleikum, sem haldnir verða í Norræna húsinu í dag kl. 12.30, leika Símon Ivars- son og dr. Orthulf Prunner sam- an á gítar og klavíkord. Á efnis- skránni verða tvö verk: Sónata eftir J.S. Bach og Andante con variazioni eftir L. van Beethoven, en þetta verk er upprunalega fyrir mandolín og sembal. Símon fvarsson hóf gítarnám 19 ára gamall hjá Gunnari Jónssyni við Tónskóla Sigur- sveins í Reykjavík og lauk prófi frá skólanum 1975. Sama ár hóf hann nám við Tónlistarhá- skólann í Vín, lauk þaðan prófi 1980 og starfaði í eitt ár sem gít- arkennari við Tónlistarskólann í Luzern í Sviss. Frá 1981 hefur hann starfað sem kennari við Tónskóla Sigursveins. Símon hefur síðastliðin 11 ár farið marg- ar tónleikaferðir um ísland, kom- ið oft fram í útvarpi og sjónvarpi og leikið víða í Austurríki og Sví- þjóð. Auk þess hefur hann farið margar námsferðir erlendis. klavíkord Dr. Orthulf Prunner er fæddur í Vínarborg og hóf þar nám við orgelleik við Kirchenmusik- schule der Erdiözese. Árið 1974 hlaut hann 2. verðlaun í keppni fyrir unga organista, sem haldin var í Haslach í Austurríki og 1975 hóf hann nám við Tónlistarhá- skólann í Vínarborg. Einnig nam hann stærðfræði við háskólann í Vín og árið 1978 varði hann dokt- orsritgerð um talnafræði. Orthulf fluttist til fslands 1976 og hefur frá 1979 starfað sem organisti og kantor við Háteigskirkju í Reykjavík og auk þess kennt víða, bæði tónlist og stærðfræði. Hann hefur haldið fjölda orgel- tónleika, bæði á íslandi og víða erlendis, m.a. á Norðurlöndum, Hollandi, Sviss og Þýskalandi. Þeir Símon ívarsson og dr. Orthulf Prunner hófu samstarf fyrir tveimur árum og hafa haldið tónleika víða um land á þeim tíma. Síðastliðinn vetur gáfu þeir út sína fyrstu hljómplötu. Eigendur Ness hf. vio fyrstu saltfisksstæðuna. F.v.: Magni Kristjánsson, Hólmgeir Hreggviðsson og Hörður Erlendsson. Mynd hb. Neskaupstaður Tvö ný fiskvmnslufyrirtæki Tvö fiskvinnslufyrirtæki hafa nýlega tekið til starfa í Neskaup- stað, Saltfang hf. og Ness hf. Bæði fyrirtækin leggja nú megin- áherslu á verkum saltfisks og svo mun verða áfram hjá Saltfangi hf. en Ness hf. mun í framtíðinni leggja megináherslu á frystingu. Eigendur Saltfangs hf. eru þeir Kristinn Guðmundsson, Hösk- uldur Guðmundsson og Skúli Aðalsteinsson. Fyrirtækið er í ný- legu 200 fermetra stálgrindarhúsi sem þeir félagar festu kaup á fyrir nokkru og hafa nú einangrað og klætt að innan. Sjálfir eiga eigendurnir tvo trillubáta og auk þess kaupa þeir fisk af fleiri smábátum. Reiknað er með að auk eigenda verði 4-5 starfsmenn í vinnu hjá Saltfangi. Ness hf. er í eigu þeirra Harðar Erlendssonar, Hólmgeirs Hregg- viðssonar og Magna Kristjáns- sonar en þeir félagarnir eru allir fyrrverandi skipverjar á loðnu- skipinu Berki NK. Ness hf. festi kaup á gömlu frystihúsi sem var í eigu kaupfélagsins Fram og hafa hinir nýju eigendur gert miklar endurbætur á húsinu. Ness hf. kaupir hráefni sitt af smábátum en útgerð slíkra báta er hvergi meiri á landinu en í Neskaupstað. Reiknað er með að um 10-15 manns starfi hjá Ness hf. í fram- tíðinni. Eigendur Saltfangs hf. F.v.: Skúli Aðalsteinsson, Kristinn Guðmundsson og Höskuldur Guðmundsson. Kuldinn! Má ekki kynda aðeins meira? j 1~~ Það er dýrt, Kalli. Farðu bara í peysu. Sjáðu nú bara. Hitamælirinn æðir upp! Það er komið stuttbuxnaveður. ^ Kannski eins gott að fara í peysu. Mér er svo kalt að ég ' get ekki stillt hann hvort sem er. g GARPURINN FOLDA APÓTEK ReyKjaviK. neigar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vik- una 26. febr.-3. mars er í Ingólfs Apóteki og Laugarnesapó- teki. Fyrrnef nda apótekið er opfö um helgar og annast naetur- vörslu alla daga 22-9 (til 10 fridaga). Síðarnefnda apó- tekið eropið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fy rr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík.....sími 1 11 66 Kópavogur....sími4 12 00 Seltj.nes....sími61 11 66 Hafnarfj......sími 5 11 66 Garðabær......sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík.....simi 1 11 00 Kópavogur.....sími 1 11 00 Seltj.nes.....sími 1 11 00 Hafnarfj......sími 5 11 00 Garðabær......sími 5 11 00 Heimsóknartímar: Landspft- allnmalladaga 15-16,19-20. Borgarspitalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftirsamkomulagi. Faeðing- ardelld Landspítalans: 15- 16. Feðratími 19.30-20.30. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni 10 B: Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16- 19.30 helgar 14-19.30 Heilsu- vemdarstöðln við Baróns- DAGBÓK stig:opinalladaga 15-16og 18.30- 19.30. Landakots- spitall: alla daga 15-16 og 18.30- 19.00 Barnadeild Landakotsspitala: 16.00- 17.00. St. Jóset sspítail Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30 Kleppsspítal- lnn:alladaga 18.30-19og 18.30- 19 Sjúkrahúsið Ak- ureyri: alla daga 15-16 og 19- 19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: alla daga 15-16 og 19-19.30. Sjúkra- hús Akraness: alla daga 15.30- 16og 19-19.30. Sjúkrahúsið HÚ8avfk: 15-16 og 19.30-20. LÆKNAR Læknavakt fy rir Reykja- vik, Seltjarnarnes og Kópavog er í Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur alla virkadaga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólar- hringinn. Vitjanabeiðnir, simaráöleggingar og tima- pantanir í síma 21230. Upp- lýsingar um lækna og lyfja- þjónustu eru gefnar í sim- svara 18885. Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8-17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Slysadeild Borgarspítalans opin allan sólarhringinn sími 696600. Dagvakt. Upplýsingar um da- gvakt læknas.51100. Næt- urvaktlæknas. 51100. Hafnarfjörður: Heilsugæsla. Upplýsingar um dagvakt lækna s. 53722. Næturvakt læknas. 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýs- ingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamiðstöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Keflavfk: Dagvakt. Upplýs- ingars. 3360. Vestmanna- eyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. ÝMISLEGT Bilananavakt rafmagns- og hltaveitu: s. 27311 Raf- magnsveita bilanavakt s. 686230. HJálparstöð RKl, neyöarat- hvarf fyrir unglinga Tjarnar- götu 35. Sími: 622266 opið allansólarhringinn. Sálfræðlstöðin Ráðgjöf í sálfræöilegum ef n- um. Sími 687075. MS-félaglð Álandi 13. Opið virka daga trá kl. 10-14. Sími688800. Kvennaráðgjöf In Hlaðvarp- anum Vesturgötu 3. Opin briðiudaqa kl.20-22, simi 21500, símsvari. Sjálfshjálp- arhópar þeirra sem orðið hafa tyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýslngarum ónæmlstærlngu Upplýsingar um ónæmistær- KROSSGÁTAN ingu (alnæmi) í síma 622280, milliliðalaust samband við lækni. Frá samtökum um kvenna- athvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir kon- ur sem beittar hafa verið of- beldi eða orðiö fyrir nauðgun. Samtökln '78 Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma Sarrftákanna 78 fólags lesbía og homma á (slandi á mánudags- og fimmtudagskvöldumkl. 21- 23. Símsvariáöðrumtímum. Síminner91-28539. Fólag eldri borgara: Skrif- stofan Nóatúni 17, s. 28812. Félagsmiðstöðin Goðheimar Sigtúni3,s. 24822. GENGIÐ 1. mars 1988 kl. 9.15 Sala Bandaríkjadollar 39,520 Sterlingspund... 70.039 Kanadadollar.... 31,414 Dönskkróna...... 6,1181 Norskkróna...... 6,2359 Sænsk króna..... 6,5999 Finnsktmark..... 9,6839 • Franskurfranki.... 6,9088 Belgískurfranki... 1,1189 Svissn.franki... 28,3704 Holl. gyllini... 20.8384 V.-þýsktmark.... 23,3950 (tölsklíra..... 0,03173 Austurr. sch.... 3,3301 Portúg. escudo... 0,2852 Spánskurpeseti 0,3470 Japansktyen..... 0,30755 Irskt pund...... 62,353 SDR............... 53,7654 ECU-evr.mynt... 48.3251 Belgiskurfr.fin.. 1,1161 Lárótt: 1 yfirhöfn 4 úr- gangur 6 dý 7 snjókorn 9 skoðun 12 hundur 14 hugg- un 15 hljóm 16 f lutningsskip 19 blað 20 kvæði 21 rausn Lóðrótt: 2 fugl 3 veiða4 orm 5 sefi 7 smíðatól 8 ruddalegur 10 máluðu 11 kveikiefni 13 gripur 17 vafi 18karlmannsnafn Lausn á sfðustu krossgátu Lárótt: 1 hrós, 4 senn 6 lap 7 örvi 9 ösla 12 ötull 14 gin 15 álm 16 tæpan 19 laus 20 unun21 niðri Lóðrótt: 2 rör 3 slit 4 spöl 5 Níl 7 öngull 8 vöntun 10 slánni 11 arminn 13 upp 17 æsi 18aur Miðvikudagur 2. mars 1988 , ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.