Þjóðviljinn - 09.03.1988, Síða 1
Miðvikudagur 9. mars 1988 56. tölublað 53. órgangur
Vestmannaeyjar
Búist við löngu verkfalli
Vilborg Þorsteinsdóttir: Víðtœkur stuðningur. Voná sáttasemjaraí dag. 1,7 miljónirí verkfallssjóði
Snótar. Hafnað undanþágu á yfirvinnubanni
Við höfum fundið fyrir miklum
og víðtækum stuðningi bæði
hér í Eyjum og í landi, sagð Vil-
borg Þorsteinsdóttir, formaður
verkakvennafélagsins Snótar, í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Atvinnurekendur og samn-
inganefnd Snótar hafa ekki ræðst
við síðan upp úr viðræðum slitn-
aði á föstudag. Von mun vera á
ríkissáttasemjara til Eyja í dag til
frekari sáttaumleitana.
Að sögn Snótarkvenna búast
þær allt eins við löngu verkfalli
komi önnur félög ekki til liðs við
Íær og grípi fljótlega til aðgerða.
verkfallssjóði Snótar eru nú til
um 1,7 miljónir króna, sem
jafngildir milli 40-50 þúsund
krónum á hverja konu sem er í
verkfalli.
Bókmenntaverðlaunin
Lifum ekki án listar
Thor Vilhjálmsson tók við bókmenntaverðlaununum ígœr
„Ég hef ekki gert neina málamiðlun,'
Thor Vílhjálmsson tók á móti
bókmenntaverðlaunum Norð-
urlandaráðs við hátíðlega athöfn
í tónleikahúsi Oslóarborgar í
gærkvöldi.
Thor er þriðji íslenski rithöf-
undurinn sem hlýtur þessi verð-
laun en sá fyrsti sem fær þau fyrir
skáldsögu.
„Ég er maður sem eyðir ævi
sinni í að setja saman bækur og
því stend ég á þessu sviði í geisla
katstljóssins, sem strýkur skegg
mitt og hár. Ég er svo rómantísk-
ur að þumbast við og treysta hlut-
verki skáldsins í mannlegu samfé-
lagi og að sjálfsögðu hvílir mikil
ábyrgð á skáldinu. Ég fullvissa
ykkur um að við getum ekki lifað
án listar, þessvegna verðum við
líka að umbera listamennina,“
sagði Thor m.a. þegar hann
þakkaði heiðurinn.
Fyrr um daginn átti Thor fund
með norrænum fréttamönnum.
Þar var hann minntur á að mörg-
um þættu bækur hans erfiður lest-
ur og spurt hvort Grámosinn
glóir væri nokkurskonar mála-
miðlun við lesendur.
„Ég hef ekki gert neina mála-
miðlun," svaraði Thor. „Það má
vera að bækur mínar séu nokkuð
erfiðar, ég veit það ekki. Það
kemst ábyggilega enginn létt frá
þeim.“
GG/Osló
Sjá bls. 5 og 6
Kjarasamningar
Ekki auðveldara í Reykjavík
Atvinnurekendur vísa öllu til sáttasemjara
Þeir skulu ekki halda að það
verði eitthvað auðveldara að
eiga við okkur fyrir sunnan hjá
ríkissáttasemjara en á heimaslóð-
um. Hitt vekur meiri furðu
hvernig atvinnurekendur úti á
landsbyggðinni láta cndalaust
teyma sig af Garðastrætisliðinu.
Þeir eru teymdir áfram og virðast
ekki fá að hugsa eina sjálfstæða
hugsun, segir Björn Grétar Sveins-
son, formaður Verkalýðsfélags-
ins Jökuls á Hornafirði, um þá
ákvörðun Vinnuveitendasam-
bandsins og Vinnumálasam-
bandsins að vísa til ríkissáttas-
emjara deilumálum við öll þau fé-
lög innan Verkamannasam-
bandsins sem felldu nýgerða
samninga og einnig önnur félög
innan sambandsins sem áttu ekki
aðild að þeirri samningsgerð.
í bréfi sem samtök atvinnurek-
enda sendu Guðlaugi Þorvalds-
syni ríkissáttasemjara í gær, eru
talin upp rúmlega 40 verkalýðsfé-
Iög innan VMSÍ sem enn er
ósamið við. Áður hafði kjara-
deilu Snótar í Vestmannaeyjum
og Framsóknar í Reykjavík verið
vísað til sáttasemjara. Hann átti
viðræður við samningsaðila í gær-
kvöld og er búist við að til fyrstu
sáttafunda verði boðað í lok vik-
unnar.
- Ég var að vona að þeir kæmu
hingað austur til að ræða við okk-
ur en satt að segja kemur þessi
ákvörðun þeirra mér ekki á
óvart. Það sem skiptir mestu er
að komast burt úr Garðastrætinu
og það verður ekkert auðveldara
að eiga við okkur hjá sáttasemj-
ara en hér fyrir austan, sagði
Björn Grétar í gærkvöld.
Hann sagðist búast við því að
verkalýðsfélög fiskvinnslufólks
myndu sameinast undir einn hatt
íkomandi viðræðum í Reykjavík.
- Við höfum ekki lokið okkar
verki hér fyrir austan þar sem við
eigum enn eftir að fá formlegt
svar frá atvinnurekendum hér, en
Alþýðusamband Austurlands
ætlaði að kynna atvinnurekend-
um í fjórðungnum nýja kröfu-
gerð sína á mánudag.
-lg-
Snót
Af stuðningsyfirlýsingum og
Ijárframlögum sem borist
hafa til verkakvennafélagsins
Snótar í Vestmannaeyjum, virð-
ist mega ráða að verkfall félagsins
hafi vakið verðskuldaða aðdáun
og samúð víðsvegar innan verka-
lýðshreyfingarinnar. I gær bár-
ust Snót 300 þúsund krónur frá
Kennarasambandi Islands og 40
þúsund krónur frá starfsmönnum
Þjóðviljans.
Áður höfðu verkalýðsfélagið
Bjarmi á Stokkseyri sent félaginu
50 þúsund krónur og Þorgrímur
Arthúr Bogason fiskverkandi
sagði Þjóöviljanum að honum
hefði borist gagntilboð frá Snót
vegna launatilboðs sem hann
gerði félaginu. „Ég er að skoða
þetta, mér er mest í mun að ná
samningum hið fyrsta,“ sagði
Arthúr.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
hafnaði á fundi sínum í gærkvöldi
ósk atvinnurekenda um að veita
starfsmönnum fiskimjölsverk-
smiðjanna undanþágu frá yfir-
vinnubanni félagsins sent boðað
er frá og með þriðjudegi í næstu
viku.
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélagsins, sagði við
Þjóðviljann í gær, að hann teldi
ekki tímabært fyrir féJagið að
boða verkfall. „Eftir að flest að-
ildarfélög VMSÍ felldu samning-
ana sé ég ekki að félögin hér í
Eyjum geti knúið fram samninga
ein og sér.“
Að sögn Jóns hefur ekkert
þokast í samkomulagsátt í við-
ræðum við atvinnurekendur.
„Þeir vísa bara á stórabróður í
Garðastrætinu,“ sagði Jón.
Ýmsir atvinnurekendur í
Eyjum leita nú allra ráða til að
bæta sér upp kvenmannsleysið í
fiskvinnslunni. Landburður er af
afla og því mikið í húfi að undan
hafist með verkun á þeim fiski
sem ekki er siglt með á erlendan
markað. Eitthvað er um að frant-
haldsskólanemendur í Eyjum
hafi ráðið sig í íhlaupastörf í fisk-
vinnslunni. Að sögn Snótar-
kvenna hafa þær vitneskju um að
skólastjóri Stýrimannaskólans
hafi verið beðinn um að koma
þeirri ósk á framfæri við nemend-
ur sína, að þeir hlaupi undir
bagga með fiskvinnslunni eftir að
skóla lýkur á daginn.
-rk/Eyjum
300.000 frá kennurum
40 þúsundfrá starfsmönnum Þjóðviljans
Starri í Garði í Mývatnssveit 5
þúsund krónur.
Að sögn þeirrar Vilborgar Þor-
steinsdóttur og Elsu Val-
geirsdóttur, formanns og va-
raformanns Snótar, er sá stuðn-
ingur, sem félagið hefur fengið,
ómetanlegur. „Því miður er allt
útlit fyrir að þessi fjárframlög
komi að góðum notum því það
stefnir allt í langt og strembið
verkfall," sögðu þær Elsa og Vil-
borg og vildu um leið koma á
framfæri innilegu þakklæti fyrir
stuðninginn, fyrir hönd félags-
manna Snótar. -rk/Eyjum
Snjónum kyngdi niður í höfuðborginni í gær á mesta umferðartímanum og
mynduðust víða miklir umferðarhnútar einsog sjá má á þessari mynd sem var
tekin á Kringlumýrarbraut síðdegis í gær. Mynd: E.ÓI.