Þjóðviljinn - 31.03.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 31.03.1988, Side 1
Fimmtudagur 31. mars 1988 75. tölublað 53. árgangur Páskablað Pietá Michelangelos Með blaðinu í dag fylgir sérstakt páskablað sem er fjölbreytt að efni. Þar er með- al annars grein eftir Ólaf Gíslason um höggmyndina Pi- etá eftir Michelangelo. Jafn- framt er birtur kafli úr ævi- sögu Michelangelos eftir samtímamann hans, Giorgio Vasari frá Flórens. Þá er í blaðinu grein eftir Árna Bergmann um pá- skahald rétttrúnaðarkirkj- unnar í Sovétríkjunum, myndskreytt ævintýri eftir Hallgrím Helgason og síðasti hluti greinaflokksins um Nik- íta Khrúsjov. Þjóðviljinn óskar lesendum gleðilegra páska, en næsti út- gáfudagur blaðsins verður miðvikudagurinn 6. apríl. Þórshöfn Læknir vill loka mjólkurstöðinni Sigurður Gunnarsson, lœknir: Lagði til að mjólkurstöðinniyrði lokað. Kaupfélagið hefur daufheyrst við öllum kröfum um úrbœtur. Seinni hluta vetrar hefur hluti Þórshafnarbúa fremur pantað mjólk frá Akureyri en að leggja sér heimaframleiðslu mjólkur- stöðvar Kaupfélags Langnesinga til munns. Áðrir hafa orðið að gera sér að góðu illa þefjandi, bragðvonda og geymslurýra mjólk í vetur, sem heilsugæslu- læknirinn segir tæpast drykkjar- hæfa. Sigurður Gunnarsson, heilsu- gæslulæknir á Þórshöfn sagði í samtali við Þjóðviljann, að kaupfélagið hafi daufheyrst við öllum kröfum um úrbætur. Heilbrigðisnefnd Þórshafnar gaf kaupfélaginu frest til 1. mars að gera allra nauðsynlegustu úr- bætur, ellegar yrði stöðinni lokað 30. mars. Á síðustu stundu breytti heilbrigðisnefnd fyrri ákvörðun og heimilaði áfram- haldandi mjólkurframleiðslu án þess að úrbótanna sjái stað. Sigurður hefur skrifað Hollust- uvernd ríkisins bréf þar sem hennar liðsinnis er óskað til að loka mjólkurstöðinni, þar til nauðsynlegustu úrbætur hafi átt sér stað. Þórshafnarbúar fúlsa við heimamjólkinni og læknirinn á staðnum vill loka mjólkurstöðinni. Mynd - Sig. Valsmenn Islandsmeistarar Unnu FH-inga að Hlíðarenda í frábœrum leik í gærkveldi Valsmenn tryggðu sér íslands- meistaratitilinn í handbolta fyrir fullu húsi öskrandi áhorfenda er þeir mættu FH-ingum í gær. Leikurinn var jafn og spennandi og var munurinn lengst af eitt til tvö mörk. Hlíðarendamenn virtust hafa heilsteyptara lið og gerðu færri mistök þegar á hólminn var kom- ið. Þá nýttist þeim vel að hafa landsliðsmarkvörðinn Einar Þor- varðarson í sínum röðum en hann sýndi stórkostlega markvörslu. Á síðustu mínútum leiksins sigu Valsmenn endanlega framúr og innsiglaði Valdimar Grfmsson sigurinn með skemmtilegu víta- kasti. Valsmenn fögnuðu lengi og innilega og hlupu heiðurshring í húsinu og var allt annað að horfa til liðsins nú heldur en í tveimur síðustu leikjum. Það var sem þungu fargi væri létt af Vals- mönnum og spiluðu allir leik- menn liðsins vel, jafnt í vörn sem sókn. íslandsmeistarabikarinn verð- ur því á Hlíðarenda næsta árið og nú velta menn því fyrir sér hvort bikarinn fari sömu leið. -gói/þóm Sjá bls. 19 Ráðhúsið Guðrún Ágústdóttir borgarfulltrúi skrifar um nýjustu uppákomur í Ráð- hússmálinu. Sjá bls. 5 Fóstureyðingar Stefanía Þorgrímsdóttir úr Mý- vatnssveit skrifar hugleiðingu um „Lífið og Tilveruna." Sjá bls. 13 Útvarpið Svavar Gestsson alþingismað- ur skrifar um atlögurnar að Ríkis- útvarpinu. Sjá bls. 5 Laxeldi Össur Skarphéðinsson fiskeldis- fræðingur fjallar í Páskablaðinu um laxeldi sem þátt í atvinnumál- um í Reykjavík. Sjá bls. 10 Fólksflótti Neyðaróp frá landsbyggð Byggðastofnun sendir forsœtisráðherra ádrepu - Það er ekki verjandi að stjórnvöld sitji aðgerðarlaus og horfi á landið sporðreisast í gegn- darlausum fólksflutningum frá landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins, er inntak harðorðs ádrepubréfs sem Byggðastofnun hefur sent forsætisráðherra. Byggðastofnun segir að öflugt mannlíf og atvinnulíf á lands- byggðinni sé þjóðinni nauðsyn- legt og landflutningarnir suður séu þjóðinni alls ekki lengur hag- kvæmir. Sjá b|s 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.