Þjóðviljinn - 31.03.1988, Blaðsíða 6
óþarft sé að kynna hana sérstak-
lega fyrir borgarbúum skv. 1.
mgr. 19. gr. skipulagslaga, sem
kveður á um að ef breyting sé
gerð frá staðfestu deiliskipulagi
þá skuli sækja um heimild til
þeirrar breytingar til Skipulags-
stjórnar ríkisins og breytingin
kynnt í sex vikur.
Berum nú saman stærð hússins
skv. staðfestu deiliskipulagi og
skv. þeim teikningum sem nú
liggja fyrir skipulagsnefnd.
Ráðhús skv. staðf. deiliskipulagi:
Hæð hússins 2-3 hæðir
Rúmmetrafjöldi 19.000
Fermetrafjöldi 4.600
Ráðhús skv. teikningum nú:
Hæð hússins 4 hæðir (14.5 m að
meðalt. 15.7 m hæst)
Rúmmetrafjöldi 24.336
Fermetrafjöldi 5.297
15% aukning er á flatarmáli
hússins en 30% aukning á rúm-
metrafjölda, hæð hússins sam-
svarar 5-6 hæða blokk.
í grein sem Guðrún Péturs-
dóttir, einn af fjölmörgum tals-
mönnum „Tjörnin lifi“, skrifar í
Morgunblaðið í dag, getur hún
þess réttilega að samkvæmt ný-
legri afgreiðslu Skipulagsstjórnar
ríkisins á stækkun á byggingarreit
ráðhússins þurfi borgaryfirvöld
að sækja sérstaklega um heimild
til ofannefndrar stækkunar. Það
er von að Guðrún bendi á þetta
því það er eðlilegt að borgarbúar
ætlist til þess að farið sé að
lögum. 1 bókun meirihluta skipu-
lagsnefndar sem afgreidd verður
11. apríl n.k. stefnir þó að því að
fara f kringum lögin. 30% rúm-
málsaukning er talin óveruleg. f
skipulagsnefnd benti ég á að
sækja þyrfti um heimild til Skipu-
lagsstjórnar ríkisins vegna þess-
arar stækkunar og verður tillaga
þar að lútandi afgreidd um leið og
tillaga meirihlutans. Ef stækkun
þessi rennur ljúflega í gegnum
kerfið þá erum við hér í Reykja-
vík farin inn á alveg nýjar brautir
í skipulagsmálum, þar sem réttar-
öryggi fólks er fyrir borð borið.
Fornleifarannsóknir
Á fundinum 11. apríl verður
einnig afgreidd tillaga okkar Al-
þýðubandalagsmanna um að
heimila fornleifarannsóknir á
lóðinni, ekki síst í ljósi þess að á
næstu lóð við hliðina, þ.e. á horni
Suðurgötu og Vonarstrætis,
fundust við fornleifauppgröft
merkilegar mannvistarleifar. Við
fluttum sams konar tillögu vegna
Aðalstrætis 8 og var sú tillaga
samþykkt. Við búumst við að
þessi tillaga verði samþykkt,
enda ekki annað sæmandi en að
þess sé gætt að ráðhússbygging,
ef af verður, eyðileggi ekki
möguleika okkar á að vita meira
um fortíð okkar.
Þriðjudag fyrir páska
Guðrún Ágústsdóttir
AÐAL
FUNDUR
Aðalfundur Útvegsbanka íslands hf. árið
1988 verður haldinn í Súlnasal Hótel
Sögu við Hagatorg í Reykjavík, þriðju-
daginn 12. apríl 1988. Fundurinn hefst
kl. 16:30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 28. greinar samþykkta
bankans.
2. Önnur mál löglega upp borin á fund-
inum.
Aðgöngumiðar að fundinum og at-
kvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þeirra í aðalbanka,
Austurstræti 19, 3. hæð, dagana 7., 8. og
11. apríl næstkomandi og á fundardag við
innganginn.
Ársreikningur bankans fyrir árið 1987,
dagskrá fundarins og tillögur þær sem
fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til
sýnis á framangreindum stað í aðalbanka
frá 5. apríl næstkomandi.
úo
Útvegsbanki íslandshf
Bankaráð
FLÓA-
MARKAÐUR
Minkapels til sölu
Brúnsvartur, gljándi, síður, stærð
38-40. Sem nýr. Selst á kr. 38.000.
Uppl. í síma 35103.
Til sölu
nýtískulegur, dökkgrænn kjóll, eftir
tískuhönnuð, með herðapúðum, og
þröngu, millisíðu pilsi. Stærð 38-40.
Selst á kr. 3.600. Sími 35103.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa kvenreiðhjól,
gjarnan 3ja eða 5 gíra. Uppl. í síma
38587.
Til sölu
á Rifi á Snæfellsnesi norsk „hytta“,
ca 55 fm. Uppl. hjá Páli Ingólfss.
Ólafsvík í síma 93-61490.
íbúð
Ungt, reglusamt par óskar eftir 2-3
herbergja íbúð á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Vinsam-
legast hringið í síma 30447 e. kl. 20.
Til sölu
BMW 316 árg. 1982, svartur, vel
með farinn með ýmsum auka-
hlutum. Skuldabréf. Uppl. í síma
681258, Gunnar, e. kl. 18.
í eldhús
IKEA veggskápar með gleri í hurð-
um, sem nýir, og fleiri hlutir úr not-
aðri eldhúsinnréttingu. Mjög ódýrt.
Sími 24149 næstu daga.
Hátalarar
Eigir þú gamlan, stakan hátalara
sem þú værir til í að láta frá þér á
skít á priki þá máttu gjarnan hafa
samband við Sigga í síma 24439.
BRAUN/KENWOOD
Til sölu Braun Multiþractic á 3.000
kr., Kenwoodhrærivél á 2.200 kr.,
Braun krullujárn m/gasi á 900 kr.,
Babyliss krullujárni á 300 kr. Sími
79319
Húsnæði
Enskt par óskar eftir herbergi með
aðgangi að eldhúsi og baöi í eitt ár,
helst í miðbæ Reykjavíkur. Sími
613203, Philip.
Til sölu
furusófi, vel með farinn á kr. 3.500.
Á sama stað fæst gefins sófaborð
og rúm. Uppl. í síma 29226 og
45724.
Skiptiborð óskast
Óska eftir litlu, notuðu skiptiborði.
Hulda sími 73656.
Burðarpoki óskast
Barnaburðarpoki (framaná) óskast.
Sími 666182.
ísskápur óskast
Bráðvantar lítinn ísskáp, 140 cm á
hæð. Hringið strax í síma 21387.
Myndavél og hljómflutningstæki
Til sölu Olympus OM4 35-70 mm
linsu. Einnig ársgömul, ónotuð
Kenwood hljómflutningstæki:
magnari KA 900, útvarp KT 800,
segulband KX 900, plötuspilari KD
3070, AR 925 hátalarar. Sími
83069.
Sumarbústaður
Getur einhver leigt mér sumarbú-
stað í nágrenni Reykjavíkur yfir
páskana? Þ.e. frá laugardegi til
mánudags. Uppl. gefur Ingibjörg
Hjartardóttir í síma 19975.
Til sölu
Club 8 koja með skáp og skrifborði.
Verð kr. 15.000 (ný 24.000) Uppl. í
síma 39109.
Til sölu v/flutninga
stofuskápur, eldri gerð, hentar sem
fataskápur, tauskápur og leirtaus-
skápur. Selst ódýrt. Sími 15197 í
dag.
Kostaboð
Notuð furuhúsgögn fást fyrir lítið
sem ekkert. 3-1-1 tilvalið í sumar-
bústað eða fyrir þá sem eru að byrja
búskap. Á sama stað er til sölu fatn-
aður, nýjar kápur, dragt, kjólar o.fl.
allt á mjög góðu verði. Uppl. í síma
688034.
Til sölu
Commodore 64 tölva ásamt disk-
drifi, diskettugeymslu, á 4. tug disk-
etta, kassettutæki, um 114 spólum,
3 stýripinnum, tölvublöðum og
bókum, 300-400 leikjum og mörg-
um forritum, m.a. ritvinnslu, bók-
haldi og dagbók. Verð kr. 25.000 kr.
ÓskaeftirAmigutölvu. Upplýsingar
í síma 35103.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu íbúð í
Reykjavík frá 1. júní. Uppl. í síma
623605, Anna Hildur og Gísli Þór.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
m Húsverndunarsjóður
Reykjavíkur
Á þessu vori veröa í annað sinn veitt lán úr Hús-
verndunarsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er
að veita lán til viðgerða og endurgerðar á hús-
næði í Reykjavík sem sérstakt varðveislugildi
hefur af sögulegum eða byggingarsögulegum
ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja
greinargóðar lýsingar á fyrirhuguðum fram-
kvæmdum, verklýsingar og teikningar eftir því
sem þurfa þykir.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 1988 og skal um-
sóknum stíluðum á Umhverfismálaráð Reykja-
víkur komið á skrifstofu garðyrkjustjóra, Skúla-
túni 2, 105 Reykjavík.
Diesel rafstöðvar
Til sýnis og sölu eru nokkrar diesel rafstöðvar,
Nánari upplýsingar í síma 31333.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Grensásveg 9
KJOTMIOSTQPIW
Laugalæk, sími 686511
Garðabæ, sími656400
Nr. 1 298.70 4 í pakka
Nr. 2 149.40
Nr. 3 289.80
Nr. 4 453.20
Nr. 5 711.90
Nr. 6 1098.20