Þjóðviljinn - 31.03.1988, Side 2
FRÉTTIR
Kartöflur
Sammni á
döfinni
Kartöflurisarnir Ágœti og Þykkvabœjarkartöflur þreifa nú eftir
samstarfi vegna slœmrar stöðu kartöfluiðnaðarins. Jón Magnússon:
Stjórnirnar þurfa aðfara að taka ákvarðanir
„Aulaganginum þarf að fara að framkvæmdastjóri Þykkvabæj-
linna,“ segir Jón Magnússon arkartaflna því eins og staðan er í
Kartöflufjallið kallar á samning stærstu dreifingaraðilanna
dag tapi allir. Kartöflubændur á
Suðurlandi tapa nú stórum fjár-
fúlgum vegna oflramleiðslunnar
sem verið hefur síðustu ár og nú
þegar hefur orðið mikill flótti úr
stéttinni en forráðamenn risanna
á markaðnum, Ágætis og
Þykkvaæjarkartaflna, líta svo á
að Landssamband kartöflu-
bænda eigi ekki að koma inn í
viðræður um framtíð dreifingarf-
yrirtækjanna.
Það eru greinilega þreifingar í
gangi en engin bein niðurstaða er
enn komin. Þykkvabæjarkart-
öflur hafa leitað eftir samstarfi
við Ágæti en stjórnir félaganna
hafa ekki tekið ákvarðanir um
það og ekki er víst nú hvort af því
verður. Arnar Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Ágætis hf. sagði í
samtali við Þjóðviljann að hann
vildi ekki lýsa sínum skoðunum á
þessu máli en ljóst væri að á-
kvarðanir þyrftu að fara að koma
frá stjórnum félaganna því á-
standið væri sannarlega slæmt.
En þó af samruna verði ekki, lítur
Arnar svo á að lausn verði að
finnast í bráð því „verði um fleiri
en eitt fyrirtæki að ræða þá verð-
ur að ríkja heilbrigð samkeppni
milli þeirra en ekki stríð“.
Jón Magnússon tók í svipaðan
streng og Arnar og sagði að
stjórnirnar verði að fara að koma
saman til að ganga frá þessum
markaðsmálum því allir tapi við
núverandi ástand. Um það hvort
Landssamband kartöflubænda
ætti að koma inn í viðræðurnar
sagðist Jón efast. „Málið stendur
milli dreifingarfyrirtækjanna og
því er óeðlilegt að Landssam-
bandið sé að flækja sér í það,“
sagði Jón, en Landssambandið
hefur lýst yfir óánægju með lækk-
un kartöfluverðs í síðustu viku og
óskað eftir að fá að taka þátt í
viðræðum um lausn vandans.
-tt
Vestmannaeyjar
Oimasuga í saltið
Hraðfrystistöðin: Ormarnir sogaðir í burtu með lofti með þar tilgerðri
vatnsdælu. Hönnuð og smíðuð ávélaverkstæðinu. Sparar menn ogtíma
Fyrir tæpu ári síðan byrjuðu
menn hjá Hraðfrystistöðinni í
Vestmannaeyjum að prófa svo-
kallaða ormasugu til að soga í
burt orma úr fiskholdi flatnings-
fisks. Þessar prófanir hafa gengið
vonum framar og er nú svo komið
að ormasugan sparar og flýtir
mjög fyrir ormahreinsun í salt-
fiskverkun fyrirtækisins.
Að sögn Öskars Óskarssonar,
verkstjóra er ormasugan heima-
tilbúið verkfæri, smíðuð og
hönnuð á vélaverkstæði fyrirtæk-
isins undir stjórn Guðjóns Páls-
sonar vélvirkja. Sugan virkar
þannig að sérstöku áhaldi er
stungið í fiskholdið og ormurinn
sogaður burt með lofti. Dælan er
vatnsdæla, knúin með vatni, en
Óskar sagði að hér væri aðeins
um tveggja tommu dælu að ræða
sem þyrfti að stækka til að hún
yrði öflugri. Engin ummerki sjást
eftir suguna í fiskholdinu og er
það mikil framför frá því sem
áður var þegar hnífur var notaður
til verksins en þá vildi það brenna
við að sárið í holdinu vildi ekki
lokast sem skyldi, eftir hnífinn.
Að sögn Óskars hafa venjulega
fjórir til fimm starfsmenn unnið
við ormatínsluna en með tilkomu
ormasugunnar eru þeir aðeins
tveir og fara létt með að hafa
undan. Óskar sagði að sugan
kæmi að góðum notum um þessar
mundir þar sem mikill skortur
væri á mannskap í fiskvinnunni
og vantaði td. um 20 manns í
vinnu nú þegar, en á launaskrá
fyrirtækisins eru 70-80 manns.
Margt vertíðarfólk yfirgaf
Eyjarnar þegar Snótarverkfallið
skall á á dögunum og hefur það
ekki skilað sér til baka. Vinnu-
aflsskorturinn háir því mjög
framleiðslugetu fiskvinnslunnar
og þegar vel fiskast fer mun meiri
fískur en þyrfti í gáma, óunninn.
-grh
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. mars 1988
Herinn burt
Samtök herstöðvaandstæðinga héldu í gærkvöld vel sóttan baráttuf-
und í tilefni þess að 39 ár eru liðin frá inngöngu íslands í NATO. Fyrr
um daginn höfðu Rakel Kristjánsdóttir, Guðný Bóasdóttir og Ingi-
björg Haraldsdóttir afhent Steingrími Hermannssyni utanríkisráð-
herra ályktun samtakanna þar sem skorað er á utanríkisráðherra að
beita sér fyrir stöðvun hernaðarframkvæmda á íslandi og leyfa engar
nýjar framkvæmdir. Einnig hvetja samtökin hann til að hefja undir-
búning að brottför herliðsins og úrsögn úr NATO. Samtökin líta svo á
að innganga íslendinga í NATO hafi verið mesta óheillaskref sem
stigið hefur verið í íslenskri pólitík á þessari öld.
Kennaraverkföll
í óvissu
f Félagsdómi var í gær málflutningur vegna verkfallsboðunar Kenn-
arasambands íslands og fellur dómur í málinu eftir páska. Sömuleiðis
varð það til tíðinda í kjaradeilunni að samninganefndir KÍ og fjármála-
ráðuneytisins ræddust við í Borgartúninu í gær en lítið þokaðist í
samkomulagsátt.
Aftur í Skipulagsstjórn
Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins hefur lagt
til við Skipulagsnefnd borgarinnar að ráðhúsbyggingunni verði vísað
aftur til Skipulagsstjórnar ríkisins til umsagnar vegna framkominna
athugasemda frá borgarbúum og einnig vegna þess að húsið hefur
stækkað mjög mikið frá staðfestu deiliskipulagi. Rúmmetrafjöldinn
hafi aukist um 30% og fermetrarnir um 15%. Þessi 46 fermetra stækk-
un hefur minnkað Tjörnina um 300 fermetra. Tillagan verður tekin
fyrir á næsta fundi Skipulagsnefndar 11. apríl nk.
Ekkert viðskiptabann
á S-Afríku
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra segir að ekkert sam-
komulag sé innan ríkisstjórnarinnar um að setja viðskiptabann á
Suður-Afríku. Á utanríkisráðherrafundinum I Tromsö var lýst þung-
um áhyggjum vegna þróunar mála í S-Afríku en öll Norðurlöndin utan
ísland hafa samþykkt viðskiptabann á Suður-Afríku. Þeim tilmælum
hefur verið beint til innflytjenda og annarra að draga úr viðskiptum við
S-Afríku en samt sem áður hafa þau aukist mikið upp á síðkastið.
Stuðningur
við Palestínumenn
Á félagsfundi Alþýðubandalagsins á þriðjudagskvöld var Palestín-
umálið á dagskrá og var að loknum umræðum samþykkt ályktun þar
sem fundurinn lýsti yfir stuðningi „við baráttu palestínsku þjóðarinnar
fyrir sjálfsákvörðunarrétti sínum. Fundurinn skorar á ríkisstjórn ís-
lands að leggja þeirri baráttu lið á alþjóðavettvangi og halda áfram
viðræðum við PLO“.
Karíus og Baktus
komnir á kreik
Kostnaður vegna tannlæknaþjónustu hefur aukist um 48% og á
síðasta ári endurgreiddi ríkið sveitarfélögunum rúmlega hálfan
milljarð vegna hans. Árið 1975 var fyrst endurgreitt fyrir
tannlæknaþjónustu hérlendis og urðu útgjöldin þá 2,7% af heildarút-
gjöldum sjúkrasamlaganna en árið 1986 voru þau komin upp í tæplega
5% af heildarútgjöldunum eða um 350 miljónir.
Jarðgöng um
Ólafsfjarðarmúla boðin út
Matthías Á Mathiesen samgönguráðherra hefur falið vegamála-
stjóra að bjóða út framkvæmdir við jarðgöng um Ólafsfjarðarmúla til
að framkvæmdir við verkið geti hafist á þessu ári í samræmi við fyrri
samþykkt Alþingis. Matthías mun innan tíðar leggja fyrir Alþingi
tillögu um endurskoðun vegaáætlunar fyrir árið 1988 þar sem meðal
annars verður gert ráð fyrir fjármögnun þessara framkvæmda.
Tilkynningaþjónusta
fyrir ferðamenn
Landssamband hjálparsveita skáta og Landssamband flugbjörgun-
arsveita reka í samvinnu við Securitas tilkynningaþjónustu fyrir ferða-
menn. Ferðamenn geta hringt í síma 91-686068 allan sólarhringinn og
tilkynnt ferða- og tímaáætlun sína til félaganna og tryggt með því að
fari eitthvað úrskeiðis þá sé alltaf einhver til hjálpar. Þessi þjónusta er
ókeypis.