Þjóðviljinn - 31.03.1988, Qupperneq 14
Sjónvarp
á páskum
Sjónvarp, sunnudag og mánudag
Páskadagskrá Sjónvarpsins er
mjög fjölbreytt og efnismikil.
Engin tök eru að minna nema á
fátt eitt af því, sem þar er á boð-
stólum. En athygli skal vakin á
því, að kl. 20.40 á páskadag verð-
ur sýndur fyrri hluti heimildar-
myndar um Guðjón Samúelsson,
fyrsta húsameistara ríkisins og
ævistarf hans. Nefnist myndin
„Steinarnir tala“. Guðjón
teiknaði margar opinberar bygg-
ingar, sumar umdeildar á sinni
tíð, enda nýstárlegar, en um
margt var hann brautryðjandi í
íslenskri húsagerðarlist. Síðari
hluti myndarinnar verður sýndur
á sama tíma annan páskadag.
Handrit gerðu Freyr Þormóðsson
og Ásgrímur Sverrisson.
Kl. 16.00 á annan í páskum
verður sýnd sænsk-íslenska kvik-
myndin „Salka Valka“ Laxness,
gerð árið 1954. Par fer Lárus
Pálsson með eitt aðalhlutverkið.
Þýðandi er Porsteinn Helgason.
Sama kvöld, kl. 21.35 er svo á
dagskránni sjónvarpsþátturinn
Jörð í
Stöð 2, föstudag, kl. 21.00
Margir munu eflaust hafa lesið
bók Karenar Blixen, Jörð í Afr-
íku, sem út kom í íslenskri þýð-
ingu ekki alls fyrir löngu. Par
segir skáldkonan m.a. frá
ævintýra- og reynsluríku lífi sínu í
Kenya. Gerð hefur verið kvik-
mynd, sem byggð er á þessari
J~UM ÚTVARP OG SJÓNVARP
Björn Karlsson (fyrir miðju) í hlutverki Guðjóns Samúelssonar.
„Hvernig líst ykkur á þetta, piltar?'
„Það hallar norður af“,
skemmtiþáttur, gerður nyrðra og
af Norðlendingum. Spjallað
verður við Val Arnþórsson og
fleiri góða menn norðan heiða.
Umsjónarmaður er Þórarinn Ág-
ústsson. - Þetta sama kvöld gefur
svo að líta uppfærslu BBC á
gleðileik Shakespears, „Sem
yður þóknast“.
Og ekki skyldi óperunum
gleymt. Töfraflauta Mozarts
verður á dagskránni kl. 21.10 á
föstudaginn, í sviðsetningu
sænska sjónvarpsins. Leikstjóri
er Ingmar Bergman en Eric Eric-
son stjórnar kór og hljómsveit
sænska Sjónvarpsins. - Og kl.
14.30 á páskadag verður svo flutt
óperan Nabucco eftir Giuseppi
Verdi. Er upptakan frá frumsýn-
ingu á Scala í Milanó í upphafi
leikárs 1986-1987.
- mhg
Afríku
sögu Blixen. Er það „stórmynd",
að dómi gagnrýnenda, þótt ekki
þyki hún annmarkalaus fremur
en önnur mannanna verk. - Með
aðalhlutverk fara: Meryl Streep,
Robert Redford og Curt Jurgens.
Leikstjóri er Sidney Powell. Þýð-
andi: Sigríður Magnúsdóttir.
-mhg
Skáldið frá
Hvítadal
Útvarp, laugardag, kl. 20.30
Einn af ógleymanlegustu
mönnum úr íslenskum aðli Þór-
bergs er Stefán frá Hvítadal. En
hann verður mönnum einnig ó-
gleymanlegur fyrir mörg ljóðin
sín, þessi örsnauði en þó auðugi
bóndi vestur í Dölum. - í tilefni
af aldarafmæli Stefáns hefur
Gunnar Stefánsson tekið saman
um hann þátt, sem fluttur verður
í Útvarpinu í kvöld og nefnist
„Svanir fljúga hratt til heiða“, en
það er upphafslínan í fyrsta kvæði
fyrstu ljóðabókar Stefáns. - í
þættinum verður sagt frá Stefáni,
skáldskap hans, lesin og sungin
ljóð hans. Lesnar verða frásagnir
þriggja vina Stefáns um kynni
þeirra af honum: Þórbergs Þórð-
arsonar, Halldórs Laxness og
Guðmundar G. Hagalíns. Lesar-
ar eru: Arnar Jónsson og Viðar
Eggertsson. - mhg
í dag er
31. mars, fimmtudagur í 23. viku
vetrar og tíundi dagur einmánað-
ar, skírdagur. Sólin kemur upp í
Reykjavík kl. 6.48 en sólsetur er
kl. 20.17. - Þjóðhátíðardagur
Möltu.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
„Þegar vér förum út í ófriðinn
verðum vér að drottna í loftinu og
eyðileggja miskunnarlaust bar-
áttuþrek og sigurvonir óvinaþjóð-
anna.“ Öll ræða Mússólínis var
hótanir um stríð og stríðsæsing-
ar. - Cordell Hull, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, reynir að
mynda alþjóðasamtök til hjálpar
austurrískum flóttamönnum. -
Sókn Francos til Lerila stöðvuð.
Stjórnarherinn vinnur fjölda
þorpa við Teruel. - Stjórnin í
Tékkóslóvakíu sest að samn-
ingaborði með Sudeta-Þjóðverj-
um um kröfur þeirra. - Karlakór
Akureyrar - fyrsti samsöngur í
Gamla-Bíói. - Stjórnir Reykjavík-
urdeildar K.F.Í. og F.U.K. hafa
ákveðið að efna til leshrings fyrir
meðlimi sína, þar sem veitt er
fræðsla um sósíalisma.
-mhg
• *
Fimmtudagur
17.50 Ritmálsfróttir.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Anna og félagar. Italskur mynda-
flokkur fyrir börn og unglinga.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.05 Iþróttasyrpa. Umsjónarmaður Jón
Óskar Sólnes.
19.25 Austurbæingar. Breskur mynda-
flokkur i léttum dúr.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Spurningum svarað. Dr. Sigur-
björn Einarsson biskup svarar spurn-
ingu Halldórs S. Rafnars framkvæmda-
stjóra Blindrafólagsins.
20.40 Björgunarafrekið við Látrabjarg -
40 árum sfðar - I þessum þætti eru
rifjaðir upp atburðir sem tengjast björg-
unarafrekinu við Látrabjarg.
21.25 Friðarins Guð. Sigurður Bragason
óperusöngvari syngur brjú íslensk lög í
Kristskirkju.
21.40 Margt er sér ti! gamans gert
Frönsk kvikmynd í léttum dúr frá 1967.
23.35 Útvarpsfréttir j dagskrárlok.
Föstudagur
15.30 Hvíti selurinn. Teiknimynd gerð
eftir ævintýri Kiplings.
15.55 Flæðarmál. Framlag Sjónvarpsins
til norræns myndaflokks frá kreppuár-
unum
16.30 Hallgrímspassía. Dagskrá úr Pass-
íusálmum Hallgríms Péturssonar flutt i
Hallgrímskirkju.
18.30 Sindbað sæfari. Þýskur teikni-
myndaflokkur.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirnir.
19.30 Staupasteinn. Bandarískur gaman-
myndaflokkur.
20.00 Fréttir og veður.
20.15 Bergman á islandi. Svipmyndir frá
heimsókn sænska leikstjórans Ingmars
Bergman til (slands 1986.
21.10 Töfraflautan. Ópera eftir Mozart.
Sviðsetning sænska sjónvarpsins.
23.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
17.00 Á döfinni.
17.05 íþróttir.
18.30 Litlu prúðuleikararnir.
18.55 Fréttaógrip og táknmálsfréttir.
19.00 Annir og Appelsínur.Endursýning.
19.25 Yfir á rauðu. Umsjón: Jón Gústafs-
son.
20.00 Fréttlr og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Landið þitt - ísland. Umsjónar-
maður Sigrún Stefánsdóttir.
20.45 Fyrirmyndarfaðir.
21.10 Krfsuvik. Heimildamynd gerð af
Sjónvarpinu.
22.05 Skytturnar. Islensk kvikmynd frá
1987. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson.
Aðalhlutverk: Þórarinn Agnar Þórarins-
son og Eggert Guðmundsson. Grímur
og Búbbi komatil Reykjavíkuraðaflokn-
um hvalveiðum. Þeir þurfa að gera upp
ýmis mál eftir fjarverum en uppgjörið
verður örlagaríkara en til stóð. A undan
sýningu myndarinnar ræðir Sigurður
Valgeirsson við Friðrik Þór Friðriksson.
23.50 Jentl. Bandarisk bíómynd frá 1983.
Aðalhlutverk Barbra Streisand, Mandy
Patinkin og Amy Irving. Sögusviðið er
Austur-Evrópa í upphafi þessarar aldar.
Ung stúlkaþráiraðkomasttilnáms
en konum er meinaður aðgangur að
menntastofnunum. Hún grípur til þess
örþrifaráös aö klæðast karlmannsfötum
og allt gengur henni (hag uns hún verð-
ur ástfangin af skólabróður sínum.
02.00 Útvarpsfréttlr í dagskrárlok.
Sunnudagur
14.30 Nabucco. Oþera í fjórum þáttum
eftir Giuseppe Verdi við texta Temisto-
de Solera. Óperan gerist á tímum Ne-
búkadners Babýloníukonungs. Dætur
hans berjast um ástir Ismails, frænda
konungsins í Jerúsalem.
17.00 Messa frá Akureyri.Séra Pálmi
Matthíasson.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Galdrakarlinn j Oz Sjöundi þátlur-
Vestannornin vonda.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.05 Fífldjarfir feðgar. Bandarískur
myndaflokkur.
20.00 Fréttir og veður.
20.15 Sofandi jörð. Ballett með íslenska
dansflokknum.
20.40 Steinarnirtala. Fyrri hluti. Heimilda-
mynd um ævistarf Guðjóns Samúels-
sonar.
21.40 Sem yður þóknast. Uppfærsla
BBC á gleðileik Williams Shakespear-
es.
00.10 Úr Ijóðabókinni. Tólfmenningarnir
eftir Alexander Block í þýðingu Magnús-
ar Ásgeirssonar.
00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Mánudagur
16.00 Salka Valka. Sænsk/islensk kvik-
mynd frá 1954 gerð eftir samnefndri
sögu Halldórs Laxness. Leikstjóri Arne
Mattsson. Aðalhlutverk Gunnel Brost-
röm, Birgitta Petterson, Folke Sandqu-
ist, Lennart Andersson, Margareta Kro-
ok, Erik Strandmark, Rune Carlsten og
Lárus Pálsson. Þýðandi Þorsteinn
Helgason.
18.00 Töfraglugginn.
18.50 Fréttir og táknmálsfréttir.
18.55 l'þróttir.
19.30 Vistaskipti. Bandariskur mynda-
flokkur.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Steinarnir tala. Síðari hluti.
21.35 Það hallar norður af. Þáttur með
blönduðu efni.
22.20 Rofnar rætur. Bresk sjónvarps-
mynd frá 1987. Aðahlutverk: Colin Blak-
ely, Benedict Taylir og Rowena Cooper.
Hvít hjón ákveða að verða um kyrrt í
Zimbabwe í kjölfar stjórnarbreytinga.
Það reynist hins vegar ekki þrautalaust
að laga sig að breyttum háttum.
23.30 Fréttir í dagskrárlok.
Þríðjudagur
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Bangsi besta skinn. Breskur teikni-
myndaflokkur.
18.25 Háskaslóðir. Kanadiskur mynda-
flokkur.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.30 Matarlyst - Alþjóða matreiðslu-
bókin.
19.50 Landið þitt - ísland. Endursýndur
þáttur frá 19. mars sl.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Öldin kennd við Ameríku. Annar
þáttur.
21.25 Iþróttir.
22.00 Vikingasveitin. Lokaþáttur.
22.50 Reyklaus dagur. Stutt mynd og síð-
an umræða um skaðsemi reykinga.
00.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Fimmtudagur
09.00 # Furðubúarnir. Teiknimynd.
09.20 # Andrés Önd og Mikki Mús.
09.45 # Amma í garðinum. Leikendur:
Saga Jónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir.
Elfa Gísladóttir, Eyþór Árnason og Júl-
íus Brjjánsson. Leikstjórn: Guörún Þórð-
ardóttir. Höfundur: Saga Jónsdóttir.
Leikbrúður: Dominique Paulin. Leik-
mynd: Steingrímur Eyfjörð. Stjörn upp-
töku: Anna Katrín Guðmundsdóttir.
10.00 # Ævintýri H. C. Andersen.
Þumalina. Teiknimynd með íslensku
tali í fjórum hlutum. Fyrsti hluti.
10.25 # Dýrin hans Nóa. Teiknimynd.
10.50 # Vinkonur. Leikin mynd sem segir
frá sterkum vináttuböndum tveggja
unglingsstúlku allt fram á fullorðlnsár.
12.05 # Hátíðarokk. Blandaður tónlistar-
þáttur.
13.45 # Foringi og fyrirmaður.
15.45 # Klikustrið Crazy Times. Harð-
svíraðar unglingaklíkur eiga í útistöðum
sem magnast upp ( blóðugt stríð.
17.20 # I minningu Rubinsteins.
18.20 # Litli Folinn og félagar.
18.45 #A veiðum. Outdoor Life. Þáttur
um skot- og stangaveiði.
19.19 19:19 Klukkustundar langur þáttur
með fréttum og fróttaumfjöllun.
19.55 Bjargvætturinn. Equalizer.
20.45 # Sendiráðið. The London Emb-
assy. Framhaldsþáttur í 6 hlutum. 2.
hluti.
21.40 # Blóðrauðar róslr. Framhalds-
mynd í tveim hlutum. Fyrri hluti.
23.10 # Spegilmyndin Dark Mirror. Ekki
SJÓNVARP
við hæfi barna.
00.40 # Eins og forðum daga. Gaman-
mynd um konu sem á í vandræðum
02.30 Dagskrárlok.
Föstudagur
09.00 # Furðubúarnir. Teiknimynd.
09.20 # Andrés Önd og Mikki Mús.
09.45 # Amma i garðinum. Amma
Gebba býr í skrýtnu húsi með skrýtnum
garði. Þar er oft glatt á hjalla og margt
getur skemmtilegt skeð.
10.00 # Ævintýri H.C. Andersen. Þuma-
lína. Teiknimynd með íslensku tali.
10.25 # Konungur dýranna. Teikni-
mynd.
10.50 # David Copperfield. Teiknimynd.
12.00 # Pappírsflóð. Gamanmynd um
lögfræðinema sem á bágt með að ein-
beita sér að skræðunum.
13.50 # Allt fram streymir. Hugljúf mynd
um vinskap þriggja ungmenna á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar. Aðalhut-
verk: Elizabeth McGovern, Nicolas
Cageog Sean Penn. Leikstjóri: Richard
Benjamin.
15.35 # Réttlætiskennd Johnny Come
Lately. Aðalhlutverk: James Cagney,
Grace George, Marjorie Main og Ed
McNamara. Leikstjóri: William K. How-
ard.
17.15 # Sadhus - Hinir helgu menn.
18.15 # Alfred Hltchcock. Bankaræningi
beitir öllum brögðum til þess að tlýja úr
fangelsi. Þar sem hann hefur aldrei
Ijóstrað uppi um hvar fengur hans er
falinn, er honum mikið í mun að sleppa.
Aðalhlutverk: Edd Byrnes, Robert Keith
og Stephna McNally. Leikstjóri: William
Witney.
19.05 Hátiðarrokk.
19.40 Alexander Goudunov. Þýðandi: El-
ínborg Stefánsdóttir.
20.30 Séstvallagata 20. Breskur gaman-
myndaflokkur um mæðgur sem leigja út
herbergi og samskipti þeirra við
leigjendurna.
21.00 # Jörð í Afríku. Aðalhlutverk: Meryl
Streep, Robert Redford og Klaus Maria
Brandauer. Leikstjóri: Sydney Pollack.
23.30 # Óvinur í djúpínu. Aðalhlutverk:
Robert Mitchum og Curt Jurgens. Leik-
stjóri: Dick Powell. Framleiðandi: Dick
Powell.
00.10# Birdy. Hrífandi mynd um sam-
skipti tveggja vina. Annar þeirra snýr
heim úr stríðinu svo illa farinn á sálinni
að hann lokast inni í sjálfum sér, hinn
reynir allt hvað hann getur til þess að
hjálpa honum. Aðalhlutverk: Matthew
Modine og Nicolas Cage. Leikstjóri:
Alan Parker.
03.10 Dagskrárlok.
Laugardagur
09.00 # Með afa. Þáttur með blönduðu
efni fyrir yngstu börnin. Afi skemmtir og
sýnir börnunum stuttar myndir.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 31. mars 1988