Þjóðviljinn - 04.05.1988, Blaðsíða 3
Grásleppa
Dræm veiði
400 veiðileyfum
úthlutað. Búið að
veiða í2500-3000
hrognatunnur
Grásleppuvertíðin hefur farið
hægt af stað í ár en hún hófst fyrir
Norðurlandi 1. aprfl sl. Búið er
að veiða í 2500-3000 tunnur af um
12 þúsund tunna kvóta. í ár hefur
verið úthlutað um 400 veiði-
leyfum. Fyrir vestan og sunnan
eru menn þegar farnir að leggja
netin, en litlar fregnir hafa borist
af veiði enn sem komið er.
Vegna verulegrar birgðasöfn-
unar á hrognum frá síðustu vertíð
veiða menn nú ekki nema það
sem þeir eru vissir um að geta selt
og er verðið sem grásleppukarl-
arnir fá fyrir hrognatunnuna um
1100 þýsk mörk eða um 25 þús-
und krónur, brúttó.
Að sögn Amars Pálssonar,
framkvæmdastjóra Landssam-
bands smábátaeigenda, hefur lítil
sem engin veiði verið hjá grá-
sleppukörlum á Ströndum og er
þar þungt hljóð í mönnum. Lé-
legt hefur það verið á Sauðár-
króki en reytingur hjá bátum út
af Skagatá og þokkaleg veiði á
svæðinu frá Kópaskeri og austur
fyrir land að Vopnafirði. Þó hef-
ur það ekki verið í líkingu við það
sem aflaðist í fyrra. Astæðuna
kenna menn miklum kulda í sjón-
um sem verið hefur meiri en í
venjulegu árferði.
Kanadamenn, sem eru helstu
samkeppnisaðilar okkar á
mörkuðum fyrir grásleppuhrogn,
eru ekki enn byrjaðir veiðar, en
þar eru menn óhressir með verð-
ið sem býðst fyrir hrognatunn-
una. Ennfremur hefur það haml-
að veiðum að enn er mikill ís á
veiðisvæðunum.
-grh
Pjóðkirkjan
Vill endur-
greiðslu
Flytur mál sittsjálfur
í þessum mánuði verður mál-
flutningur í borgardómi í máli
Þóris Gunnars Ingvarssonar gegn
fjármálaráðherra og kirkjumála-
ráðherra. Krafa Þóris er sú að
hann fái endurgreiddan hluta af
persónulegum gjöldum sínum
sem á undanförnum 4 árum hafa
runnið til þjóðkirkjunnar.
Þórir er kaþólskur maður og
hann segir að hér sé um að ræða
greiðslur til þjóðkirkju, presta,
. prófasta, söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar og aðrar greiðslur
sem upp eru taldar í fjárlögum
hvers árs og greiddar eru úr sam-
eiginlegum og óskiptum sjóðum
landsmanna einu trúfélagi til
framdráttar. Aðilar utan þjóðkir-
kjunnar fái ekkert en verði hins-
vegar með opinberum gjöldum
sínum að taka þátt í fjármögnun
þjóðkirkjunnar.
Þórir telur að þetta brjóti í
bága við 64. grein stjórnarskrár-
innar og að ekki sé hægt að rétt-
læta fyrirkomulagið með tilvitn-
un til 62. greinar þar sem sagt er
að hin evangeliska-lúterska
kirkja skuli vera þjóðkirkja og
skuli ríkisvaldið að því leyti
styðja hana og vernda. Það þýði
ekki hið sama og að allt skuli
borgað.
Þórir mun flytja mál sitt sjálf-
ur, segir það of mikilvægt til að
setja í hendur lögfræðinga en
hann hefur aflað sér lögfræðiað-
stoðar. Dómari í málinu er Allan
V. Magnússon en fyrir hönd
ríkislögmanns er Guðrún M.
Árnadóttir.
-FRI .
FRETTIR
Ráðhúsið
Graftarleyfið ógilt
Félagsmálaráðherra afturkallar leyfifyrir byrjunarframkvœmdum við
byggingu ráðhúss í Tjörninni. Kœra íbúa við Tjarnargötu tekin til
greina. Borgarstjóri: Byggingarleyfið verður samþykkt ánœsta
borgarstjórnarfundi
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur ákveðið
að fella úr gildi svokallað graftar-
leyfi fyrir byggingu ráðhúss f
Tjörninni og afturkallað þar með
leyfi til byrjunarframkvæmda við
ráðhúsið. Alitsgerð ráðuneytisins
var send borgaryfirvöldum í gær
um að hætta framkvæmdum,
Með þessari ákvörðun sinni
hefur ráðuneytið tekið til greina
kæru íbúa við Tjarnargötu sem
kærðu til ráðuneytisins í apríl-
byrjun sl. þá samþykkt bygging-
arnefndar Reykjavíkur sem gerð
var 30. mars og borgarstjórn sam-
þykkti 7. apríl, að veita verkefn-
isstjórn ráðhússins svokallað
graftarleyfi.
í niðurstöðu ráðuneytisins
segir að ákvæði 9. gr. byggingar-
laga beriað túlka þröngt, að náin
tengsl séu á milli graftarleyfis og
byggingarleyfis, að byggingar-
leyfi hafi ekki enn öðlast gildi og
rökstudd mótmæli hafi verið bor-
in fram gegn graftarleyfinu ma.
innan þeirra stjórnsýslustofnaria
sem um það hafa fjallað og sem
ekki verður talið fullnægjandi,
þótt svo kunni að vera að fram-
kvæmdir brjóti ekki í bága við
tiltekna þætti aðal-og deiliskipu-
lags, er niðurstaða ráðuneytisins
sú að við slíkar aðstæður hafi ekki
verið rétt að veita graftarleyfi og
beri því að ógilda það.
Að sögn félagsmálaráðherra
var þessi ákvörðun ráðuneytisins
tekin eftir vandlega skoðun í
ráðuneytinu og var ma. byggt á
niðurstöðum prófessors Sigurðar
Líndals um málið. Þá hefur kæra
borist til ráðuneytisins í skeyta-
formi vegna byggingarleyfis og
sagði Jóhanna að ekki yrði tekin
afstaða til þess fyrr en greinar-
gerð íbúanna hefur borist. Þá á
eftir að samþykkja byggingar-
leyfið í borgarstjórn og því verð-
ur afstaða til þessarar kæru vegna
byggingarleyfis ekki tekin fyrir
fyrr en öll kurl eru komin til
grafar.
Jóhanna vildi því engu spá um
hve langur tími liði þangað til
þessi kæra um byggingarleyfið
yrði tekin fyrir í fé-
íagsmálaráðuneytinu og sagði
það út í hött að vera að spá ein-
hverju um það. Byggingarleyfið
ætti eftir að fara til umsagnar
skipulagsstjórnar ríkisins og
bygginganefndar borgarinnar.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að byggingarleyfið yrði
samþykkt í borgarstjórninni nk.
fimmtudag og þangað til myndi
verktakinn halda áfram þeim
nauðsynlegu undirbúningsfram-
kvæmdum á lóðinni sem þyrfti.
-grh
Samvinnubankinn
Seinheppinn þjófur
Greip handfylli afþúsund króna seðlabúntum
hjágjaldkera. Gómaður innandyra
Maður á þrítugsaldri gerði sér
lítið fyrir í gær um hádegis-
bilið og komst höndum yfir nokk-
ur knippi af þúsund króna seðlum
frá bankagjaldkera í aðalútibúi
Samvinnubankans í Bankastræti.
Hann komst þó ekki langt með
fenginn því hann var gripinn
glóðvolgur af einum viðskipta-
vina bankans sem hlaut ámæli
fyrir af hálfu þjófsins sem taldi sig
vera gróflega hindraðan í vinn-
unni!
Að sögn Sigríðar Elínar Þórð-
ardóttur bankagjaldkera var hún
ekki að störfum í gjaldkera-
stúkunni þegar ránið fór fram, en
sá tilsýndar hvar þjófurinn teygði
lúkuna niður í gjaldkerahólfið og
greip handfylli af þúsurid króna
seðlabúntum.
- Ég trúði í fyrstunni ekki mín-
um eigin augum en eins og ósjálf-
rátt spratt ég á fætur og hljóp á
eftir þjófinum. Ef ekki hefðu
komið til rösk viðbrögð frá spari-
sjóðsdeildinni sem lokaði strax
bankanum og ónefndum við-
skiptavini bankans sem náði að
stöðva þjófinn hefði hann jafnvel
komist upp með ránið. En hann
náðist sem betur fór áður.
Ekki þurfti að kalla á lögregl-
una í þetta sinnið til að handtaka
þjófinn því í sama mund og þetta
gerðist voru lögreglumenn að
koma í bankann sem hverjir aðrir
viðskiptamenn, en komu að
bankanum lokuðum vegna ráns-
ins. í stað þess að fá hefðbundna
afgreiðslu var þeim afhentur
þjófurinn og tóku þeir hann í sína
vörslu.
-grh
Vegna breytinga sem standa yfir
i afgreiðslusal Samvinnubank-
ans í Bankastræti var það létt
verk fyrir þjófinn að grípa hand-
fylli af þúsund króna seðlabúnt-
um hjá Sigríði Elínu bankagjald-
kera í hádeginu í gær. Mynd: Sig.
Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar
Hagnaður 15,9 miljónir
Rakið til góðs hags útgerðar og að sneitt hefur verið hjá
offjárfestingu
egar mikið er rætt um slæma
stöðu fyrirtækja á lands-
byggðinni, vekur eftirtekt hve
góð afkoma Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga var á síðasta
ári. Hagnaður af rekstri fyrir-
tækja félagsins nam 15,9 miljón-
um og munaði þar mest um 12,5
miljón króna hagnað Hraðfrysti-
húss Fáskrúðsfjarðar. Á aðal-
fundi fyrir skömmu var ákveðið
að greiða 1250 þúsund í stofnsjóð
félagsmanna, en þeir eru um 200
talsins.
Gísli Jónatansson kaupfélags-
stjóri sagði að helsta skýring á
hagnaðinum væri góður hagur út-
gerðarinnar á síðasta ári og til-
tölulega lítill fjármagnskostnað-
ur, þar sem reynt hefði verið að
forðast offjárfestingu.
Togarar félagsins eru báðir
smíðaðir í Japan 1973 og í fyrra
var Hoffellið endurbyggt í Pól-
landi fyrir um 110 miljónir. Að
sögn Gísla nam kostnaðurinn við
endurbygginguna um þriðjungi
af verði nýs togara og má búast
við að hann endist 15-20 ár í við-
bót eftir breytingarnar. í sumar
fær Ljósafellið sömu endurnýj-
un, en að öðru leyti verður ekki
um neinar stærri fjárfestingar að
ræða.
Kaupfélagið er langstærsti at-
vinnurekandinn á Fáskrúðsfirði
og í fyrra komust um 450 af tæp-
lega 900 íbúum á launaskrá hjá
félaginu. Er spurt var hvernig
gengi að manna fiskvinnsluhúsin,
sagði Gísli að fólkið mætti vera
fleira. Ekki hefði þó verið farið út
í að flytja inn fólk síðustu árin.
Auk togaranna eru gerðir út
milli 20 og 30 smábátar og að
sögn Gísla hefur fiskast mjög vel í
vetur. Hann sagði að það ylli
mönnum áhyggjum að fiskurinn
væri nú mun smærri en þeir ættu
að venjast fyrir austan. Meðal-
stærðin á þorskinum væri um 2
kg-
Hveragerði
Hótel Örk
til sölu
Helgi Þór Jónsson eigandi
Hótel Arkar er nú að leita að
kaupendum að þessari eign sinni
og hefur nokkrum aðilum verið
boðin hún til kaups. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans var m.a.
eigendum Hótel Holts boðið að
kaupa hótelið en áhuginn var tak-
markaður á því.
Frá því að Hótel Örk reis af
grunni hefur reksturinn staðið
tæpt vegna mikils fjármagns-
kostnaðar og hefur Helgi m.a.
leitað til opinberra aðila, svo sem
Byggðasjóðs, og beðið um að-
stoð, en án mikils árangurs. Um
tíma voru svo uppi hugmyndir
um að selja erlendum aðilum hót-
elið til að reka það sem heilsubót-
arhótel.
-FRI
-mj
Miðvikudagur 4. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
J
i
/