Þjóðviljinn - 04.05.1988, Blaðsíða 7
.
J
Fiölarinn á Akureyri
Shalom Aleichem og Fiðlarinn á þakinu
Um síðustu helgi frumsýndi
Leikfélag Akureyrar söngleikinn
vinsæla Fiðlarann á þakinu eftir
Fimm dætur sama og fimm
tengdasynir. Og hvað ef valið er
ekki eftir höfði pabba?
Bandaríkjamennina Joseph Stein
(handrit), Sheldon Harnick
(söngtextar) og Jerry Bock (tón-
list). Leikurinn var frumsýndur á
Broadway árið 1964, og hlaut
þegar miklar vinsældir, sló öll
fyrri sýningamct (3.242 sýningar
á Broadway). Síðan hcfur Fiðlar-
inn gert víðreist um heiminn, og
er þetta í þriðja skipti sem leikur-
inn cr sýndur hér á landi. Þjóð-
leikhúsið sýndi hann árið 1969,
en þá lék Róbert Arnfinnsson
mjólkurpóstinn Tevje og Leikfé-
lag Húsavíkur sýndi Fiðlarann
1979, nieð Sigurð Hallmarsson í
aðalhlutvcrki.
Fiðlarinn á þakinu er byggður
á sögum jiddíska rithöfundarins
Shalom Aleichem (friður sé með
yður). Hann hét reyndar Salom-
on Rabinovitz ogvarfæddur 1859
(Úkraínu. Hann gekk í rússnesk-
an menntaskóla og gerðist kenn-
ari að loknu stúdentsprófi 1876,
en stundaði jafnframt ritstörf,
skrifaði til að byrja með greinar
um menningarmái í dagblöð gyð-
inga og þá ýmist á rússnesku eða
hebresku, en seinna meir smá-
sögur, leikrit og ljóð á jiddísku.
Það var þegar hann fór að skrifa á
jiddísku að liann tók upp höfu-
ndarnafnið Shalom Aleichem,
því á þessum tíma var jiddíska
einungis mál alþýðunnar og ekki
hátt skrifuð hjá menntamönnum
gyðinga. En það var reyndar
Aleichem að þakka að jiddískan
hlaut sess sem bókmenntamál,
hann gaf út árbók yfir bók-
menntir á jiddísku árið 1888, og
varð hún til þess að jiddískar bók-
menntir voru aðgreindar frá
„ruslbókmenntum".
Fyrsta saga Aleichems um
mjólkurpóstinn Tevje og dætur
hans kom út árið 1894. Sögurnar
eru hugsaðar sem sjálfstæðar
smásögur og eintöl, þar sem
Tevje ræðir við höfundinn um
lífið og tilveruna. Fyrirmynd
hans var mjólkurpósturinn sem
færði fjölskyldu Shalom Al-
eichems mjóíkina í Bojarka þar
sem þau dvöldust í sumarleifum,
en sá var sífellt með tilvitnanir í
Biblíuna og hebreisk orðatiltæki
sem hann sneri og lagaði að þörf-
um sínum til að lifa af ömurlegan
Gunnar Rafn Guðmundsson og Arnheiður Ingimundardóttir.
veruleikann. Á þessum árum var
fjölskylda Aleichems bláfátæk,
vegna þess að hann hafði misst
aleiguna í kauphallarbraski. Þau
bjuggu í Kiev árið 1905 þegar
gyðingaofsóknir hófust í kjölfar
byltingartilraunarinnar. Vegna
ofsóknanna flutti fjölskyldan
fyrst til Sviss og síðar til Banda-
ríkjanna. Síðustu árin ferðaðist
Aleichem á milli gyðingabyggða í
Evrópu og Bandaríkjunum og las
úr verkurn sínum. Honum var
hvarvetna vel tekið og var á far-
aldsfæti þangað til hann lést, árið
1916.
Handrit þeirra Stein og Harn-
ick er byggt á leikgerð Shaloms
Aleichem á sögunum um Tevje.
Enn fremur tengdu þeir efnið
myndlist Marc Chagall, og er
nafn og umgjörð verksins dregið
af málverki hans af fiðlaranum á
þakinu. Söngleikurinn gerist í
þorpinu Anatevka í Úkraínu um
1905, og er fiðlarinn á þakinu
orðinn samlíking við það líf sem
gyðingar í Rússlandi lifðu á þess-
um tíma, lýsir þrjósku þeirra þeg-
ar þeir reyndu að lifa lífinu og
njóta þess þrátt fyrir erfiöar að-
stæður. Það er augljóst að staða
fiðlarans á þakinu er í meira lagi
ótrygg, hann er tákn mannsins
sem reynir að laða fram eitthvað
fallegt og gott, eigandi stöðugt á
hættu að detta niður og háls-
brjóta sig.
Rúmlega fimmtíu leikarar,
söngvarar og dansarar taka þátt í
sýningum á Fiðlaranum á Akur-
eyri. Théódór Júlíusson leikur
hlutverk Tevjes, Anna Sigríður
Einarsdóttir er Golda kona hans,
og dætur þeirra fimm eru leiknar
af Arnheiði Ingimundardóttur,
Margréti Kr. Pétursdóttur, Erlu
Rutli Harðardóttur, Helgu Hlín
Hákonardóttur og Arnbjörgu
Valsdóttur/ Júlíu Egilsdóttur.
Sunna Borg leikur hjúskapar-
miðlarann Yentu.
Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son og leikmynd gerir Sigurjón
Jóhannsson. Juliet Naylorer höf-
undur dansa, ljósameistari Ing-
var Björnsson, tónlistarstjóri
Magnús Blöndal Jóhannsson og
kórstjóri Jón Hlöðver Áskelsson.
LG
Tevje: Theódór Júlíusson
Leikhús
i
.
J
J
J
J
Miðvikudagur 4. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7