Þjóðviljinn - 04.05.1988, Síða 10
Rauna-
saga
Ennþá hendir það, að maður hittir
einn og einn Alþýðuflokksmann af
gamla skólanum. Og ekki þarf djúpt
að grafa til þess að finna óánægju
þeirra með hina nýju og hávaðasömu
skrautfugla á bæjarburst flokksins.
Gefum einum þeirra snöggvast orðið:
- Ansi finnst mér að Alþýðuflokkur-
inn minn sé orðinn mikið breyttur frá
því sem hann var þegar ég var að
berjast fyrir hann í gamla daga. Þá
var hann raunverulegur Alþýðuflokk-
ur. Öll hans barátta beindist að því,
að rétta hlut þeirra, sem minna máttu
sín gagnvart auð- og atvinnurekend-
avaldinu. Hugsjónin varsú, að í stað
þess að atvinnutækin væru í höndum
atvinnurekenda, sem notuðu þau
fyrst og fremst til eigin auðsöfnunar,
yrðu þau í eigu fólksins sjálfs og rekin
af því. Það var auðvitað ekki ætlun
okkar að efna til neinnar byltingar til
að ná þessum markmiðum. Við töld-
um að það yrði að gerast smátt og
smátt, einstakartilraunírgætu mis-
tekist, leiðin til fyrirheitna landsins
yrði löng og torsótt, en við vorum
sannfærðir um að þangað myndum
við ná ef við sýndum nóga
þrautseigju, ef við brygðumst ekki
sjálf.
En því miður gerðist einmitt það.
Flokkurinn tók að færast til hægri.
Hann gafst uþþ við að heyja hina erf-
iðu baráttu, tók að friðmælast við erk-
ióvininn, íhaldið, eldurinn í hlóðunum
kulnaði. Á þessari þróun tók að bera
að verulegu marki upp úr 1940. Harð-
asti og áhrifamesti formælandi henn-
ar var Stefán Jóhann Stefánsson.
Margir bjuggust við breytingu þegar
þeir Hannibal og Gylfi hófust til áhrifa
í flokknum. Sú von varð þó ekki lang-
líf. Gylfi reyndist úthaldslítill, Hannibal
tækifærissinni. Þeir sprengdu vinstri
stjórn Hermanns Jónassonar á tylli-
ástæðum einum. Við fyrsta tækifæri
gengu þeir svo í eina sæng með
íhaldinu, hírðust undirbrekáninu í 11
ár og var loks bjargað þaðan fyrir til-
verknað annarra, nær dauða en lífi.
Jón Baldvin elur með sér þann draum
að þessi saga megi endurtaka sig.
Úrslit síðustu Alþingiskosninga ollu
því, að sá draumur rættist ekki, í bili
a.m.k.
Ég veit, að sumir forystumenn
flokksins og fjölmargir óbreyttir
flokksmenn eru sáróánægðir. En þeir
virðast ekki hafa bolmagn til þess að
ráða ferðinni. Jónarnir ráða ferðinni í
flokknum, báðir íhaldsmenn og annar
auk þess bullukollur. Efnahagsað-
gerðir þeirra eru ómenguð íhaldsúr-
ræði. Byrðarnareru lagðaráalmenn-
ing, stóreignamönnum hlíft. Guðríði
Elíasdóttur „finnst ráðamenn Alþýð-
uflokksins hafa farið nokkuð úr sam-
hengi við verkalýðshreyfinguna. Þeir
eru of mikið fyrir sjálfa sig“. Það er
nærgætnislega til orða tekið. Og
Guðmundur próventumaður Einars-
son segir Alþýflokkinn ekki hafa „út-
skýrt nægilega fyrir sjálfum sér og
öðrum hvað hann er í raun að gera..."
Það er varla á góðu von þegar menn
skilja ekki sjálfir eigin aðgerðirog af-
leiðingar þeirra. Eru þeir ekki einfald-
legaárangrihillu?
-mhg
I dag er
4. maí, miðvikudagur á annarri viku
sumars, 14. dagur Hörpu. Sólin kem-
ur upp í Reykjavík kl. 04,49 en sólset-
urerkl. 22,03.
Atburðir:
Hernámi nasista á Danmörku lýkur
1945.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum:
Einræðisherrarnir hittast til að ráðg-
ast um nýja kúgunarherferð gegn
menningunni. Hitler er tekið með ó-
skaplegri viðhöfn í Róm. - Deilan við
matsveina og þjónafélagið leyst.
Þjónar, matsveinar og búrmenn fá
hækkun. - Flugvélin „Örn“ kemur til
Akureyrar og er fagnað af bæjarbú-
um. - Lauge Koch bíður ÍTromsö eftir
góðu flugveðri. Næsti áfangastaður
erTromsö-Spitsbergen. - Hljómsveit
Reykjavíkur heiðrar Pétur Jónsson.
Viðhafnarsýning á Bláu kápunni í
kvöld. - Vertíðin á Hornafirði: Hæsti
báturinn með 25 skpd. eftir tveggja
mánaðavertíð.
-mhg
Bakafólkið
'UM ÚTVARP & SJONVARP
7
Þetta er nú skrítið verkfæri.
Stöð tvö, kl. 21,20
Nú hefst ný þáttaröð á Stöð tvö,
sem nefnist Bakafólkið. Er það
heimildaþáttur um dvergþjóð,
sem býr að sínu í regnskógum
Austur-Kamerún. Kvikmynda-
tökumennirnir bjuggu með Baka
fólkinu í tvö ár, meðan á mynda-
tökunni stóð. Við fáum að fylgj-
ast með einni fjölskyldu þessa
merkilega þjóðflokks, brauðstriti
hennar og ýmiss konar erfið-
leikum, ástum, gleði- og sorgar-
stundum, en allt fylgir þetta
mannlegu lífi hvar sem því er
lifað. - í þessum fyrsta þætti er
efnið kynnt og meðlimir fjöl-
skyldunnar, sem fylgst er með.
-mhg
Blönduós
Sverrir Kristjánsson
Sverrir og Pétur
Útvarp rás 2, kl. 23.00
„Hér ei brestur rauða rós/ runnar
flestir anga / en fyrir vestan, út
við Ós, /er þó best til fanga“. Svo
mælti Gísli Stefánsson í Mikley í
Skagafirði eitt sinn þegar hann
leit inn á „bail“ á Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð. Þótt Gísla virtist þar
margt álitlegra kvenna varð hon-
um samt hugsað til Kvenna-
skólans á Blönduósi og ung-
meyjablómans þar. En „nú er
hún Snorrabúð stekkur" og
lyngið blánar ekki lengur af berj-
um. Allt um það á Blönduós sér
sina sögu, að mörgu inerka og
hefur af ýmsu að státa. Því fáum
við að kynnast í kvöld. Útvarps-
menn eru þar á stjákli, ræða við
gest og gangandi og leika lög,
sem bæjarbúar kjósa að heyra.
-mhg
Sjónvarp kl. 20,40
Þeir, sem þekktu Sverri Krist-
jánsson sagnfræðing, segja hann
ógleymanlegan mann. Því get ég
vel trúað af þeim augnabliks
kynnum, sem ég hafði af honum.
Ég hitti hann eitt sinn að kvöld-
lagi heima hjá Aðalgeiri Krist-
jánssyni skjalaverði. Aðalgeir
var þá að halda upp á afmælið sitt
og mig minnir, sannast að segja,
að afmælisgestirnir hafi ekki ver-
ið nema fjórir því þótt Aðalgeir
sé hýbýlaprúður var ekki miklu
húsrými fyrir að fara. Auk mín
voru gestirnir Sverrir og þeir
bræður Þórhallur og Gunnar
Guttormssynir. Þetta var dýrlegt
kvöld og síðan hef ég ekki undr-
ast það þótt Sverrir sé mönnum
minnisstæður. - í kvöld heyrum
við og sjáum þá spjalla saman
Pétur Pétursson, fyrrverandi út-
varpsþul og Sverri Kristjánsson.
- Þátturinn var áður á dagskrá 29.
júní 1975. -mhg
Al-Anon samtökin
Blönduós
Útvarp Rót, kl. 20,30
í þættinum Frá vímu til veruleika
verður rætt um Al-Anon samtök-
in en það eru samtök aðstand-
enda áfengissjúklinga. Starfsemi
þeirra er fólgin í því, að aðstoða
fólk til sjálfshjálpar. Mikið er
rætt um áfengissýkina og marg-
háttaðar afleiðingar hennar.
Minna um þá, sem standa þessum
sjúklingum næst. - Félagsmaður í
Al-Anon kemur fram í þættinum
og segir frá samtökunum. Farið
verður yfir helstu starfsaðferðir
og þær hugmyndir, sem unnið er
eftir. - Þátturinn er á vegum Krís-
uvíkursamtakanna. Umsjónar-
menn eru Björn Hafberg og Guð-
bjartur Finnbogason.
-mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Til hamingju
með afmælið
Fríða.
Hæ Kalli.
Velkominn.
Nei, er ekki uppstoppaða
tígrisdýrið þitt með bindi!
Ofboðslega er hann sætur!
Já, já. Þú hafðir á réttu að standa:
bindið skapar manninn.
Hættu að glotta.
FOLDA
ÚJaginn. Eru skórnir mínir til?
Voru þeir til þá, kannski?
Nei, aldeilis ekki. Og ég^
hef annað að gera en É
að heimsækja þig seint
og snemma
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. mai 1988