Þjóðviljinn - 04.05.1988, Síða 15
IÞROTTIR
Pýskaland
Bikarinn
til Bremen
Werder Bremen tryggði sér v-þýska
meistaratitilinn ígær
Og þetta
tíka...
Box
Kólombíumaðurinn Lopez “káti“ Lora
hélt titli sínum í bantamþyngd þegar
hann vann argentínskan áskoranda
sinn, Lucio “metralleta" Lopez á stig-
um. Þetta var í 6. sinn sem “káti"
varði titilinn. Hann téll í gólfið í 2. lotu
en náði sér á strik í 4. lotu.
Metnaður
Franski landsliðsmaðurinn Yannick
Stopyra ætlar að fara frá félagi sínu,
Toulouse yfir til stórliðsins Bordeaux
þar sem hann segist vilja spila með
liði með metnað til að vinna Evrópu-
verðlaun.
Varaformaður FIFA
var fyrir skömmu kosinn á þingi í
Suður-Ameríku. Hnossið hlaut for-
maður Knattspyrnusambands Arg-
entínu Julio Grondona en hann leysti
af hólmi Eduardo Rocca Couture frá
Uruguay.
PÓIÓ
Enskir vatnsknattleiksmenn vonast til
að banni sem þeir fengu á sig vegna
leiks er þeir spiluðu í Suður-Afríku
verði aflétt á fundi sundsambands
enskra síðar í þessum mánuði.
Sundsambandið óttast aðgerðir af
hálfu andstæðinga aðskilnaðar-
stefnu gegn breskum sundmönnum
ef þeir refsa ekki pólógenginu.
Blöðrur
voru helsta vandamál ítalans Fau-
stini í Evrópubikarkeppninni í mara-
þoni sem fram fór í Belgíu fyrir
skömmu. Hann varð 22 sekúndum á
eftir Sovétmanninum Kashapov sem
vann á 2.11.30 og var það í síðustu
brekkunni sem blöðrurnar á fótunum
fóru að há honum svo mikið að hann
lét Sovétmanninum eftir forystunna.
Öryggið
var fyrir öllu þegar Steve Davis frá
Englandi og Terry Griffiths frá Wales
léku úrslitaleik á 5. heimsmeistara-
móti atvinnumanna í snóker. Davis
vann 18-11 og fékk þar með tæpar 7
miljónir í sinn hlut en hann hefur þá
unnið rúma 31 miljón á þessu kepp-
nistímabili af þeim 35 miljónum sem í
boði hafa verið. Leiknir eru mest 35
leikir en sá er vinnur 18 leiki hefur
unnið meirihluta sem dugir.
Tveir í röð
Það verður talsvert álag á vellinum í
Ungverjalandi þegar Ungverjar
mæta íslendingum því fyrr um daginn
ferfram ólympíuleikur þegar Ungverj-
ar mæta írum en strax á eftir tekur við
leikur við Isléndinga. Báðir leikirnir
verða sýndir beint í Ungverjalandi.
Féiagsskipti
Gísli Gíslason, starfsmaður á skrif-
stofu KSÍ, segir að hans mesta vinna
liggi í félagsskiptunum enda hefur
verið mikið um félagsskipti undanfar-
ið. Gísli, sem tók við starfinu í mars,
sagði að tæplega 200 skipti væru
þegar afgreidd en rúmlega 100 biðu
afgreiðslu.
Málsókn
Ekkert meira hefur heyrst af málsókn
sem Luxemborgarinn Carlo Weis
ætlaði að hefja gegn ítalanum Gianl-
uca Vialli eftir að sá síðarnefndi réðst
á hann eftir vináttuleik liðanna í síð-
ustu viku þegar Italirnir unnu áhuga-
mennina frá Lux 3-0. „I leiknum sló
hann mig fjórum eða fimm sinnum en
eftir leikinn þegar hann og þrír félagar
hans eltu mig upp varð mér ekki um
sel. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef
lögreglan hefði ekki gripið þá," sagði
Weis en fréttir herma að ítalirnir hafi
ráðist á hann og snúið hann niður
áður en lögreglan kom til skjalanna.
Hrundu eins og spilaborg
I opnu spænsku hjólreiðamóti fyrir
skömmu varð það óhapp að 30 kapp-
ar féllu í einu. Slysið varð þegar einn
af keppendum sveigði skyndilega til
að koma í veg fyrir að lenda á áhor-
fendum sem stukku inná brautina, en
fór þá í veg fyrir hina. Einn slasaðist
alvarlega og var fluttur á sjúkrahús.
Hollendingurinn Mathieu Herman
vann því óvænt. Sjónvarpsmyndir
sýna þegar hjólreiðamennirnir falla
hver á fætur öðrum eins og spilaborg.
Vestur-þýskir knattspyrnu-
menn voru á faraldsfæti í gær-
kveldi, en þá var leikinn ein um-
ferð í Bundesligunni. Fyrir
leikina var Ijóst að með sigri gegn
Frankfurt átti Werder Bremen að
innsigla sigur sinn í deildinni. Þó
varð næsta lið, Köln, að tapa sín-
um leik við Hamburger SV.
Brimborgarar mættu ákveðnir
en þó sallarólegir til Frakkafurðu
og höfðu leikinn alveg í hendi sér.
Leikurinn endaði þó aðeins með
eins marks sigri, 0-1, en það var
alveg nóg til að halda með bæði
stigin heim á leið. Karl-Heinz Ri-
edle skoraði eina mark leiksins
og er hann nú markahæstur
ásamt Klinsmann hjá Stuttgart.
Á meðan var lið Kölnar í miklum
ógöngum í Hamborg. Þeir þoldu
greinilega ekki pressuna samfara
toppbaráttunni og Hamborgarar
unnu þá með þremur mörkum
gegn engu. Spörl skoraði tvö og
Labradia eitt.
Fallbaráttan er nú í al-
gleymingi og eru línurnar lítið
greinilegri nú en áður. Homburg
vann mikilvægan sigur á Karlsru-
he og gerði Kein eina mark
Það stefnir í algera metviku hjá
Islenskum getraunum um helg-
ina. Þá lýkur ensku
deildarkeppninni og verður spil-
að i síðasta sinn á þessum vetri en
vikan hefur alltaf verið mjög góð
söluvika. Undanfarna 4 laugar-
daga hefur engum tekist að fá 12
rétta enda úrslitin óvænt. Þar
með hefur l.vinningur ekki
gengið út og er kominn í
2.282.372 krónur.
í næstu viku mun potturinn ör-
ugglega allur ganga út því þó að
enginn fá vinning á 12 rétta munu
11 réttir hljóta hnossið.
Á laugardaginn voru 21 með 11
leiksins. Einnig tókst Kaisers-
lautern að vinna sigur á grönnum
sínum frá Mannheim, 0-2. Það
voru Kohr og Foda sem skoruðu
fyrir Keisarana en 35 þúsund
áhorfendur fylgdust með þessari
derby-viðureign. Borussia Dort-
mund þokaði sér einnig af mesta
hættusvæðinu með sigri á Bayer
Urdingen, 4-2. Það var Zorc sem
var maður þessa leiks en hann
skoraði öll fjögur mörk sinna
manna og er langt liðið síðan slíkt
hefur gerst. Líklegt er að Schalke
falli eftir jafntefli á útivelli gegn
Gladbach, 1-1. Wollitz kom
Schalke yfir 1-0 en Bruns jafnaði
fyrir gestgjafana.
Aðrir leikir fóru þannig að Ba-
yern Múnchen vann Bochum 1-0
og var það Englendingurinn
Mark Hughes sem skoraði fyrir
Bæjara. Einnig tapaði Nurnberg
á heimavelli fyrir Hannover, 1-3.
Það voru Surmann, Kohn og
Peich sem skoruðu fyrir Hanno-
ver, en Eckstein gerði eina mark
Nurnberg.
Stuttgart sat hjá í gærkveldi
vegna Evrópuleiks Bayer Le-
verkusen við Espanol í kvöld.
-þóm
rétta og fengust 28.711 á hverja
röð en seðiilinn var óvenju erfið-
ur með 6 jafntefli.
Hópleikur og
Bikarkeppni
Á laugardaginn tókst SÆ-2 að
ná Bis hópnum að stigum í hóp-
leiknum og missti Bis af foryst-
unni sem þeir hafa haldið vikum
saman. Það veður því einvígi
milli þessara miklu tipphópa.
Úrslit í undanúrslitum bika-
rkeppninar urðu: Fákur-Bis 9-7
og Ricki 2001-Abba 9-8 og munu
því Fákur og Ricki 2001 berjast
um titilinn og verðlaunin.
1X2... 1X2... 1X2... 1X2. • m 1X2...
36. leikvika 'O '5T § Þ. Cl £ £ Dagur é os Slöð 2 Stjarn. '
Chelsea-Charlton 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Coventry-QPR 1 X 2 X X 2 1 2
Everton-Arsenal 1 1 1 1 1 X X 1 2
Man.United-Portsmouth 1 1 1 1 1 2 1 1 1
Newcastle-West Ham 1 1 1 X X 2 1 X
Norwich-Wimbledon X 1 X X 1 1 X 1 X
Nottinham Forest-Oxford 1 1 1 1 1 1 1 1 X
Sheffield Wed.-Liverpool 2 2 X 2 2 1 1 X 2
Southampton-Luton X 2 1 X 1 X X X 2
Middlesbro-Leicester X 1 1 1 1 X 1 X X
Millwall-Blackburn 1 1 1 1 1 2 2 X 1
Swindon-Aston Villa 2 2 2 1 X 1 2 2 X
Getraunir
Fjórfaldur
pottur
Enginnfengið 12 rétta í 4 vikur og rúmar
tvær miljónir í 1. vinning
Þetta er ekki grindahlaupari, heldur markvarðahrellirinn Karl-heinz
Riedle sem skoraði mark Werder Bremen í gær.
England
Portsmouth fallið
West Ham örugglega uppi en Chelsea og
Charlton enn í basli. Liverpool á í
erfiðleikum með að bœta stigametið
Heil umferð var leikin í ensku
deildarkeppninni á mánudags-
kvöld og skýrðust línurnar á
toppi og botni enn betur. Ljóst er
að Portsmouth fylgir Watford og
Oxford niður i aðra deild en
Chelsea og Charlton bítast enn
um það hvort liðið þarf að leika
aukaleiki við lið úr annarri deild.
Portsmouth tapaði á heima-
velli fyrir Newcastle, 2-1, og
gerði sá leikur endanlega út um
möguleika þeirra á að hanga
uppi. Leikurinn varð ekki sérlega
spennandi þar sem Kevin Scott
skoraði fljótlega fyrir gestina og
snemma í síðari hálfleik bætti
Tony Lormor öðru marki við
fyrir norðanmenn. Það var svo
Mick Quinn sem minnkaði mun-
inn en markið náði þó ekki að
hrista slenið af leikmönnum á
Fratton Park.
Hins vegar var mun skemmti-
legri leikur háður á Upton Park
þar sem West Ham hamraði á ná-
grönnum sínum Chelsea og
tryggði þar með áframhaldandi
veru sína í 1. deild. Markaskorar-
inn mikli, Leroy Rosenior, var í
eldlínunni þar sem hann skoraði
fyrstu tvö mörkin í leiknum en
var síðan rekinn af leikvelli fyrir
að hamra um of á Steve Clarke.
Rosenior hefur þá gert 27 mörk í
vetur og er annar markahæsti
leikmaðurinn í deildinni. Brott-
reksturinn kom ekki að sök þar
sem Paul Hinton og Tony Cottee
gerðu sitt markið hvor en leikur-
mn endaði með öruggum sigri
West Ham, 4-1. \
Chelsea og Chariton glíma enn
við falldrauginn mikla vegna
aukakeppninnar sem fjórða
neðsta liðið þarf að taka þátt í
ásamt liðum úr annarri deild.
Charlton náði aðeins jafntefli við
Tottenham, 1-1, og átti Charlton
leikmaðurinn Mark Reid þátt í
báðum ntörkum leiksins. Hann
„gaf“ boltann á Steve Hodge á
70. mínútu og þakkaði sá síðar-
nefndi pent fyrir sig með marki.
Aðeins þremur mínútum síðar
jafnaði hann leikinn úr vítasp-
yrnu. Chelsea og Charlton eru nú
jöfn að stigum, hafa hlotið41 stig
hvort félag, en Charlton hefur
betra markahlutfall. Um næstu
helgi leiða liðin saman hrossin sín
og gefa bæði liðin væntanlega allt
í þann leik.
John Aldridge er nú orðinn
markahæstur í 1. deild en hann
skoraði eina mark Liverpool í 1-1
jafntefli gegn Southampton.
Þetta var 28. mark hans á tímabil-
inu en Stuart Rimmer Watford/
Chester hefur einnig gert 28. Li-
verpool virðist annars eiga í erfið-
leikum með að bæta stigametið í
deildinni eins og svo margir
höfðu spáð þeim. Everton á
metið sem hljóðar upp á ein 90
stig og þarf Rauði herinn því að
vinna báða leikina sem eftir eru
til að komast enn frekar á spjöld
knattspyrnusögunnar.
-þóm
Glíma
Þingeyingar
sigursælir
Pétur Ingvason, HSP, vann Grettisbeltið
eftir keppni við Eyþór Pétursson
Keppni um Gettisbeltið í glímu
var háð í 78. skipti að Laugum í
Þingeyjarsýslu á laugardag. Að
Skíði
Fjölskylduganga
Á morgun, fimmtudag, fer
fram í Bláfjöllum skíðagöngumót
fyrir almenning. Kallast það
Toyota-mótið og er hér um fjöl-
skyldumót að ræða. Gengnar
verða tvær vegalengdir. Karlar
eldri en 16 ára ganga 10 km en
aðrir keppendur munu ganga 5
km. Upplýsingar um veður ættu
að fást í síma 80111 sem er sím-
svari fyrir Bláfjöll, en mótið hefst
kl. 17 á fimmtudag.
vanda voru það Þingeyingar sem
stóðu upp úr á mótinu en þeir
hafa jafnan verið í fremstu röð
íslenskra glímukappa. Að þessu
sinni voru keppendur 11 og fór
svo að til úrslita glímdu Pétur
Ingvason og Eyþór Pétursson,
báðir á heimaslóðum. Pétur sigr-
aði eftir þriggja mínútna snarpa
glímu en Eyþór vann beltið í
fyrra.
Pétur og bróðir hans Ingvi hafa
um árabil verið nánast ósigrandi í
íþróttinni og er þetta ekki f fyrsta
skipti sem leikar fara á þennan
veg. Menn hafa ekki verið á eitt
sáttir um hvort kalla eigi glímuna
þjóðaríþrótt íslendinga, en víst
er að glíman er svo sannarlega
fþrótt Þingeyinga.
-þóm
Miðvikudagur 4. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15