Þjóðviljinn - 08.05.1988, Page 4
ustu árin sem starfsreynsla hús-
mæðra er metin í stigum til
kaupgjalds. Það er merkur áfangi
sem náðist fyrir einarða baráttu
og er vísir að fleiri áföngum.
Nú þegar sjálfsagt er að konur
stundi vinnu utan heimilis og afli
tekna sem brýn þörf er fyrir, efli
sjálfstæði sitt og leggi þjóðfé-
laginu lið til aukins velfarnaðar,
er eins og stjórnvöld átti sig ekki
á því, að konur eru komnar út á
vinnumarkaðinn til að vera þar,
þær eru ekki lengur varavinnuafl
sem gripið er til. Það er því
skýlaus krafa kvenna, sem aldrei
verður of oft ítrekuð, að búið
verði svo að börnum, að mæður
þurfi ekki að vera kvíðafullar við
störf sín og viti ekki af börnum
sínum í öruggri gæslu. Barna-
heimili og samfelldur skóladagur
eru sjálfsögð réttlætis- og örygg-
ismál. En það er ekki nóg að reisa
barnaheimili, skóla og sjúkra-
stöðvar. Það þarf líka að huga að
launum og starfskilyrðum þess
fólks, sem við þessar stofnanir
vinnur. Störf þess eru ein hin
mikilvægustu í þjóðfélaginu.
Sama þörf,
sama von
Sú er mesta ógæfa vinnandi
stétta að halda ekki samstöðu
sinni. Við höfum öll sömu þarfir,
sömu áhyggjur, sömu vonir.
Hvort sem við búum í borg eða
sveit, í Breiðholti eða Bolungar-
vík. Við þurfum mannsæmandi
húsnæði fyrir alla - fyrir alla - líka
þá sem ekki geta unnið fullan
vinnudag.
Við þurfum jafna möguleika
barna okkar til menntunar. Við
þurfum líka endurmenntunar-
möguleika fyrir þá sem byrjuðu
14-16 ára gamlir að vinna fyrir
þessu þjóðfélagi. Það er oft talað
um að þessi eða hinn sé búinn að
leggja á sig svo og svo mikið nám
og beri því mikil laun fyrir. Ekki
andmæli ég því. En spyrjum um
þann sem byrjar sextán ára gam-
all að greiða gjöld til samfélags-
ins, hvar eru launin hans? Hvar
eru viðurkenningin og þakkirnar
fyrir hans framlag?
Við höfum öll, sama hvað við
störfum og hvað við erum, sömu
þörf fyrir samvinnu, vináttu, fé-
lagsskap og virðingu. Hvaða
hlutverki sem við gegnum í þessu
flókna, síbreytilega iðandi myn-
stri sem við köllum mannlíf. Og
það er vinnan, starfíð, sem er
grundvöllurinn og tilvera okkar
bygggist á.
Það er kominn fyrsti maí og
sólin farin að verma vorkalda
jörð. Ég óska ykkur öllum sælla,
langra sumardaga.
(Fyrirsagnir eru Þjv.)
AFMÆLI
Haraldur Sigurðsson
áttrœður
Áttræður varð nú í vikunni
HaraldurSigurðsson bóka-
vörður, ferðagarpur, rithöf-
undur, doktor í kortasögu -og
um leið einn af fyrstu blaða-
mönnum Þjóðviljans.
Haraldur fæddist að Krossi í
Lundareykjardal þann fjórða
maí árið 1908. Hann stundaði
nám við Menntaskólana á Akur-
eyri og í Reykjavík, fékkst um
hríð við kennslu en gerðist árið
1936 einn af blaðamönnum ný-
stofnaðs Þjóðvilja og hefur sagt
skemmtilega frá þeim frumbýl-
ingsárum í greinum og viðtölum.
Á stríðsárunum gerðist Haraldur
starfsmaður hjá bókaútgáfunni
Helgafelli, en bókavörður á
Landsbókasafni árið 1946 og
gegndi því starfi til ársins 1978,
hefur hann margt þarft unnið
samtökum bókavarða. Haraldur
er mikill ferðagarpur, hann hefur
skrifað margt um ferðalög á ís-
landi og komið mjög við sögu ár-
bóka Ferðafélagsins sem höfund-
urogritstjórnarmaður. Haraldur
hefur þýtt á íslensku margar
bækur ágætar (m.a. eftir Selmu
Lagerlöf, Silanpaa og Axel
Munthe). En höfuðverk Harald-
ar er Kortasaga íslands í tveim
bindum sem út kom 1971 og
1978, mikið rit og vandað sem
hefur hlotið hinar bestu viðtökur
sérfróðra og áhugamanna.
Margir færðu Haraldi heilla-
óskir og gjafir í tilefni afmælisins,
sem og sjá má af myndinni hér að
ofan sem tekin var á heimili
þeirra Sigrúnar Á. Sigurðardótt-
ur í Drápuhlíð á afmælisdaginn.
Til heiðurs Haraldi áttræðum
gefur Ferðafélag íslands út
Ferðabók Magnúsar Gríms-
sonar.
Haraldur Sigurðsson
Fjórir ungir málarar
og sœnskur texlíll
Nú stendur yfir aö Kjarvals-
stööum sýning fjögurra ungra
málara, þeirra Guöbjargar
Lindar Jónsdóttur, Svanborg-
ar Matthíasdóttur, Söru Vil-
bergsdótturog Leifs Vil-
hjálmssonar. Þau voru öll
samtíma í Myndlista- og
handíðaskólanum á árunum
1981-85 og hafa haldið hóp-
inn síöan. Fyrstasamsýning
þeirra var í Gallerí íslensk list
1986.
Þær Guðbjörg, Svanborg og
Sara sýna olíumyndir en Leifur
þekjulitsmyndir, og sker hann sig
nokkuð úr hópnum með express-
] íónískum vinnubrögðum í ætt við
ICobra-málarana. Þær Guðbjörg,
| Svanborg og Sara sýna hins vegar
[yfirvegaða og varfærnislega út-
færslu „nýja málverksins" svo-
kallaða, sem er víst þegar orðið
gamalt og þreytt. Þær eru býsna
skyldar í vinnubrögðum, þótt
, hver hafi sinn stfl. Athyglisvert er
Svanborg Matthíasdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Sara Vilbergsdóttir og Leifur Vilhjálmsson
að sjá í þessum myndum visst
afturhvarf og áhrif frá þýsku og
frönsku málverki á fyrri hluta
aldarinnar, sem Guðbjörg Lind
Jónsdóttir nýtir sér á hvað per-
sónulegastan hátt.
Síðustu tækifæri eru til þess að
skoða þessa sýningu nú um helg-
ina, en henni lýkur á sunnudag
kl. 22.
Um leið lýkur frábærri sýningu
á sænskri vefjarlist að Kjarvals-
stöðum, en þar er um að ræða
útfærslu vefara á verkum þekktra
sænskra listamanna. Vefnaður
þessi er með því fallegra sem sést
hefur á þessu sviði hér á landi og
ætti enginn áhugamaður um vefj-
arlist að láta sýningu þessa fram
hjá sér fara.
-ólg
Pró
1988
Kæliskápar * frystiskápar * frystikistur.
jpon ix
gæði
á verði sem kemur þér notalega á óvart
Kæliskápax án frystis, 6 stærðir
K 130 K 200 K 244
130 ltr. kælir 200 ltr. kælir 244 ltr. kælir
K 180
173 ltr. kælir
K 285
277 ltr. kælir
K39S
382 ltr. kælir
Kæliskápar með frysti, 6 stærðir
KF 120
103 ltr. kælir
17 ltr. frystir
KF 195 S
161 ltr. kælir
34 ltr. frystir
KF 233
208 ltr. kælir
25 ltr. frystir
KF250
173 ltr. kælir
70 ltr. frystir
KF355
277 ltr. kælir
70 ltr. frystir
KF 344
198 ltr. kælir
146 ltr. frystir
Dönsku GRAM kæliskápamir eru níðsterkir, vel einangraöir og því sérlega sparneytnir. Hurðin er alveg einstök, hún er massif (nær óbijótanleg) og
afar rúmgóð með málmhillum og lausum boxum. Hægri eða vinstri opnun. Færanlegar hillur, sem einnig má skástilla fyrir stórar flöskur. 053 4-stjörnu
frystihólf, aðskilið frá kælihlutanum (minna hrím). Sjálfvirk þíðing. Stílhreint og sígilt útlit, mildir og mjúkir litir.
FSIOO
100 Itr. frystir
FS175
175 ltr. frystir
FS146
146 ltr. frystir
FS240
240 ltr. frystir
FS330
330 ltr. frystir
c:a»»»l 4-stjömu frystikistur,
fullinnréttadar
HF234 HF348 HF462
234 ltr. frystir 348 ltr. frystir 462 ltr. frystir
VAREFAKTA, vottorð dönsku
neytendastofnunarinnar, um kælisvið,
frystigetu, einangrun, gangtíma vélar
og orktmotkun fylgir öllum GRAM tækjum.
GRAM frá FÖNIX =gæði á góðu verði.
Góðir skilmálar - Traust þjónusta.
/rQniX
Hátúni 6A SlMI (91)24420
>FOnix
ábyrgð
í3ár