Þjóðviljinn - 10.05.1988, Síða 1
Þriðjudagur 10. maí 1988 105. tölublað 53 árgangur
Lánamistök bankakerfisins eru veigamikil orsök þeirra gjaldþrota og vitlausu fjárfestinga sem nú eru
að koma í Ijós.
Bankakerfið
Landsbankinn
að komast í þrot
Helgi Bergs bankastjóri: Staða bankans mjögerfið. Ekkertsvigrúm
lengur. Ólafur Ragnar Grímsson: Stórfelld lánamistök íbankakerf-
inu. Stórfyrirtœki sœkja í erlend rekstrarlán
Alþýðubandalagið
Uppstokkun
r
i
efnahags-
kerfinu
ítarleg greinargerð um
efnahagsvandann lögð
fram afformanniAl-
þýðubandalagsins á mið-
stjórnarfundi
Það ríkir hagstjórnarkreppa í
landinu, ekki efnahagskreppa,
sagði Olafur Ragnar Grímsson
formaður Alþýðubandalagsins er
hann kynnti tillögur um upp-
stokkun í efnahagsmálum á mið-
stjórnarfundi flokksins um sl.
helgi.
I tillögum Olafs er m.a. gert
ráð fyrir að dregið verði úr mið-
stjórnarvaldi í bankakerfinu og
það knúið til ábyrgðar á útlánum.
Sjá bls. 2, 8 og 13
Efnahagsráðstafanir
Ekkert
gefið
upp
Þingið rekið heim á
morgun. Búistvið geng-
isfeilingu.
Þingrœðið lítilsvirt
f utandagskrárumræðu á al-
þingi í gær spurði Steingrímur J.
Sigfússon fyrir hönd þingflokks
Alþýðubandalagsins eftir því til
hvaða ráðstafana ríkisstjórnin
hygðist grípa í efnahagsmálum.
Hann spurðist líka fyrir um það
hvort vilji væri fyrir því að gefa nú
stutt þinghlé og kalla þingið sam-
an þegar stjórnin hefði mótað til-
lögur sínar í efnahagsmálum svo
að tryggja mætti að um þær færi
fram lýðræðisleg umræða.
Á svörum forsætisráðherra
mátti skilja að ríkisstjórnin vildi
losna við þingið sem fyrst. Ekki
var borið á móti því að gengið
yrði fellt innan tíðar.
Sjá bls. 7
Stærsti banki landsins Lands-
bankinn, á nú í miklum erfið-
leikum. Helgi Bergs bankastjóri,
segir að mjög sé þrengt að stöðu
bankans og hann hafi ekkert svig-
rúm lengur til að leysa vanda
þeirra fyrirtækja sem eiga í fjár-
magnsvandræðum.
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins sagði
á miðstjórnarfundi flokksins um
helgina, að bankakerfið sé að
komast í þrot. Stjórn peninga-
mála hérlendis hafi mistekist
hrapalega og landsmenn búi við
dýrara og óhagkvæmara banka-
kerfi en þekkist í nágranna-
löndum.
- Bjarga varð Útvegsbankan-
um frá gjaldþroti, og Landsbank-
inn, stærsti banki þjóðarinnar, er
kominn hættulega langt inn á
sömu óheillabraut, segir Ólafur.
Bein afleiðing af þessari stöðu
mála er sú að stórfyrirtæki hér-
lendis sækja nú í auknum mæli að
fá erlend rekstrarlán til að endur-
skipuleggja rekstur sinn eða
skuldbreyta eldri lánum og bíða
nokkrar slíkar umsóknir nú af-
greiðslu í viðskiptaráðuneytinu.
Sjá bls. 3
Frakkland
Hvað gerir
forsetinn?
Talsmaður Jacques Chiracs sagði
í gær að forsætisráðherrann hygð-
ist segja af sér embætti í dag.
Óvíst er hvort hann heldur stöðu
sinni sem leiðtogi franskra hægri-
manna.
Menn velta mjög vöngum yfir
áformum Mitterrands. Tvennt er
helst nefnt í því sambandi. Að
hann rjúfi þing og efni til kosn-
inga. Eða að hann fái einhverja
miðjumenn til liðs við sig og skipi
rfkisstjórn þeirra'og sósíalista.
Sjá bls.19.
Grandavagninn
Er haim til sölu?
Ragnar vill kaupa. Össur Skarphéðinsson krefst
afsagnar stjórnarinnar
Ragnar Júlíusson, stjórnarfor-
maður í Granda hf, hefur falast
eftir eðalvagni þeim sem hann
hefur nú til afnota hjá Granda.
Hann lagði fram skriflegt kauptil-
boð sitt til stjórnarinnar í gær og
bað Davíð Oddsson einnig um að
selja sér bílinn.
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, á sæti
í stjórn Granda en vill ekki tjá sig
um afgreiðslu bílakaupanna.
í viðhorfsgrein í Þjóðviljanum
í dag krefst Össur Skarphéðins-
son, varafulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í borgarstjórn, þess að
þeir verði látnir víkja úr stjórn-
inni sem réðu þessari ákvörðun.
Sjá bls 3 og 5