Þjóðviljinn - 18.05.1988, Side 2
FRETTIR
PCB eiturefni
Brotalöm í kerfinu
Notað ma. íspennubreyta hjá orkufrekumfyrirtækjum.
Krabbameinsvaldandi og eyðistseint í náttúrunni.
Vinnueftirlitið: Efnið ekki á bannlista, en reiknað er með að
svo verðifljótlega
Innflutningur á PCB Askarell
eiturefninu, sem flokkað er
undir krabbameinsvaldandi efni
og er stórskaðlegt þeim sem fyrir
því verða, er ekki á bannlista
Vinnueftirlitsins og innflutningur
á því er heimill samkvæmt reglu-
gerð. Þetta eiturefni er víða notað
í orkufrekum fyrirtækjum þar
sem því cr blandað saman við olíu
á spennubreytum til að auðvelda
ma. kæligetu olíunnar.
Að sögn Skúla Magnússonar,
fulltrúa Vinnueftirlitsins á
Austfjörðum, er talið að þetta
eiturefni sé að finna í mun ríkari
mæli en hafi verið gert ráð fyrir
og hafa menn þar eystra nú þegar
fundið spennubreyta sem inni-
halda þetta eiturefni. Vitað er um
þrjú tilfelli þar sem menn hafa
komist í snertingu við efnið en
beðið er skjalfestra upplýsinga
þar að lútandi frá viðkomandi
læknum.
PCB Askarell eiturefnið er
mjög hættulegt þótt í litlu magni
sé og getur borist í líkama við
snertingu við húð og við innönd-
un á gufu eða úða. Efnið sest að-
allega að í fituvefjum líkamans en
Álverið
Lokað á
föstudag
Arangurslaus fundur
ígær.
Vinnuveitendur
leggjafram lœgra
tilboð en áður
Starfsmenn álversins áttu stutt-
an og árangurslausan fund með
vinnuveitendum í Karphúsinu í
gær. Að mati fulltrúa starfs-
manna miðar viðræðum frekar
afturábak en áfram þar sem
vinnuveitendur lögðu fram í gær
lægra tilboð en þeir gerðu í upp-
hafi. Allt stefnir því í lokun ál-
versins á miðnætti nk. föstudag.
Örn Friðriksson trúnaðarmað-
ur sagði einstaka plúsa felast í
nýja tilboðinu en mínusarnir
væru stærri og meiri. Ekki væri
Iengur gert ráð fyrir því að nýr
samningur gilti frá 1. mars eins og
var í gamla tilboðinu. Þá kæmu til
tilfærslur á áfangahækkunum og
stóri mínusinn væri að bónus,
sem starfsmenn hefðu haft og
hefði verið fastur, væri það ekki
lengur samkvæmt í nýja tilboð-
inu. Þegar upp væri staðið yrði
lækkunin meiri en sem næmi því
broti úr prósenti sem launaliðirn-
ir áttu að hækka.
Örn telur allt stefna í það að
verksmiðjan loki, þótt ríkissátta-
semjari hafi boðað deiluaðila á
sinn fund nk. fimmtudag. Um-
ræða um bráðabirgðalög hefur
verið tölverð undanfarna daga.
Örn sagðist ekki hafa ástæðu til
að hræðast slíkar aðgerðir. Hann
var einn fulltrúa ASI á fundi með
ríkisstjórninni í gær og sagði að
þar hefði verið lögð rík áhersla á
það að skilyrði fyrir samvinnu Al-
þýðusambandsins með ríkis-
stjórninni væri að þeir sem ættu
eftir að semja fengju að gera það í
friði.
-hmp
einnig í lifur og heila.
Efnið brotnar ekki niður í
náttúrunni og gengur ekki í sam-
band við vatn en berst með því.
Það getur því haft varanleg og
skaðleg áhrif á lífríkið berist það í
einhverjum mæli út í náttúruna.
Komist það í sjó safnast það sam-
an í örverum og svifi og síðan koll
af kolli upp lífríkið þar til það
berst í fólk sem neytir sjávaraf-
urða sem geta verið mengaðar af
eitrinu.
Utvarpsráð greiddi á fundi sín-
um í gær atkvæði um um-
sækjendur um fréttastjórastöðu
sjónvarpsins. Bogi Agústsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, fékk flest
atkvæði, þrjú talsins. Þessi niður-
staða er Sigrúnu Stefánsdóttur
vonbrigði þar sem hún var talin
hafa stuðning útvarpsstjóra þar
til Bogi kom til sögunnar.
f útvarpsráði féllu atkvæði
þannig að Bogi fékk 3 atkvæði,
Helgi H. Jónsson 2 og Ögmundur
Jónasson og Sigrún fengu sitt at-
kvæðið hvort. Hallur Hallsson
hafði dregið umsókn sína til baka
áður en til atkvæðagreiðslunnar
kom.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hvatti Markús Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri Sigrúnu til
að sækja um starf fréttastjóra en
hann hefur áður hálflofað henni
yfirmannsstöðu innan sjónvarps-
ins. Þá stóð Markús ekki við orð
sín og ósennilegt er að hann
standi við stuðning sinn nú.
Útvarpsstjóri hefur enn ekki
opinberað ákvörðun sína en talið
er fullvíst að hann ráði Boga. f
samtali við Þjóðviljann vildi Bogi
ekkert segja um hvað réð þeirri
ákvörðun hans að sækja um starf-
ið. „Ég var hvattur af talsvert
mörgum," sagði hann. Einn af
Skúli Magnússon sagði að á
Austfjörðum hefðu menn fundið
þetta efni í spennubreytum sem
voru fluttir hingað til lands í fyrra
en samkvæmt framleiðslunúmeri
voru þeir framleiddur árið 1978!
Skúli sagði að vitað væri um eitt
tilfelli þar sem olía með þessu
eiturefni hefði komist í sjó á
Norðfirði og væri búið að taka
sýni til rannnsóknar og er beðið
niðurstöðu hennar. Þá hafa
spennubreytar með eiturefninu
þeim sem studdu Boga var Ingvi
Hrafn Jónsson frv. fréttastjóri.
Bogi vildi ekki tjá sig mikið um
fréttastjórastöðuna þar sem
ákvörðun útvarpsstjóra lægi ekki
fyrir. Apspurður um hvort vænta
mætti mikilla breytinga á frétt-
astofunni fengi hann starfið svar-
aði hann að fréttastjóri væri eng-
inn einræðisherra, sjónvarpið
væri frekar lýðræðisleg stofnun.
Sigrún Stefánsdóttir sagðist
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
þessa niðurstöðu. „Það verður
erfítt fyrir mig að mæla með lang-
skólanámi við syni mína eftir
þetta, það er greinilega pólitíkin
sem ræður ferðinni. Hins vegar
væri sjálfsagt skynsamlegt að
hvetja þá til að ganga nógu
Brunaslys varð í álverinu í
Straumsvík í fyrrinótt er tveir
menn brenndu fengu yfir sig
glóandi ál og brenndust illa.
Þetta er fjórða slysið í álverinu
á þessu ári og eru nú fjórir menn
frá vinnu vegna brunasára. Eftir
næturvaktina voru mennirnir
tveir sem brenndust sendir á slys-
fundist á öskuhaugum, ma. á
Vopnafirði.
Éyjólfur Sæmundsson, for-
stjóri Vinnueftirlits ríksins, sagði
að þetta efni væri leyft innan ríkja
Efnahagsbandalagsins og ekki á
lista yfir bönnuð efni hérlendis.
Hann sagði að þetta mál væri til
umfjöllunar hjá eftirlitinu og
sagðist fastlega reikna með því að
efnið yrði bannað á næstunni því
hér væri vissulega um stórhættu-
legt efni að ræða. -grh
snemma í pólitíska flokka,“ sagði
Sigrún. Hún sagðist vera að fara í
frí og myndi hugsa sinn gang á
meðan.
Ögmundur Jónasson sagði að
sér hefði þótt vænt um
traustsyfirlýsingu Bríetar Héð-
insdóttur í skoðanakönnun út-
varpsráðs. Hann óskaði Boga
velfarnaðar í starfi fréttastjóra.
Helgi H. Jónsson sagðist að
sjálfsögðu hafa kosið að fá fleiri
atkvæði. En allir umsækjendur
ættu það sammerkt að vilja hag
sjónvarpsins sem mestan og best-
an og væru fullfærir um að sinna
starfinu með heiðri og sóma.
Ákvörðun útvarpsstjóra liggur
að öllum líkindum fyrir í dag.
adeild Borgarspítalans í leigubfl
en starfsmaður í álverinu sagði er
hann tilkynnti um slysið að yfir-
menn álversins hefðu sent menn-
ina í leigubíl til að forðast að upp-
víst yrði um slysið. Þeir gerðu allt
til að forðast að fólk fengi vitnes-
kju um hvernig vinnuálagið og
slysatíðnin væri í raun og veru.
-tt
Borgarráð
Svar við
Granda-
fyrirspum
Á fundi borgarráðs í gær var
lagt fram svar borgarstjóra við
fyrirspurnum minnihlutans varð-
andi laun stjórnarmanna Granda
hf.
í svarinu kom fram að stjórnar-
menn fá 15.834 krónur á mánuði
fyrir fundasetur sínar. Stjórnar-
formaðurinn hefur tvöfallt þetta
eða 31.668 krónur
Þá kom fram að engar ferðir
voru greiddar fyrir stjórnarmenn
á síðasta ári en Ragnari stjórnar-
formanni voru greiddir dagpen-
ingar í 10 daga þegar hann fór að
skoða verksmiðjur SH í Banda-
ríkjunum í fyrra.
Éngin hlunnindi önnur en
stjórnarlaunin fylgja því að sitja í
stjórn Granda hf.
-hmp
Verðlagsráð
Tekist
á um
fiskverð
Fundurídag
í Verðlagsráði.
SH: Fiskvinnslan ekki
aflögufœr.
LÍÚ: Afkoman slæm.
Sjómenn: Óbreytt verð
kemur ekki til greina
í dag er fundur í Verðlagsráði
sjávarútvegsins um nýtt fiskverð
en gildistími núverandi verðs
rennur út um næstu mánaðamót.
Fiskverð hefur ekki hækkað frá
því í nóvember í fyrra og við síð-
ustu verðlagsákvörðuu í mars-
byrjun var fiskverðið fryst þrátt
fyrir hávær mótmæli sjómanna
og útvegsmanna.
Þrátt fyrir nýafstaðna gengis-
fellingu um 10% sagði Friðrik
Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna, að eins og
staðan væri í dag væri ekkert svig-
rúm til fiskverðshækkunar af
hálfu fiskvinnslunnar.
Gengisfellingin ein sér hefði að
vísu bætt rekstrarstöðu margra
fyrirtækja, en fátt benti til þess að
verð á sjávarafurðum færi hækk-
andi á erlendum mörkuðum; nær
væri að tala um áframhaldandi
lækkanir ef eitthvað væri.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur Landssambands útvegs-
manna, sagði að afkoma útgerðar
hefði frekar versnað ef eitthvað
væri á síðustu misserum. Þó væri
staðan mismunandi. Verst væri
hún hjá útgerðum vertíðarbáta
því vertíðin í ár hefði brugðist
með öllu, en skárri hjá togurum
og mun betri hjá frystitogurum.
Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambandsins, sagði að
nú væri stund á milli stríða varð-
andi ákvörðun um nýtt fiskverð
og vildi sem minnst láta hafa eftir
sér um kröfur sjómanna að svo
stöddu. Þó væri það alveg á
hreinu að sjómenn mundu ekki
láta bjóða sér óbreytt fiskverð
eina ferðina enn.
-grh
Útvarpsráð á fundi sínum í gær þegar atkvæði voru greidd um það hver yrði eftirmaður Ingva Hrafns sem
fréttastjóri ríkissjónvarpsins. Mynd: Sig.
Fréttastjóri sjónvarps
Bogi fékk flest atkvæði
Sigrún hugsarsinn gang. Bogi Ágústsson: Fréttastjóri er
enginn einrœðisherra
-hmp
Álverið
Fjórða slysið á árinu
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 18. maí 1988