Þjóðviljinn - 18.05.1988, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Félagsfundur i H Wm
fimmtudaginn 19. maí kl. 20.30. ;/ ! iB },
Steini Svavar
Þeir skammta okkur frelsi,
þeir skammta okkur brauð.
Steini Þorvaldsson formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu og Svavar
Gestsson alþingismaður fjalla um nýliðin og yfirstandandi stéttaátök.
Félagar! Fjölmennum og ræðum hvað við sem sósíalistar getum lært af
atburðum undanfarinna vikna og hvernig við eigum að bregðast við.
Stjórn ABR
Sumardvöl á Laugarvatni
Hinar sívinsælu sumarbúðir Alþýðubandalagsins á Laugar-
vatni verður í sumar vikuna 18. - 24. júií.
Umsjón verða í höndum Margrétar Frímannsdótturog Sigríðar Karlsdóttur.
Allar nán^fi upplýsingar í síma 17500. Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 23. maí
(annan í hvítasunnu) kl. 20.30
í Lárusarhúsi.
Dagskrá:
1) Fundargerðir bæjarstjórnar fyrir fund
bæjarstjórnar þriðjudaginn 24. maí.
2) önnur mál.
Nefndarmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Gestur kvöldsins er Svavar Gestsson alpingismaður.
Svavar
Stjórnln
\A\
íbúðir fyrir aldraða
í Kópavogi - Vogatunga
Á þessu og næsta ári veröa byggðar á vegum
Kópavogskaupstaöar 8 leiguíbúðir fyrir aldraöa í
raöhúsum viö Vogatungu í Kópavogi.
Hluta af íbúðunum veröur ráöstafað meö þeirri
kvöð að leigutaki kaupi skuldabréf af Kópavogs-
kaupstað fyrir allt aö helming af kostnaðarverði
íbúðanna.
Kópavogsbúar 60 ára og eldri sitja fyrir við ráð-
stöfun íbúðanna. Umsóknareyðublöð fást hjá Fé-
lagsmálastofnun Kópavogs og skal skila um-
sóknum þangað fyrir fyrir 1. júní 1988.
Félagsmálastjórinn í Kópavogi
Matreiðslumenn -
. matreiðslumenn
Aðalfundur Félags matreiðslumanna verður
haldinn miðvikudaginn 25. maí kl. 15 að Óðins-
götu 7, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar fyrir sjúkrasjóð.
3. önnur mál.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs liggur
frammi á skrifstofu félagsins, aðrir listar þurfa að
berast fyrir setningu aðalfundar. Endurskoðaðir
reikningarfélagsins liggja frammi á skrifstofunni.
Stjórn Félags matreiðslumanna
Frá menntamalaraðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Við Menntaskólann í Kópavogl er laus til umsóknar kennarastaða
í stærðfræði.
Við Verkmenntaskóla Austurlands, Neskaupstað vantar kenn-
ara í málmiðnum, rafiðnum og tréiðnum.
Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum eru lausar til umsókn-
ar kennarastöður í: raungreinum, dönsku, viðskiptagreinum, stærð-
fræði, tölvufræði, eðlisfræði og íþróttum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 15. júní
nk- Menntamálaráðuneytlð
Dreifirit sem félagar úr Vesturbæjardeild ABR gerðu í tilefni af Grandavagni Ragnars Júlíussonar féll í
góðan jarðveg hjá starfsfólki Granda og flestir helstu fjölmiðlar landsins gerðu því ríkuleg skil. Nema
auðvitað Morgunblaðið, sem ennþá hefur ekki skrifað stafkrók um málið...
Bílakaup á
fölskum forsendum
Össur Skarphéðinsson skrifar
Bílakaup Ragnars Júlíussonar,
stjórnarformanns Granda hf,
hafa nú tekið á sig furðulega
mynd. Nú hefur sem sagt komið í
ljós, að málavextir voru með
þeim ólíkindum, að því miður er
tæpast hægt að túlka atburðarás-
ina öðru vísi en svo, að stjórnar-
formaðurinn hafi orðið sér úti um
margfræga bifreið með sviksam-
legum hætti.
Þetta eru stór orð, og stjórnar-
formaðurinn skuldar borgar-
búum öllum en þó sérstaklega
starfsfólki Granda hf, að hrinda
þeim - en segja ella af sér.
Framburður
Brynjólfs
Brynjólfur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Granda hf, hefur
lýst yfir, að í desember síð-
astliðnum hafi Ragnar Júlíusson
hringt í sig og sagt sér að hann
hefði símleiðis fengið samþykki
allra stjórnarmanna fyrir kaup-
unum á umræddri bifreið.
Orðrétt hafði DV eftir Brynj-
ólfi: „Ragnar sagði mér ídesemb-
er að hann hefði fengið samþykki
allra stjórnarmanna símleiðis
fyrir þessum bílakaupum. Ég
keypti því bílinn".
Maður að meiri
Þröstur Ólafsson, stjórnar-
maður í Granda hf. lýsir atburð-
arásinni mað allt öðrum hætti. í
hreinskilnu og heiðarlegu viðtali,
bæði í Þjóðviljanum og á Rás tvö,
greindi hann undanbragðalaust
frá málavöxtum einsog þeir snéru
að honum.
Þar lýsti Þröstur því umbúða-
laust yfir að sér hefðu orðið á mis-
tök í tengslum við málið, eða
einsog hann sjálfur orðaði það
efnislega: Ég brást vissri eftirlits-
skyldu...
Fyrir bragðið er hann maður
að meiri. Okkur verða flestum á
mistök mun verri en þau sem
Þresti urðu á, en það eru ekki
allir nógu kjarkaðir til að viður-
kenna þau með jafn opinskáum
og einlægum hætti og Þröstur Ól-
afsson gerði á Rás tvö og í Þjóð-
viljanum.
Meistari sjálfsgagnrýninnar,
Maó formaður, hefði vafalaust
orðið hreykinn af sínum gamla
lærisveini.
Raunveruleg
atburðarás
En einsog bflakaupin snéru að
Þresti Ólafssyni er ljóst, að
stjórnarformaðurinn Ragnar Júl-
íusson beitti ósannindum og fór
með alvarlegum hætti á bak við
framkvæmdastjórann. Þröstur
ingi bflakaupin handa stjórnar-
formanninum.
Kjarni málsins
Með hliðsjón af þessu er ljóst,
að:
1) Ragnar Júlíusson fór vísvit-
andi með alvarleg ósannindi
þegar hann tjáði Brynjólfi
Bjarnasyni að allir stjórnar-
menn hefðu samþykkt bfla-
kaupin á umræddri Saab
bifreið.
2) Bflakaupin voru því byggð á
fölskum forsendum.
3) Nokkrir mánuðir liðu frá því
Ragnar fékk framkvæmda-
stjórann til að kaupa bif-
reiðina, þar til kaupin voru
kynnt stjórninni.
Út frá þessum forsendum er
ekki hægt að komast að annarri
niðurstöðu en þeirri, að Ragnar
Júlíusson hafi náð bifreiðinni á
fölskum forsendum út úr fyrir-
tækinu sem honum var trúað
fyrir.
Stjórnarformaðurinn á nú tæp-
ast nema um tvennt að velja:
Hreinsa sig af þessu en segja
ella af sér.
Þáttur borgarstjóra
Hlutverk borgarstjóra í þessari
tragikómedíu er furðulegt og
óskýrt. Af tilviljun var fundur í
borgarstjórn Reykjavíkur sama
dag og Helgarpósturinn upplýsti
um bflakaupin. Sigurjón Péturs-
son, oddviti Alþýðubanda-
lagsins, gerði þar kaupin að um-
ræðuefni og gagnrýndi þau
harkalega einsog fleiri úr stjórn-
arandstöðunni.
f kjölfarið urðu svo borgar-
fulltrúar vitni að þeirri dapurlegu
uppákomu að borgarstjóri varði
bílakaupin handa Ragnari Júlí-
ussyni og taldi þau í alla staði
eðlileg. Það er út af fyrir sig
merkilegt siðferðisvottorð.
Sömuleiðis staðfesti borgar-
stjóri að kaupin hefðu átt sér
stað, og HP færi ekki með fleipur
í málinu.
Af því er auðvelt að álykta, að
borgarstjóra hafi fyrirfram verið
kunnugt um kaupin. Gaf hann ef
til vill samþykki sitt fyrir þeim?
í þessu sambandi er ekki síður
fróðlegt að sjá hvert Ragnar Júl-
íusson sendi yfirbótabréf sitt,
þegar hann hugðist kaupa sér frið
með því að bjóðast til að leysa til
sín bflinn.
Það bréf var nefnilega ekki
sent fyrst til framkvæmdastjóra
Granda hf eða stjórnarmanna.
Aideilis ekki.
Það var sent Davíð Oddssyni,
borgarstjóra Sjálfstæðisflokks-
ins.
draga í efa lýsingu Þrastar á at-
burðarásinni. Ekki aðeins sökum
þess, að ég hef aldrei reynt hann
að öðru en heiðarleika - sumir
segja að hreinskilnin hafi reynst
honum fjötur um fót á stjórn-
málasviðinu - heldur ekki síður
vegna þess, að einsog Þröstur lýs-
ir atburðarásinni bætir hún ekki
stöðu hans og annarra stjórnar-
manna.
Hann lýsir því hreinskilnislega,
að bflakaupin hafi þá fyrst komið
inn á borð stjórnarinnar, þegar
bullandi tap og uppsagnir voru
orðnar að veruleika, og því enn
ríkari ástæða en ella til að varpa
öllum hugmyndum að umdeilan-
legum bflakaupum handa
stjórnarformanninum útá tírætt
dýpi. Lýsing Brynjólfs - sem
hann byggir á samtali sínu við
Ragnar Júlíusson í desember - er
hins vegar á þá lund, að bfla-
kaupin hafi verið afráðin meðan
reksturinn gekk vel og uppsagnir
ekki til umræðu. Vil slíkar að-
stæður hefði vitaskuld verið
auðveldara að skýra fyrir starfs-
fólki Granda og öllum almenn-
upplýsir, að það hafi ekki verið
fyrr en í mars - nokkrum mánuð-
um eftir að stjómarformaðurinn
sagði framkvæmdastjóranum að
allir stjórnarmenn hefðu sam-
þykkt bflakaupin - sem Ragnar
Júlíusson hafi haft samband við
sig og tilkynnt sér kaupin.
í þessu er kjarni málsins fólg-
inn.
Mér kemur ekki til hugar að
„Útfráþessum
forsendum er ekki
hœgt að komast að
annarri niðurstöðu en
þeirri að Ragnar
Júlíusson hafi náð
bifreiðinni áfölskum
forsendum ...“
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 18. maí 1988