Þjóðviljinn - 18.05.1988, Qupperneq 10
Enn
um
veðrið
Ég minntist eitthvað á veðrið
hér í pistli mínum um daginn og
var að bölsótast út í kuldann og
haglélin sem dundu á höfuðborg-
arsvæðinu. Þaðergreinilegtað
einhver les Þjóðviljann í efra, því
ekki leið nema sólarhringur frá
því blaðið kom út, þartil skipt
hafði algerlega um og sólin skein
(heiðiog hitinn kominnyfirtut-
tugu gráður.
Það er annars merkilegt hvað
veðrið getur haft og hefur mikil
áhrif á allt mannlíf. Sólskinið er
sjálfsagt einhver mesta heilsubót
semlandinngeturfengið. Ekki
eingöngu vegna þess að fólk þjá-
ist af D-vítamínskorti og sé grátt
og guggið, heldur ekki síður
vegna þess að sólskinið hægir á
öllum hamagangi og stressi.
Það vantar ekki að menn ham-
ist úti í garði, sundlaugunum,
gangi á fjöll og fari á sjóskíði um
leið og sólin skín. Gott og blessað
en hver sést hlaupa um Banka-
stræti á milli stofnana, ryðjast
áfram í umferðinni liggjandi á
flautunni á þessum sólardögum?
Já, mannlífiðskiptirsvosann-
arlega um svip. Það liggur eng-
um á í góða veðrinu. Sendiferðin
út í búð verður að skemmtiferð.
Nágrannar taka tal saman. Marg-
ir setjast niður og fylgjast með
umferðinni. Enginn hefuráhyggj-
ur né kvartar. Ríkisstjórnin sat
kófsveitt í gamla fangahúsinu
alla síðustu helgi og tókst á um
efnahagsmálin. Enginnfylgdist
með og fáir höfðu áhuga. Fyrir-
tækin og sólarlandafarar voru
löngu búnir að fella gengið. Allir í
sólarvímu og ánægðir með lífið.
Ríkisstjórnin gæti þess vegna
kippt öllum vísitölum og rauðum
strikum úr sambandi án þess að
nokkur tæki eftir því, meðan að
ekki dregur ský fyrir sólu.
-ig-
í dag er
18. maí, miðvikudagurífjórðu
viku sumars, tuttugasti og áttundi
dagurhörpu, 139.dagurársins.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
4.02, en sest kl. 22.48.
Atburðir:
Stjórnarskrá konungsríkisins (s-
lands staðfest 1920. Fæddur
Jakob Thorarensen skáld 1886.
Fæddur Gunnar Gunnarsson
skáld 1889.
Þjóðviljinn
fyrir50árum:
Stórkostlegt slys við neðanjarð-
arbrautina í London. 30-40 menn
fórust eða meiddust hættuleaa-
Flugferðir til Grænlands um ís-
land. Göring lætur þýska „vís-
indamenn" rannsaka Grænland
- Saumastofu mína hefi ég flutt af
Nönnugötu 16 á Lokastíg 18,1.
hæð. Bogga Sigurðar.
/ UM ÚTVARP & SJONVARP
Sorgin
gleymir engum
Rás 1 21.30
„Þessir þáttur er hluti af þátta-
röð sem verið hefur á dagskrá um
skeið, um sorgina. Markmið okk-
ar er að reyna að létta undir með
þeim sem eiga við sorg að stríða,
kynna þeim aðstæður annarra,
einnig hvernig á að umgangast þá
sem sorgmæddir eru. Ekki síst að
undirbúa okkur undir sorgina því
eins og nafn þáttanna bendir til
þá gleymir sorgin engum,“ sagði
Bernharður Guðmundsson um-
sjónarmaður þáttanna um sorg-
ina.
Hann sagði að í kvöld yrði rætt
við tvær konur sem misst hefðu
börnin sín, önnur í vöggudauða,
hin þegar barnið hennar var ör-
fárra daga gamalt. Sér Jón
Bjarman sjúkrahúsprestur tekur
einnig þátt í umræðunum. Bern-
harður sagði að þættir þessir væru
unnir að tilhlutan samtakanna
Sorg og sorgarviðbrögð sem
leituðust við að létta undir með
þeim sem við sorg ættu að stríða.
Bernharður Guðmundsson sér um
þátt á rás 1 um sorgina.
Ovænt
endalok
Stöð 2 kl. 23.00
Steve og Jane ferðast um,
banka uppá hjá fólki og þykjast
vera að gera markaðskönnun.
Meðan á könnuninni stendur láta
þau greipar sópa um eigur grun-
íausra fórnarlamba. Dag einn
koma þau að húsi gamals manns
sem þau álíta eignalausan og el-
liæran, en uppgötva brátt að
hann á falinn fjársjóð. Skötuhjú-
in hugsa sér nú gott til glóðarinn-
ar, en sá gamli er ekki allur þar
sem hann er séður.
Korpúlfs-
staöir
Sjónvarpið kl. 22.00
í kvöld verður endursýndur
þáttur Birgis Sigurðsson rithöf-
undar um Korpúlfsstaði. í þætt-
inum rekur Birgir sögu staðarins
frá upphafi og til vorra daga, rætt
verður við fólk sem kom við sögu
staðarins og gengið um húsa-
kynnin.
Saga Korpúlfsstaða verður á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld.
Ekki hefurenn verið tekin ákvörð-
un um framtíð Korpúlfsstaða en
eitt er víst að mikið átak þarf til að
koma þessu glæsilega húsi í við-
unandi horf.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Þetta líkar mér! Sundsprettur
fyrir allar aldir, bátsferð...
...og heim í tjald fyrir miðjan
morgun með nýveiddan silung.
Svona eiga sumarfrí að vera!
Oft hefur hún verið glaðlegri
en þetta!
r
Éttu þín eigin
lík. Ég vil
bara kaffi.
Af hverju er ekkert
sjónvarp?! Ömurlegur
staður!
FOLDA
.............. i. 'i— ^
Hvað ertu vön að gera við þá sem eftir langa umhugsun i
geta hvorki fengið sig til að borða, éta, háma í sig, sötra,
slafra upp né lepja þessa ægivondu súpu?
7.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINKI Miðvlkudagur 18. maí 1988