Þjóðviljinn - 21.05.1988, Side 11

Þjóðviljinn - 21.05.1988, Side 11
ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Schliiter fær umboð Níels Helveg Petersen mistókst myndun meirihlutastjórnar. íhaldið vill ekkertmeð jafnaðarmönnum starfa Paul Schluter er harla bjartsýnn og býsna kampakátur þótt öldungis sé óvíst að honum verði nokkuð ágegnt. Margrét Þórhildur, drottning Danaveldis, fór í gær þess á leit við Paul Schliiter forsætisráð- herra og formann íhaldsflokksins að hann stýrði viðræðum flokks- brodda um myndun nýrrar ríkis- stjórnar. Þá voru fáeinar klukku- stundir iiðnar frá því að formað- ur „Róttæka vinstriflokksins“, Níels Helveg Petersen, kom að máli við drottningu og játaði upp- gjöf sína. „Þetta er erfitt hlutskipti og alls óvíst að ég fái einhverju áork- að. Ég er ekki svo áfjáður í ríkis- stjórn að ég leggi allt í sölurnar," sagði Schluter við blaðamenn er hann kom af fundi Margrétar. Hann er þriðji atvinnu- stjórnmálamaðurinn sem reynir að tjasla saman stjórn frá því úr- slit þingkosninga lágu fyrir að kvöldi lOnda maí. Petersen var daufur í dálkinn þegar hann gekk út úr höll henn- ar hátignar í gær. „Mér þykir mjög miður að hafa mistekist ætl- unarverk mitt,“ sagði hann við blaðamenn. Hann bætti því við að allsendis óvíst væri að flokkur sinn brygðist vel við væntan- legum kvonbænum Schluters. „Mér er sem ég sjái Schlúter mynda stjórn á augabragði.“ Skilyrði „róttækra" væru öllum kunnug, þeir vildu að mynduð yrði fjölflokka ríkisstjórn ólíkra afla sem stólað gæti á fylgi meiri- hluta þingmanna. Hið eina sem stæði í vegi fyrir þessu væru per- sónuleg óvild manna hvers í ann- ars garð og fíkn ýmissa í forsætis- ráðherraembætti. En Schlúter hefur aðrar skýr- ingar á reiðum höndum: „Vegna stefnu og aðgerða .jafnaðar- manna á umliðnum árum og ára- tugum telur íhaldsflokkurinn gersamlega ógerlegt að starfa með þeim að svo komnu máli.“ Vinur hans, Uffe Ellemann- Jensen, formaður „Venstre“ og utanríkisráðherra, tók í sama streng. Danskir fréttaskýrendur eru enn við sama heygarðshornið, Schluter takist að ídastra saman minnihlutastjórn íhalds og „Ven- stre“ og hugsanlega „róttækra vinstrimanna“. Hann muni treysta á að ýmsir smáflokkar á hægri væng, „Framfaraflokkur“ Glístrúps, Miðdemókratar og Kristilegur þjóðarflokkur verji sig vantrausti. Reuter/-ks. Afganistan Standa skæmliðar til vinnings? Frakkland Hægri- menn makka Fulltrúar franskra hægri- og miðflokka funduðu stíft í gær og freistuðu þess að ná samkomu- lagi um að tefla fram einum fram- bjóðanda í síðari umferð þing- kjörsins sem fram fer dagana 5ta og 12ta næsta mánaðar. Flestar fylgiskannanir benda til þess að Sósíalistaflokkurinn hreppi rúm- lega 40 af hundraði atkvæða í kosningunum en það ætti að tryggja þeim meirihluta þing- sæta. Það er því spurning um líf eða dauða fyrir andstæðinga þeirra að setja strax niður deilur sínar. Framboðsfrestur rennur út í dag. Svo virðist sem nýgaullistar og miðjumenn hafi orðið ásáttir um gagnkvæma tilhliðrun í um 500 einmenningskjördæmum af 577 sem att verður kappi um. í þeim sem ekki hefur náðst sam- komulag um munu tveir fram- bjóðendur Giscard/Chirac blokkarinnar keppa við einn frambjóðanda vinstrimanna, væntanlega flokksbróður þeirra Mitterrands forseta og Rocards forsætisráðherra. Reuter/-ks. Afganskir uppreisnarmenn búa sig nú af kostgæfni undir loka- átök um tvær borgir, Jalalabad og Kandahar. Sú fyrrnefnda liggur mitt á milli höfuðborgar- innar Kabúl og Peshawar í Pak- istan en þar hafa leiðtogar upp- reisnarmanna aðsetur. Síðar- nefnda borgin er höfuðsetur og miðstöð stjórnsýslu í syðri hluta Afganistans. Falli önnur hvor þeirra í hendur skæruliða er Ijóst að ríkisstjórn Najibullahs er bráðfeig. Síðustu fréttir, óstaðfestar að vísu, herma að skæruliðar hafi umkringt Jalalabad. Sveitir af- ganskra stjórnarhersins og sov- éskir hermenn, sem eru svo óheppnir að hafa ekki enn verið fluttir á brott einsog þorri félaga þeirra, séu í herkví. Málsvari uppreisnarmanna í Peshawar kvað félaga sína ríkja yfir öllum þjóðvegum er liggja að Jalala- bad. Fréttastofa Pakistana, PPI, hafði eftir ónefndum heimilda- mönnum úr röðum skæruliða að Kandahar væri nú þegar á þeirra valdi. Ekki fengust neinir ábyrgir aðilar til þess að staðfesta þá flugufregn. Fréttaskýrendur og sendimenn að vestan segja að eigi fréttir þessar við rök að styðjast sé af- ganski stjórnarherinn með ólík- indum lítilfjörlegur og Najibullah búinn að vera. Mun fyrr en nokk- ur óttaðist eða þorði að vona. Einsog kunnugt er hélt bróð- urpartur sovéska herliðsins í Jal- alabad heim til ættjarðarinnar þann 15da þessa mánaðar. Fá- einir urðu þó eftir í borginni. Sé hún umsetin verður að teljast hæpið að sovéskir herforingjar láti sér það í léttu rúmi liggja og skilji landa sína eftir í helgreipum fjenda sinna. Enda er þeim í lófa lagið að ná þjóðleiðum á sitt vald að nýju. Samkvæmt samningi þeim sem gerður var í Genf fyrir nokkru var skipuð nefnd á vegum Samein- uðu þjóðanna til þess að hafa yfirumsjón með heimkvaðningu sovétdáta og heimför afganskra flóttamanna. Fulltrúar hennar sitja vart aðgerðarlausir um þess- ar mundir því klögumál samn- ingsaðila ganga látlaust á víxl. Ráðamenn í Kabúl saka kollega sína í Pakistan um að gefa skærul- iðum æ fleiri vopn þrátt fyrir bann. Pakistanir segjast á hinn bóginn hafa öruggar heimildir fyrir því að ekkert lát hafi orðið á vopnasendingum Kremlverja til Najibullah og félaga hans. Reuter/-ks. IÐNSKÓLINNI REYKJAVfK Innritun fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík og Miðbæj- arskólanum frá kl. 9.00-18.00 1. og 2. júní. Innritað verður í eftirtalið nám: 1. Samningsbundið iðnnám (Námssamningur fylgi umsókn nýnema). 2. Grunndeild í prentun. 3. Grunndeild í prentsmíði (setning-skeyting-offset). 4. Grunndeild í bókbandi. 5. Grunndeild í fataiðnum. 6. Grunndeild í háriðnum. 7. Grunndeild í málmiðnum. 8. Grunndeild í rafiðnum. 9. Grunndeild í tréiðnum. 10. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði. 11. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun. 12. Framhaldsdeild í bókagerð. 13. Framhaldsdeild í hárgreiðslu. 14. Framhaldsdeild í hárskurði. 15. Framhaldsdeild í húsasmíði. 16. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði. 17. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun. 18. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun. 19. Framhaldsdeild í vélsmíði. 20. Almennt nám. 21. Fornám. 22. Meistaranám. 23. Rafsuða. 24. Tæknibraut. 25. Tækniteiknun. 26. Tölvubraut. 27. Öldungadeild í bókagerðargreinum. 28. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna og rafeinda- virkjun. Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstakar deildir. Öllum umsóknum nýnema fylgi staðfest afrit prófskír- teina með kennitölu. Iðnskólinn í Reykjavík Auglýsing um lausar stöður veiðieftirlitsmanna Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir að ráða veiði- eftirlitsmenn. Umsækjendur sem til greina koma þurfa að upp- fylla eftirfarandi skilyrði: 1. Hafa lokið fiskimannaprófi II. stigs. 2. Hafa starfað sem yfirmenn á fiskiskipi. 3. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum og veiðarfærum. 4. Æskilegur aldur 30-50 ára. Umsóknir þurfa að hafa boríst ráðuneytinu fyrir 15. júní nk. og skal þar greina aldur, menntun og fyrri störf. i Sjávarútvegsráðuneytið, 18. maí 1988 IÐNSKÓLiNN f REYKJAVfK Iðnskólanum í Reykjavík verður slitið föstudaginn 27. maí kl. 14.00 í Hallgrímskirkju og verða þá afhent burtfararskírteini. Iðnskólinn í Reykjavík Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Innritun nýnema í öldungadeild fer fram í skólan- um 24., 25. og 26. maí kl. 15-19 gegn greiðslu 1000 króna staðfestingargjalds. Rektor Laugardagur 21. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.