Þjóðviljinn - 26.05.1988, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Eitraðir þörungar
Offjölgun
vegna mengunar
Neyðarástana í Noregi. Getur liðkað fyrir seiðasölu þangað. Gunnar
Steinn vatnalíffrœðingur: Ástœða til að fylgjastgrannt með skilyrðum í
sjónum þar sem eldisstöðvar eru
að sem veldur ofljölgun þess-
ara þörunga sem nú valda
miklum skaða í Noregi stafar
fyrst og fremst af þeim aðstæðum
sem þeim eru búnar af manna-
völdum ss. vegna mengunar frá
skolpi, fóðurstöðvum fyrir fisk-
eldi þar sem óhreinsaður úr-
gangur fer óhindraður út í sjóinn
með mikið af næringaefnum sem
þörungarnir þrífast á, sagði
Gunnar Steinn Jónsson vatnalíf-
fræðingur hjá Hollustuvernd
ríkisins við Þjóðviljann.
Sannkallað neyðarástand hef-
ur skapast í Noregi síðustu daga
vegna þörungategundarinnar
Chrysochruomulina Polylepis
eða svipuþörungs, sem ógnar
eldisfiskum í sjókvíum við vestur-
strönd landsins. Er svo komið að
forráðamann fiskeldis þar í landi
líkja ástandinu við náttúruham-
farir og eru nánast ráðþrota
hvernig bregðast skuli við ásókn
þörunganna sem nú þegar hafa
drepið ógrynni fiskjar. Þörunga-
plágan berst nú fyrir vindum og
straumum norður með landinu.
Af þeim sökum er óttast um eldi-
sfisk í 120 stöðvum við Hörða-
land til viðbótar við þær tugi
stöðva sem hafa orðið fyrir tjóni
sunnar í Noregi.
Á þessari stundu er ekki vitað
hvaða áhrif þetta hefur á
seiðaútflutning héðan til Noregs
en fiskeldismenn vonast þó eftir
að áfall Norðmanna eigi eftir að
liðka fyrir seiðasölu þangað sem
ekki er vanþörf á þar sem mikið
er af óseldum seiðum hérlendis.
Að sögn Gunnars Steins Jóns-
sonar eru þekktar um 80 tegundir
eitraðra sjávarþörunga og nokkr-
ar þeirra mynda eitur sem er
meðal sterkustu eiturefna sem
þekkjast. Flestar þessarar teg-
unda tilheyra skoruþörungum en
til þeirra telst um 1200 tegundir.
Áðspurður hvort einhver ráð
séu þekkt til að koma í veg fyrir
að eitraðir þörungar geti valdið
tjóni við eldisstöðvar hér við
land, sagði Gunnar að eina ráðið
væri að fylgjast vel með skilyrð-
um í sjónum og sjá til þess að í
hann berist ekki úrgangsefni sem
innihalda næringarefni fyrir
þörungana sem orsaki ótímabæra
fjölgun þeirra eins og raun ber
vitni um í Noregi.
Gunnar sagði ennfremur að
heimilda um rauðan sjó af völd-
um þörunga sé fyrst getið 1638
þegar fiskimenn urðu varir við
blóð í sjónum undan Austfjörð-
um sem rak inn að landi í löngum
rákum eða röstum. Á þeim tíma
var litið á fyrirbærið sem boðun
um vonda tíð.
-grh
Frá Vinnuverndarþinginu sem stendur yfir á Hótel Sögu
Norrœn vinnuvernd
Vöðvabólgur skæðar
Bakverkir og vöðvabólgur algengustu orsakirfjarvista frá vinnu. Ammoní-
aksgeymir Aburðarverksmiðjunnar til umrœðu á norrœnu vinnuverndar-
þingi
Áiagssjúkdómar, svo sem
vöðvabólgur og bakverkir, eru
þeir sjúkdómar sem valda hvað
mestum fjarvistum frá vinnu
samkvæmt norrænum skrám og
virðast einir skæðustu atvinnu-
sjúkdómarnir sé miðað við
vinnulaun.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á fyrsta degi norræns vinnu-
verndarþings á Hótel Sögu í gær.
Sérfræðingur frá Noregi taldi að
álagssjúkdómar kostuðu norska
ríkið árlega sem svarar fjórum
miljörðum norskum, jafnframt
væru álagssjúkdómar 35% af
veikindaforföllum þar í landi.
Þingið á Sögu sækja fulltrúar
allra vinnueftirlitsstofnana á
Norðurlöndum, og er það hið
sextánda í röðinni. Félagsmála-
ráðherra setti þingið, en síðan
hófust framsöguerindi.
Þar Eyjólfur Sæmundsson for-
stjóri Vinnueftirlits ríkisins fjall-
aði um greiningu á stórslysahættu
og áhættugreiningu með sérstöku
tilliti til áhættu frá ammoníaks-
geymi Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi
Eyjólfur gaf yfirlit yfir aðferðir
við að meta hættu á stórslysum og
tengdi það við hættuna frá
geyminum. Niðurstaða hans var
sú að ef geymirinn mundi bresta
fullur af ammoníaki gæti myndast
mikið ammoníaksský sem hefði
mjög alvarlegar afleiðingar í ríkj-
andi vindáttum og gæti náð niðrí
miðbæ á 10 mínútum.
í máli Eyjólfs kom jafnframt
fram að í ráði væri að byggja nýj-
an tvöfaldan stáltank, með jarð-
vegsvegg í kring sem þriðju vörn,
ef leki kæmi. Innihaldið yrði kælt
niður í 33 gráður. Yfirþrýstingur
verður þannig að kæmi leki
mundi ammoníakið haldast niðri
í jarðvegsskálinni vegna þess að
andrúmsloftið er þyngra en amm-
oníakið. gjh
Grandavagninn
Skýringa óskað
Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar í borgarstjórn hafa lagt
fram fyrirspurnir í borgarráði
þar sem borgarstjóri er krafinn
nánari skýringa á yfirlýsingum
sínum varðandi kaupin á Grand-
avagni Ragnars Júlíussonar og
jafnframt er óskað eftir Ijósriti af
þeirri fundargerð stjórnar
Granda þegar kaupin voru á-
kveðin.
Óskað er eftir upplýsingum og
svörum við eftirfarandi spurning-
um.
1) Borgarstjóri sá ekki ástæðu
til að gera athugasemd við bíla-
kaupin þegar þau voru gerð í des-
ember sl. Hvers vegna sá hann
ástæðu til að hafa afskipti af
kaupunum eftir borgarstjórnar-
fund 5. maí sl?
2) Getur borgarstjóri nefnt
dæmi um fyrirtæki þar sem
stjórnarformaður hefur bíl frá
fyrirtækinu til einkaafnota eða
nýtur annarra áþekkra hlunn-
inda?
3) Ef fyrir liggur stjórnarsam-
þykkt um bflakaupin, hlýtur hún
að vera skráð í fundargerðarbók
Granda hf. Óskað er eftir ljósriti
af samþykktinni og dagsetningu
þess stjórnarfundar.
520 miljónir í Ólafsfjarðarmúlann
Krafttak verktakafyrirtækið Ellert Skúlason í samvinnu við norskt
verktakafyrirtæki, átti lægsta tilboð í gerð jarðgangna í gegnum Ólafs-
fjarðarmúla. Tilboð í verkið voru opnuð i gær og hljóðaði lægsta
tilboðið uppá 520 miljónir en kostnaðaráætlun Vegagerðar ríkisins var
uppá rúmar 630 miljónir. 6 önnur tilboð bárust í verkið og kom það
hæsta frá Finnlandi uppá nærri 1 miljarð króna. Reiknað er með að
framkvæmdir við verkið geti hafist í sumar, en þetta verk er það stærsta
sem boðið hefur verið út af hálfu Vegagerðarinnar.
Jarðhitaráðgjöf fyrir ullarkaup
íslenskir sérfræðingar sem
starfa hjá Virki-Orkint munu
veita jarðfræðistofnun Hebei-
héraðs í Kína jarðhitaráðgjöf á
þremur afmörkuðum svæðum á
næstu misserum. Framkvæmd
þessa verkefnis er háð því að Kín-
verjar geti greitt fyrir ráðgjöfina
með vörum eða þjónustuvið-
skiptum, t.d. á sviði ullariðnaðar.
Þetta varð niðurstaðan í við-
ræðum Friðriks Sophussonar iðn-
aðarráðherra og Zhu Xun ráð-
herra jarðefna og auðlinda í
Kína. Kínareisu iðnaðarráðherra
lýkur á föstudag.
Banaslys við ísafjörð
Vörubflsstjóri lést síðdegis í gær, er bifreið sem hann ók fór fram af
háu barði í Dagverðardal skammt utan við ísafjörð. 14 ára sonur
bflstjórans var einnig í bifreiðinni en hann sakaði ekki. Vörubifreiðin
var að flytja fisk frá Flateyri til ísafjarðar.
Katrín Hall til Kölnaróperunnar
Katrínu Hall, ballettdansara, hefur verið boðinn árssamningur við
Tanz Forum, dansflokk Kölnaróperunnar, næsta vetur. Katrín er nú
stödd í Þýskalandi og mun dansa aðalhlutverk í nýju dansverki eftir
Jochen Ulrich sem frumsýnt verður í Kölnaróperunni í næsta mánuði.
Katrín hefur dansað með íslenska dansflokknum frá 1982.
Lánskjaravísitalan hækkar um 1,53%
Lánskjaravísitalan 2051 gildir fyrir júnímánuð og hefur hún þá
hækkað um 1,53% frá síðasta mánuði. Þessi hækkun umreiknuð til
árshækkunar er uppá 20,1% en síðustu 3 mánuði hefur lánskjaravísi-
talan hækkað um 18% og síðustu 12 mánuði um 21,6%.
Minjar og saga í Þjoðminjasafni
Hið nýstofnaða félag Minjar og saga ætlar að funda í Þjóðminjasafn-
inu í dag kl. 17.15 og verður þar m.a. sýndar myndir frá endurbyggingu
Viðeyjarstofu sem á að taka í notkun í ágúst á afmæli Reykjavíkur-
borgar. Þau Magnús Sædal og Margrét Hallgrímsdóttir gera grein fyrir
framkvæmdum í Viðey og fornleifauppgreftrinum þar.
100 þús. í minningarsjóð Eðvarðs
í tilefni 100. fundar í framkvæmdastjórn Sambands almennra líf-
eyrissjóða, sem haldinn var fyrir skemmstu, var einróma samþykkt að
leggja fram 100 þús. krónur í Minningarsjóð Eðvars Sigurðssonar
fyrrv. alþm. og formanns Dagsbrúnar. Eðvarð sat óslitið í stjórn SAL
frá stofnun sambandins þar til hann lést í júlí 1983. Þrátt fyrir ákvæði í
lögum um að fulltrúar ÁSÍ og VSÍ skuli hafa á hendi formennsku til
skiptis, gegndi Eðvarð formennsku allan þann tíma sem hann sat í
stjórninni.
36 nýir búfræðingar frá Hvanneyri
Á næsta ári verður minnst 100 ára afmælis Bændaskólans á Hvann-
eyri, en fjölþætt nám fer nú fram við skólann auk tilraunastarfsemi og
þjónustu við landbúnaðinn. 36 nemendur luku búfræðiprófi frá skóla-
num á þessu vori, en 40 nemar luku námi úr 1. bekk og 9 eru við nám í
búvísindum. Þá sóttu um 300 manns margvísleg námskeið á vegum
skólans á liðnum vetri.
Plumb lávarður í heimsókn
Forseti Evrópuþingsins, Plumb lávarður kom í opinbera heimsókn
til landsins í gær í boði forseta Alþingis. Plumb hefur einkum helgað
starfskrafta sína landbúnaðarmálum og var um tíma forseti samtaka
breskra bænda. Hann hefur verið formaður Evrópuþingsins frá janúar
á sl. ári.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN