Þjóðviljinn - 02.06.1988, Síða 2
Sopinn hækkar
Útsölustaðir Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins voru lokaðar í gær
vegna verðbreytinga á þeim veigum sem þar eru á boðstólum. Þegar
versianirnar opna í dag verður áfengi og tóbak að jafnaði sex og hálfu
prósentustigi dýrara en það var fyrir lokun.
Flaskan af íslensku brennivíni kostar eftir hækkun 1000 krónur.
Flaska af Smirnoff-vodka hækkar úr 1370 í 1430 krónur og whisky-
flaska af Johny Walker hækkar úr 1610 í 1700 krónur. Sígarettupakk-
inn hækkar úr 136 í 145 krónur og algeng tegund af píputóbaki hækkar
úr 195 krónum í 207.
Sprenging í Ólafsvík
í gærmorgun varð sprenging í tækjasal í Harðfrystihúsi Ólafsvíkur.
Mikill reykur gaus upp og barst hann í gegnum loftræstibúnað í frystig-
eymslur, sem eru áfastar tækjasalnum. Talið er að um 200 til 300 tonn
af frystum fiski sem í geymslunni var, sé ónýtur og er tjónið því
tilfinnanlegt.
Ein starfsstúlka frystihússins fékk lítilsháttar reykeitrun, en aðra
starfsmenn fyrirtækisins sakaði ekki.
Iðja fordæmir bráðabirgðalögin
Stjórn og trúnaðarmannaráð Iðju félags verksmiðjufólks á Akureyri
fordæmir aðför að mannréttindum launafólks, sem felast í bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar og skorar á stjórnvöld að afnema laga-
bálkinn hið snarasta.
Með efnahagsaðgerðunum er gengið á kaupmátt launa, með því að
afnema vísitöluviðmiðanir gildandi samninga og ákvæði um endur-
skoðun, segir í ályktun stjórnar og trúnaðarmannaráðs.
Jafnframt er bent á að samnings- og verkfallsrétturinn séu grund-
vallar mannréttindi, sem allt starf verkalýðsfélaganna byggist á.
„Með aðgerðum sínum gerir ríkisstjórnin stéttarfélögin að mátt-
lausu vopni f baráttunni fyrir bættum kjörum. Árássem þessari verður
að mæta með samstilltu átaki samtaka launafólks," segir í ályktuninni.
Gallerí Guðmundar frá Miðdal
Á morgun kl. 14 verður opnað „Gallerí Guðmundar frá Miðdal“ í
vinnustofu Guðmundar heitins að Skólavörðustíg 43. En verk Guð-
mundar hafa alltof lengi legið óbætt hjá garði. Galleríið er rekið af syni
Guðmundar, Yngva.
Að sögn Yngva, er ætlunin að reka í vinnustofunni sölu-gallerí með
myndum eftir látna og lifandi listamenn.
- í undirbúningi er sýning í haust á mörgum bestu listaverkum eftir
Guðmund frá Miðdal og í framhaldi af þeirri sýningu er fyrirhugað að
hafa til sölu málafsteypur af skúlptúrum eftir hann, sagði Yngvi.
Til að byrja með verða í galleríinu til sýnis og sölu landslagsmyndir,
aðallega vatnslitamyndir eftir Guðmund frá Miðdal, Hauk Clausen,
Magnús Heimi Gíslason, Guðmund Karl, Jörund Pálsson, Karl
Sæmundsson o.fl.
Polgar-systur meðal keppenda
Opna Austurlandsmótið í skák verður haldið í annað sinn dagana
5.-15. júní á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Margt knárra skákmanna
tekur þátt í þessu móti og má þar m.a. nefna hinar vinsælu og geð-
þekku Polgar-systur, Zsuzsu, Judit og Zofiu frá Ungverjalandi.
Af íslenskum þátttakendum má nefna stórmeistarana Margeir Pét-
ursson og Helga Ólafsson og alþjóðlegu meistarana Sævar Bjarnason
og Karl Þorsteins.
Vegleg verðlaun verða í boði og nema þau alls 700.000 krónum, þar
af eru fyrstu verðlaun í fýrsta flokki 200.000 krónur. Enn er hægt að
tilkynna þátttöku í mótinu og eru nánari upplýsingar veittar í Vala-
skjálf, síma: 97-11500.
-FRI
Samið undir lagasetningum
Akureyrarbær hefur nú skrifað undir samninga við verkalýðsfélög í
bænum eftir að bráðbirgðalög voru sett og samningar um launahækk-
anir umfram Akureyrarsamninginn bannaðir.
Bærinn samdi við Einingu um laun ófaglærðra verkamanna í fyrra-
dag og í gær við hjúkrunarkonur í Norðurlandsdeild eystri í Hjúkrun-
arfélagi Islands.
-tt.
FRÉTTIR
Þjóðskjalasafn
Aðstöðuleysi bitnar
á rannsóknum
Þjóðskjalavörður: Dýrt að gera ekkert í hálfa öld. Fœr 5
miljónir á þessu ári. Þarf200 miljónir til að Ijúka
framkvæmdum
Pær aðstæður sem þjóðskjala-
safn íslands býr við í dag gera
allar rannsóknir á nútímasögu ís-
tands mjög erfiðar. Eins og kunn-
ugt er fékk safnið gamla hús
Mjólkurstöðvarinnar við Lauga-
veg til afnota en 200 miljónir þarf
til að hægt sé að ljúka fram-
kvæmdum. Safnið fær á þessu ári
4,9 miljónir í framkvæmdir og
engar heildaráætlanir eru til um
það hvenær framkvæmdum skuli
lokið.
Að sögn Ólafs Ásgeirssonar
þjóðskjalavarðar á safnið um 20
hillukílómetra af skjölum. Næstu
ár munu bætast um 15 hkm við
safnið en þegar nýja safnhúsið
verður fullklárað rúmar það um
35 hkm. Það gæti því farið svo að
safnið yrði strax orðið of lítið
þegar framkvæmdum við það er
lokið. Þetta er ófremdarástand
að mati Ólafs. „Það er dýrt að
gera ekkert í hálfa öld.“
Þrátt fyrir þetta segir Ólafur að
tekist hafi að taka hluta af nýja
húsnæðinu í notkun. Það nægði
þó engan veginn til að veita þá
þjónustu sem þyrfti. Þörf safnsins
byggði 90% á geymsluplássi og
einnig þyrfti að tryggja öll örygg-
isatriði. „Það er hins vegar engin
skynsemi í því að kaupa hluta af
hillum safnsins, þær verður allar
að kaupa í einu.“ Ólafur segir að
hillur í nýja húsið kosti um 80
milljónir.
Ólafur telur að aðstaða
Þjóðskjalasafnsins hvað varðar
skjöl sé mun verri en víðast hvar í
heiminum og er þá þriðji heimur-
inn ekki undanskilinn. Þetta stafi
kannski af því að sumir séu svo
hógværir að þeim finnist ekki
taka því að halda skjölum til
haga. „Ég veit að mikið hefur
glatast af merkilegum gögnum í
sambandi við íslenska nútíma-
sögu,“ sagði Ólafur.
Víða erlendis taka þjóðir sig
saman um útgáfu á skjölum er
varða samskipti þeirra. Starfsemi
af þessu tagi kemur sér mjög vel í
sagnfræðirannsóknum. Gagna-
vinnsla af þessu tagi er hins vegar
óþekkt hérlendis, segir Ólafur.
Utanríkisráðherra og fjár-
málaráðherra rífast nú um 120
miljóna bakreikning vegna flug-
stöðvarinnar en sú upphæð er
rúmlega helmingur þess sem þarf
til að fullklára nýja Þjóðskjala-
safnið. Ekki var hægt að bera
þetta mál undir fjármálaráðherr-
ann Jón Baldvin Hannibalsson,
þar sem hann er erlendis.
-hmp
Lappað upp
á Bakarabrekku
Fiskverð
Þráttað
r
árangurs
Sjómennfarafram á
10% ‘
fiskverðshœkkun.
Fiskvinnslan telur sig
ekki hafa efni á neinni
hœkkun
Að undanförnu hefur verið
fundað nær daglega í yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins um nýtt fiskverð sem átti að
taka gildi í gær 1. júní, en án ár-
angurs. Lágmarkskrafa seljenda,
sjómanna og útgerðarmanna, er
að fiskverð hækki um 10% en
fiskvinnslan telur sig ekki hafa
efni á neinni hækkun þrátt fyrir
nýlega gengisfellingu.
Að sögn Helga Laxdals full-
trúa sjómanna í yfirnefndinni og
varaforseta Farmanna- og fiski-
mannasambandsins hefur lítið
sem ekkert þokast í átt til
samkomulags á fundunum til
þessa og sagði hann það vera afar
óheppilegt ef ekki verður búið að
ákveða viðunandi fiskverðs-
hækkun fyrir nk. sunnudag en þá
verður sjómannadagurinn hald-
inn hátíðlegur í 50. sinn.
Helgi sagði að ef laun sjó-
manna ættu að hækka í samræmi
við þær launahækkanir sem við-
miðunarhópar þeirra hefðu verið
að fá að undanförnu þyrfti fisk-
verð að hækka um 15% en til þess
væru litlar líkur vegna bráða-
birgðalaga ríkisstjórnarinnar sem
banna meiri launahækkanir en
10%.
Aðspurður hvað sjómenn
gerðu ef sami leikurinn yrði
endurtekinn frá því síðast þegar
fiskverðið var fryst, sagði Helgi
að þá myndu sjómenn ekki taka
lengur þátt í störfum Verð-
lagsráðs; það væri alveg á hreinu.
Annar fundur hefur verið boð-
aður í yfirnefndinni kl. 11 í dag.
Oddamaður yfirnefndarinnar er
forstjóri Þjóðhagsstofnunar,
Þórður Friðjónsson. -grh
Þessa dagana er að ljúka
endurbótum á Bakarabrekkunni
svokölluðu en hún hefur verið of
brött um nokkurt skeið. Hallinn
verður minnkaður og gróðri bætt
efst í brekkuna og einnig neðst í
hana, eða þar sem gangstéttin við
Lækjargötuna afmarkar hana.
Hugmyndin að baki breytingunni
er að meiri heildarsvipur fáist á
allt svæðið undir hólnum og að
sólardýrkendur fái notið meira
skjóls á heitum og björtum
sumardögum í henni Reykjavík.
Mynd E.Ól.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 2. júní 1988