Þjóðviljinn - 08.06.1988, Blaðsíða 1
Ölduselsskóli
Valdi
Sjöfn
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra ákvað í gær
að setja Sjöfn Sigurbjörnsdóttur
skólastjóra Ölduselsskóla í
Reykjavík þrátt fyrir eindregin
meðmæli kennara og foreldra
með hinum umsækjandanum,
yfirkennaranum Reyni Daníel
Gunnarssyni.
í fréttatilkynningu mennta-
málaráðuneytisins er tiltekið að
að Sjöfn hafi mikla reynslu af fé-
lagsstörfum auk skólamennsku, -
og er þar helst að nefna setu
hennar í borgarstjórn 1987-82
eftir að Birgir ísleifur tapaði
borginni úr höndum Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjá síðu 2
Viðhorf
Hvers-
konar
sentristi?
Hverskonar sentristi? spyr
Gestur Guðmundsson í viðhorfs-
grein í dag sem skrifuð er í tilefni
nokkurra orða í afmælisgrein
Svavars Gestssonar um Brynjólf
Bjarnason á dögunum.
Sjá síðu 5
Miðvikudagur 8. júní 1988 128. tölublað 53. órgangur
Byggingarn efnd flugstöðvar
Settir af til hálfs
Samstarfshópur utanríkisráðuneytis ogfjármálaráðuneytis setturtil höfuðs
byggingarnefnd. Óhjákvœmilegarframkvœmdir í ár taldar kosta 34 milljónir
Byggingarnefnd flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli hefur í
reynd verið vikið óformlega frá
störfum. Utanríkisráðherra og
fjármálaráðherra hafa jafnað
ágreining sinn um málsmeðferð á
þeirri 120 milljón króna fjárþörf
sem er vegna flugstöðvarbygg-
ingarinnar í ár, með því að stofna
til sameiginlegs starfshóps á veg-
um ráðuneytanna, sem geri til-
lögur um hvernig vangoldnir
reikningar ríkissjóðs verði hand-
fjallaðir og um framkvæmdir sem
taldar eru óhjákvæmilegar á
þessu ári.
Að mati utanríkisráðuneytis-
ins er óhjákvæmilegt annað en að
ráðast verði í framkvæmdir í ár
uppá 34 milljónir króna, vegna
lagfæringa og öryggisþátta.
Steingrímur Hermannsson tel-
ur að samkomulag takist milli
ráðuneyutanna um að ríkissjóður
verji 70-100 milljónum króna í ár
til flugstöðvarinnar.
Sjá síðu 3
Furðurækjan sem Þórshamar fékk
útaf Kolbeinsey.
Sjávarfang
Skrítin
rækja
Kynjadýr út afKol-
beinsey
Undarleg rækja fannst þegar
var verið að vinna afla frá Þórs-
hamar GK 75. Aðeins eitt stykki
fannst. Pétur Geir Helgason hef-
ur verið viðloðandi rækju í 25 ár
og segist aldrei hafa séð rækju
sem þessa, ef þetta er þá rækja.
Fiskurinn í kynjadýrinu er
mjög líkur venjulegri rækju en er
rauðari og hefur hausinn innund-
ir skelinni.
Sjá síðu 2
Bráðabirgðalögin
Aldrei
Álitinu
leynt
Samningar nyrðra
öðruhvorumegin við
lögin
Ekki er enn ljóst hvort ríkislög-
maður telur samninga ísals við
starfsmenn brjóta í bága við
bráðabirgðalögin þar sem ríkis-
stjórnin ákvað að halda því
leyndu og kynna það fyrst aðilum
samningsins.
Flest bendir til að lögmaðurinn
sé ósammála VSÍ og telji samn-
inginn ólöglegan, - en engin
ákvæði eru í lögunum um það
hvernig við skuli bregðast og
virðast ráðherrarnir í vand-
ræðum.
Samningar á mörkum laga-
rammans eða öðruhvorumegin
við hann eru hér og þar í gangi, og
í gær samþykkti bæjarstjórn Ak-
ureyrar samning sem meirihluti
bæjarstjórnarinnar túlkar lög-
legan, en einn fulltrúi í kjara-
samninganefnd segir ljóslega í
bága við lögin.
Sjá síðu 3
Berlæraður ánamaðkameistari aftur
Listahátíð er komin á fullt
skrið í Reykjavík og í gær kom til
landsins Peter Waschinsky
brúðuleikhússtjóri frá Austur-
Pýskalandi með leikhús sitt í
ferðatösku, - en hann sýnir „Án-
amaðkana“ í kvöld í Lindarbæ.
í Þjóðviljanum í dag er meðal
annars sagt frá Marmara Guð-
mundar Kambans, sem frum-
sýndur verður í kvöld á aldaraf-
mæli skáldsins, kynnt sýning
listmálarans Hodgkins í FÍM-
salnum, Sigurður Þór Guðjóns-
son fjallar um Sálumessu Pender-
eckis og Tómas R. Einarsson um
tónleika Stefáns Grappellis í fyrr-
akvöld.
Sjá síður 7-9
Blaðamenn á Helgarpósti
gengu út af vinnustað sínum í gær
með uppsagnarbréf í höndunum
og er afar tvísýnt hvort blaðið
kemur út á ný.
Sjá síðu 2