Þjóðviljinn - 08.06.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.06.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR Samningar á Akureyri Túlkaðir framhjá lögum Bœjarstjórn samþykkir Einingarsamninga, túlkarþá innan ramma laganna. Yngvi Kjartansson: Skollaleikur að samningarnir séu lög- legir Afundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær voru samþykktir nýgerðir kjarasamningar við Einingu og hjúkrunarfólk, en segja bæjarfulltrúar úr ríkis- stjórnarflokkunum túlka þá í samræmi við bráðabirgðalög stjórnarinnar. Yngvi Kjartansson átti sæti í kjarasamninganefnd Akureyrar- bæjar fyrir Alþýðubandalagið og samþykkti hafa samninginn þrátt fyrir bráðabirgðalögin. Þegar samningarnir komu síðan fyrir bæjarráð samþykkti Sigríður Stefánsdóttir fulltrúi Alþýðu- bandalags samningana með sama fyrirvara. Á fundi bæjarstjórnar í gær sagði Sigríður að meirihlutinn réðist ekki í lítið þegar hann túlk- aði lög sem forsætisráðherrann sjálfur treysti sér ekki til að túlka. Yngvi sagði við Þjóðviljann að hann teldi samningana við hjúkr- unarfólk og við Einingu tvímæla- laust brjóta gegn bráðabirgðalög- unum. Þegar lögin voru sett hafi legið fyrir samþykktur samningur við ófaglærða og aðeins eftir að skrifa undir samninginn hjá ræst- ingarfólki, en hinsvegar segir Yngvi að ekkert slíkt hafi legið fyrir hjá verkamönnum og sorp- hreinsunarmönnum. Yngvi lagði áherslu á að auðvitað styddi hann þessa kjara- samninga, það væri hins vegar skollaleikur að halda því fram að þau brytu ekki gegn bráðabirgða- lögunum. „Það er verið að brjóta þau um allt land sem sýnir best hvað þetta eru vond lög,“ sagði Yngvi. -hmp Betri heilsa Allir út að hlaupa r Ahádegi á laugardag ræsir heilbrigðisráðherra keppend- ur í nýju langhlaupi, heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins þarsem öllum er heimil þátttaka, dregið verður um verðlaunin og mark- miðið er að vera með. - Þetta er framlag Krabbam- einsfélagsins til að stuðla að heilsuvernd og hollari lífsmáta, sagði Ólafur Þorsteinsson fram- kvæmdarstjóri K.í. Hlaupið byrjar og endar fyrir utan hús félagsins að Skógarhlíð 6, og skráning fer fram á sama stað frammá laugardag. Þátt- tökugjald er 300 krónur og inni- falinn sérstakur hlaupabolur. «Þ Kynjadýr Óþekkt dýrategund Hugsanlega áður óþekkt rœkjutegund. Veiddist djúpt út af Kolbeinsey Sérkennilegur fiskur fannst þegar var verið að vinna rækj- uafla frá Þórshamri GK 75 á Ár- skósandi. Helst lítur út fyrir að hér sé á ferðinni ný rækjutegund. „Rækjan“ er mun rauðari en venjuleg rækja og fannst aðeins eitt stykki af henni í aflanum. Pétur Geir Helgason fram- kvæmdastjóri Árvers á Ár- skógssandi hefur verið viðloð- andi rækju í um 25 ár og sagðist aldrei áður hafa séð svona kvik- indi. „Ég er með myndir af um 50 þekktum rækjutegundum og þessi er ekki þar á rneðal," sagði, Pétur. „Rækjan“ er úr afla sem fékkst mjög djúpt út af Kolbeinsey, umþb. 300 föðmum, sem er tal- svert meira dýpi en venjulega er togað á. Því er hugsanlegt að þetta sé rækjutegund sem lifir á meira dýpi en önnur rækja. Pétur sagði fiskinn í dýrinu líkjast mjög venjulegri rækju en hann væri hlutfallslega stærri. Þá hefur „rækjan" færri lappir en gengur og gerist og enga fálmara. Það furðulegasta við dýrið er að hausinn er innundir skelinni. Pét- ur vissi ekki hvort dýrið gæti dregið hausinn inn og sett hann út. -hmp Hér sést kynjarækjan við hlið venjulegrar rækju. Hún sýnist hauslaus en hausinn er undir skelinni. Fiskeldi Fiskirannsóknir Trollýsa í rannsókn Við ætlum að gera tilraunir á ýsunni og reyna að finna út hvernig henni reiðir af eftir smug í gegnum trollmöskva, sagði Ein- ar Jónsson, fiskifræðingur, en til- raunir með ýsu í kerjum munu hefjast í sumar í hinni nýju til- 'raunastöð Hafrannsóknastofnun- ar í Grindavík. Sjómenn hafa lengi kvartað yfir því hve riðillinn er stór í botnvörpunni og jafnframt bent á að alltaf sleppi töluvert af ýsunni, sem sé meira og minna dauð eftir að hafa smogið í gegnum riðilinn. - Fáist þetta staðfest, má segja að forsendur fyrir reglum um nú- verandi möskvastærð séu brostnar. Þess ber þó að gæta, að þó rétt kunni að vera að taka alla þá ýsu sem í trollið kemur, fljóta ýmsar aðrar tegundir með. Einar sagði að hugmyndin þeirra Hafrannsóknamanna væri að setja þorsk og ýsu, sem veiddust samtímis, í ker og at- huga hvor tegundin lifði betur af hnjaskið eftir trollið. - Það er ekki víst að við fáum sömu niðurstöður út úr þessum athugunum og reyndin er í eðli- legu umhverfi. Mér vitanlega hefur þetta ekki verið reynt áður með þessum hætti. Þess má þó geta að Skotar eru að gera rann- sóknir með ýsu úti á sjó, en það eru miklu dýrari og umfangsmeiri athuganir, sagði Einar. -rk Fiskeldismenn vilja meira Nefnd fímm ráðuneyta sem hef- ur haft erfíðleikana í fískeldi til umræðu skilaði greinargerð til ríkisstjórnarinnar í gær. Ákveðið hefur verið að 800 milljónir verði settar til að tryggja eldi á þeim 7 milljón umframseiðum sem til eru í landinu. Hefur Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra lagt til að 300 milljónir komi til á þessu ári og 500 milljónir á því næsta. Friðrik Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva sagðist fagna því Eldi á umframseiðum tryggtfram á nœsta ár. 800 milljónir og nœsta. Friðrik Sigurðsson: Skiptingin milli ára að 800 milljónir fengjust til að slæma samkeppnisaðstöðu fisk- tryggja eldi umframseiðanna. eldis á íslandi. Hér á landi væru Hann væri hins vegar ekki sáttur engar opinberar ábyrgðir á við skiptinguna á milli ára, betra rekstrarlánum en þær séu allt frá hefði verið að 500 milljónir kæmu 50% í Skotlandi upp í 90% í Fær- til á þessu ári en 300 á því næsta. Friðrik sagði að rekstrarvandi fiskeldisstöðvanna stæði eftir óleystur. í greinargerð ráðu- neytanna er lagt til að sérstök út- tekt verði gerð á samkeppnisað- stöðu greinarinnar. Taldi Friðrik að slík úttekt myndi ieiða í ljós Fiskmarkaður Norðurlands Geymdur í skúffu Fyrrum framkvœmdastjóri: Tilraunin misheppnaðist ekki. Markað urinn náði aldrei að byrja Á aðalfundi fiskmarkaðarins Það er mikill misskilningur að starfsemi fiskmarkaðarins hafi misheppnast eins og haldið hefur verið fram. Staðreyndin er hins vegar sú að starfsemi hans komst aldrei upp úr startholun- um til að umbreyta þeim staðar- viðhorfum sem hér ríkja meðal fiskvinnslu og útgerðar um að það borgi sig að kaupa og selja fisk eftir þörfum hverju sinni, sagði Sigurður P. Sigmundsson fyrrum framkvæmdastjóri Fisk- markaðar Norðurlands við Þjóð- viljann. sem nýlega var haldinn var ákveðið að leggja markaðinn formlega niður í bili og gera hann upp en hann hóf starfsemi sína sl. haust. Á þessu tímabili Seldi markaðurinn tæplega 600 tonn af fiski. Skuldir hans nema um 3 milljónum króna og verður reynt að selja eignir hans og telja norð- anmenn það gott ef tekst að sleppa á sléttu þegar öll kurl verða komin til grafar. Sigurður sagði það vissulega á þessu ári röng sér fyrir breyttri afstöðu þeirra,“ sagði Friðrik. -hmp eyjum. Þá benti Friðrik á að Lands- bankinn og Búnaðarbankinn væru þeir bankar sem helst veittu afurðalán til fiskeldis. Þau væru helmingi lægri en í fiskvinnslu og nauðsynlegt væri að að leiðrétta það. „Þar sem þetta eru ríkis- bankar hlýtur ríkið að geta beitt vera nokkur vonbrigði hve áhugi stærstu hluthafa markaðarins var lítill fyrir viðskiptum við hann. Um orsökina fyrir þessum litla áhuga sagði Sigurður ekki svo gott segja hver hún væri en benti á að tengslin á milli vinnslu og útgerðar væru mikil nyrðra og staðarmenn þar væru jafnvel hræddir við fiskverðið sem réðist af framboði og eftirspurn á frjáls- um markaði. -grh 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 8. júní 1988 Slippstöðin Umræðu frestað Afundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gærkvöld var ekki rætt hvort bærinn ætti að nýta for- kaupsrétt sinn við sölu hlutabréfa ríkisins í Slippstöðinni hf. á Ak- ureyri, og virðist málið orðið feimnismál hjá Sjálfstæðis- og AI- þýðuflokksmönnum í meirihluta bæjarstjórnar. Málið kemur varla til kasta bæjarstjórnarfundar fyrr en 21. júní, en verður væntanlega tekið upp á næsta bæjarráðsfundi. Bæjarfulltrúar Alþýðubanda- lags og Framsóknarflokks eru eindregið á móti sölu ríkisins á sínum eignarhlut sem og starfs- menn Slippstöðvarinnar sem hafa ályktað þar um mjög harð- lega og telja þeir atvinnuöryggi sínu ógnað verði einkaaðilum fært fyrirtækið. -grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.