Þjóðviljinn - 08.06.1988, Qupperneq 15
IÞROTTIR
Fótbolti
Guðrún
með
fjögur
Létt hjá Skallagrími
Einn leikur var í 1. deild
kvenna í gærkvöld. KR og Fram
áttust við á KR velli og sigruðu
KR stúlkur með fjórum mörkum
gegn einu. Guðrún Jóna Kristins-
dóttir var í aðalhlutverki hjá KR-
ingum og gerði öll mörkin.
Kristín Þorleifsdóttir minnkaði
muninn fyrir Fram úr víti, en
staðan í hálfleik var 2-0.
í>á var leikið í 4. deild karla þar
sem Skallagrímur úr Borgarnesi
heimsótti Létti á Gervigrasið.
Borgnesingar voru mun ákveðn-
ari í leiknum og sigruðu 5-1 eftir
að staðan hafði verið 3-0 í hálf-
leik. Jón Þór Þórisson og Hafþór
Hallsson skoruðu tvö mörk hvor
og Ólafur Helgason það fimmta
fyrir Skallagrím, en Einar Birgis-
son svaraði fyrir Létti.
-þóm
Og þetta líka...
Gunnar Örn Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar, Youri Sedov þjálfari meistaraflokks og Jóhann Óli Guðmundsson formaður
félagsins lofa völlinn.
1. deild
Guðmundur
Steinsson er mikill markaskorari eins
og flestir vita. En merkilegast þykir þó
hversu jafn skorari hann er eins og
sést ef ferill hans er skoðaður nánar.
Þrjú ár í röð, eða árin 1984-86,
skoraði kappinn 10 mörk í 1. deildinni
á hverju ári. Árangurinn dugði honum
til að hljóta Gullskóinn 84 en þann
silfraða næstu tvö árin. í fyrra lék
hann síðan aðeins hálft keppnistíma-
bilið og skoraði því að sjálfsögðu 5
mörk. Nú hefur Guðmundur þegar
gert 4 mörk og á því 6 eftir til að fylla
upp í kvótann.
Gervigrasið
í Laugardalnum er í hæsta máta
hættulegt og það hafa margir íþrótta-
mennirnir fengið að reyna. Benjamín
Sigursteinsson, Ieikmaður4. deildar-
liðs Skotfélags Reykjavíkur, fékk að
kenna á „mottunni" á dögunum þeg-
ar lið hans lék við Árvakur í Mjólkur-
bikarnum. Pilturinn var á hlaupum og
enginn mótherji sjáanlegur þegar
hann skyndilega féll við og lá kylliflat-
ur. Benjamín var fluttur á slysadeild
og í Ijós kom að hann vartvíbrotinn og
klæðist því gifsi þessa dagana. Ár-
vakur vann leikinn...
Zico
er enn að skora mörk og nú síðast í
fjögurra liða móti sem lauk í Tókýó í
gær. Lið hans, Flamengo, tók þá þátt
í stuttu móti ásamt Bayer Leverkusen
og landsliðum Japan og Kína. Til úr-
slita léku Flamengo og Leverkusen,
sem eru nýkrýndir Evrópumeistarar
félagsliða. Brassarnir sigruðu með
marki Zicos en Kínverjar urðu í þriðja
sæti og gestgjafarnir ráku lestina.
Zico er því greinilega velgóður enn.
Tennis
Ivan Lendl skaut boltanum í netið,
skokkaði síðan til Svíans Svenssons,
tók í höndina á honum og þakkaði
fyrir leikinn áður en hann reif af sér
skyrtuna og yfirgaf völlinn mjög dapur
í bragði. Hann er þar með úr leik í
Opna franska tennismótinu en það
hefur ekki gerst síðan 1985 að hann
lendi ekki í einhverjum úrslitum.
„Þéttur og sléttur“
Víkingar taka nýja grasvöllinn í Fossvoginum í notkun
Fyrsti opinberi leikurinn á nýja
grasvellinum í Fossvogi verður
gegn Leiftri í kvöld. Tennisvell-
irnir þar eru þegar tilbúnir og
framkvæmdir við nýtt félags-
heimili eru á fullum dampi.
Völlurinn hefur verið lengi í
vinnslu og hann var tilbúinn fyrir
tveimur árum en þótti ekki tilbú-
inn fyrir átökin. Þegar hafa verið
spilaðir tveir prufuleikir á grasinu
og hefur völlurinn komið vel út.
Ekki hefur þó verið spilað í rign-
ingu og eru menn smeykir við það
þar sem völlurinn er hannaður
Fótbolti
Línur að skýrast
Fjórir leikir í 1. deildinni í kvöld
Fjórða umferð 1. deildarinnar
hefst í kvöld. Aðeins einn leikur
verður í Reykjavík, en aðrir
leikir fara fram í Keflavík, Húsa-
vík og á Akureyri.
Víkingar leika sinn fyrsta leik á
nýjum heimavelli þeirra í Foss-
voginum. Þeir fá Ólafsfjarðarlið-
ið Leiftur í heimsókn en bæði lið-
in voru í 2. deild í fyrra. Leiftur
hefur komið nokkuð á óvart í ár
en liðið hefur enn ekki tapað leik.
Að vísu hafa þeir ekki unnið leik
heldur og að auki ber að gæta að
þeir hafa aðeins leikið á heima-
velli.
Víkingar ætluðu sér stóra hluti
í sumar en leikur þeirra hefur far-
ið stigversnandi ef eitthvað er.
Þeir byrjuðu á að gera jafntefli
við KR en töpuðu síðan fyrir KA
og nú síðast Fram í hræðilegum
leik af þeirra hálfu. Júrí Sedov
þarf greinilega að laga ýmislegt
hjá liðinu og koma Víkingar ef-
laust galvaskir til leiks á völlinn
við Traðarland.
Völsungar frá Húsavík taka á
móti fslandsmeisturum Vals en
hvorugu liðinu hefur gengið sem
skyldi það sem af er. Valsmenn
hafa aðeins hlotið eitt stig en lið-
inu var spáð ágætu gengi í sumar.
Þeir hafa enn ekki náð að skora
og hljóta því að setja allt á fullt í
leiknum á Húsavík. Völsungum
hefur gengið enn verr en þeir
verma nú botn deildarinnar með
ekkert stig. Liðin léku síðasta
leikinn í deildinni í fyrra og þá
skildu þau jöfn, 0-0, en það dugði
Völsungum einmitt til að hanga
uppi eins og menn muna.
Þórsarar eru einnig neðarlega,
hafa hlotið eitt stig, en eiga þó
einn leik til góða. Þeir fá Skaga-
menn í heimsókn og verður það
eflaust hörkuviðureign. Akur-
nesingar byrja mótið ágætlega,
eru í þriðja sæti með sjö stig, og
virðast ætla að halda sig við topp-
inn eina ferðina enn. Bæði liðin
leika örugglega til sigurs því ekk-
ert lið hefur efni á öðru.
Fjórði leikurinn í kvöld verður
svo leikur Keflavíkur og Fram í
Keflavík. Framarar eru í toppsæti
deildarinnar og hafa enn ekki
tapað stigi. Þeir léku öldungis vel
gegn Víkingum nú á sunnudaginn
og haldi þeir áfram á sömu braut
verður ekki að sökum að spyrja.
Keflvíkingar hafa á sterku liði að
skipa þrátt fyrir að stigin séu ekki
fleiri en þrjú. Þeir hafa verið
nokkuð óheppnir og munu vafa-
laust veita Frömurum skráveifu.
Þá er rétt að minna á síðasta
leik 4. umferðar en það er leikur
KR og KA í Frostaskjólinu á
morgun.
-þóm
Frjálsar
Góður árangur hjá Guðmundi
Fimmti besti tími íslendings íl500m frá upphafi
Guðmundur Sigurðsson, milli-
vegalengdarhlaupari, náði
fimmta besta árangri íslendings í
1500m hlaupi á Bislet-leikvangin-
um í Ósló. Hann hljóp á 3.50,34
mínútum og varð fimmti í
hlaupinu.
Mjótt var á munum á fyrstu
hlaupurunum og fylgdi Guð-
mundur fast á hæla sigurvegara
hlaupsins. Hlaupið var liður í
keppnisför Guðmundar og
Hannesar Hrafnkelssonar um
Noreg og keppa þeir í Bergen um
næstu helgi. Hannes hljóp 1500
metrana á 3.58,47 og er í stöðugri
framför.
íslandsmet Jóns Diðrikssonar
hljóðar upp á 3.41,65 en aðrir
sem hlaupið hafa á betri tíma en
Guðmundur eru Ágúst Ásgeirs-
son, Brynjólfur Hilmarsson og
Svavar Markússon.
-þóm
eftir nýrri forskrift og engin
reynsla komin á grasið í þeim efn-
um.
Grassvæðið sjálft er 130 fer-
metrar og völlurinn sjálfur
105x75 metrar. Búningsaðstaða
er í Bjarkarási og Lækjarási en
þar er einnig að finna bílastæði.
Víkingar hafa notið mikils vel-
vilja Styrktarfélags vangefinna
sem rekur þessar stofnanir, sem
sést best á láni á búningsaðstöðu
og stæðum en það er að sjálf-
sögðu aðeins til bráðabirgða því
nýtt félagsheimili er í smíðum og
verður tilbúið í haust.
Húsið
Það hús er 2100 fermetrar og er
ekkert slor. í því verða búnings-
klefar, litlir íþróttasalir, veitinga-
sala, gufubað, svo að sumt sé tal-
ið. Einnig verður likamsræktar-
stöð og djassballettsalur en fyrir-
hugað er að ganga til samstarfs
við einhverjar stofur um að reka
þá sali. Að sjálfsögðu verður
greiður aðgangur fyrir fatlaða um
allt húsið. Tennisfólk fær einnig
búningsaðstöðu í húsinu en vell-
irnir eru þegar tilbúnir. Tennis-
klúbbur hefur verið stofnaður og
eru meðlimir nú á þriðja hundr-
að. Fyrirhugað er að stofna
trimmhóp sem mun fá aðstöðu í
húsinu.
Enn á eftir að byggja íþrótta-
hús og framtíðarkeppnisvöll því
völlurinn sem verður tekinn í
notkun í kvöld er hugsaður sem
æfingasvæði í framtíðinni. Enn-
fremur verður reist stúka við að-
aivöllinn og í íþróttahúsinu veður
stúka. Svæðið í framtíðinn verður
því um 300 fermetrar en þó að
það sé sæmilega inikið er það
ekki nóg. Ekkert pláss er fyrir
malarvöll og fleira og því verður
Hæðargarðssvæðið ennþá í notk-
un.
Leikurinn við Leiftur hefst
kl.20.00. Áður mun lúðrasveit
leika nokkur lög og séra Ólafur
Skúlason, sem oft hefur verið
kallaður félagsprestur, mun
blessa völlinn.
-ste
Miðvikudagur 8. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15