Þjóðviljinn - 14.06.1988, Blaðsíða 10
í DAG
Á morgun
Það kannast allir við orðatiltækið
„ámorgunsegirsá lati“. Flestir
hafa heyrt þessi orð af vörum for-
eldra sinna sem beita orðatiltæk-
inu við að rota öll rök fyrir frestun
heimanámsins. Þáersástrákur
varla til sem ekki ætlar að taka til í
herberginu sínu á morgun. Þeir
sem löguðu til í gær eiga annað-
hvort afmæli í dag eða hefur verið
mútað með einhverjum hætti.
íslendingar eru sá þjóðflokkur
sem öðrum fremur lifir lífinu mjög
takmarkað í dag - í lífi íslendinga
á allt að gerast á morgun. Ekki er
Ijóst hvort þetta stafar af leti. En
ef svo er þá er það leti af einhvers
konar heimspekilegum toga-
lífsleti eða leti til vitsmunalegs
lífs. (slendingareru nefnilega
mjög iðnir í sinni leti og eru upp-
teknir frá morgni til kvölds við að
undirbúa morgundaginn.
Það skiptir ekki nokkru máli
hvort íslendingar eru á háum eða
lágum launum, þeireru allirjafn-
latir í þessum skilningi. Lág-
launamaðurinn hefur engan tíma
til að lifa lífinu í dag. Hann hefur
ekki umráðarétt yfir nema litlum
hluta af klukkustundum daganna
og þær fáu stundir sem hann hef-
ur út af fyrir sig fara í hvíld. Fjöl-
skyldan hittist dauðþreytt að
kvöldi og hinn langþráði morg-
undagur, þegarlífinu skal lifað,
kemuraldrei.
Svo eru það þeir íslendingar
sem ekki þurfa að eyða meiri-
hluta síns tíma í brauðstrit. Þeir
eru einnig uppteknir af morgun-
deginum. Þeir hafa varla lokið við
að greiða myndbandstækið þeg-
ar algerlega nauðsynlegt verður
að kaupa af ruglara eða örbylgju-
ofn eða bara eitthvað sem nág-
ranninn hefurkeypt og þal. gert
lífsnauðsynlegt. Hvortsem menn
eru efnaðir eða ekki snúast allir
dagar um að standa undirein-
hverjum fjárfestingum
Vissulega erfólki gert miserfitt
að ástunda lífið í dag í stað þess
að f resta þvi til morguns. Marx
gamli kallaði þetta firringu og
skipti engu máli í hvaða stétt
menn voru; verkamaðurinn og
kapítalistinn voru báðir jafnfirrtir.
Ef spámenn um framhaldslíf
hafa rétt fyrir sér er hinn staður-
inn troðfullur af íslendingum sem
naga sig í handarbökin yfir því að
hafa eytt lífdögunum sínum á
bið -stofu morgundagsins.
Heimir
í dag er
14. júní, þriðjudagur í áttundu
viku sumars, tuttugasti og fimmti
dagurskerplu, 166.dagurársins.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
2.57 en sest kl. 24.00. Nýtt tungl.
Viðburðir
Nót, sveinafélag netagerðar-
manna, stofnað 1938.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
„Við munum berjast þar til yfir
lýkur." íslendingur lýsir lífinu á
Austurvígstöðvunum á Spáni.
Kafli úr bréfi frá félaga Hallgrími
Hallgrímssyni, sergent í spánska
lýðveldishernum.
UM UTVARP & SJONVARP
Út í auðnina
Sjónvarpið kl. 21.40
Sjónvarpið sýnir í kvöld fyrsta
þáttinn af fjórum í áströlskum
myndaflokki sem fengið hefur
nafnið Út í auðnina.
Verðmætri hálsfesti er rænt og
verða þjófanir tveimur mönnum
að bana. Þeir leggja á flótta og
taka unga hjúkrunarkonu sem
gísl. Leið liggur um auðnir Ást-
ralíu og verður flóttinn að baráttu
upp á líf og dauða.
Þættir þessir byggja á sögu
Evans Green.
Guðrún Gísladóttir fer með hlutverk blaðakonunnar.
Síðkvöld í blokk
I kvöld fáum við að fylgjast með ungrí
hjúkrunarkonur sem tekin er sem gísl
og farið með út í auðn Ástralíu.
Rás 1. kl.22.30
(kvöld verður endurflutt leikrit-
ið „Blokk“ eftir Jónas Jónasson í
leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur.
Leikritið gerist síðla kvölds í
blokkaríbúð blaðakonunnar
Evu, sem er að reyna að berja
saman viðtal við þekkta fjöl-
miðlakonu. Það veitist henni þó
ekki auðvelt, því ýmsir knýja
dyra, og sjálf er hún ekki alls
kostar sátt við það sem hún er að
gera. Tónn verksins er í senn
kaldhæðinn og hlýlegur og er
yfirborðsmennsku fjölmiðla-
heimsins þarna teflt gegnt ein-
manaleika stórborgarbúans í leit
hans að félagsskap og lífsfyllingu.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Það erannaðhvort
tilviljun eða
óþverraskapur og mér
finnst hvort tveggja
jafn hræðilegt.
Þokkalegt
umræðuefni,
nótt eftir
nótt!
FOLDA
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 14. júní 1988